Þjóðviljinn - 14.07.1964, Side 3

Þjóðviljinn - 14.07.1964, Side 3
Þriðjuclagur 14. Jtíl! W64 HÓÐVIUDIN aCDA 3 Æðstaráð Sovétríkjanna á fundi: Veruleg hækkun lúgteknu og ellilífeyris, styttri vinnuvika MOSKVU 13/7 — Æðstaráð Sovétríkjanna kom saman á sumarfund sinn í Kreml í dag. tjelzita málið sem fyrir því liggur er framkvæmd á því stefnuskráratriði Kommún- istaflokksins að bæta lífskjörin. Krústjoff forsætisráðherra, sem hélt framsöguræðu á þinginu í dag, skýrði frá ýmsum ráðstöfunum sem miða að hækkun á lægstu launum, aukn- ingu á ellilaunagreiðslum og stytftingu vinnutímans. Maurice Thorez látinn, 64 ára Maurice Thorez, leiðtogi franskra kommúnista undan- farin 34 ár, lézt á laugardagskvöld um borð í farþega- skipinu „Latvia“ sem var á leið (til Jalta í Sovétríkjun- um. Hann varð 64 ára gamall. Krústjoff sagði að Sovétríkin settu sér það takmark í efna- hagsmálum að auka framleiðsl- una um 9—10% árlega. Sagði hann að síðastliðið ár hefði hún aukizt um 9,7%. Þar af væri hlutur iðnaðarins 8,5% Qg hefði stál,- oliu- og gasframleiðsla farið fram úr áætlun. Hann ræddi um kornkaup Sovétríkjanna í fyrra og sagði að hægt hefði verið að láta þau vera, en þá hefði verið nauð- synlegt að takmarka brauð- neyzlu. Hann sagði að fráleitt væri tal borgaralegra gagnrýn- stefndu Sovétrikin að því, að koma sér upp kombirgðum, sem ættu að endast frá hálfu og allt að einu ári. Hann gerði grein fyrir kjara- bótum, sem nú ætti að fram- kvæma. Ein mikilsverðasta til- lagan sem fyrir liggur fjallar um styttingu hámarksvinnutíma úr 41 klst. í 40 og jafnframt verði komið á 5 daga vinnuviku. 18 milj. manns, sem starfa við kennslu, heilsugæzlu, verzlun og í byggingaiðnaði munu hljóta 'aunahækkanir að meðaltali 25% >g fóstrur allt að 40%. Fólk sem enda um kreppu í landbúnaðin- . starfar að kennslu svo og þeir um, þrátt fyrir uppskerubrest í | sem búa og vinna í nyrztu hér- fyrra, vegna óvenjulega óhag- uðum landsins munu fá þessa stæðra náttúruskilyrða. Og nú hækkun í ár, en aðrir starfs- hópar á næsta ári. Lágmarks- laun hækka úr 40 í 45 rúblur. Tekið verður upp nýtt elli- launakerfi, sem á að ná til allra samyrkjubænda og koma í stað eldra kerfis, sem var gloppótt. Karlmenn sem orðnir eru 65 ára og unnið hafa í 25 ár, og konu- ur, sem orðnar eru 60 og hafa unnið í 2o ár fá framvegis elli- laun, sem samsvara allt að helm- ingi tekna þeirra, þó ekki meira en 102 rúblur. Krústjoff taldi að leggja bæri megináherzlu á aukin vörugæði. Hann sagði ag það værí aðeins í þágu borgaralegs þjóðfélags og myndi fæla fólk frá kommún- isma að láta sem hann sé sam- félag sem víki til hliðar þeim hlutum, sem fólk vilji fyrst og fremst. „Alþýðudagblaðið" í Peking: Krústjoff að lífga við kapítafísmann PEKING 13/7 — Eftir nokk- birtist í dag í „Alþýðublaðinn" urt hlé á ádeilugreinum gegn forystu sovézkra kommúnista Flokksþing Repúblikana hafið Thorez var ásamt konu sinni, Jeanette Vermeersch, á leið til orlofsdvalar við Svartahaf. Lík hans var sett á land í hafnar- bænum Varna í Búlgaríu. Hann hafði verið heilsutæp- ur síðan hann fékk hjarta- slag árið 1950 og á flokksþingi franskra kommúnista í maí sl. lét hann af starfi framkvæmda- stjóra flokksins, sem hann hafði gegnt síðan árið 1930. Hann var þá kosinn forseti flokksins í viðurkenningarskyni fyrir það mikla starf sem hann hafði unnið honum. Eftirmaður hans var kosinn Waldeck Roch- et. Thorez var af þeirri kyn- slóð sem hóf stjórnmálaferil sinn upp úr fyrri heimsstyrj- öldinni, að loknum sigri öreiga- byltingarinnar í Rússlandi. Hann var af ættum námu- manna og hóf sjálfur vinnu í kolanámunum tólf ára gamall. 1919 gekk hann í franska sós- íalistaflokkinn. Þegar minni- hluti flokksins klauf sig úr honum á þinginu í Strassburg 1920 og meirihlutinn stofnaði Kommúnistaflokk Prakklands gekk Thorez í hinn nýja flokk og varð þremur árum síðar, 1923, deildarformaður flokksins í Pas-de-Calais. Tveimur árum síðar var hann kosinn í fmm- kvæmdanefnd flokksins og 1930 varð hann aðalframkvæmda- stjóri hans, og gegndi því starfi, eins og áður segir, fram í maí s.l. Hann var einnig kosinn á þing 1930 og alla tíð síðan var hann í fremstu röð franskra stjómmálamanna. Hann átti manna mestan 'þátt í samfylk- ingarstefnunni gegn fasisman- um sem leiddi til myndunar alþýðufylkingarinnar og ríkis- stjómar hennar 1936, sem kommúnistar studdu, enda þótt þeir ættu ekki ráðherra í henni. Sú stjórn markaði tímamót í frönskum stjómmálum, lögfesti 40 stunda vinnuviku, greitt or- lof og ýmsar aðrar mikilvægar kjarabætur sem frönsk alþýða býr enn að. Alþýðufylkingin varð ekki langlíf, enda heims- styrjöldin á næsta leiti. Komm- únistaflokkurinn var þá bann- aður og Thorez varð. ásamt öðrum foringjum hans, að fara huldu höfði. Hann komst und- an til Sovétríkjanna fyrir her- nám nazista og dvaldist þar stríðsárin. Þau ár óx flokknum stórlega fylgi og hann var stærsti flpkk- ur Prakklands að stríði loknu. Thorez varð sjálfur ráðherra í fyrstu stjórn de Gaulle eftir stríð, 1945—46, og síðar vara- forsætisráðherra í stjómum Bi- dault og Ramadier fram tll árs- ins' 1947, þega-r upp úr stjóm- arsamvinnunni slitnaði. Síðan áttu kommúnistar ekki aftur- kvæmt í ríkisstjórn í Prakk- landi. Á ýmsu hefur gengið fyrir flokknum þessi síðustu ár, en hann er þó enn lang- öflugustu stjórnmálasamtök franskrar alþýðu ,og ýmis merki eru þess að nú blási aftur byr- legar fyrir hann en gert hefur um skeið. Goldwater talinn hafa 126 atkvæði yfir meirihluta SAN FRANCISCO 13/7 — Flokksþing Repúblikana var sett í San Francisco í dag, en á því verður úr því skorið hver verði í framboðn fyrir flokkinn í forsetakosningunum í haust. Átökin milli helztu keppinautanna, Scrantons fylkisstjóra og Goldwatters öldungadeildarmanns, hafa enn harðnað síðustu daga, en allt bendir til þess að sá síðar- nefndi muni sigra með yfirburðum þegar í fyrstu at- kvæðagreiðslu um forsetaefnið sem fram fer á miðvikudag. Þegar þingið hófst reiknaðist fylgismönnum Goldwaters svo til að hann hefði fengið loforð um stuðning 84 fleiri fulltrúa en þeirra 655 sem hann þarf að fá til að verða útnefndur. Eftir að þingið hófst lýstu 42 Óeirðir og morð í suðurríkjunum WASHINGTON 13/7 — Það kom til alvarlegra kynþáttaóeirða í smábænum I.akc City í Florida um helgina, þegar hópur blökku- manna reyndi að fá aðgang að þeim hluta kvikmyndahúss bæj- arins, sem eingöngu er ætlaður hvitum mönnum. Að sögn eiganda kvikmynda- hússins, hófust óeirðimar með því, að blökkukona. sem var meinaður aðgangur að þessum hluta hússins ætlaði að neyta réttar síns með hníf á lofti. Samkvæmt nýgerðri mannrétt- indalöggjöf er kynþáttaaðskilnað- ur í kvikmyndahúsum bannað- ur og gerðu blökkumennimir þessa tilraun í trausti nýju lag- anna. í óeirðunum varð ungur hvítur maður fyrir byssukúlu, er, slasaðist ekki alvarlega. A laugardag var blökkumaður, Lemuel A. Penn. iðnskólastjóri í Washington, myrtur i Colbert í Georgíu. Hann var akandi í bíl með fleira fólki á heimleið frá æfingum í varaliðinu, sem hann var ofursti í er laumumorðinginn skaut hann úr bíl sem kom úr andstæðri átt. Johnson forseti hefur skipað ríkislögreglunni FBI að rannsaka morðið. Lítil Baptistakirkja blökku- manna í Mississippi brann til kaldra kola á laugardag. Álitið er að kveikt hafi verið í kirkj- unni. Á sunnudagsmorgun varð lög- reglan f Henderson í Norður- Carolinu að nota táragas til að dreifa u.þ.b. 100 manns hvítum og svörtum, sem höfðu lent í slagsmálum utan við veitingahús í borginni. Veitingahúsið hafði áður aðskilda sali fyrir kynþætt- ina en verður nú að veita blökku- mönnum aðgang 1 báða. Einn svertingi slasaðist alvarlega. far- ið var með 12 kynbræður hans og fjóra hvíta menn á lögreglu- stöðina. en þeim var öllum sleppt skömmu síðar gegn 100 dollara tryggingu. af 58 fulltrúum frá Ohio stuðn- ingi við Goldwater, svo að hann ætti þvi að vera búinn að tryggja sér 781 atkvasði, eða 126 atkvæðum meira en hann þarf. Fyrsta atkvæðagreiðslan um for- setaefnið fer fram á miðviku- dag, og þær verða ekki fleiri ef Goldwater tryggir sér þá þegar meirihluta, eins og nú eru allar horfur á. Von Scranton* Eina von Scrantons er að all- stór hópur þeirra fulltrúa sem þegar hafa heitið Goldwater stuðningi bregðist honum þegar á hólminn kemur. Einn nánasti samstarfsmaður Scrantons. Hugh Scott, sagði í gær að Goldwater gæti ekki reitt sig fullkomlega á stuðning fleiri fulítrúa en 623 í fyrstu atkvæðagreiðslu. Scrant- on myndi fá 348 atkvæði og aðr- ir samtals 337. Scranton myndi sfðan aukast fylgi og fá meiri- hluta í þriðju atkvæðagreiöslu. Tveir þriðju Heldur þykir ótrúlegt að Scranton verði að von sinni. Á það er t.d. bent að tillaga hans um að kveðið yrði fast að orði í stefnuyfirlýsingu flokksþings- ins varðandi réttindamál blökku- manna var felld í dagskrámefnd þingsins með 68 atkvæðum gegn 30, en tveir sátu hjá. Úrslit at- kvæðagreiðslunnar eru talin sýna styrkleikahlutföllin Gold- water í vil. Hörð gagnrýni Eins og við mátti búast er stjórn Demókrata harðlega gagnrýnd í stefnuyfirlýsing- unni, og fara hvorki Kennedy né Johnson varhluta af þeirri gagnrýni. Stjómir þeirra beggja eru sakaðar um linkind við kommúnismann. Þær hafi látið undán"Siga fyrir honum. bæði á Kúbu og í Berlín, en hafi hins vegar stofnað til deilna við helztu bandamenn Bandaríkj- anna, m.a. Frakkland og Bret- land, út af meginatriðum, svo sem kjamavígbúnaði NATO. Grafið hafi verið undan styrk og einingu NATO og SEATO. Stjórnarleiðtogar Demókrata hafi gert sig seka um undanlát- semi gagnvart kommúnistum á alþjóðavettvangi, en heima fyr- ir hafi þeir blásið að glæðum kynþáttahatursins. Bandaríska útvarpsfélagið NBC birti í dag niðurstöður skoðanakönnunar sem leiddi í Ijós að meirihluti fylgismanna Repúblikana myndi greiða John- son forseta atkvæði ef Goldwat- er væri í framboði á móti hon- um. 46 prósent þeirra myndu þá greiða Johnson atkvæði, en að- eins 40 prósent styðja Goldwat- er. Seinna í dag birti bandaríska fréttastofan eftirfarandi niður- stöður könnunar á því hvernig fulltrúamir á flokksþinginu skiptust í upphafi þess: Goldwater 764, Scranton 163. Rockefeller 104, Lodge 45. Margaret Chase Smith 19. 213 fulltrúar höfðu ekki tekið á- kvörðun um hvem þeir myndu styðja. 327 af atkvæðum Gold- waters munu greiða fulltrúar sem ekki eru bundnir lögum samkvæmt að fylgja honum að málum. Fyrsta síldin sölt- uð á Þórshöfn ÞÓRSHÖFN, 12/7 — Fyrsta síldin var söltuð hér á Þórshöfn í gær. Það var Guðbjörg frá Sandgerði sem kom með 1100 mál og tunnur og voru saltaðar 486 tunnur. Orkastinu var ekið til Bakkafjarðar til bræðslu. Síldin var söltuð hjá söltunar- stöðinni Hring, eigandi Daníel Þorsteinsson frá Siglufirði. i Peking harðorð gagnrýni á Krústjoff og félögum hans sem m. a. eru sakaðir um að reyna að endurreisa auðvaldsskipu- Iagið í Sovétríkjunum. „Krústjoff-klfkan“ er sögð hafa afnumið alræði öreiganna, breytt öreigaeðli sovézka kommúnistaflokksms og rutt brautina fyrir endurreisn auð- valdsþjóðfélagsins í Sovétríkj- unum Vísað er á bug þeirri „fáránlegu11 staðhæfingu að stéttaibaráttan sé úr sögunni i Sbvétrik j u n u m. Þar sé komin upp ný burgeisastétt sem sam- anstandi af . úrkynjuðum ein- stakljng^m úr forystu flokks- ins; álniannasamtökum, fyrir- tækjum og ríkisbúum og borg- aralega sinnuðum menntamönn- um. — Endurskoðunarsinnarn- ir í Krústjoff-klfkunni eru pólitískir fulltrúar hinnar sov- ézku burgeisastéttar og þá einkum forréttindahópsins inn- an hennar, segir í greininni. Sagt er að markmið Krústj- offs að leggja grundvöll að kommúnistísku samfélagi í Sov- étríkjunum á tuttugu árum sé fjarstæða. Mao Tsetung hafi sagt að endanlegur sigur sós- íalismans munj ekkj vinnast á tíma einnar eða tveggja kyn- slóða, heldur fremur fimm eða tfu eða enn lengri tíma. Sov- ézk alþýða sé sáróánægð með hlutskipti sitt, arðrán og yfir- gang forréttindastéttarinnar. Á fjórum síðum blaðsins eru birtir útdrættir úr greinum og ræðum sem birzt hafa í Sovét- ríkjunum að undanförnu með árásum á kínverska kommún- ista. Bifresðaárekstur ' Hónavatnssýslu BLÖNDUÓSI í gær — Allharð- ur hifreiðaárekstur varð í dag við Gljúfurá; sem er á mótum Austur- og Vestur-Húnavatns- sýslu. Nokkur meiðsli urðu á mönnum. Tvær litlar bifreiðar, önnur úr Kópavogi en hin úr Reykjavík rákust þarna saman, og skemmdust báðar bifreiðam- ar mikið. önnur þeirra er tal- in alveg óökufær, en hin var dregin burt af slysstaðnum. Læknir kom á staðinn og gerði að meiðslum þeirra, sem í bílunum voru, en síðan voru beir fluttir á hótelið á Blöndu- ósi og munu meiðslin því ekki hafa verið alvarleg. — G. A. 1 i \

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.