Þjóðviljinn - 07.07.1964, Blaðsíða 10
10 SlÐA
spýtti nafninu útúr sér, eins og
hann fengi óbragð í munninn
af þvi. — Þrjóturinn sá.
— Það er furðulegt, sagði
Jack. Sugarman hafði skrifað
þrjú eða fjögur ágæt leikrit
síðustu fimmtán árin, en það
bólaði hvergi á hæfileikum hans
í því, sem Jack hafði lesið kvöld-
ið áður eða því sem hann hafði
séð um morguninn.
— Hann var hér í 3 mánuði,
sagði Delaney ásakandi, og
fór á öll söfnin og sat á kaffi-
húsum með öllum þessum for-
drukknu og skítugu málurum
og rithöfundum sem borgin
héma morar af og hann sagði
hverjum sem vera vildi að ég
væri hálfvitlaus aumingi og hon-
am dytti. ekki í rug að skrifa
línu sem ég gæti kvikmyndað
eftir, og það endaði með Því, að
ég þurfti að skrifa það allt upp
áftur. Rithöfundar! þeir eru all-
ir eins. Þú mátt eiga Sugarman
fyrir mér.
— Nú, 'jæja, sagði Jack. Frá
þvi að Delaney fór að ganga
vel, hafði hann orðið óvinur
allra þeirra rithöfunda, sem
hann hafði unnið með og hafði
loks farið inn á þá braut að
umsemja handritin. Hann hafði
það orð á sér í Hollywood að
hann hefði skrifað sig niður í
skítinn, og kvikmyndaframleið-
endur sem höfðu hug á að ráða
hann, voru farnir að segja við
umboðsmann hans „Ég vildi
gjaman fá hann, ef ég gæti rifið
af honum blýantinn“. En tii
þessa hafði engum tekizt að rífa
af honum blýantinn.
— Það er ekki búið að klippa
hana enn, sagði Delaney og
bandaði í átt að tjaldinu, — en
ég skal koma skilsmynd á hana.
Ef ég dey ekki áður úr ítalskri
beiskju. Hann reis á fætur.
— Heyrðu mig, Jack. Þú ættir
að verða hér eftir og horfa á
myndina nokkrum sinnum og
venjast henni. Kanski gætirðu
svo lesið handritið yfir aftur í
dag. Svo byrjum við að tala inn
í fyrramálið klukkan hálfátta.
— Ágætt.
— Ég ákvað fyrir þig stefnu-
mót við Despiére, sagði Delaney
og setti upp sólgleraugun. — Hjá
Doney. Tíu mínútur fyrir eitt.
Hann langar til að pumpa þig
eitthvað fyrir greinina sina.
Eitthvað um æskusigra mína.
Delaney brosti út í annað munn-
HÁRGREIÐSLAN
HárgreiSslu og
snyrtistofa STEINU og DÖDÓ
Laugavegi 18. III, h. (lyfta)
SÍMI 24616.
P E R M A Garðsenda 21
SlMI: 33968. Hárgreiðslu- og
snyrtistofa.
Dömur! Hárgreiðsla við
allra hæfi,
T J ARN ARSTOFAN
Tjamargötu 10 — Vonarstræt-
ismegin — SÍMI: 14662
HÁRGREIÐSLUSTOFA
AUSTURBÆJAR
(Maria Guðmundsdótlir)
Laugavegi 13. — SÍMI. 146
— Nuddstofa á sama stað.
ÞlðÐVILIINN
Þriðjudagur 7. júlí 1964
vikið. — Ljúgðu svolitið að hon-
um, þá ertu vinur í raun.
— Vertu ókvíðinn, sagði Jack.
— Ég skal gera þig að sam-
blandi Stanislavsky og Michel-
angelo.
— Gerðu eins og þér "vnist.
Delaney hló og klappaði Jack á
herðarnar. — Guido bíður eftir
þér úti með bílinn. Og í kvöld
klukkan átta er kokkteilboð.
Hann veit heimilisfangið. Er
annars nokkuð sem ég get gert
fyrir þig?
— Ekki í svipinn.
Delaney klappaði honum aft-
ur á herðamar, föðurlega, vin-
gjamlega. — Við sjáumst í
kvöld, sagði hann. — Jæja,
komdu, Hilda, sagði hann við
ritarann, sem reis strax á fæt-
ur, auðsveip og óspennandi, í
slitinni klæðiskápu og elti hann
út.
Jack dró djúpt andanm, síð-
an leit hann með viðbjóði á
tjaldið og öfundaði Sugarman
af þessum þremur mánuðum á
söfnum og kaffihúsum og und-
gnkomu hans til Ameriku. Nú
ýtti Jack á hnappinn og það
varð dimmt í herberginu og at-
riðin fóru aftur að renna yfir
tjaldið og reyndu að minna á j
harmleik. *
Meðan Jack sat og horfði á
manninn sem hann átti að reyna
að leggja til rödd, var hann að
hugsa um Delaney og samning
hans við Despiére og hann brosti
með sjálfum sér. Það hafði
ekki verið nein tilviljim, það
vissi Jack nú — það hafði ekki
verið af greiðasemi við Jack, já
ekki einu sinni af löngun til að
bæta kvikmyndina sem Delaney
hafði boðið Jack til Rómar, þótt
það hefði sjálfsagt stuðlað að
því líka. Delaney vissi, að Jack
var tryggur vinur og mundi
eftir Delaney frá velmektarár-
um hans, og það vildi hann
gjarnan að kæmi fram í grein
Despiéres. Þrátt fyrir alla sína
auglýsingatækni, hafði Delaney
alltaf verið duglegur og ná-
kvæmur maður. Það var aug-
Ijóst, að það hafði ekki breytzt.
Hann notfærði sér fólk á lip-
urlegan hátt og lét tilviljuninni
lítið eftir. En í gamla daga mátti
blaðamaður hans vegna skrifa
að hann væri fjandinn sjálfur
og tældi kórdrengi, án þess að
Delaney nennti að færa sig úr
stað til að fá manninn til að
breyta einni línu. Og nú, hugs-
aði Jack, aldurinn, mistökin ...
Fímm þúsund dollarar, hugs-
aði Jack og horfði á laglegt,
heimskulegt andlitið á tjaldinu.
Fimm þúsund dollarar.
Despiére sat við eitt af smá-
borðunum fyrir utan Do.ney,
þegar Jack kom gangandi í
hópi ferðamanna, skrifstofufólks,
kvikmyndafólks og fjörlegra
stúlkna á Via Veneto. Hádegis-
sólin var brennheit og nokkrar
klukkustundir fannst öllum sem
Rómaborg væri yndislegur vetr-
ardvalarstaður.
— Seztu, sagði Despiére og
benti á næsta stól, — og njóttu
hins ítalska sólskins. Jack sett-
ist á stólinn og pantaði glas af
vermóð hjá einum hvítklædda
þjóninum, sem tróðst með erfið-
ismunum gegnum manmþröng-
ina með bakka og bolla og sér-
kennilegar flöskur með Campari
og vermóð. — Dottóre, sagði Des-
piére, — ég var hræddur um
þig í gærkvöld. Það var engu
líkara en þú værir að verða
alvarlega veikur.
— Nei, sagði Jack og hugsaði
um nóttina á undan. — Það var
ekkert alvarlegt. Ég var dálítið
þreyttur, annað var það ekki.
—Ertu hraustur maður, Dott-
óre? spurði Despiére.
— Auðvitað, sagði Jack.
12
— Þú ert eins og bjarg, sagði
Despiére. — Það væru alltof
mikil vonbrigði ef maður sem
lítur út eins og þú, reynist
hrjáður af einhverjum sjúkdómi.
Öðru máli gegnir um mig. Hann
hló. — Þegar vísindamennirnir
sjá mig, þjóta þeir aftur inn á
rannsóknarstofur sinar og vinna
dag og nótt til að finna lyf til
að bjarga mér áður en það
verður um seinan. Veiztu það,
að ég hef fengið inngjafir úr
fylgjum kvenna, sem voru ný-
búnar að fæða, og úr göfugustu
likamshlutum ungra manna sem
dóu af slysförum?
— Hvers vegna? Spurði Jack
og trúði honum næstum þvi.
— Til þess að lengja lif mitt,
sagði Despiére léttum rómi og
veifaði karlmanni og Ijóshærðri
konu sem gengu framhjá. —
Finnst þér óeðlilegt að ég hafi
áhuga á að lengja líf mitt?
— Ber það tilætlaðan árang-
ur? spurði Jack.
Despiére yppti öxlum.
__— Lifandi er ég, sagði hann.
Þjónninn kom með glas Jacks
og hellti í það vermóð. Despiére
veifaði tvemur stúlkum með síð
hár og föl andlit, án allra fegr-
unarmeðala, sem gengu framhjá
í matarhléinu. Hann virtist
þekkja helminginn af þvi fólki
sem gekk framhjá borði þeirra
og hann heilsaði öllum á sama
hátt, veifaði letilega með hend-
inni og brosti hlýlega og dálítið
stríðnislega.
— Segðu mér, Dottóre, sagði
Despiére Qg hagræddi sér betur
í stólnum án þess að taka útúr
sér sígarettuna, svo að hann
varð að lygna aftur augunum
vegna reyksins, — segðu mér
hvernig meistaraverk Delaneys
var í morgun?
— Jú, sagði Jack varfærnis-
Iga, — þetta eru ekki annað en
brot ennþá. Það ér alltof snemmt
að dæma um það.
— Þú átt við að það hafi
verið bölvað piss. Delaney virt-
ist vera skemmt.
— Síður en s'-'o, sagði Jaek.
Despiére var vinur hans, en
það var Delaney lika og það var
ástæðulaust að fórna öðrum
vegna hins, bara vegna blaða-
greinar. — Þetta getur vel orð-
ið ágæt kvikmynd.
sagði Despiére.
— Það væri líka eins gott,
— Við hvað áttu með því?
Despiére hafði eitthvert lag á
því í dag að gera Jack órótt.
— Þú veizt það eins vel og
ég, Dottóre, sagði Despiére, — að
vinur okkar Delaney er alveg
að berja nestið. Ein mistök enn
og hann gerir ekki fleiri kvik-
myndir. í Hollywood, í Róm, í
Perú . ..
— Það hef ég enga hugmynd
um, sagði Jack stuttur í spuna.
— Ég les ekki kvikmynda- og
vikublöð.
— Ææ, sagði Despiére hæðn
islega. — Bara ég hefði hæfi-
leika hans til að kalla fram
tryggð hjá vinum mínum.
— Heyrðu mig nú, Jean-Babt-
iste, sagði Jack. — Hvað hef-
urðu hugsað þér að gera með
þessari grein? Slá hann niður?
— Ég? Despiére greip um
hjartastað með geysilegum undr-
unarsvip. — Hef ég lagt í vana
minn að gera slíkt og þvílíkt?
— Þú hefur lagt hitt og þetta
í vana þinn, sagði Jack. — Hvað
hefurðu hugsað þér að segja um
hann?
— Ég er ekki búinn að ákveða
það, sagði Despiére og brosti
stríðnislega. — Ég er ekki ann-
að en veslings heiðarlegur
blaðamaður, sem vinnur i þágu
sannleikans, rétt eins og allir
aðrir veslings heiðarlegir blaða-
menn.
— Hvernig verður greinin?
Despiére yppti öxlum. — Ég
ætla mér ekki að strá rósum
fyrir fætur hans, ef það er það
sem þú heldur Hann hefur ekki
gert almennilega mynd í tíu ár,
það veiztu, þótt hann hagi sér
ennþá eins og hann hefði fund-
ið upp kvikmyndavélina. Má ég
spyrja þig um eitt? Hefur hann
alltaf verið svona?
— Alltaf svona? spurði Jack
og þóttist ekki skilja.
— Þú veizt vel hvað ég á við.
Yfirlætisfullur, þreyttur á öll-
um þessum smáséníum sem hann
er neyddur til að vinna með,
fikinn í smjaður, daufur gagn-
vart gagnrýni, ófær um að hrósa
öðrum fyrir eitt eða neitt, af-
brýðisamur yfir velgengni ann-
arra, reiðubúinn til að sólunda
annarra fjármunum eins og óð-
ur maður og stela annarra
manna feomrm, rétt ellns og
hann hefði einkarétt á að tæla
hverja einustu fríðleiksdrós í
nágrenninu . . .
— Hættu þessu, sagði Jáck.
Ég skil, hvað þú ert að fara
Hann sá sem snöggvast fyrir
sér hvernig andlitið á Delaney
liti út þegar greinin birtist og
hann fengi einhvern til að þýða
hana af frönsku fyrir sig. Hann
varð að ráðleggja Delaney að
forðast Despiére eða breyta
framkqmu sinni við hann. Hann
velti fyrir sér hvað Delaney
hefði gert til að orsaka þessa
reiði, og hann velti líka fyrir
sér hvað hann gæti sjálfur gert
til að bæta fyrir eyðilegging-
una.
Despiére brostl til hans.
— Segðu mér, Dottóre, sagði
hann, — er ég ómerkilegur,
franskur skíthæll?
— f rauninni þekkirðu hann
alls ekki, sagði Jack. — Hann
er alls ekki eins og þú heldur.
Að minnsta kosti ekki nema
nokkrar hliðar á honum. Þær
verstu.
— Ágætt, Jaek, sagði Despi-
ére. — Ég hlusta. Segðu mér þá
eitthvað um betri hliðar óiþverr-
ans.
Jack hikaði. Hann var þreytt-
ur og var þungur og dasaður
eftir vökunóttina og honum
fannst fólk horfa forvitnislega
á bólgið nefið á honum og dökka
þrotablettinn undir öðru auganu
og hann var ekki í skapi til að
halda uppi vömum fyrir neinn
FERÐIZT
MEÐ
LANDSÝN
© Seljum farseðla með flugvélum og
skipum
Greiðsluskilmálar Loftleiða:
• FLOGIÐ STRAX - FARGJALD
GREITT SÍÐAR
© Skipuleggjum hópferðir og ein-
staklingsferðir
REYNIÐ YIÐSKIPTIN
FERÐASKRIFSTOFAN
LAN □ S V IM ^
TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 465 — REYKJAVÍK.
UMBOÐ LOFTLEIÐA.
VDKDU8
---1 r -Q>----
UjgWCpOEJOtiSStm
VORUR
Kartöflumús — Kokómalt — Kaffi —- Kakó.
KRON - búðirnar.
Lækningastofa mín
er flutt í Landakotsspítalann.
Gengið inn frá Ægisgötu. — Sími og við-
talstími eins og áður.
BJARNI JÓNSSON.
4