Þjóðviljinn - 08.08.1964, Page 1

Þjóðviljinn - 08.08.1964, Page 1
 KOSNINGAÁRÁS JOHNSONS Sjá grein MTÓ á bls. @ BAN DARISKAR HERÞOTUR HRAKTAR FRÁ N-VIETNAM Gífurlegur mannf jöldi lýsti stuðningi sínum við N-Vietnam á fundi í Peking HANOI og PEKING 7/8 — Bandarískar herflug- vélar fóru í dag- hvað eftir annað inn í lofthelgi Norður-Yietnams, en voru jafnharðan hraktar á flótta með skotum úr loftvarnahyssum, segir norðurvietnamska fréttastofan. Gífurlegur mann- fjöldi safnaðist saman í Peking í dag til að mót- mæla árásum Bandaríkjamanna á Norður-Viet- nam og lýsa yfir fullum stuðningi Kínverja við nágrannana þar. í fréttinni frá Hanoi segir að bandarísku flugvélarnar hafi komið úr suðaustri og hafi þær flogið yfir héruðin Quang Binh og Nghe. Þeta var um hádegis- bilið eftir staðartíma. Flugvél- arnar sneru við þegar þær urðu fyrir harðri skothríð úr loft- varnarbyssum í Nghe-héraðinu. Loftvarnir efldar Samkvæmt öðrum heimildum hafa Kínverjar sent herflugvélar til Hanoi sem eiga að vera til varnar ef Bandarikjamenn halda áfram árásum sínum. Engar orustuþotur voru sendar gegn bandarísku árásarflugvélunum á miðvikudaginn, heldur var að- eins skotið á þær frá jörðu. Þá fréttist að orustuþotur hefðu verið sendar frá Sovétríkjunum um Kína til Norður-Vietnams, en ekki hefur það verið staðfest. Blaðið „China News“ í Taipeh á Formósu kveðst hafa heimild- ir fyrir því að mikill viðbún- aður sé í suðvesturhéruðum Kína og hafi mörg þúsund or- ustuþotur af Mig-gerðum vér- ið sendar þangað frá öðrum stöðvum í landinu. Gífurlegur mannfjöldi safnað- ist saman í Peking í dag til að lýsa samstöðu Kínverja með í- búum Norður-Vietnams. Fór ,mannfjöldinn gangandi fram hjá sendiráði Norður-Vietnams í borginni og var gangan fimm kílómetra löng. Jafnframt birti Framhald á 3. síðu. Á tveim veiði- svæðsim eystra Eftirtaldir bátar hafa til- kynnt síldarleitinni á Raufar- höfn um afla sinn síðan í gær- morgun: Faxi GK 1600 mál, Hafrún ÍS 1600 mál, Halldór Jónsson SH 800 t., Smári ÞH 800 t., Oddgeir 1300 t., Akra- borg 1350 mál, Höfrungur III. AK 2000 mál, Helga RE 1600 mál og Héðinn ÞH 400 tunnur. Bátarnir halda sig aðallega á tveim veiðisvæðum, annað er um 210 mílur í austur frá Rauf- arhöfn og hitt 70—80 mílur norðaustur frá Dalatanga. Veður er gott á síldarmiðunum. Morgunblaðið klifar nú. á því dag eftir dag að aðstöðu- _ gjöld fyrirtækja séu hliðstæð útsvörum. en sú staðhæfing er alger fölsun. Aðstöðugjöld eru tekin sem ákveðinn hundraðshluti af veltu fyrir- tækja, hvemig svo sem af- komu þeirra er háttað. Fyrir- tækin leggja þess vegna að- stöðugjöldin ofan á fram- leiðsluvörur sínar og þjón- ustu, og viðsbiptavinirnir greiða þau að fullu. Aðstöðu- gjöldin eru þannig einskonar söluskattur, borgaður af al- menningi. Þannig jafngilda þessi gjöld á engan hátt tekjuskatti eða útsvari, sem taka á af ágóða fyrirtækja. heldur eru fyrirtækin aðeins að' innheimta þetta gjald af almenningi handa borgar- sjóði. Og öll þau fyrirtæki, sem falsa framtöl sín, stinga hluta af aðstöðugjaldi' því sem þannig er innheimt i eig- in vasa, á svipaðan hátt og þau hirða hluta af söluskatt- inum með sömu aðferðum. Þannig eru staðhæfingar Morgunblaðsins um aðstöðu- gjöltjin fleipur eitt. Aðstöðu- gjöldin eru engin baggi á fyrirts#kjum, heldur aðeins ein skattategundin sem tekin er af almenningi. Bandariskur ,,ráðunautur“ segir suðurvietnömsku m hermönnum fyru- verkum. BGA MENNAÐ UFA Á KVITTUNUM? ■ í gær var almennur útborgun- ardagur, — og jafnfram't um leið fyrsti dagurinn, sem skattheimt- an lætur til sín taka eftir álagn- ingu útsvara og annarra opin- berra gjalda. Má þar með segja að „hinar miklu lækkanir" stjórn- arflokkanna á útsvörum og skött- um almennings sé að koma til raunverulegra framkvæmda. Til þessa hafa menn aðeins fengið „reykinn af réttunum“ eins og forsætisráðherra kallar það — séð tölurnar á gjaldheimtuseðl- unum. ■ En í gær voru það sem sagí réttirnir sjálfir, sem bórnir voru fram. Fjölmargir menn sneru sér til Þjóðviljans í gær og höfðu þá sögu að segja, að í stað kaup- greiðslna fengu þeir kvittanir frá skattayfirvöldunum. Algengt var að helmingur og allt upp í ALLT kaupið væri „greitt“ á þennan hátt. Menn spurðu að vonum, hvort þeim væri ætlað að lifa á kvittunum frá skatf- heimtunni, — eða kannski hafa stjórnarflokkarnir í hyggju að gera þær að nýjum gjaldmiðli. <> \ <» \ \ Stríð við N- Vietnam undirbúið í Snigon Bandaríkjaþing hefur samþykkt að veita Johnson heimild til sérstakra aðgerða SAUiUW og WASHINGTON 7/8 — Mikill við- búnaður er nú í Suður-Vietnam og hefur verið hertur undirbúningurinn undir stríð við Norður- Vietnam. Útgöngubann hefur verið sett í Saigon og að öðru leyti hert á herlögunum sem ríkt hafa í landinu lengi. Þetta var gert í samráði við Bandaríkjamenn. Bandaríska þingið samþykkti í dag að veita Johnson forseta heimild til hvers konar aðgerða sem hann kann að telja nauðsyn- legar vegna stríðsins í Vietnam. Khanh hershöfðingi skýrði í dag frá því í Saigon að hert yrði á herlögunum og hafðihann áður ráðgazt við fulltrúa Banda- ríkjanna. Maxwell Taylor sendi- herra og Westmoreland hers- höfðingja, yfirmann bandaríska hersins í Suður-Vietnam. Úrslitastundin er runnin upp, sagði Khanh. Örlög þjóðar okk- ar verða ráðin næstu daga. Síð- an skýrði hann frá þv£ að hann myndi fara í liðskönnun við landamæri Norður-Vietnams. Útgöngubannið í Saigon er frá 23 til 4. Búizt er við að enn frekari hömlur verði settar á blaðaútgáfu í landinu og ritskoð- unin hert. Á síðustu mánuðum hafa mörg blöð verið bönnuð í Saigon. Eins og á bezta sveitaheimiii Er Þjóðviljinn hafði samband við lögregluna í Vestmannaeyj- um seint í gærkvöldi. * var allt í friðsemd og rólegheitum á þjóðhátíðinni, ,,eins og á bezt". sveitaheimili" sagði lögreglu- þjónninn. Geysilegur fjöldi að- komumanna er á hátíðinni, um 2—3 þús. manns er gizkað á. Heimild samþykkt Báðar deildir Bandaríkjaþings samþykktu í dag að veita John- son forseta heimild til að gera „allar nauðsynlegar ráðstafanir í því skyni að hrinda árásum á herafla Bandaríkjanna". Tveir þingmenn öldungadeild- arinnar greiddu atkvæði á móti heimildinni. þeir Wayne Morse frá Oregon og Emest Gmening frá Alaska, báðir Demókratar. Morse sagði að áiyktunin heimilaði Johnson forseta að heyja styrjöld, en Gruening sagði að allt Vietnam væri ekki þess virði að því væri fómað lífi eins bandaríska hermanns. Fulltrúadeildin samþykkti heimildina einróma. Fulltrúinn Hermenn frá NorOur-Vietnam frá Harlem, Adam Clayton Powell, sat þó hjá við atkvæða- greiðsluna. Alsal Umræður urðu litlar sem eng- ar í fulltrúadeildinni. en í öld- ungadeildinni hélt Wayne Mors- tveggja klukkutíma ræðu gegn Framhald á 3. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.