Þjóðviljinn - 25.07.1964, Side 3
ta-ugardagör 25. jóH 1964
HOBVnjKN
Ráðherrafundur Ameríkuríkjanna í Washíngton
Mexíkó, Chile, Boiivia og Uruguay
eru á móti refsiaðgerðum gegn Kúbu
WASHINGTON 24/7 — Enda þótt horfur séu á að Banda-
ríkin muni geta knúið fram samþykkt um refsiaðgerðir
gegn Kúbu á ráðherrafundi Ameríkuríkjanna sem nú
stendur yfir í Washington, er greinilegt að mikill ágrein-
ingur er um það mál og hvemig slíkum refsiaðgerðum
skuli háttað. Fjögur hinna sjálfstæðari ríkja rómönsku
Ameríku eru þannig talin munu greiða atkvæði gegn til-
lögunni um refsiaðgerðir.
Búizt er við auknum
aigerium Vietcongs
SAKJON 24/7 — Stjómarvöld
í Saigon óttast nú að þjóðfrels-
Mierúm Vietcong hugsi sér
hreyfings Og ætli aö auha að-
Þessi fjögur riki eru Mexíkó,
Chile, Bolivia og Uruguay, en
fulltrúar 'annarra ríkja eru
einnig sagðir vera andvígir því
að hsett sé öllum viðskiptum
við Kúbu og bannaðar allar
samgöngur við landið. eins og
Bandaríkjastjóm hefur krafizt
og stjóm Venezúela sem átti
frumkvæði að fundinum í Was-
hington hefur lagt til.
Málam iðlunartillaga?
Þannig hefur fulltrúi Argen-
tínu gefið í skyn að hann muni
bera fram málamiðlunartillögu
sem gengur mjög til móts við
tillögu Venezúela, en bannar þó
ekki viðskipti við Kúbu með
öllu. Búizt er við að í tillögu
hans muni gert ráð fyrir að
slíkum viðskiptum megi halda
áfram ef gildar „mannúðar-
ástæður" eru fyrir hendi.
Fiskimenn í USA
sagðir vilja 100
mílna landhelgi
BOSTON 24Z7 — Piskimenn á
austurströnd Bandaríkjanna
munu sennilega fara þess á leit
við stjómina í Washington að
hún færi fiskveiðilögsögu
Bandaríkjanna út í 100 sjómílur.
Samtök þeirra héldu fund í
Boston í gær og var skýrt frá
því að sovézk fiskiskip mokuðu
upp af!a rétt undan ströndum
Bandaríkjanna með nýstárlegufn
veiðiaðferðum, m.a. sogdælum.
Mætti búast við að fiskstofninn
á þessum miðum myndi alger-
!eða eyðast ef ekki væri komið
í veg fyrir slíka veiði.
Tveir þriðju
Eftir að Kúbu var vikið úr
Bandalagi Ameríkuríkja eiga 19
fulltrúar sæti í ráðherranefnd
þess. Til þess að samþykktin
um refsiaðgerðir sé gild þurfa
tveir þriðju fulltrúa að greiða
henni atkvæði og þykja horf-
ur á að svo verði. Búizt er
við að 14 eða 15 ráðherrar muni
styðja hana, en fulltrúar þeirra
fjögurra ríkja sem áður voru
nefnd ýmist greiða atkvæði á
móti henni eða sitja hjá. Víst
þykir að utanríkisráðherrar
Mexíkó og Ohile, tveggja af
auðugri og sjálfstæðari ríkjum
álfunnar, muni beita sér ein-
dregið gegn hvers konar refsi-
aðgerðum gegn Kúbu og senni-
legt að ráðherrar Boliviu og
Uruguay muni einnig fylgja
þeim að málum.
Fundarslítum frestað
Það þykir benda til þess að
Bandaríkjastjóm hafi gengið
erfiðlega að fá fulltrúana í ráð-
herranefndinni á sitt band að
ákveðið hefur verið að fvndin-
um skuli haldið áfram á laugar-
dag og xnnudag, en npphaflega
hafði verið ætlunin að honuni
lyki á föstudag;
M.a.s. fulftrúi Brnsiliu. þar
sem harðvítug afturhaldsstjóm
situr við völd eftir valdaránið
i vor, er fealinn andvígur því
að slitið sé öHum viðskipta-
tengslum við Kúbu. Líklegt er
talið að nú sé veríð að reyna
að semja ályktunartilögu sem
hann og aðrir sem á svipaðri
skoðun eru getn sætt sig við.
Verður henni framfylgt?
Verði samþykkt á ráðherra-
fundinum með tilskildum meiri-
hluta að banna öll viðskipti við
Kúbu og fyrirskipa öllum að-
Kynþáttaóeirðirnar
Aftur róiegra í New
York en viðsjárvert
NEW YORK 24/7 — Lögreglan
i New York handtók í nótt sem
leið 22 blökkumenn og einn hvít-
an mann eftir nokkra minnihátt-
ar kynþáttaárekstra í borginni.
Rólegra var þar í nótt en undan-
famar nætur, en þá hafa verið
stöðug uppþot í blökkumanna-
hverfunum.
Póstverkfalli
var afíýst
LONDON 24/7 — Verkfalli
123.000 póstmanna sem hefjast
átti í Bretlandi um helgina hef-
ur verið aflýst og sömuleiðis
banni því sem stjóm þeirra
hafði sett á eftirvinnu. Sam-
komulag he-ur tekizt milli henn-
ar og ríkisstjómarinnar um
umræðugrundvöll. Póstmenn
vilja 10,5 prósent kauphækkun.
Kosningabaráttan er þegar hafin í Chile, enrforsetakosningar fara fram í september í haust. Mynd-
in er tekin I Santiago de Chile og sýnir áróðurslest til stuðnings dr. Salvador Allende, frambjóð-
anda vinstriaflanna, sem kmnmúnistar styðja og talinn er hafa miklar signrlíkur.
gerðir sínar i námunda við höf-
uðborgina, Vietcong hefur haft
sig æ meira í frammi undanfarið
og hafa hersveitir stjórnarinn-
ar yfirieitt farið hailoka í við-
ureignum víð hann.
Svo virðist eirrnig sem Viet-
cong hafi nú komið sér vel
fyrir á nýjum slóðum, þ.e. fyr-
ir norðan Saigon. Fram að þessn
hefur þjóðfrelsisherinn einkum
látið til sín taka á óshólmum
Mekongfljóts fyrir sunnan og
vestan höfuðborgina, en orust-
an mikla á fimmtudaginn var
háð fyrir norðan hana, við veg-
inn milli bæjanna Ban Me
Thuot og Ban Briang, 1 þeirri
orustu var einn af hinum banda-
rísku „ráðgjöfúm" felldur, en
annar særðist.
Hafna samningum
Stjóm Khanhs hershöfðingja I
Saigon hafnaði í dag tillögum
0 Þants, framkvæmdastjóra
SÞ, um að kvödd verði saman
í Genf ráðstefna fjórtán rikja
til að fjalla um ástandið í
Vietnam. — Slík ráðstefna
myndi aðeins gera illt verra,
nú þegar til úrslita dregur í
bardögunum, segir í yfirlýsingu
frá utanríkisráðuneytinu í Sai-
gon.
— Hvaða lausn sem yrði nið-
urstaðan af slíkri ráðstefnu
myndi hún aðeins leiða til und-
irokunar Suður-Vietnams undir
Peking og Hanoi, segir ennfrem-
ur í yfirlýsingunni.
ildarríkjum að bandalaginu að
slita stjórnmálasambandi við
landið eru þau skuldbundin
samkvæmt stofnskrá þess að
hlita þeim fyrirmælum. Svo
kann þó að fara að sum þeirra,
eins og t.d. Chile og Mexíkó.
neiti að framfylgja samþykk-
------«------------------------
Slys eða skemmdarverk?
inni og segi sig fremur úr banda-
laginu.
Kosningar í Chfle
Forsetakosningar fara fram i
Chile í september og þykir ó-
sennilegt að stjómin þar áraeði
að ganga í berhögg við almenn-
ingsálitið í landinu, sem er ein-
dregið á bandi Kúbumanna. Það
er því ósennilegra sem slík af-
staða myndi verð^ mikil lyfti-
stöng fyrir frambjóðanda vinstri-
aflanna, dr. Salvador Allende.
sem nú þegar er talinn einna
liklegastur til sigurs.
Fjörutíu manns biðu bana er
sprenging varð í skipi / Bone
ALGEIRSBORG 24/7 — Mikil sprenging varð í egypzka
skipinu „Alexandria* í höfninni í Bone í Alsír í gær-
kvöld og segir blaðið „Alger Ce Soir“ í Algeirsborg að 40
manns a.m.k. hafi beðið bana, en 165 sært í henni.
Blaðið bætir því við að ýmis-
legt bendi til þess að um
Geysifjölmennt lögreglulið er
enn á verði í Harlem og
Bedford-Stuyvesant-hverfinu í
Brooklyn. Lögreglan skakkaði
leikinn á einum stað þegar um
300 hvítir unglingar réðust á tvo
af forystumönnum mannrétt-
indasamtakanna eORE og tókst
að forða þeim undan múgnum.
Sprengjuárás
1 nótt var kveikt í veitingahúsi
í St. Augustine í Flórida þar
sem óeirðimar hafa verið hvað
mestar undanfarið. Eldfimum
vökva var kastað inn um glugga
og síðan kveikt í. Þó tókst að
slökkva í húsinu áður en það
yrði alelda.
Eigandi veitingahússins hafði
opnað blökkumönnum aðgang að
húsinu eftir að þingið hafði sam-
þykkt lögin sem banna að gert
sé upp , á milli kynþáttanna í
veitingahúsum og öðrum opin-
berum stöðum.
Skömmu áður en kveikt var í
húsinu höfðu mörg hunöruo
manna safnazt saman á Ku Klux
Klan fundi í St. Augustine.
Samkotnulag um
fjarskiptatungl
WASHINGTON 24/7 — Á ráð-
stefnu í Washington hefur náðst
samkomulag um samvinnu milli
Evrópurikja- og Bandaríkjanna
um notkun gervitungla til fjar-
skipta. Ætlunin er að slík reglu-
bundin fjarskipti hefjist á árinu
1967.
skemmdarverk hafi verið að
ræða. Landvarnaráðuneyti Alsírs
hefur sent sérfræðinga á vett-
vang til að kanna orsakir spreng-
ingarinnar. Bone er ein helzta
hafnarborg landsins, um 600 km
fyrir austan Algeirstoorg.
Eldur kom upp í skipinu og
breiddist hann út til húsa við
höfnina. Logaði hann glatt alla
nóttina, en snemma í morgun
tókst slökkviliði borgarinnar að
ráða niðurlögum hans.
Klukkutíma eftir að spreng-
ingin varð í „Alexandria" sökk
skipið og mörg hús við höfnina
eyðilögðust í eldinum. Meðal
þeirra mörgu sem létu lífið við
sprenginguna voru hafnarverka-
menn sem unnu við uppskipun,
einnig vegfarendur sem voru á
ferli í nágrenni skipsins.
Óstaðfestar fregnir herma að
skipið hafi verið hlaðið skotfær-
um. Egypzki flotinn hefur notað
það sem skólaskip.
Þota sem fer með
hreföldum hraða
hljóðsins í USA
WASHINGTON 24/7 — Johnson
forseti skýrði frá því á fundi
með blaðamönnum í Washington
í dag að Bandaríkjamenn hefðu
nú smíðað þotu sem farið geti
með þreföldum hljóðhraða og
myndi ætlunin að nota hana til
njósnaflugs um allan heim.
Smíðþ- þessarar flugvélar hefur
fram að þessu kostað um einn
miljarð dollara.
Helander ætlar
ekki að áfrýja
STOKKHÓLMI 24/7 — Heland-
er biskup hefur ákveðið að á-
frýja ekki dómi lögmannsréttar-
ins sem 3. júlí s.l. taldi hann
sekan um að hafa skrifað níð-
bréfin um keppinauta sína um
biskupsembættið fyrir rúmum
áratug. Óvíst er enn hvort á-
kæruvaldið áfrýjar dóminum,
sem var heldur mildari en
fyrri dómurinn í máli hans.
Bonnstjórnin á móti
stefnu de Caulle
19 drepnir og 450
særðir í Singapore
SINGAPORE 24/7 — Heldur var
rólegra í Singapore í dag en
undanfarna þrjá sólarhringa,
þcgar vcríð hafa stöðugar óeirðir
milli manna aí malajskum og
kínverskum ættum. I? menn eru
taldir hafa látið lífið. en 450
særzt í þcim átökum.
Forustumenn þjóðarbrotanna
hafa verið á fundum og Iafa
skipað sameiginlegar nefndir
sem eiga að hjálpa borgaryfir-
völdunum að bæla niður óeirð-
irnar. Enn í dag kom þó til
nokkurra árekstra, en ekki urðu
teljandi r .eiösl á mönnum.
Fyrirski/.að hefur verið út-
góngabann cg var það i dag
frarilengt yfii' heigina.
BONN 24/7 — Vesturþýzba
stjórnin hefur vísað á bug þeirrí
gagnrýni de Gaulle Frakklands-
: forseta í ræðu á blaðamanna-
j fundi í París í gær, að hún
j tefji fyrir myndun óháðrar
Evrópu. I yfirlýsingu sem gefin
var út í Bonn í dag segir áð
vesturþýzka stjórnin muni ekki
hvika frá þeirri stefnu sinni að
láta hvorki Frakka né Banda-
ríkjamenn segja sér fyrir verk-
um.
— Stefna Vestur-Þýzkalands
er hvorki háð vilja Frakklands
né Bandaríkjanna, «ar sagt í
yfirlýsingunni sem fclaðafulltrúi
Erhards forsætisráðherra von
Hase las upp íyrir fréttamönn-
um í Bonn í dag.
Von Hase neitaði þvi hins veg-
ar að ummæli de Gaulle væru
nokkur íhlutun í innanríkismál
Þýzkalands. Búizt er við að þau
öfl í flokki Kristilegra demó-
krata sem viíja nánari sanv-
vinnu við Frakkland, en forystu-
menn þeirra eru Adenauer, fyrr-
verandi forsætisráðherra og
Strauss, fyrrverandi landvama-
ráðherra. muni notfæra sér
gagnrýni de Gaulle í baráttunni
gegn stefnu þeirra Erhards og
Schröders utanríkisráðherra.
Mikið er rætt og ritað um
ræðu de Gaulle, en fram að
þessu hafa ekki aðrar stjómir
vesturveldanna látið hafa neitl
eftir sér um hana.
i