Þjóðviljinn - 19.09.1964, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 19.09.1964, Qupperneq 3
Laugardagur 12. septeri'ber 1964 ÞTðDVILTINN SlÐA Inn í COMECON BELGRAD 18/9 — Júgó- slavía hefur nú ákveöið aS gerast aðili aff COME- CON, efnahagsbandalagi Austur-Evrópuþjóöa. Þetta framgengur af tilkynningu, sem gefin var út í Moskvu í gær af fulltrúum Júgó- slava og COMECON. Hann slapp Fellt vantraust NEW DELHI 18/9 — Ind- verska þingið felldi í dag vantrausttiliögu sem lögð hefur verið fram á stjórn Shastris vegna matvæla- ekorts og stóraukinnar dýr- tíðar í landinu. / Árósaverkfall ÁRÓSUM 18/9 — Hafnar- verkamenn í Arósum, sem í rúma viku hafa ekki mætt til vinnu, lögffu í dag niffur þetta óopinbera verkfall. í átta daga hefur öll vinna viff hö fnina í Árósum veriff sem lömuff af þessum sökum. Saturnus KENNEDYHÖFÐA 18/9 — Bandaríkjamenn skutu í dag á loft risaeldflaug, sem hlotið hefur nafniff Saturnus. Eldflaugin var 50 metra löng og vóg 570 lestir. Frá eldflauginni var svo skotiff gervihnetti, sem vegur 18.7 lestir. Allt gekk samkvæmt áætlun. „Skemmdarverka- menn“ PRETORIA 18/9 — Átta Afríkumenn, setn voru sek- ir fundnir um að hafa staðið að skemmdarverkum í Pretoria á tímabilinu júni 1962 til jan. 1964, hlutu á föstudag fimm til fimmtán ára fangelsisvist. Kosningabaráttan í Svíaríki náði hámarki sínu í gær STOKKHÓLMI 18/9 — Á sunnudag eru þingkosn- ingar í Svíþjóð. Kosningabaráttan náði í kvöld hámarki sínu með f jögurra klukkustunda löngum umræðum flokkanna í útvarpi og sjónvarpi. Nú eru um það bil tvær miljónir sjónvarpstækja í Svíþjóð og álíka mörg útvarpstæki og eru kjós- endur. Stjórnmálafréttaritarar í Stokkhólmi segja því, að umræður kvöldsins geti haft úrslitaþýð- ingu hvað kosningaúrslitunum viðkemur. Við þetta bætist, að skoðanakönnun sýndi í byrjun þéssa mánaðar, að enn höfðu 19% kjósenda ekki ákveðið það, hvaða flokk þeir myndu styðja. Kosningabarátta sú, sem há- marki náði í kvöld, hefur ekki verið sérlega æsandi. Þó er ým- islegt við hana nýstárlegt. Þannig hefur hin yngri kyn- slóðin í sænskum stjórnmálum reynt að hasla sér völl meir en áður og kalla sumir þa3 „ameríkaniseraða‘‘ kosningabar- áttu. Mikil áherzla hefur ver- ið lögð á einstaklinga kosninga- baráttunnar, og reynir hver flokkur að gefa forystumönnum sínum sem gleggst og greinileg- ust persónueinkenni. Dæmi þess er sú ákvörðun ungra hægri- manna að bjóða fram sérstak- lega í Stokkhólmi og er Jan Gillberg, sem verið hefur for- maður fiókksdeildar ungra hægrimanna þar i borg. í efsta sæti. Beffiff um meirihluta Sósíaldemókratar höfðu sem stjórnarflokkur tvo fulltrúa í stjórnmálaumræðunum, þá Tage Erlander, forsætisráðherra, og Thorsten Nilson, utanríkisráð- herra. Flokkurinn bers.t nú fyr- ir því að ná öruggum meirihluta í neðri deild þingsins, sem er stjómmálalega mikilvægust. Þar hafa sósíaldemókratar nú 114 þingsæti, en þurfa þrjú í við- bót til þess að vera óháðir stuðningi Kommúnistaflokksins, sem ráða úrslitum mála í deild- inni. Kommúnistar hafa nú fimm þingsæti, og sitja þrír þingmenn þeirra í neðri deild- inni. f efri deild hafa Sósíal- demókratar öruggan meirihluta. Varla stjómarskipti Stjórnmálafréttaritarar búast því ekki við stjórnarskiptum Svíþjóð að kosningum loknum. Síðasta skoðanakönnun bendir til þess, að Sósíaldemókratar muni nú sem fyrr hljóta nærri því helming greiddra atkvæða Enda þótt varað sé við því að taka of mikið mark á slíkri skoð anakönnun, telja flestir stjórn- arflokkinn hafa góða möguleika til bess að halda stöðu sinni. Tage Erlander Hermannsson Mató - rugby! „Þeim að kenna" MOSKVU 18/9 — Anastan Mik- ojan, forseti Sovétríkjanno gerði í dag harða hríð að vest urveldunum og lýsti þeirri skoð- un sinni, að svo væri þeim ar. kenna, að nú horfði ófriðvæn- legar í heiminum en áður. Tæpast borgarastjórn Borgaraflokkamir hafa hins- vegar 113 þingsæti í neðri deild- inni. Þeir leggja því meginá- herzlu á að reyna að ná fjög- urra þingsæta aukningu, sem myndi hnekkja veldi Sósíal- demókrata. Slík aukning þing- sæta myndi þó ekki endanlega hafa í för með sér borgaralega stjóm, þar eð Gunnar Hedlund, foringi Miðflokksins, hefur lýst því yfir, að borgaraflokkamir verði að vinna átta eða tíu þingsæta meirihluta og hann ör- uggan í báðum þingdeildum, eigi Miðflokkurinn að taka þátt í borgaralegri stjórn. Hvað bíður kommúnista? Þá híða stjórnmálafréttaritar- ar þess með óþreyju að sjá, hvemig kommúnistum reiði af. f vetur var skipt um flokksfor- ystu og tók við flokksformanns- stöðunni Carl Hermannsson. — Hann hefur lagt áherzlu á ó- háða afstöðu flqkksins og í út- varps- og sjónvarpsumræðunum komu fram fyrir hönd flokksins ungir, þjálfaðir menn. Flokkur- inn hefur nú fimm þingsæti og hlaut við síðustu kosningar 4,5% atkvæða. Við síðustu skoðana- könnun hlaut flokkurinn 3,7% atkvæða. í héruðunum umhverfis Shanghai hefur kínverska stjórnin veitt álitlegar fjárupphæðir til þess að veita rafmagni til byggðanna, og hefur mikið áunnizt á þessu ári. — Hér sjáum við verka- menn við byggingu einnar rafveitunnar. Soidwater sakar Johnson um rágsherferl gegn sér WASHINGTON 18/9 — Barry Goldwater, öldungadeildar- þingmaður og frambjóðandi Repúblikana við forsetakosn- ingarnar í Bandaríkjunum, sakaði á föstudagskvöld John- son, keppinaut sinn, um það, að hefja að yfirlögðu ráði herferð þar sem honum,, Goldwater, sé lýst sem „skot- glöðum“ (væntanlega trigger happy, fréttin er tekin frá NTB) manni, þegar stríð eða frið beri á góma. Goldwater hélt við þetta tæki- færi fyrstu ræðu sína, sem sjón- varpað var til allra Bandaríkja- manna. Hann varaði bandarísku þjóðina við því að leggja út í stríð, ef hún væri ekki nægilega styrk til slíkra hluta, og bætti við, að Winston Churchill hefði eitt sinn áður varað sína þjóð við slíku. Hann hefði þá talað fyrir daufum eyrum. Enn á ný endurtók Goldwat- er ásakanir sínar um það, að Johnson forseti og stjórn hans hefðu „forklúðrað“ vanda- málunum Kúbu og Suffur-Víet- nam og að forsetinn hafi van- rækt að auka herstyrk þjóðar- innar. Repúblikanaflokkinn kvað hann vera „flokk friðarins“, vegna þess, að hann skyldi eðli fjandmannsins, og líkti komm- únismanum við strákinn, s' em leggði alla götuna undir harð- stjórn sína. Á þeim „strák“ mætti vinna bug, ef allir snerust til varnar. Kommúnismann kvað hann mundu þrýsta á ogþrengja að, þar sem veikur punktur allir hefðum við manngerð í hinu þetta um mælt notaöi hann tækifærið til þess að lýsa stjóm Johnsons sem óöruggri, óvar- kárri og fjótfærri, þar eð hún hætti á stríð vegna veikleika. fyndist, og mætt slíkri daglega lífi. — Og hlýðið nú vel á, sagði Goldwater, ég hef ekki ætlað mér að verða Bandaríkjaforseti á friðartímum. Ég hef ekki ætl- að mér að friður og frelsi verði frá þjóðinni tekið og frá heim- inum yirleitt vegna þess, að okkur skorti vilja, von og for- ustu. Og enn kvað hann: Þið haf- ið heyrt það sagt, að ég sé framhleypinn, óvarkár og skot- glaður. Ef þið minnist stjórn- málalegra ástasðna er það þess vegna, sem slík mynd hefur ver- ið af mér upp dregin. Öll mín verk allar mínar bænir eiga sér eitt takmark: Það er frið- ur. Um leið og Goldwater lét Vopnaviðskipti í Tonkin flóa? WASHINGTON 18/9 — Hvíta húsiff og varnarmálaráðuneyti Bandarikjanna neituffu í dag að ræffa óstafffesiar fregnir þess efnis, aff komiff hefffi til nýrra vopnaviffskipta í Tonkin-flóan- un. Blöff og útvarp í Banda- íkjunum hafa í dag helgaff ó- Inðfestum fregnum hér r.ff lút andi miklu af tíma sínum og rúnú, Ráðstefna ræðir Kongó NAIROBI 18/9 — Á föstudag var í Nairobi sett ráðstefna sem hafa skal það hlutverk að ræða frið í Kongó. Það er forsætis- ráðherra Kenya, Jomo Kenyatta, sem verið hefur helzti hvata- maður ráðstefnunnar. Moise Tsjombe, forsætisráðherra í Kongó tekur einnig þátt í ráð- stefnunni. Kenyatta er formaður nefnd- ar, sem ráðstefnan í Addis Abeba, en hún fjallaði einkum um Kongó-vandamálið, skipaði. Er það ætlunarverk nefndarinn- ar að rannsaka möguleika á sættum í Kongó. Á umræddri ráðstefnu sitja m.a. ráðherrar frá ýmsum ríkjum Afríku, sem ekki hafa tekið þátt í deilum stórveldanna. Malta skal ekki * í NATÓ! PARIS kveðið Malta 18/9 Frakkland hefur á- að snúast gegn því, að fái inngöngu í Atlanz- hafsbandaiagið, en eyjan hlýtur sjálfstæði um næstu helgi. Þctta er haft eftir fréttaritara Reut- ers, Harold King, og kveðst hann hafa það eftir áreiðanleg- um heimitdum í París í dag. Það er vilað, að Malta hef- ur í hyggju að sækja nm upp- töku í NATO, en Frakkland hef- ur áðtw, að sogn naartaa frétta- stofunnar NTB, látið í það skína, að það telji ekki æskilegt, að fleiri ríkjum verði veitt upptaka í bandalagið, þar eð áhrif þeirra hljóti að verða hverfandi lítil. Ennfremur er það haft eftir frönskum ráðamönnum að Eng- lendingar styðji vanalega Banda- ríkin í Atlanzhafsbandalaginu, og ef Malta fái upptöku, þýði það eingöngu það, að þessi tvö ríki fái einu atkvæði fleira í sam- bandinu. t k t

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.