Þjóðviljinn - 27.08.1964, Side 1
Laust fyrir kl. 2,30 síðdegis í gær kom upp eldur í mjölskemmu
Faxaverksmiðjunnar á Grandagarði en Eimskipafélag íslands hefur hluta
hússins á leigu fyrir vörugeymslu og kom eldurinn upp þar. Eldurinn
magnaðist mjög fljótt og fékk slökkviliðið ekkert við hann ráðið. Brann
húsið til kaldra kola og vörur og vélar sem í því voru gereyðilögðust.
Mun óhætt að fullyrða að þarna hafi orðið miljónatjón.
Fimmtudagur 27. ágúst — 29. árgangur — 192/ tölublað.
Miljónatjón í bruna
í Reykjavík í gærdag
Afarmikinn, kolsvartan og þykkan reykjarmökk lagði af brunanum yfir borgina lengi
í gær. — (Ljó sm. Þjóðv. A.K.).
dags.
Bát hvolfir með 5
ungum drengjum
t
Fimm ungir drengir úr Kópavogi voru hætt
komnir í gærkvöld er bát þeirra hvolfdi út af
Amarnesinu. Fór þó betur en á horfðist og tókst
lögreglunni i Kópavogi að ná drengjunum sem
héngu í bátnum þar til hjálp barst.
Það voru fimm ungir drengir
í Kópavoginum sem hafa eign-
azt bát með utanborðsmótor, og
munu þeir þetta 12 til 14 ára.
Fóru þeir að leika sér á bátn-
um í gærkvöld um áttaleytið,
og var enginn þeirra í björg-
unarvesti. Alda var kröpp og
er í 2—6.
I fjórðu umferð á skákmótinu
í Kaupmannahöfn vann Friðrik
Ólafsson sína skák og er hann
nú í 2.—6. sæti með 3 vinninga.
Efstur er Dani með 4 vinninga.
Bent Larsen er hins vegar aðeins
með 2 vinninga eftir þessar fjór-
ar umferðir
talsverður vindur og hvolfdi
bátnum út af Arnarnesinu og
fóru allir drengirnir í sjóinn.
Svo vel tókst til að fólk sá slys-
ið úr landi og fékk lögreglan í
Kópavogi léðan árabát hjá
Kristjáni Vattnes fyrrverandi
lögregluþjóni og fór hann með
til að bjarga drengjunum. Höfðu
þeir allir náð taki á bátnum á
hvolfi og var þeim' náð upp ,
árabátinn og róið til lands.
Þeir voru hraktir og kaldir
sem vonlegt var, en fjórir það
hressir að farið var með þá
heim til sín, en hinum fimmta
var ekið á Slysavarðstofuna, en
mun þó ekki hafa orðið veru-
lega meint af volkinu.
Kópavogslögreglan fékk síð-
an slökkviliðið á Reykjavíkur-
flugvelli til að koma á hraðbát
og leita að vélbátnum sem
Mikil verðmæti í vörum
eyðilögðust i brunanum
hvolfdi. Fannst hann og var
dreginn til lands.
Það virðist sjálfsögð varúð-
arráðstöfun að láta svo unga
drengi vera í björgunarvestum
ef þeim er leyft að leika sér
að tækjum eins og bát með ut-
anborðsmótor, og er það raunar
ekki leikfang fyrir ekki eldri
drengi.
Gunnar Sigurðsson hjá Slökkvi-
liðinu sagði. að slökkvistarfið
hefði verið með því erfiðast'a,
sem gerist vegna mikils reyks
og hita.
Slökkviliðið var kallað á vett-
vang kl. 14.28 og fóru þá þrír
fullmannaðir bílar á staðinn.
Þeir byrjuðu þegar að sprauta á
eldinn og sprautuðu í eina mín-
útu er eldurinn magnaðist og
urðu þeir þá að flýja út því þeir
réðu ekki við neitt.
Þá var þegar í stað gert út
allt slökkviliðið og kom það á
staðinn u.þ.b. 5 mínútum eftir
að fyrri hópurinn var kallaður
út.
Alls voi-u 4 bxlar og 2 stórar
‘dælur notaðar við slökkvistarfið
en þó tókst ekki að ráða niður-
lögum eldsins fyrr en klukkan
20,30 í gærkvöldi.
Gunnar sagði að það hefði
tafið nokkuð slökkvistarfið að
lágsjávað var, en þeir notuðu
sjó 1 til slökkvistarfsins og einn- '
ig tafði það nokkuð, að þeir
fengu rangar upplýsingar um
benzíngeymi, sem átti að vera
í einu horni hússins, sem þeir
lögðu svo áherzlu á að verja en
geymirinn reyndist vera nið-
urgrafinn, er slökkviliðsmenn
komust loks að honum, en að-
eins dælan stóð upp úr.
Slökkvistarf þetta var all-
miklu erfiðara en í Hampiðj-
unni. því eldurinn var mikið
meiri og reykurinn. sem lagði
frá 'hjólbörðunum, varð lika til
að gera slökkvistarfið erfiðara.
Síðastliðna nótt voru 8 slökkvi-
liðsmenn með tvær dælur á
staðnum þvf að enn lifði í
hampinum og bréfarusli. sem
þama var.
Upptök eldsins
Samkvæmt upplýsingum Magn-
úsar Eggertssonar varðstjóra
hjá rannsóknarlögreglunni voru
tveir menn frá Eimskip að vinna
í vörugeymslunni við að færa til
vörur með lyftara er eldurinn
Frá slökkvistarfinu í gær. Flest tæki slökkviliðsins voru í gangi
og mikill fjöldi slökkviliðsmanna barðist við eldinn í fleíri klukku-
-fíina. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
kom upp. Sáu þeir þá allt í
einu að reykur gýs upp úr
hampballa er var neðst í stæðu
rétt fyrir aftan lyftarann, en
þarna voni m.a. 2000 ballar af
hampi geymdir.
Mennimir brugðu við og tóku
vatnsfötu er þama stóð og
skvettu á eldinn en við það
breiðist hann aðeins út og
hrukku neistar vitt um stæðuna
og læsti eldurinn sig í hana.
Mennimir hlupu til dyra og báðu
menn er þar voru að kalla á
slökkviliðið og kom það brátt á
vettvang.
Eldurinn magnaðist hins vegar
mjög fljótt. einkum eftir að
hann komst í svamp sem þama
var talsvert mikið geymt af og
gaus þá upp mikill reykur. I
geymslunni var einnig mikið af
öðrum eldfimum vörum, t.d. bíl-
dekkjum og breiddist eldurinn
út um allt húsið svo að ekki
varð við neitt ráðið.
Herforingjarnir í Saigon
eru hver á móti öðrum
Sumir leiðtogar búddhamanna styðja endurkjör Khanhs,
en andstaða og mikil ólga í norðurhluta S-Viefnams
Þjóöviljinn leitaði í gær upp-
lýsinga hjá Eimskipafélagi ÍS-
Iands um tjón það sem orðið
hefði á vörum í brunanum.
Fyrst átti blaðið tal við skrif-
stofustjórann og sagði hann að
félagið hefði haft húsnæði þetta
á leigu í um það bil hálft ann-
að ár fyrir vörugeymslu, fyrst
hjá Faxaverksmiðjunni og síðar
hjá Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjunni. Sagði skrifstofustjór-
inn að ljóst væri að þarna hefðu
eyðilagzt mikil verðmæti í vör-
um en ekki væri búið að taka
saman hve mikið magn hefði
verið af vörum í geymslunni né
reikna út verðmæti þeirra.
Blaðið átti einnig tal við Sig-
urð Jóhannsson verkstjóra og
sagði hann að ékki hefði verið
mjög mikið af vörum í geymsl-
unni en þama hefðu m.a. verið
hjólbarðar, hampur og harðviður
svo og talsvert af vörum er
hefðu verið búnar að liggja hjá
'elaginu síðan 1962 og hefði átt
að fara að halda uppboð á þeim.
SAIGON 26/8 — Hershöfð-
fngjaklíkan í Suður-Víetnam sat
f Cag margar klukkustundir á
fundi, en tókst ekki að semja
um nýjan Ieiðtoga, sem tæki við
af Nguyen Khanh hershöfðingja,
sem var neyddur til að segja af
sér í gær.
Khanh hershöfðingi sagði eft-
ir fundinn, að ástandið væri
mjög hættulegt, en hershöfðingj-
arnir yrðu að ræða málið gaum-
gæfilega áður en þeir gætu lagt
Iausn sína fyrir þjóðina.
Margir þekktir leiðtogar
Búddhatrúarmanna hafa nú lýst
stuðningi sínum við stjóm
Khanhs hershöfðingja. en hann
fó” frá sem kunnugt er vegna
mikilla kröfugangna gegn stjóm
hans og sjálfum honum persónu-
lega. Bæði Búddistar og stúd-
entar tóku þátt í þessum kröfu-
göngum og því var haldið fram
að ríkisstjórn Khanhs ofsækti
Búddhamenn.
Atburðir síðastliðins sólarhrings
munu að líkindum leiða til þess
að Khanh verði endurkjörinn
leiðtogi þjóðarinnar, annað hvort
sem forseti eða forsætisráðherra.
Hins vegar er klofningur í
byltingarráði hershöfðingjanna í
afsioðunni til þess, hvort ráðið
eigi að láta undan kröfum
Búddhatrúarmanna þess efnis, að
ráðið leysi sig sjálft upp.
Á fundi byltingarráðsins í dag
varði Khanh hershöfðingi mest
af tíma sínum til þess að út-
skýra hvers vegna hann hefði
látið undan kröfum Búddha-
trúarmanna.
Þegar fundurinn hófst í dag
var gefin út tilkynning um það,
að yfirlýsingin, sem var gefin út
á þriðjudag, þar sem gengið er
að flestum kröfum sem komu
fram í kröfugöngunum síðustu
daga, verði staðfest og nýr leið-
togi kosinn.
En fundi var slitið án þess að
hershöfðingjamir hefðu tekið
nokkra ákvörðun. Ekki er vit-
að hvenær annar fundur verður
haldinn.
Yfirlýsingin um stuðning
Búddhatrúarmanna við Khanh
var undirrituð af Tivh Tam
Chau sem er einn af æðstu-
prestum þeirra;
Stjórnmálamenn í Saigon
segja þessa yfirlýsingu gerða í
tvennum tilgangi. f fyrsta lagi
mun yfirlýsingin styrkja aðstöðu
Khanh í byltingarráðinu. sem
mun vafalaust taka tillit til óska
Búddhatrúarmanna. I öðru lagi
mun yfirlýsingin undirbúa jarð-
veginn fyrir tilkynningu um það,
að maðurinn sem Búddhatrúar-
menn og stúdentar kröfðust að
fæfi frá, hefði aftur verið kjör-
inn þjóðarleiðtogi.
Andstæðingar Khanhs
Ókunnugt er um það, hvort
leiðtogar Búddhatrúarmanna í
miðju landi muni láta sér stuðn-
ing Thivh Tam Chau við Khanh
lynda. Þessir leiðtogar eru á-
kveðnari í skoðunum og fyrir
þeim er annar munkur Thich
Tri Quang.
Afstaða stúdenta er einnig
misjöfn. Stúdentar í Saigon eru
ánægðir með yfirlýsinguna frá
þriðjudegi, en stúdentar í Hue.
sem er helzta borg í héraði um
Framhald á 3. síðu.
t
4