Þjóðviljinn - 14.07.1964, Qupperneq 4
4 SIÐA
Ctgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: ívar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19,
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 5 mánuði
Dómur sögunnar
pátí er ömurlegra í íslenzkri blaðamennsku en
það endalausa japl og jaml og fuður sem tíðk-
ast í umræðum um stjórnmál, andlaust pex, útúr-
snúningar og hártoganir. Eru ritstjórar Morgun-
blaðsins sérfræðingar í þessari iðju; það kemur
naumast fyrir að í málgagni þeirra sé fjallað um
þjóðmál af heiðarleik og með skynsamlegum rök-
um. Ekki stafar þetta einvörðungu af því hversu
hægt blóðið þumlungar sig um heilafrumur rit-
stjóranna, heldur er þetta einnig baráttuaðferð
sem beitt er af yfirlögðu ráði. Morgunblaðsmenn
skrifa ekki um þjóðmál í því skyni að vekja fólk
til umhugsunar, ekki til þess að greina vanda-
mál í sundur og skýra þau, heldur er tilgangur
þeirra ævinlega sá að bægja frjálsri hugsun frá
landsmönnum og gera einföld viðfangsefni að ó-
viðráðanlegri flækju. Þeir vilja umfram allt for-
heimska lesendur sína, en takist það ekki reyna
þeir allavegana að gera fólk svo leitt á þjóðmála-
umræðum að flökurleiki verði að skilorðsbundn-
um viðbrögðum ef þau ber á góma. Og á því sviði
hafa stjórnmálarithöfundar Morgunblaðsins sann-
arlega náð mikilli fullkomnun.
J^andhelgismálið er eitt þeirra stórmála sem
þannig hafa verið dregin niður í svaðið. Stækk-
un landhelginnar í 12 mílur 1958 var éinn af stór-
viðburðum íslenzkrar sögu og sameinaði lands-
menn á sjaldgæfan hátt; við öllum blasti sú ein-
falda staðreynd að stækkunin var afleiðing af
einbeittri baráttu Alþýðubandalagsins, og ekki
duldist það heldur neinum hvar undansláttar-
mennina var að finna, þá hugdeigu og ósönnu sem
lutu erlendu ofbeldi. En nú hefur í mörg ár verið
unnið kappsamlega að því af Morgunblaðsmönnum
og öðrum að kaffæra þessar óbrotnu staðreyndir
undir pexi og japli og ósannindum, í þeim tilgangi
að einnig landhelgismálið veki mönnum sömu
ógleðina og önnur þau efni sem Morgunblaðið ein-
beitir sér að. £>að var hressandi að sjá hvernig Er-
Iendur Patursson, fjármálaráðherra Færeyja.
feyk'ti burt þessu moldviðri í afmæliskveðju sem
hann sendi Lúðvík Jósepssyni hér í blaðinu í fyrra-
dag. Erlendur sagði: „Allir íslendingar þekkja
hlut Lúðvíks í landhelgismálum íslands. Um það
skal ég segja það eitt sem mér finnst. Ég þekki
engan annan íslending en einmitt Lúðvík sem á
þessum vettvangi hefur betur fylgt kjörorði for-
setans mikla: „Eigi víkja“. Öll hin djarfa barátta
íslendinga í landhelgismálinu, þar á meðal bar-
átta Lúðvíks á ráðherraárunum 1956—1958 og síð-
ar, t.d. á Genfarráðstefnunni, var okkur sem börð-
umst hér í Færeyjum fyrir stækkun færeyskrar
landhelgi ómefanlegur styrkur. Einnig fyrir þetta
verðskuldar þú, Lúðvík, þakkir allra færeyskra
fiskimanna.“
Jjannig er dómur þess útlendings sem gerst þekk-
ir alla málavexti. Og þessi verður einnig niður
staða framtíðarinnar þegar skrifum Morgunblað^
manna verður búinn staður á ruslahaugum sög-
unnar ocr apr*ír beirra umlykjast miskunnsamri
gleymsku. — m.
—---------þjusmiijiftri-----------------------
Knattspyrna — 1. deild
FRAM VANN ÍA 4:1 í
SÖGULEGUM KAPPLEIK
Einhver sögulegasti knattspyrnukappleikur,
sem háður hefur verið hér á landi, fór fram á
Akranesi s.l. sunnudag. Þar gerðist sá einstæði
atburður að leikmaður var tvívegis sleginn í
völlinn af mótherja meðan á leik s’tóð. Fram
vann þennan leik gegn ÍA — 4:1. <
Á broti sem þessu ber i-
þróttaforustunni að taka harð-
lega og útiloka að slík van-
virða endurtaki sig. Það vek-
ur gremju á Akranesi að mjög
villandi var sagt frá þessum
atburði í kvöldfréttum útvarps-
ins á sunnudag.
Léleg knattspyrna
Þessi kappleikur getur ekki
talist meðal góðra knattspymu-
leikja, — til þess var harkan
of mikil. og sjaldnast sást góð
knattspyrna. Á því hvorugt
liðið heiður skilið fyrir knatt-
spymuna. Akurnesingar áttu
þó meira í leiknum. þrátt fyrir
stórt tap, sem fyrst og fremst
verður að skrifast á reikning
Helga markvarðar.
Sigurinn getur Fram fyrst
og fremst þakkað Guðjóni Jóns-
syni, sem stóð sig mjög vel,
bæði í sókn og vörn, og einn-
ig í markinu, en Guðjón tók
við markvörzlu eftir að Geir
hafði verið vísað af leikvelii
fyrir brotið gegn Ríkarði.
Framarar markheppnír
Veður var sæmilegt til
keppni, þurrt en dálítill vind-
strekkingur á eystra markið.
Fram kaus að léika undan
vindi í fyrri hálfieik. Ekki leið
á löngu þar til fyrsta markið
var skorað ,og Helgi mátt.i
hirða knöttinn úr netinu eftir
mistök. í vörninni.
Ekki leið nema e’n mínúta
þar til Skúli jafnaði leikinn
fyrir Akranes — 1:1.
Þriðja markið kom á 6. mín.,
en þá skoraði Baldur Schewing
fyrir Fram., Einhverntíma
hefði Helgi ekki verið í vand-
ræðum með að verja þetta
skot, og ótvíræður klaufaskap-
ur að missa knöttinn í netið í
þetta sinn.
Eft;r þetta hertu Akumes-
ingar sóknina og fór leikurinn j
nær eingöngu fram á vallar- I
helmingi Fram um hríð. Á 13
mín fengu Akumesingar goít ,
marktækifæri. en m;snotaðist j
Á 15. mín. náði Fram upp- 1
hlaupi. Dæmd var aukaspyrna
á lA fyrir utan vítateigshorn
Guðjón Jónsson spyrnti og
virtist þetta ekki hættulegt
skot, en knöttur nn flaug samt
í rólegheitum í markið, og
skorti mjög á árvekni hjá
Heiga í markinu — 3:1 fyrir
Fram.
Akumesingar harðna við
hverja raun. Þeir haida uppi
látlausri sókn, en fá þó lítið
út úr leik sínum. Framarar
náðu upphlaupum við og við,
en öll voru þau stöðvuð að
þessu sinni. Á 30. mín. á Ey-
leifur gott skot, en knötturinn
smaug framhjá hliðarstöna
Nokkru síðar skaut Donni rétt
fyrir ofan þverslá. Það er
stöðug pressa á Fram, og á
36. mín. bjarga Framarar á
línu.
Leiðindaatvik
Þegar hér var komið sögu
gerðist sá atburður, sem getið '
var um í upphafi. I einni sókn-
arlotunni rakst Ríkarður með i
olnboga á markvörð Fram, op
var dæmd aukaspyma á lA
fyrir brotið Markmaður virð- ;
'st bá hafa verið orðinn mjöp i
slæmur á taugum, því hann
bh'fur knöttinn og kastar hon-
um í andlit Ríkarðs. Mark-1
maðurinn lætur ekki þar við
sitja. heldur slær Ríkarð höf-
uðhðgg, svo hann fellur í völl-
irm. Tæplega var Ríkarður
staðinn upp eftir byltuna, þeg-
ar markmaður greiðir honum
annað högg í andlitið öllu
meira en hið fyrra. Féll Rík-
arður við og lá góða stund í .>
vellinum. |
Varð nú mikil ólga í röð- j
um áhorfenda. Dómarinn vís-
aði markverði Fram af leik-
velli, en nokkrir áhorfendur
þustu inn á völlinn. Fljótlega .
varð þó friður aftur til að
halda áfram leiknum. Voru
Framarar aðeins 10 á vellinum
eftir það. Guðjón Jónsson fór
í markið, og stóð sig með mik-
illi prýði. Hélt hann markinu
hreinu það sem eftir var. Leik-
urinn fór harðnandi eftir þetta,
og fékk á sig le ðindablæ.
Framarar lögðu allt upp úr
vörninni, og tókst þeim vam-
arleikurinn vel. Lauk þann-
ig fyrri hálfleik.
Seinni hálfleikur
Þegar leikur hófst að nýju
eftir hlé, bjuggust flestir við
að Akranesingar myndu jafna
leikinn, enda höfðu þeir nú
undan vindi að sækja, og
Framarar aðeins 10. En það
voru samt Framarar en ekki
ÍBV-Hmikar
2:1
Á sunnudag kepptu Haukar ’
og Vestmannaeyingar i 2. deild
Knattspymumóts íslands. Vest- |
mannaeyingar unnu enn
einn sigur, að þessu sinni —
2:1. í hléi stóðu leikar 2:0.
Leikurinn fór fram í Hafnar-
firði. Dómari var H;nrik Lár-
usson.
Eyjarskeggjar hafa unnið
alia leiki sína í suðurlands-
riðlinum til þessa, og munu j
væntanlega keppa við Akur-
eyr'nga um þátttökuréttinn f
1. deild næsta ár.
Orslit í einstökum keppn:s-
greinum urðu þessi:
100 m. hlaup:
(Meðvindur)
'falbjörn Þorláksson KR 10,7
^eynir Hjartarson (IBA) 11,0
Sture Andersson (YMER) 11,0,
200 m. hlaup:
Valbjöm Þorláksson (KR) 22,4
Sture Anderson (YMER) 22.7
Reynir Hjartarson (ÍBA) 23.1
400 m. blaup:
Skagamenn sem skoruðu eina
markið í þessum hálfleik. Ás-
geir Sigurð.sson fékk langa
sendingu á 6. mín. og skoraði
fallega af alllöngu færi.
Eftir þetta héldu Akumes-
ingar uppi stöðugri sókn, svo
til allan hálfleikinn, en kom
fyrir ekki. Framarar þéttu vörn
sína og létu engan bilbug á
sér finna, þrátt fyrir ofurefl-
ið. Guðjón í markinu varði oft
með mikilli prýði.
A 34. mín. munaði þó litlu
að Framarar settu 5. markið.
Á sunnudagskvöld
var keppt í 200 m.
bringusundi í sund-
landskeppni íslendinga
og Dana í Kaupmanna-
höfn.
1 200 m bringusundi karla
sigráði Daninn Benny Petersen
á 2.46,0 mín. Ámi Þ. Kristjáns-
son synti fyrir hönd Islands og
fékk tímann — 2.53,5 mín.
Hrafnhildur var langt frá
sínu bezta í kvennasundinu, og
náði lélegum tíma — 3.08,2
mín. Vibeke Christiensen sigr-
aði á 3.03,5 mín.
Þar með fengu Danir 10 stig
fyrir fyrstu tvær keppnisgrein-
amar. en íslendingar 6 stig.
Keppt var í 50 metra langri
sundlaug í Bellahöj. Bringu-
sundsfólkinu tókst þannig mjög
illa upp í keppninni, og má
vera að nokkru hafi valdið að
okkar fólk er ekki vant svona
langri laug.
Gott afrek Davíðs
Jafnframt landskeppni Is-
lands og Danmerkur fór fram
unglingalandskeppni milli Norð-
manna og Dana. I þeirri keppni
synti Davíð Valgarðsson sem
gestur í 400 metra skriðsundi.
Davíð synti mjög knálega og
varð annar á 4.45,6 mín. Þetta
Sture Andersson (YMER) 53.2
Ómar Ragnarsson (IR) 533
Lars E. Hallquist (YMER) 55,1.
800 m. hlaup:
Kristle'fur Guðbjörnsson (KR1
2.02,5 mín
Per Dalmann (YMER) 2,03,2
Bror Jonsson (YMER) 2.12.8.
1500 m. hlaup:
Kristl. Guðbjörnss (KR) 4.05,5
Agnar Leví (KR) 4.07.9 mín
Bror Tonsson (YMER) 4.10.5
----Þriðjudagur 14. júli 1964
Framari fékk knöttinn sendan
langt fram á völl, lék upp að
marki 1Á og átti ekki annað
eftir en að skora. En Helgi
hljóp út á réttum tíma og
bjargaði. Þarna slapp Akranes-
liðið vel, og var þetta eina
happið, sem féll þeim í skaut
eftir mörg óhöpp.
Þannig lauk þessum sögu-
lega leik. Akumesingar léku
tvímælalaust betri knatt-
spyrnu og voru mun meira í
sókn en Framarar, en samt
hlaut Fram stóran sigur. Dóm-
ari var Baldur Þórðarson, og
réði hann ekki við hörkuna í
þessum leik.
LiSin
Guðjón var langbezti maður-
inn í liði Fram, en Baldur
Schewing átti einnig góðan
leik. og vömin var yfirleitt
sterk.
Ríkarður og Jón Leósson
vom beztu menn lA, en aft-
asta vömin var mjög slök, eins
og stundum áður. Þ. V.
er bezti árangur Islendings í 50
m. laug. Guðmundur Gísla-
son hafði bezta tímann áður —
4.49,4 mín. I unglingakeppninni
sigraði Norðmaðurinn Ulf Gust-
afsen á 4.38,2 mínútum.
Fjórsundskeppni
Á laugardag tóku fjórir úr
íslenzka hópnum þátt í keppni
í 400 metra einstaklingsfjór-
sundi í Bellahöj-lauginni. Kir-
sten Stranga. sem hér keppti á
Jónasar-mótinu fyrir skömmu,
sigraði á 5.53,1 mínútu. Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir varð
önnur á nýju íslandsmeti —1
6.16,2 mín. Eldra metið átti hún
sjálf — 6.39,5 mínn og var sett
í 25 metra laug. Þetta eru þvj
miklar framfarir hjá Hrafn-
hildi.
I 400 metra fjórsundi karla
sigraði Daninn Lars Kraus
Jensen á ný.iu dönsku meti —
5.13.5 mín. Guðmundur Gísla-
son varð annar á 5.16,1 mín og
Davíð Valgarðsson þriðji á
5.29.6 mín. Guðmundur Harð-
arson varð 8. í þessari keppni.
Tfmi Guðmundar er bezti ár-
angur Islendings í þessari grein
í 50 m. laug. Norðurlandamet
hans. sett fyrir rúmri viku er
5.04,6 mín, sett í 25 metra laug
hér heima. Lágmarksárangur
til olympíuþátttöku er 5,10,0
mín. i 50 metra laug. svo að
Guðmundur er ekki fjarri því
marki.
3000 m. hlaup:
Kristl. Guðbjömss. (KR) 8.42.2
Bror Jonsson (YMER) 8.44,9
Agnar Leví (KR) 8.57,5 múl.
4x100 m. boðhlaup:
Sveit HSÞ 47,0 sek.
Sveit KR 47,2 sek.
Sveit IBA og UMSE 47,8 sek.
1000 m. boðhlaup:
Sveit KR og IR 2.10,3 mín.
Sveit UMSE 2.13,0 mín.
Sveit HSÞ 2.17,7 mín.
Kúluvarp:
Guðm. Hallgrímss (HSÞ) 13,60
Þóroddur Jóhannss (KR) 13,05
Valbjörn Þorláksson (KR) 12.82
Spjótkast:
tralhtam Þorlákss "‘(KR) 53,28
Framhald á 2. síðu.
Frjálsar íþróttir
SÆNSKA ÍÞRÓTTAFÓLKIÐ
KEPPTIÁ AKUREYRI
Á laugardag og sunnudag gekkst íþrótta-
bandalag Akureyrar fyrir frjálsíþróttakeppni þar
nyrðra. Þátttakendur voru úr ýmsum landshlu't-
um, og m.a. kepptu þarna sænsku gestirnir, sem
eru hér á landi á vegum ÍR.
Landskeppnin í Kaupmannahöfn
DANIR SIGRUÐU
í BRINGUSUNDI