Þjóðviljinn - 01.10.1964, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 1. október 1964
ÞJ6ÐVILIINN
SlÐA
VerBa stríðsglæpir
fyrndir á næsta árí
JERÚSALEM 30/9 — ísrael
skoraði í gær á ríkisstjórn Vest-
ur-Þýzkalantls að grípa til raun-
hæfra aðgerða til að setja skorð-
ur við starfsemi vestur-þýzkra
vísindamanna í Egyptalandi.
Jafnframt var farið fram á
það við Bonnstjómina, að hún
saei til þess að stríðsglæpamenn
úr flokki nazista sleppi ekki
frá refsingu jafnvel þó fyrn-
ingartími (sem er 20 ár) fyrir
stríðs.glæpi yrði ekki framlengd-
ur.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins í Israel lýsti því yfir í
gær, að ekki væri hægt að
sætta sig við það algjöra af-
skiptaleysi sem ríkisstjóm Vest-
ur-Þýzkalands sýndi starfsemi
vestur-þýzkra vísindamanna í
Sameinaða arabalýðveldinu.
Bandarískur lögfræðingur,
sem tók þátt í réttarhöldunum
SS íoríngi dæmdur
MÚNCHEN 30/9 — Karl Wolf, fyrrverandi hershöfðingi
í SS, 64 ára gamall, var í dag dæmdur í 15 ára þrælkun-
arvinnu fyrir dómstóli í Miinchen.
Hann yar sekur fundinn um meðsekt í morði 300 þús
und Gyðinga í heimsstyrjöldinni síðari.
Wolf var náinn vinur yfirforingja Gestapo, Himmlers,
og einn af samstarfsmönnum Hitlers áður en hann var
gerður að yfirherstjóra á Ítalíu í stríðslok.
Hann var sekur fundinn um það, að hafa útvegað flutn-
ingatækin, sem til þurfti að senda 300 þúsund Gyðinga í
fangabúðirnar þar sem þeir voru myrtir.
í réttarhöldunum hélt Wolf því stöðugt fram, að hann
hafi ekki vitað um útrýmingarbúðirnar.
Dómsforseti hefur lýst því yfir, að Wolf hafi þekkt vel
til útrýmingaráætlana Hitlers og Himmlers og hefði Wolf,
sem trúði sjálfur á kynþáttakenningar nazista, gengið að á-
ætlunum um útrýmingu Gyðinga sem sögulegu verkefni.
í Nurnberg Robert M.W. Kemp-
er, sagði í gær í Berlín, að
hættulegur straumur fyrrverandi
stríðsglæpamanna mundi snúa
aftur til Vestur-Þýzkalands ef
fyrningartími stríðsglæpa yrði
ekki lengdur.
Að minnsta kosti 9, til 10 þús-
und þýzkir stríðsglæpamenn
leika lausum hala hér og þar
í heiminum, og mjög hættulegt
ástand gæti skapazt ef þeir
fengju að flytjast aftur til
Þýzkalands, sagði Kempner.
Ha-nn lagði áherzlu á það,
að vestur-þýzk yfirvöld ættu
að ganga betur fram í þvi að
hafa uppá stríðsglæpamönnum
frá tímum Nazista og draga
þá fyrir rétt.
— BONN — Innanríkisráð-
herra Vestur-Þýzkalands Her-
mann Hoecherl hefur lagt til,
að fyrningartími fyrir morð,
sem á einnig við um stríðsglæpi
verði lengdur um fimm ár frá
20 uppí 25.
Samkvæmt núgildandi lögum
er ekki hægt að hefja mál gegn
stríðsgiæpamönnum eftir 8.
maí á næsta ári, því þá eru
20 ár liðin frá því að heims-
styrjöldinni síðari lauk
Uppá síðkastið hefur vestur-
þýzku ríkisstjórninni borizt
fjölmargar áskoranir þess efnis,
að hún komi í veg fyrir að
striðsglæpir fyrnist, sérstaklega
vegna þess að enn er vitað um
fjölda stórglæpamanna, sem
hafa sloppið við refsingu af
því að þeir gátu stungið af.
Fiskvciðiráð-
. stefnu lokið
BONDON 30/9 — Fulltrúar
útvegsins í 10 Vestur-Evrópu-
löndum samþykktu á ráðstefnu
sinni í London í dag, að mæla
með því, að kerfi radiomiðun-
arstöðva af gerðinni „Decca-‘
verði komið upp á íslandi og
Grænlandi
Þetta er haft eftir góðum
heimildum, þó í yfirlýsingu frá
ráðstefnunni sé aðeins skýrt
frá því, að rætt hafi verið um
kérfi Decca-stöðva.
Kalda stríðið
MOSKVU 30/9 — Málgagn
sovézka lamdvai’naráðuneytisins
„Rauða s,tjaman“ hélt því fram
í dag að starfsmenn í banda-
ríska landvarnaráðuneytinu
hefðu lagt til, að þannig áhrif
yrðu höfð á veðurfar, að ný
ísöld rynni upp yfir hinn
kommúnistíska heim.
Blaðið skýrði frá því, að
Bandarikjamenn framkvæmdu
víðtækar veðurathuganir yfir
Sovétríkjunum og hefði Wider
prófessor við Comell háskóla
lagt til, að gjöreyðandi þurrk-
um yrði valdið í Sovétríkjunum
með því að láta allt regn falla
yfir Atlanzhafið og Vestur-
Evrópu.
Rauða Stjaman bætti því við,
að tillögumenn væru alls ekki
vissir um að þessar áætlanir
væm framkvæmanlegar.
Slys á Stapanum
Um kklukkan tvö í gær rákust
saman tvær bifreiðir, önnur af
gerðinni Reno, hin Chevrolet,
við Vogastapa.
Samkvæmt upplýsingum
Keflavíkurlögreglunnar var
Reno bifreiðin á leið til Kefla-
víkur, en hin á leið inn eftir.
Villtist Reno bifreiðin yfir á
hægri vegarbrún og lenti bif-
reiðunum þar saman. Meiddist
ökumaðurinn á Reno bifreiðinni
nokkuð^ og var fluttur til Kjart-
ans Olafssonar héraðslæknis,
sem gerði að meiðslum hans.
Khanh hershöfðingi
er mikill á iofti
Makaríos þ/onar guði
■ Þó Makarios sé forseti lýðveldisins Kýpur er
hann einnig yfirmaður Rétttrúnaðarkirkjunnar á
eynni, sem hann hefur verið síðan 1950 þegar hann
varð erkibiskup af
Kýpur 37 ára gamall.
Gríska rétttrúnaðar-
kirkjan stendur föst-
um fótum á eynni
þar sem u.þ.b. fjórir
fimmtu af 450 þús-
und grískumælandi
Kýpurbúum eru í
henni. — Makarios er
sjaldan titlaður for-
seti, miklu oftar erki-
biskup, enda hefur
samstarfsmaður hans
sagt, að kirkjan sitji
ævinlega í fyrirrúmi
hjá honum: „Hvaða
prestur sem er getur
ævinlega fengið við-
tal við hann hvenær
sem er, og skiptir þá
engu máli hve ástand
í stjórn- eða hermál-
um er alvarlegt þá stundina“. — Makarios fer á
fætur kl. 6 á morgnanna til þess að biðjast fyrir og
eyðir um þrem tímum daglega til að sinna málum
kirkjunnar-
Sjálfur hefur hann nýverið sagt: „Þegar ég hef
loks komið fram vilja og vonum þjóðar minnar, vil
ég algerlega helga mig þjónustu Herrans".
SAIGON 30/9 — Forsætisráð'-
herra iSuður-Víetnam Nguyen
Khanh hershöfðingi fram-
kvæmdi í dag umfangsmikil
mannaskipti í stöðum æðri liðs-
foringja í hernum.
M.a. var yfirmaður varnar-
koma í veg fyrir nýtt valdarán.
Allir liðsforingjarnir sem hafa
verið fluttir voru á svartalista
yngri hershöfðingjanna meira að
segja persónulegur aðstoðarmað-
ur Khanh, Nguyen Cao hers-
höfðingi. Hann er m.a. grunaður
um spillingu og hollustu við
Diem stjórnina sem leið.
Forsætisráðherra féllst í dag
líka á lausnarbeiðni tveggja ráð-
herra. Annar þeirra var félags-
og menningarmálaráðherra, en
hinn Xuan Hong var ríkisritari
hjá forsætisráðherranum.
Sú staða hefur nú verið lögð
niður um leið og ríkisritaranum
var veitt lausn frá embætti.
Kýpurstjórn eflir
landvarnir sínar
MOSKVU og NICOSIU 30/ 9 — Kyprianou utanríkisráð-
herra Kýpur skýrði frá því í Moskvu í dag, að sameigin-
leg yfirlýsing um samningagerð landánna yrði gefin út á
morgun. Hann sagði að samningurinn milli Sovétríkjanna
°g Kýpur, sem var undirskrifaður í dag fjallaði um.efna-
hags- og hernaðaraðstoð S.ovétríkjanna, sem væri veitt án
nokkurra skilyrða, og hefðu Sovétríkin látið í ljós óskorað-
an stuðning sinn við pólitísk sjónarmið Kýpurstjórnar.
Ríkisstjórnin á Kýpur ætlar
að nota um 390 miljónir (ísl. kr.)
til landvarna eyjarinnar á þessu
ári. 120 miljónir af þeim fara
til að halda kýpurgríska her-
inn, sem er 40.000 manns.
Fjármálaráðherra Kýpur gaf
þessar upplýsingar í dag og
bætti við að fjárhagsáætlunin til
landvama fyrir næsta ár væri
240 mi'ljónir króna.
Dagblað í Nikósíu „Cyprus
Mail“ segir í dag, að ríkisstjórn-
in hafi lagt til að hermenn
hennar afsali sér 2 5% af
launauppbót sinni, en hún er
þriðjungur af mála þeirra.
Þá skýrði blaðið frá því, að
verkalýðsleiðtogar hefðu á fundi
með Makariosi deginum áður
komið á framfæri tilboði frá
meðlimum vei'kalýðss.amtak-
anna, að hver þeirra leggi fram
ein dagslaun á mánuði í land-
vamasjóð ríkisstjórnarmnar.
Friðarsvcitirnar
Ríkisstjórnir Svíþjóðar og
Finnlands hafa ákveðið að fram-
lengja dvöl herdeilda sinna á
Kýpur enn um þrjá mánuði.
Nú er fullljóst að sáensku
liðsforingjarnir tveir, sem voru
staðnir að vopnasmygli til
Tyrkja, sem voru í herkví á
Kýpur verða leiddir fyrir rétt
í Svíþjóð.
Stjórnarskrá
NEW YORK 30/9 — Banda-
ríska öldungadeildin sam-
þykkti á fundi í dag breyt-
ingu á stjórnarskrá landsins,
þannig að nú getur forseti
útnefnt með samþykki þings-
ins nýjan varaforseta, ef
embætti losnar á miðju kjör-
tímabili.
Reisari iiþiopiu
GENF 30/9 — Keisari Eþí-
ópíu Haile Selasse kom til
Genfar í dag eftir langt
ferðalag um alþýðulýðveldin
í Austur-Evrópu.
Hann kemur við í London
á leið sinni til Kaíró, þar sem
hann mun sitja fund æðstu
manna óháðra þjóða.
Malawi
ZOMBA 30/9 — Um 700 op-
inberir starfsmenn í Malawi
lentu tvisvar sinnum í hörð'
um átökum við lögregluna í
höfuðborg landsins Zomba í
dag.
Talið er að Hastings Banda
forsætisráðherra verði
kannski að lýsa yfir hernað
arástandi í öllu landinu til að
geta kvatt niður pólitísku ó
eirðirnar, sem hafa geisað
þar síðan fyrir helgi.
Ensku kosningarnar
LONDON 30/9 — Vonir
íhaldsmanna um að vinna
fjórða sigur sinn í röð í þing
kosningum glæddust verulega
í dag, þegar úrslit opinberrar
ykoðanakönnunar sýndu, að
þeir hafa nú næstum þrém
prósentum méira fylgi en
Verkamannaflokkurinn.
Foringi Verkamannaflokks-
ins Harold Wilson hefur ann-
ars sagt, að kannanir, sem
flokkurinn hafi sjálfur fram-
kvæmt sýni að Verkamanna-
flokkurinn væri mun betur
staddur en íhaldið.
Talsmaður Verkamanna
flokksins benti einnig á, að
flokkurinn muni ganga harð
ast fram í kosningabarátt-
unni tvær síðustu vikurnar
fyrir kosningar, og komast
þannig hjá mistökum sem
urðu fyrir kosningarnar 1959
En mestu máli skipti fyrir
flokkinn að rífa þá kjósendur
úr sinnuleysi, sem enn hafa
ekki ákveðið hvernig þeir
muni kjósa, en þeir eru sam-
kvæmt skoðanakönnun
milli 17 og 24 prósent kjós
enda.
málanna Thien Kiem yfirhers-
höfðingi, sem þar að auki er
einn þremenninganna, sem hafa
stjórnað landinu að undanförnu,
sendur til starfa í útlöndum.
Blaðafulltrúi forsætisráðherr-
ans var einnig sendur úr landi
og mun hann starfa við sendi-
ráðið í Washington.
Khanh hershöfðingi sagði i
yfirlýsingu, að hann hefði sjálf-
ur ákveðið þessar breytingar, en
ekki verið knúinn til þess.
Fréttamenn í Saigon eru þó
þeirrar skoðunar, að ákvarðanir
hershöfðingjans séu tengdar
svartalistanum svonefnda, sem
hópur yngri foringja í hernum
færði honum nýlega.
Einnig er það álitið að tií-
flutningur yfirmanna burt frá
Saigon og jafnvel til útlanda sé
liður í varúðarráðstöfunum
Khanh hershöfðingja til þess að
VÉLAR OG TÆKI FYRIR
NIÐURSUÐU-
IÐNADINN
★ Útvegum beint frá heimsþekktum framleiðendum vélar
og tæki til niðursuðu og niðurlagningar á fiskafurðum.
★ Höfum að baki margra ára reynslu í innflutningi á
vélum fyrir fiskiðnaðinn. Sjáum um tæknilega aðstoð,
látum ennfremur gera teikningar og áætlanir fyrir nýj-
ar verksmiðjur stórar og smáar, svo og breytingar og
stækkanir á eldri verksmiðjum.
Mars Trading Company h.f.
Siálfvirk ‘
dósalokunarvé’
TRÍÓ
GERD TAF-3
Klapparstíg 20 — Sími 17373