Þjóðviljinn - 01.09.1964, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 1. september 1964
HÖÐVILIINN
SlDA 5
íslandsmótið 1. deild:
ÍA úr leik / baráttunni um
1. sæti eftir tap fyrir ÍBK
Fyrir einskæra óheppni og klaufaskap misstu
Akurnesingar af síðasta tækifæri til að koma til
greina sem sigurvegarar í 1. deild. Þeir áttu mun
meira í leiknum en Keflvíkingar og voru svo til
í látlausri sókn allan síðari hálfleik, en mistókst
ævinlega að skora. En það er ekki spurt um vopna-
viðskipti heldur leikslok og Akurnesingar eru
dæmdir úr leik í baráttunni um 1. sæti, en sigur-
líkur Keflvíkinga hafa aukizt að mun.
Mikill fjöldi áhorfenda var
kominn upp á Akranes til að
horfa á leikinn — úr Reykja-
vík og Keflavík og nærsveit-
um Akraness. Veður var gott
til keppni, þurrt en lítilsháttar
hliðarvindur, sem lítil áhrif
hafði á leik-inn.
Fyrri hálfleikur
f fyrpi hálfleik var leikur
nokkuð jafn, liðin skiptust á
upphlaupum og oft mátti sjá
ágætis knattspyrnu. Fyrsta
markskotið kom á 3. mín. er
Þórður Þórðarson skaut að
marki en Kjartan varði.
Nokkru síðar er mark Akur-
nesinga í hættu og Pétur Jó-
hannesson bakvörður þeirra
bjargar á linu.
F'yrsta markið í leiknum
kemur svo á 19. mín. Karl
Hermannsson er með böltann
úti við vítateigshornið, og eng-
in hætta virðist á ferðum, en
Helgi Daníelsson hleypur úr
markinu á móti Karli sem
vippar knettinum mjög laglega
yfir hann og í markið. Þetta
mark kem mjög óvænt og ein-
göngu fyrir rangt úthlaup
Helga.
Aðeins tveim mínútum síðar
fá Keflvíkingar mjög gott
tækifær-i og1 mega Akurnesing-
ar teljast heppnir að fá ekki
á sig annað mark. Næstu tutt-
ugu mín. gerist litið markvert,
bæði lið sýna góða knattspyrnu
úti á vellinum en verður ekki
ágengt við mark.
Á 40. mín. ver Helgi gott
skot með því að slá boltann
út fyrir. Upp úr hornspyrn-
unni ná Akurnesingar góðu
upphlaupi sem endar með því
að Ríkarður skallar boltann í
þverslá af stuttu færi og stuttu
síðar á Skúli gott skot sem
sleikir þverslána. Keflvíking-
um tókst þannig að halda for-
ystu í fyrri hálfleik 1:0.
Síðari hálfleikur
Akumesingar tóku nú leik-
inn algerlega í sínar hendur
og fór leikurinn að mestu
fram á vallarhelmingi Kefl-
víkinga utan örfá upphlaup
sem Keflvíkingar náðu. En það
gerði gæfumuninn aö Keflvík-
ingar nýttu tækifærin en Ak-
urnesingar ekki. K°f] víkingar
lögðust mjög í vörn og tókst
að verjast sókn Akurnesinga
sem pressuðu kanrr' i fullmik-
ið, þannig að vörnin var opin
hegar Keflvíkingar náðu upp-
hlaupum.
Á 3. mín. ver Kjartan fast
skot frá Ríkarði og á 7. mín.
bjargar hann í horn eftir skot
frá Eyleifi. Á 13. mín. tekur
Ríkarður aukaspyrnu rétt ut-
an við vítateig Keflvíkinga.
þeir raða sér fyrir framan
markið og Ríkarður skaut
föstu skoti með jörðu gegn
um varnarvegginn en Kjartan
varði mjög glæsilega.
Það segir kannski bezt til
um gang leiljsins, að á fyrsta
stundarfjórðungi voru 9 horn-
spyrnur á Keflavíkurmarkið,
en það var ekki fyrr en á 25.
mín. sem Keflvíkingar eiga
fyrsta markskotið í hálfleikn-
um. Samt voru það Keflvík-
ingar sem skora fyrsta markið
í hálfleiknum á 27. mín. Það
var langspyrna íram völlinn í
áttina að Akranesmarkinu og
Jón Jóhannsson komst inn fyr-
ir vörnina og skoraði af tals-
verðu færi. Helgi náði til
knattarins en missti hann inn
í markið.
Á 33. mín. skaut Ríkarður
föstu skoti í þverslá; en tveim
mín. síðar skora Keflvíkingar
enn og gerðu þar með út um
leikinn. Jón Ólafur Jónsson var
Kjartani Sigtryggssyni mark-
verði Keflvíkinga var vel fagn-
að er hann gekk út af vellin-
um eftir sigurinn yfir Akurnes-
ingum, enda bjargaði hann oft
mjög vel í leiknum. — (Ljpsm.
Bjarnlcifur).
með boltann mjög skáhallt við
markið og átti að vera auðvelt
fyrir Helga að loka markinu,
en Jón skaut á markið i þess-
ari stöðu í það horn sem nær^
var og Helga tókst ekki að
verja.
Á 47. mín. mistókst Eyleifi
hrapalega er hann var með
boltann fyrir opnu marki og
enginn í markinu, en missti
af þessu gullvæga tækifæri og
skaut framhjá. Tveim mín. síð
ar kom svo loks að því að Ak
urnesingar skoruðu. Það var
þvaga innan vítateigs Keftvík
inga, Ríkarður fékk boltann og
skaut viðstöðulaust á mark. Á
síðustu mín. var Þói’ður Þórð-
arson með boltann alve" upp
við mark Keflvíkinga en sló
til hans með höndinni.
Liðin
Eftir þennan leik virðist fátt
geta komið í ve" fyrir að
Keflvikingar hljóti íslands-
meistaratitilinn að þessu sinni
og virðast þeir vel að því
komnir, þótt sigur i þessum
leik hafi kannski ekki verið
verðskuldaður. Bezt.ir í liði
þeirra voru nú Karl Hermanns-
son, Jón Jdhannsson sem nú
lék aftur eftir langt hlé og
Högni að óvieym^---'-’ Kiartani
Sigtryggssyni, sem öðrum
fremur á heiðuri'nn af sigri í
■ leiknum.
Akurnesingar fengu minna
út úr leik sínum en efni stóðu
til. Framb'nan var óheooin og
klaufsk þegar mest reið á, Rík-
arður va’- beztu'r og líklega
bezti maðu*r vallarins, nýlið-
inn sem lék á vinstra kanti,
Biörn Lárusson, átti góðan
leik. í vörninni v.ar Pétur Jó-
hannsson einna beztur. Helgi
átti mjög lélegan leik í mark-
inu og er sýnilega í engri æf-
ingu. Það er orðið
timabært fyrir bá Akurnesinga
að at'-’iga meg nýjan mann í
markið.
Staðaní
l.deild
L U J T M. Stig(
Keflavík 8 5 2 1 19:11 Í2
Akranes 9 5 0 4 23:20 10
KR 7 4 1 2 12: 8 9
Valur 9 3 2 4 18:19 S\
Fram 9 2 3 4 15:18 7
Þróttur 8 1 2 5 10:21 4i
Allan síðari hálfleik var svo til látlaus sókn að marki Kcflvíkinga, en Akurnesingar höfðu ekki
erindi sem erfiði þótt oft munaði mjóu eins og sést hér á myndihni. Kjartan markvörður hefur
misst af knettinum en Þórður Þórðarson rak-í hann höndina svo að markið var dæmt af.
(Ljósm. Bj arnleifur).
Friðrik í 2.-3.
sæti í Höfn
Á sunnudaginn lauk hinu svo-
nefnda Opna Kaupmannahafar-
móti í skák og varð Friðrik
Ólafsson í 2.—3 sæti á mótinu
með 5V3 vinning úr 8 skákum
en jafn honum að vinningum
varð núver. Norðurlandn leist-
ari í skák. Daninn Bjöm Brinck
Clausen. SigHrvegari varð hins
vegar líttþekktur danskur skák-
maður Jörgen Hvenek-ilde að
nafni og hlaut hawn 6 vinninga.
Friðyik tefldi í síðustu umferð
við Bent Larsen og lyktaði skák-
inni með iafntefli eftir harðar
sviptingar. Varð Larsen í 6. sæti
á mótinu.
Tvöhundruð
funglmyndir
Bandarískir vísindamenn hafa
birt 200 nýjar myndir, sem
tunglfarið Ranger sjöundi tók af
tunglinu í síðasta mánuði. Segja
vísindamenn. að þeir séu nú að
kortleggja tunglið og styðjist við
myndirnar. en þær sýna meðal
annars að veðrun og hraun-
rennsli hefur átt s+að á
tunglinu.
Drengirnir sneru
vonsviknir heim
Eins eg sagt var írá í Þjóð-
viljanum áttu að fara fram
12 knattspyrnuleikir í yngri
flokkum hér í Reykjavík á
laugardaginn var, er haust-
mótið var að hefjast. Hundr-
uð drengja voru að sjálfsögðu
mættir úti á velli á tilsettum
tíma fullir eftirvæntingar að
taka þátt í skemmtilegum
leik. En flestir drengjanna
urðu að snúa heim vonsvikn-
ir og leiðir því að ekkert
varð úr leikjunum vegna
þess að enginn dómari lét
sjá sig.
Þjóðviljanum tókst ekki að
ná tali af þeim aðilum sem
sjá um mótið til að fá skýr-
ingu á þessu. En hvernig sem
í þessu máli liggur. hvort
sem hér er um að ræða van-
ræleslu métsstrjómar eða við-
komandi démara, þá er þetta
stórlega vítavert og æðstu yf-
irvöld knatfspyrnumála geta
ekki látið þetta afskiptalaust. f
Hið versta er þó að þetta
er 'alls ekki einsdæmi að
þannig sé farið með drengina
sem eru að byrja feril sinn
sem knattspyr-numenn og
þarf ekki að fara mörgum
orðum um það hver áhrif
þetta hefur á hina ungu
drengi. Leiðtogamir verða að
skilja að íþróttir hafa mikið
uppeldislegt gildi. en allt fer
eftir því hvernig á málum er
haldið. hvort það uppeldi er
jákvætt eða ekki. Drengirnir
sem sneru vonsviknir heim á
laugardaginn eru sannarlega
i hættu. ef þetta á að ganga
svo áfram.
Fr m vard Reykjavíkur-
meisfari, sipraðl KR 3:1
Nú á sunnudag fengust loks
úrslit í Reykjavfkurmótinu í
knattspyrnu, sem byrjaði í
vor. Fram og KE voru jiián
að stígum í mótinu og reyndu
nú með sér í þriðja sinn. Að
loknum venjulcgum lciktíma
var jafntefli 1:1, en í framleng-
ingu sboraði Fram mark en
KR ekkert.
Helgi Númason skoraði fyr-
ir Fram strax í byrjun leiks
og fleh'i mörk voru ekki skor-
uð í fyrri hálfleik. Margir
voru þó þeirrar skcðunar að
holtinn hefði síðar í hálfleikn-
um farið inn fyr-ir marklínu
Fram en dómarinn dæmdi að
svo hefði ekki verið. 1 slík-
um tilvikum sem þessum .vill
áhorfendum oft gleymast að
mark er ekki skorað nema
knötturinn fari allur inn fyr-
ir línu.
KR-ingar sóttu allfast í sið-
ari hálfleik en tókst ekki að
skora hema emu sinni, þótt
oft væri mjótt á munum. Sig-
urður Einarsson brá ekki vana
sínum og bjargaði tvívegis er
-'k,nötf('vmn stefndi yfir mark-
línu Fram.
Þar sem leikar stóðu jafn-
ir var framlengt í hálftima.
og sama sagan endurtók sig —
Helgi Númason skoraði í byrj-
un leiks. KR-ingum tóbst
hins vegar ekki að skora og
varð Fram bví Reykjavíkur-
meistari í ár.
Fram er enn í fallhættu f
1. deild íslandsmótsins og væri
það óneitanlega talsverð kald-
hæðni ef Reykjavíkurmeistar-
arnir falla niður f 2. deild,
en kannski gefur það sann-
asta mynd af knattspymunni
hér.
Lítið herbergi
óskast sem fyrst. Fyrirframgreiðsla. Sími 40268.
Nýkomið
Votteroðir nylon-
sloppar
Einlitir. — Verð krónur 595.00.
HATTABtíl) HEYKJAVÍKUR.
Laugavegi 10.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Siminn er 17500
i
i
á