Þjóðviljinn - 20.09.1964, Side 8
g SfDA
ÞJÚÐVILJINN
Sunnudagur 20. september 19M
útvarpið
9.20 Morguntónleikar: a)
Concerto Armonico nr. 6
í B-dúr og flautukonsert nr.
I. í G-dúr eftir Pergolesi.
J. Rampal og Kammer-
hljómsveitin í Stuttgart
leika; Múnchinger stj. b)
Prelúdíur og fúgur úr ,,Das
wohltemperierte Klavier“
eftir J. S. Bach. G. Gould
leikur á píanó. c) Aríur úr
Hippolyte et Aricie, Castor
et Pollux og Dardanus eft-
ir Rameau. G. Souzay
syngur með enskri kamm-
erhljómsveit; Leppard stj.
d) Píanókonsert í G-dúr
eftir Ravel. Bernstein og
Colirmbiu sinfóníusveitin
leika.
11.00 Messa í Kópavogs-
kirkju. (Séra Gunnar Árna-
son).
12.15 Hádegisútvarp: T.
Magyar og W. Hielkema
leika prelúdíu og allegro
eftir Pagnani-Kreisler.
Guðmundur Jónsson syng-
ur. H. Barwasher og
kammerhljómsveitin í Am-
sterdam leika konsert í D-
dúr fyrir flautu og
strengjasveit eftir Tele-
mann; Brussen stj. Fischer-
Dieskau syngur lög eftir
Schubert. Horowitz leikur
tvö verk eftir Chopin. Boyd
Neel strengjasveitin leikur
Capriol-svítu eftir Warock.
D. Oistrakn og Jampolskij
leika tvö lög eftir Prokof-
éff.
14.00 Kórar og sinfóníuhljóm-
sveit suður-þýzka útvarps-
ins flytja; H. Muller-Kray
stj. a) Stormurinn, eftir
Haydn. b) Konsert fyrir
flautu, hörpu og hljóm-
sveit (K 299) eftir Mozart.
c) Óður tfl heilagrar Sess-
elju (Cacilien Ode) eftir
Handel.
15.30 Sunnudagslögin.
15.50 Útvarp frá íþróttavelli
í Ytri-Njarðvíkum: Sigur-
geir Guðmundsson lýsir
síðari hálfleik í knatt-
symukeppni Keflvíkinga og
K.R.-inga.
16.55 Framhald sunnu'/igs-
laganna.
17.30 Bamatími (Helga og
Hulda Valtýsdætur): a)
Leikritið Litli lávarðurinn,
eftir Bumett og Christen-
sen; IV. þáttur. b) Sagan
Heimþrá, eftir Þorgils gjall-
anda. Baldvin Halldórsson
les.
18.30 Hae tröllum á meðan
við tórum,: Gömlu lögin
sungin og leikin.
20.00 Blómin frá Mawai, óp-
erettulög eftir Paul Abra-
ham. Sonja Knittel, o.fl.
með Sinfóníuhljómsveit
Berlínar; Michalski stj.
20.15 Við fjallavötnin fagur-
blá: Þorleifur Guðmunds-
son segir frá Atlastaða-
vatni á Homströndum.
20.35 Kjörhljómsveitin þýzka
leikur syrpu af lögum eftir
Verdi, Delibes, Nevin o.fl.
Gunther stj.
21.00 Haust: Sveinn Einars-
son og Gísli Halldórsson
taka saman dagskrá í ljóð-
um og lausu máli. Lesarar
með þeim: Kristín Anna
Þórarinsdóttir og Þórarinn
Guðnason.
22.10 Danslög (valin af Heið-
ari Ástvaldssyni danskenn-
ara).
23.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á mánudag:
13.00 Við vinnuna.
15.00 Síðdegistónleikar. Her-
mann Guðmundsson syng.
ur. Geza Anda leikur sin-
fónískar etyður op. 13 eftir
Schumann. G. Souzay syng-
ur þrjú lög eftir Boesset,
Bataille, Emmanuel; Bonn-
eau leikur undir. Peter
Pears syngur með Sinfón-
íuhljómsveit Lundúna nokt-
úmu op. 60 eftir Britten.
Milstein og L. Pommers
leika La Folia eftir Corelli.
Segovia leikur lög eftir
Grieg-Segovia og Tr>rroba.
Chet Atkins leikur laga-
syrpu. Ted Straeter syngur
og leikur lög úr Happy
Hunting. George Shearing
og hljómsveit leika bossa-
nova lög. E. Fitzgerald
syngur gömul vinsæl lög.
hljómsveit I. Godfrey leik-
ur forleik eftir Sullivan.
Troff, barnakór og hljóm-
sveit Mauelshagens flytja
þýzk og austurrísk lög.
Ýmsar danshljómsveitir
flytja lagasyrpu.
18.30 Lög úr kvikmyndinni
Risinn, eftir D. Tiomkin.
20 00 Um daginn og veginn.
Jón H. Bjömsson skrúð-
garðaarktekt talar.
20.20 Sónata yfir gamalt ís-
lenzkt sálmalag. Upp á
fallið Jesús vendi, eftir
Þórarinn Jónsson. Dr. V.
Urbancic leikur á orgel.
20.40 Pósthólf 120: Gísli J.
Ástþórsson les bréf frá
hlustendum.
21.05 Dönsk tónlist. a) Það er
alveg áreiðanlegt, sinfónísk
fantasía nr. 2 eftir Finn
Höffing. Sinfóníuhljóm-
sveit danska útvarpsins;
Svend Erik Tarp. Bengt
Johnsson og sinfóníusveit
danska útvarpsins leika;
Friisholm stj.
21.30 Útvarpssagan: Leiðin
lá til Vesturheims.
22.10 Búnaðarþáttur: Göng-
og réttir. Ásgrímur Krist-
insson frá Ásbrekku í
Vatnsdal talar.
22.30 Kammertónleikar:' a)
Strengjakvartett í F-dúr,
op. 93 eftir Beethoven.
Vegh Strengjakvartettinn
leikur.
skipin
★ Skipadeild SlS. Amarfell
er í Helsingfors, fer þaðan
til Hangö, Aabo, Gdynia og
Haugasunds. Jökulfell er í R-
vík. Fer þaðan til Keflavíkur.
Dísarfell er í Liverpool. Fer
þaðan til Avenmouth, Aar-
hus, Kaupmannahafnar, G-
dynia og Riga. Litlafell er
í Frederikstad, fer þaðan á
morgun til Reyðarfjarðar og
Seyðisfjarðar. Helgafell fer
21. þm frá Gloucester til R-
víkur. Hamrafell er í Rvík.
Stapafell fór í gær frá Rvík
til Austfjarðarhafna. Mæli-
fell er væntanlegt til Arch-
angelsk 24. þm frá Húsavík.
★ Hafskip. Skip vor munu
lesta erlendis sem hér segir:
Hamborg. Selá 25.9, Laxá
9.10, Selá 23.10, Laxá 6.11.
Antwerpen. Selá 27.9, Laxá
25.10, Rotterdam. Selá 28.9,
Laxá 12.10, Selá 26.10, Lexá
9.11. Hull. Selá 30.9, Laxá
14.10, Selá 28.10. Laxá 11.11.
Gdynia. Rangá 5.10. Kaup-
mannahöfn. Rangá 9.10.
Gautaborg 12.10.
★ Eimskipafél. Reykjavíkur.
Katla er á leið frá Kanada
til Piraeus. Askja er í Rvík.
★ Hafskip. Laxá fór frá Hull
18. þm til Rvíkur. Rangá er
í Bolungarvík. Selá fór frá
Neskaupstað 17. þm til Ham-
borgar. Tjamme fór frá Len-
ingrad 16. þm til Islands.
Hunze er á Norðfirði.
★ Eimskipafélag Islands.
Bakkafoss er í Gufunesi.
Brúarfoss fer frá Hull 22. þm
til Reykjavíkur. Dettifoss fór
frá Keflavík 13. þm til Cam-
den og NY. Fjallfoss fer frá
Bremen á morgun til Kotka,
Ventspils og Kaupmanna-
hafnar. Goðafoss fór frá Ak-
ureyri í gær til Siglufjarðar
Eskifjarðar, Hamborgar og
Hull. Gullfoss fór frá Kaup-
mannahöfn í gær til Leith og
Reykjavíkur, Lagarfoss kom
til Reykjavíkur í gær frá
Gautaborg. Mánafoss fór frá
Raufarh. 17. þ.m. til Manch-
ester og Ardrossan. Reykja-
foss fór frá Húsavík í gær til
Raufarhafnar, Norðfjarðar og
Seyðisfjarðar. Selfoss kom til
Reykjavíkur 17. þm frá NY.
Tröllafoss kom til Arcangelsk
25. fm frá Reykjavík. Tungu-
foss fór frá Antwerpen í gær
til Rotterdam og Reykjavík-
ur.
★ Skipaútgerð rikisins. Hekla
fór frá Reykjavík í gær vest-
ur um land í hringferð. Esja
er í Álaborg. Herjólfur fór
frá Vestmannaeyjum kl. 5.00
í morgun til Þorlákshafnar,
frá Þorlákshöfn kl. -9.00 til
Vestmannaeyja. Frá Vest-
mannaeyjum kl. 18.00 að
Surtsey, til Þorlákshafnar um
miðnætti áfram til Reykja-
víkur. Þyrill er í Reykjavik.
Skjaldbreið er á Norðurlands-
höfnum. Herðubreið er í R.
vík.
Verkamannasambandið
veðrið
★ Klukkan tólf í gær var
norðan kaldi og slydduél á
Norðausturlandi og norðaust-
an kaldi og léttskýjað vestan
lands. Hlýjast var á Suð-
vesturlandi og sunnan til á
Austfjörðum, 6 stig. En kald-
ast á Hólsfjöllum 1 stig. 1 R-
vík var 5 stiga hiti.
Hæð yfir Grænlandi, grunn
lægð yfir Skotlandi á hreyf-
ingu austur.
til minnis
Qdö
' mam w
CH 1
<
: 2, 1
vT 1
at
=5. l
O
OL
o
JX < á
Davis iýsir gieði sinni við Þórð yfir þvi hve brottíör-
inni hefur verið hraðað og færir síðan talið að hinum
horfna skipstjóra. „Mig grunar að hann sé ekki langt
undan. Ef til vill á eyju nálægt ströndinni . . . Ég
mundi hafa mikla ánægju af að rannsaka málið . . .
Hafið þér eitthvað á móti þ'vi að íara a íana a ein-
hverri eyjunni og rannsaka málið • . • ?“ Þórður rétt-
ir úr sér og segir með ákveðinni röddu: „Verkefni mitt
er að sigla skipinu til Boston. Ég get ekki skipt um
stefnu“.
Þar sem CHERRY BLOSSOM
kemur viö gljd skórnir
★ í dag er sunnudagur 20.
september. Fausta. Árdegis-
háflæði kl. 5.40. F. Rikarður
Jónsson myndhöggvari, 1888.
★ Næturvakt í Reykjavík
vikuna 12.—19. sept. verður
f Laugavegs Apóteki.
★ Nætur- og hclgidagavörzlu
í Hafnarfirði dagana 19.—22.
september annast Bragi Guð-
mundsson læknir. sími 50523.
★ SlysavarOstofan f Heilsu-
verndarstöðinni er opin allan
sólarhringinn. Næturlæknir á
sama stað klukkan 18 til 8.
SIMI 2 12 30.
Slökkvistöðin og sjúkrabif-
reiðin slmi 11100.
★ Lögreglan siml 11166.
★ Neyðarlæknir vakt alla
daga nema Laugardaga klukk-
an 12-17 — SlMI 11610.
Framhald af 3. síðu.
starfi af krafti. Segja má að
eins og skipulagi Alþýðusam-
bandsins er nú komið þá hafi
þessi félög ekkert landssam-
band haft til að annast sin
sérstöku mál. Og ég tel að
sl’íkt Verkamannasamband
hefði þurft að stofna fyrr.
Sambandið ætti að geta að-
stoðað félögin á margan hátt
svo að ómetanlegt væri, og ger-
ir það vonandi ef svo tekst
til með starf þess sem fyrir-
hugað er. að sjálfsögðu í kjara-
málunum en einnig í almenn-
um málum félaganna, eins og
t.d. hagræðingarmálum. fjár-
hagsmálum og menningarmál-
um, sem sambandið ætti að
geta látið til sin taka þegar
þvi vex fiskur um hrygg.
— Sambandsfélögunum er
ætlað að verða áfram beinir
aðilar að Alþýðusambandinu
og kjósa beint á Alþýðusam-
bandsþing?
— Já, því er ekki breytt
með stofnun Verkamannasam-
bandsins. En skipulag Alþýðu-
samþandsins er orðið hæpið
vægast sagt, þar sem kosið er
á þ'ng þess bæði af landssam-
böndum og einstökum félög-
um Það fyrirkomulag er varla
til frambúðar. Þing Alþýðu-
sambandsins eru orðin sVo
fjölmenn að erfitt reynist að
fá húsnæði fyrir þau. Alþýðu-
sambandsþing hafa lika oftar
en hitt einkennzt af pólitískri
togstreitu, sem ástæða er til
að ætla að starfsgremasambönd
eins og Verkamannasambandið
verði að verulegu leyti laus við.
Þjóðviljinn óskar hinu nýja
Verkamannasambandi Islands
og fyrsta framkvæmdastjóra
þess allra heilla og góðs ár-
angurs í starfi. S.G.
Togaralíf
Framhald af 7. síðu
nú er „skipt yfir” og bakborðs-
trollið látið fara. Það er togað
í rúman klukkutíma og 3 pok-
ar í af þessum fína þorski.
Þá hefst aðgerð. Aðgerðar-
borðið er sett upp, menn rífast
um stund um það, hver eigi að
rista, hver að slíta. Allir vilja
slíta. Einn er sendur aftur í
vél með hnífana til þess að láta
vélaliðið draga þá. Það er eitt
af þvi fáa sem hægt er að nota
vélaliðið til.
Og svo er „híf upp”, fiskur,
aftur „híf upp”, og meiri fisk-
ur.
En líf er eftir þetta líf. Ein-
hvemtíma verður komið að
landi.
Og dagarnir líða. Við erum
komnir með yfir 100 tonn, svo
að þetta sýnist ætla að verða
sæmilegur túr. En menn eru
líka farnir að spyrja kokkinn,
hvort hann hafi nokkuð heyrt
á kallinum, hvenær eigi að
vera inni, öruggt mérki þess,
að þá er farið að langa í land.
En hann má ekki vera inni á
miðvikudaginn, segir einn, það
er þurr dagur.
Menn hugsa málið. Nei, á
miðvikudaginn má hann alls
ekki vera inni. Það sér hver
heilvita maður.
Og loks kemur hin langþráða
skipun: Taka það innfyrir.
Það er keyrt af stað heim-
leiðis með 150—160 tonn eftir
10 daga útivist. Á dekkinu er
trollið bætt og bundið upp á
síðuna, gengið frá gilsum, og
allt gert klárt fyrir löndun.
Klukkan hálf sex að morgni
er springnum kastað í land á
togarabryggjunni á Akureyri.—
Menn fara frá borði, hver til
síns heima. Þeir eru léttir upp
á fótinn og ánægðir. Þetta á að
verða skemmtileg innivera.
En á morgun geta bæjarbú-
ar farið niður á olíubryggju og
séð togarann snúa stefni til
norðurs, setja á fulla ferð og
flauta þrisvar.
Tilboð óskast
Til mála kemur að leigja til veitingareksturs tvo
sali að Lindargötu 9. — Upplýsingar á staðnum-
Tilboðum sé skilað fyrir 25. þ.m. í skrifstofur fé-
laganna.
Verkamannafélagið Dagsbrún
Sjómannafélag Reykjavíkur
NYTT ORVAL
af haust- og vetrarkápum
Þar á meðal:
Kápur með loðkrögum
Tízkufrakkar sem nota má
beggja megin
Loðkápur
Apaskinnsjakka og
kápur með loðfóðri
BERNHARD LAXDAL
Kj örgarði, Laugavegi 59.
I
h
I
i