Þjóðviljinn - 10.07.1964, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 10.07.1964, Blaðsíða 5
PBstudagur 10. júlí 1964 ÞIÓÐVILJINN SÍÐA g Sundkeppnin í Kaupmannahöfn TRYGGIR GUÐM. GÍSLASON SÉR ÞÁTTTÖKU í OL-LEIKJUNUM? Á sunnudag he'fs’t í Kaupmannahöfn lands- keppni íslands og Danmerkur í sundi. Það eru 16 ár liðin síðan íslendingar háðu síðast land- keppni í sundi. Árið 1948 unnu íslendingar sigur yfir Norðmönnum í sund-landskeppni, og það er eina landskeppni íslands af þessu fagi. um í 25 m. laug hér heima. Þeir Guðmundur Gíslason. Davíð Valgarðsson og Guð- mundur Harðarson taka alhr þátt í þessari keppni í Kaup- mannahöfn á morgun. Meða! keppenda er einnig bezti mað- ur Danmerkur í þessari grein. Lars Kraus Jensen, sem setti Hrafnhildur keppir einnig i 400 m. fjórsundi á morgun, Lágmarksolypíuárangur kvenna í greininni er 5.50,0 mín. Hrafnhildur hefur aðeins einu sinni áður synt þessa vega- lengd í fjórsundi, og synti þá á 6.39,5 mín. Landskeppnin við Norðmenn fór fram í Reykjavík, og Norð- menn hafa enn ekki endur- goldið boðið. 1 landskeppninni við Dani á sunnudag og mánudag kepp- ir aðeins einn frá hvorum að- ila í hverri grein. Keppt verð- ur í 8 einstaklingsgreinum (4 fyrir karla og 4 fyrir konur), og auk þess í 4x100 m. fjór- sundi. bæði karla og kvenna. 1 íslenzka landsliðinu eru: Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Ásta Ágústsdóttir, Matthildur Guðmundsdóttir, Ingunn Guð- mundsdóttir, Guðmundur Gíslason, Árni Kristjánsson (kemur frá Svíþjóð), Davíð Valgarðsson og Guðmundur Harðarson. Fyrri dag keppninnar verð- ur synt í 50 m. langri laug, og verður þá aðeins keppt í 200 m. bringusundi (bæð: kvenna og karla) A mánudag verður keppt í 100 m. skriðsundi (karla og kvenna), 200 m. flugsundi karla, 200 m. baksundi karla, 4x100 m. fjórsundi karla, 100 m. skriðsundi kvenna, 100 m. -----------------------------<?> FH oq ÍBV í kvöld I kvðld keppa Vestmanna- eyingar og FH í 2. deildar- keppninni í knattspyrnu. Leik- urinn fer fram í Hafnarfirði. 1 fyrri umferð unnu Vest- mannaeyingar FH — 3:1, og Eyjamenn hafa unnið alla leiki sína í 2. deild til þessa. Það getur oltið á úrslitum þessa leiks í kvöld hvort Vest- mannaeyingum tekst að tryggja sér sigur í Suðurlandsriðlin- um, og þar með þátttökurétt í úrslitaleiknum urn sigur í 2. deild í ár. Vafalaust verða það Akureyringar sem sigra norð- anlands og mæta sigurvegaran- um í Suðurlandsriðlinum. A og B-lands- lið i kvöld Það er í kvöld kl. 20.30. sem knattspymukappleikur A-lands- liðs og B-landsliðs hefst á Laugardalsveliinum. Skýrt var frá skipan þessara liða á íþróttasíðunni í gær. B- landsliðið ieikur við landslið Færeyinga síðar í þessum mánuði. Mikil forföll voru tilkynnt í B-landsliðinu, eftir að það var valið, og er það naumast ein- leikið hversu margir færast undan að vera í B-liðinu. Eftir þessar bréytingar lítur B-landsliðið þannig út: Gísli Þorkelsson (KR), Sigurður Ein- arsson (Fram), Þorsteinn Frið- þjófsson (Val), Þórður Jóns- son (KR), Bjöm Júlíusson (Val), Matthías Hjartarson (Val). Baldur Scheuúng (Fram), Skúli Ásústsson (ÍBA) fyrirliði, Skúli Hálionarson (lA), Kári Ámason (ÍBA), og Heimann Gunnarsson (Val). Varamenn: Geir ICristjáns- son (Fram), Sigurður Friðriks- son (Fram) og Guðni Jóns- son (iBA). Islenzka sundfólkið, sem fór til Danmerkur í gær, ásamt Erlingi Pálssyni, form. SSI, Solon Sig- urðssyni fararstjóra og Torfa Tómassyni landsþjálfara. Á myndina vantar fjóra landsliðsmenn: Árna Kristjánsson, Davið Valgarðsson, Ingunni Guðmundsdóttur og Auði Guðjónsdóttur. — flugsundi kvenna, 100 m. bak- sundi kvenna og 4x100 m. fjórsundi kvenna. Þennan dag verður keppt í 25 m. langn suhdlaug. Norðurlandamct á morgun? Á morgun verður efht til keppni í 400 m. fjórsundi í 50 m. sundlaug í Kaupmanna- höfn. 1 þessari grein setti Guð- mundur Gíslason ágætt Norð- urlandamet fyrir fáeinum dög- danskt met á vegalengdinni fyrir skömmu — 5.09,8 mín. (í 25 m. laug). Met Guðmund- ar er 5.04,7 mín. Það væri mjög glæsilegt ef Guðmundi tækist að hnekkja þessu meti í 50 m. laug. En þótt það tækist ekki, þá er ekki ólík- legt að hann syndi á skemmri tíma en 5.10,0 mín.. sem er lágiharksárangur til olympíu- þátttöku í þessari grein (verð- ur að nást í 50 m. laug). Síðan til Svíþjóðar Eftir landskeppnina í Kaup- mannahöfn fara fjórir úr hópnum til Svíþjóðar til keppni á sundmótum þar: Guðmundur Gíslason, Hrafn- hildur Guðmundsdóttir, Davíð Valgarðsson og Guðmundur Harðarson. M.a. keppir Davíð í 1500 m. skriðsundi á sænska rrjeistaramótinu. Þrír efnilegir unglingar, sem kcppa í Danmiirku: Gestur Jónsson, Ásta Ágústsdóttir, Matthildur Guðmundsdóttir og Reynir Guðmundsson. — .(Ljósm. Þjóðv. A.K.). Sund 6 fara á Unglinga mót Nor&urlanda 6 íslenzkir unglingar taka þátt í Unglinga- móti Norðurlanda í sundi, sem háð verður í Kaupmannahöfn n.k. miðviku- og fimmtu- dag. Helmingur íslenzku ungling- annað sem keppa á þessu móti, eru í sund-landsliðinu. Hinir þrír fóru með landsliðinu ut- an í gær. Þessir keppa á Unglingamóti Norðurlanda: Davið Valgarðsson (lBK) — 100 skriðsund, 100 m. flugsund cg 400 m. skriðsund. GcstUr Jónsson (SH) — 200 m. bringusund. Reynir Guðmundsson (Á) — 200 m. bringusund. Matthildur Guðmundsdóttir (Á) — 200 m. bringusund. Ingunn GuðmundSdóttir (Self.) — 100 m. skriðsund. Auður Guðjónsdóttir (IBK) — 200 m. bringusund. Trausti Júlíusson (Á) hafði einnig verið valinn til keppni Davíð Valgarðsson. Sigrar hann á unglingamóti Norðurlanda? í skriðsundi og flugsundi á mótinu, en vegna meiðsla get- ur ekki orðið af þátttöku hans. IIIIIIIIIM r SUNDMÓT HÁÐ Á AUSTURLANDI ■ Laugardaginn 27. júní 1964 var Sundmót Auri'ur- lands háð í Sundlaug Eski- fjarðar. Til leiks voru mættir 29 keppendur af 38 skráðum. Seyðfirðingar forfölluðust á síðustu stundu og komust ekki til keppni, annars var þátt- takendafjöldi sem hér segir: Bká Iþr.f. Þrótti, Neskaup- stað 20 alls. Frá Samvirkjafél. Eiðaþing- hár 5 alls. Frá Umf. Leikni, Búðum 4 alls. Samtals 29 Mótið hófst kl. 2.00. Setti mótsstjóri Kristján Ingólfsson það, með nokkrum orðum, en síðan hófst keppni. Þessi urðu úrslit: Karlaflokkur (17 ára og eldri): 50 m. frjáU aðferð: 1. Stefán Þórarinsson, S.E. 8.09,4 mín. 100 m. bringusund: 1. Stefán Þórarinsson, S.E. 1.24.5 mín. 2. Sigurjón Stefánson, Þr. 1.28,9 mín. 50 m. Jfrjáls aðferð: 1. Sigurjón Stefánsson, Þr. 31,8 sek. 2,,, Ulfar Hermannsson, Þr. áé,’l' sek. 3. Ingi Tómas Bjömsson, Þr. 32.7 sek. 50 m. baksund: 1.—2. Helgi Jóhannsson, Þ. 41.7 sek. 1.—2. Ingi Tómas Bjömsson, Þ. 41,7 sek. 3. Birgir Einarsson, Þr. 43.4 sek. 4x35 m. boðsund: 1. A-sveit Þróttar 1.02,1 mín. 2. B-sveit Þróttar 1.10,1 mín. Konur: 500 m. frjáU aðferð: 1. Elínborg Eyþórsdóttir, Þr. 9.03,3 mín. 100 m. bringusund: 1. Svandís Rafnsdóttir, Þr. 1.47.4 mm. 2. Halldóra Axelsdóttrr, Þr 1.49,3 mín. 50 m. frjáls aðferð: 1. Jóna Ólafsdóttir, Þr. 39,9 sek. 2. Elisabet Karlsdóttir, Þr. 40.5 sek. 3. Elínborg Eyþórsdóttir. Þr. 40.6 sek. 50 m. baksund: 1. Elínborg Eyþórsdóttir, Þr. 46.1 sek. Drengir 16 ára og yngri: 500 m. frjáls aðferð: 1. Ingi Kristinn Stefánsson, Þr. 8.53,1 mín. 2. Alfreð Dan Þórarinsson, S.E. 9.04,0 mín. 100 m. bringusund: 1. Ingi Kr. Stefánsson, Þr. 1.34.1 mín. 2. Rögnvaldur Sigurðsson. Þr. 1.41,3 mín. 3. Hólmgeir Hreggviðsson, Þr. 1.41,4 mín. 50 m. baksnnd: 1. Þorsteinn Kristjánsson, Þr 46.6 sek. 50 m. frjáls aðferð: 1. Þorsteinn Kristjánsson, Þr. 36,7 sek. 2. öm Agnarsson. Þr. 37,9 sek. Telpur 16 ára og yngri: 500 m. frjáls aðferð: 1. Svandís Rafnsdóttir, Þr. 9.42,6 mín. 2. Stefania Steindórsdóttir, Þr. 10.01,8 mín. 100 m. bringusund: 1. Stefanía Steindórsdóttir. Þr. 1.45,1 mín. 2. Ólöf St. Ólafsdóttir, Þr. 1.54.5 min. 3. Sveinlaug Þórarinsdóttir, Þr. 1.57,0 fín. Stefanía er aðeins 11 ára gömul. 50 m. frjáls aðferð: 1. Hjálmfríður Jóhannsdótt- ir, Þr. 42,1 se. 2. Guðbjörg Haraldsdóttir, Þr. 46,9 se. 3. Stefanía Steindórsdóttir, Þr. 47,4 sek. Iþróttafélagið Þróttur í Nes- kaupstað sigraði í stigakeppn- inni. hlaut 143 stig. Annað að stigum varð Samvirkjafélag Eiðaþingár, hlaut 16 stig. Þróttur vann nú Frambik- arinn í annað skipti. Var hann gefinn af Kaupfélaginu Fram í Norðfirði, árið 1961, og ■ vinnst til eignar, ef sama fé- lag vinnur hann þrisvar sinn- um í röð. eða fimm sinnum áfís. íþróttafélagið Huginn á Seyðisfirði hefur einnig unnið bikarinn tvisvar. Vmislogt: Eins og fyrr segir var keppt í Sundlaug Eskifjarðar, sem er útilaug 12,5 m. á lengd. 3 brautarbreiddir. 1 þeim grein- um, sem fleiri mættu til leiks, en brautir voru. var keppend- um skipað niður í riðla og tími látinn ráða. Starfsmenn mótsins voru: Le'kstióri: Krist- ján Ingólfsson," yfirdómari: Jón Ólafsson, ræsir: Stefán Þor- leifsson, yfirtímavörður: Matt- hías Ásgeirsson. Grundvall- artala endur- skoðuð Erlingur Pálsson, formaður Sundsambands Islands, hefur skýrt íþróttasíðunni frá því. að líkur séu til þess að grund- völlurinn að útreikningi sigurs í Norrænu sundkeppninni verði tekinn til endurskoðunar fyrir næstu keppni. Erlingur hélt utan með ís- lenzka sund-landsliðinu í gær. Mun hann, ásamt Sólon Sig- urðssyni. fararstjóra íslenzka hópsins, sitja þing Sundsam- bands Norðurlanda í Kaup- mannahöfn. Þar verðar tekin fyrir Nor- ræna sundkeppnin, og er ekki ólíklegt að útreikningsgrund- velli keppninnar verði breytt, þannig að hún verði ekki eins ósanngjörn í garð Islands og verið hefur. Hlutfallsleg þátt- taka í Norrænu sundkeppn- inni er langmest á Islandi, en samt hefur fyrirkomnlag út- reikningsins hindrað íslenzkan sigur, nema í eitt skipti. i J 4 A.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.