Þjóðviljinn - 23.10.1964, Page 7
ÍWstudagur 23 október 1564
ÞIÖDVKLIINN
SteA 7
„Þann 23. okt. 1924 var settur *:
og haldinn almennurís'jómanna-
fundur að tilhlutan stjóm- ií
ar Sjómannafélags Reykja-
víkur. Fundurinn var haldinn ;•:;
í GT-húsinu i Hafnarfirði kl.
8%. Sigurjón Ólafsson setti
fundinn og bað Björn Bl. Jóns-
son vera fundarstjóra".
Þannig orðrétt hefst fyrsta
fundargerð Sjómannafélags
Hafnarf.iarðar. f þeirri sömu
fundargerð er bókað að Rósin-
krans fvarsson hafi borið fram
eftirfarandi tillögu:
„Fundurinn samþykkir að
stofna sjómannafélag í Hafn-
arfirði og kýs 5 manna nefnd
til að semja lög og reglur fyr-
ir féiagið og undirbúa hinn
reglulega stofnfund".
Tillagan var samþykkt og í
nefndina voru kosnir: Júlíus
Sigurðsson, Erlendur Jónsson,
Símon Kristjánsson, Stefán
Barhmann og Marteinn Ein-
arsson.
Á þessum fundi gengu í fé-
lagið sem stofnendur 54 menn.
Hinn 30. okt 1924 var fram-
haldsstofnfundur Sjómannafé-
lags Hafnarfjarðar haldinn í
húsi Hjálpræðishersins í Hafn-
arfirði Formaður Sjómannafé-
lags Reykjavikur. Sigurjón Ól-
afsson, setti fundinn. Gaf hann
síðan formanni undirbúnings-
nefndar. Júlíusi Sigurðssyni,
orðið. Nefndin var sammála
um að stofna sjðmannafélag,
en meirihlutinn vildi að það
yrði deild í Sjómannafélagi
Revkjavikur, en minnihlutinn,
Júlíus Sigurðsson, að það yrði
sjálfstætt og mælti Sigurjón
með þvi Eggert Brandsson og
Bjöm Blöndal mæltu með
deildarfyrirkomulaginu, og var
bað samþykkt með 13 atkvæð-
um gegn 10.
Þá var rætt um nafn deild-
arinnar. Eftir nokkrar umræð-
ur var samþykkt með 13 at-
kvæðum að nafn deildarinnar
skvldi vera Hafnarfjarðardeild
Siómannafélags Reykjavíkur
Um fiármál deildarinnar urðu
nokkrar umræður, og að þeim
loknum var samþykkt eftirfar-
andi tillaga-
1. — Deildin hefur sín sér-
stöku fjármál og annast þar af
leiðandi rekstur sinn sjálf. —
(’Samþykkt með 18 atkvæðumj'.
2. — Fundurinn samþykkir
að stofng'iald sé 5 krðnur og
inntökugjald hið sama. (Sam-
þvkkt með samhljóða atkvæð-
umj'.
3. — Deildin ræður sér
starfsmann til innheimtu gjalda
og hvetja menn til þess að
ganga í félagið. (Samþykkt með
24 atkvæðumj'.
Starfsmaður var ráðinn Júl-
íus Sigurðsson. Á þessum sama
fundi var kosinn einn maður
á þing „ATþýðuflokksins“ eins
og það er orðað í fundargerð,
og til að mæta f fulltrúaráði
Hafnarfjarðar, innan sviga
„Verkamannafél. Hlífar", og
SJÓMANNAFÉLAG
HAFNARFJARÐAR
FJÖRUTtU ÁRA
Kristján Eyfjörð Guðmundsson
var Marteinn Einarsson kosinn
í einu hljóði.
Á þessum stofnfundi skýrir
svo Sigurjón Ólafsson lög Sjó-
mannafélags Reykjavíkur sem
séu þau sömu og deildarinnar,
og komi stjóm Sjómannafélags
Reykjavíkur fram fyrir hönd
deildarinnar í öllum kaupmál-
um, en deildin hafi sin fiár-
mál sér og reikningsár sé alm-
anaksárið, og skuli hún halda
aðalfund sinn í janúar ár
hvert. í fyrsta skipti 1925.
Undir þessa fundargerð skrif-
ar .Tón J. Bjamason, varafor-
maður.
Fyrsta tilraun til félagsstofn-
unar meðal sjómanna í Hafn-
arfirði mun hafa verið gerð
fyrir aldamót, eða um 1896, og
þá stofnað eitt af svonefndum
BSmfélögum. Talið er að það
félag hafi starfað um 14 ára
skeið. En fátt eða ekkert mun
nú finnast skráð um það félag.
Talað er um að önnur tilraun
hafi verið gerð, en brátt mun
það félag hafa leystst upp.
Áðuren Sjómannafélag Hafn-
arfjarðar var stofnað voru sjó-
menn í Hafnarfirði í Verka-
mannafélaginu .Hlíf og munu
þeir ásamt stjóm Sjómannafé-
lags Reykjavikur hafa haft
frumkvæðið að stofnun félags-
ins.
Hafnarfjarðardeild Sjómanna-
félags Reykjavikur starfaði í
um 3 mánuði, eða til 17. janú-
ar 1925, að aðalfundur er hald-
inn, og er það fimmti fundur
félagsins. f 5. lið dagskrár þess
fundar er tekið til umræðu
nefndarálit, sem hljóðar svo:
„Hinn 4. janúar 1925 kom
nefnd sú saman er kosin var
S síðasta fundi Sjömannafélags
Hafnarfjarðar h'já deildarstjóra,
Júlíusi Sigurðssyni. Nefndin
samþykkti í einu hljóði neð-
angreint fyrirkomulag félags-
ins framvegis, sem hljóðar svo:
Nefndin lítur svo á, að Sjó-
mannafélag Hafnarfjarðar verði
framvegis sjálfstætt félag, að
því undanskildu er viðkemur
öllum kaupmálum er skulu
vera sameiginleg mál milli fé-
laganna".
Með tillðgunni mæltu: Björn
Jóhannesson, Rósinkranz fvars-
son, Sigurjón ólafsson, Eyjólf-
ur Stefánsson og Júlíus Sig-
urðsson, sem, hafði framsögu
um tillöguna.
Var svo þessi tillaga borin
undir atkvæði og samþykkt í
einu hljóði.
ÞS var borin uop tillaga um
að félagið héti Sjómannaféiag
Hafnarfjarðar, og var hún sam-
þykkt einróma.
Þá var kosin stjórn fyrir fé-
lagið. Formaður var kosinn
Björn Jóhannesson. Aðrir í
stjóm þess voru Eyíólfur Stef-
ánsson varaform., Guðmundur
Ólafsson ritari. Júlíus Sigurðs-
son gjaldkeri og Gunnar Jðns-
son meðstjðmandi.
Á framhaldsaðalfundl er svo
samþykkt ársgjald félagsmanna
16 krðnur, og 5 kr. inntöku-
gjald.
Ennfremur var samþykkt að
sækja um inntöku i Alþýðu-
samband fslands sem sjálfstætt
félag.
Hefur því Sjómannafélag
Hafnarfjarðar starfað óslitið
síðan 23. október 1924, eða i
40 ár.
Eins og vænta má hefur
margt drifið á daga félagsins
í þessi 40 ár.
Þegar félagið var stofnað
voru taldir vera 12—14 togar-
ar i Hafnarfirði. f október
1925 gerði félagið sina fyrstu
samninga i samráði við Sjó-
mannafélag Reykjavíkur. Árið
1929 tók félagið þátt í verk-
falli með Sjómannafél. Reykja-
vikur, til að knýja fram bætt
kjör á togurum, og giltu þeir
samningar er gerðir voru um
allmörg ár.
mundur Hjörleifsson hafi þurft
að láta létta skip sem vom að
sigla með fisk til útlanda 14
sinnum!
Það er ekki hægt að fara
ýtarlega út í sögu félagsins i
stuttri blaðagrein, og varla
verður um skemmtun að ræða
um þessar mundir í tilefni af-
mælisins, þar sem meðlimir fé-
lagsins og meirihluti stjórnar
þess er við störf sín á hafinu,
við síldveiðar á fjarlægum mið-
um og á togurum. En stjóm-
in mun hafa hug á að láta
skrifa sögu félagsins með frá-
sögn af störfum þess, ef hún
getur fengið góðan mann eða
menn til þess og geta þá sjó-
mannafélagar fengið ýtarlegri
upplýsingar um störf félagsins
en hægt er að gera í blaða-
grein.
Markmið Sjömannafél. Hafn-
arfjarðar frá byrjun hefur ver-
ið að beita sér fyrlr bættum
kjörum sjómanna og aðbúnaði
og öryggi. Félagið hefur gert
fjölda samþykkta til bæjaryf-
irvalda og ríkisvalds um auk-
ið atvinnuörvggi, bættan skipa-
stðl, bætta aðstöðu hjá síldar-
verksmiðjum ríkisins og margt,
margt fleira, sem ekki er hægt
að geta hér.
Strax á fyrstu fundum fé-
lagsins eru bomar fram tillög-
ur um hvað sé hægt að flytja
á fundum félagsins til menn-
ingarauka. Það er ljóst að þeir
sem beittu sér fyrir stofnun
sjómannafélagsskaparins, hafa
ekki eingöngu hugsað um dag-
Björn Jóhanncsson.
fyrsti formaður Sjómanna-
félags Hafnarfjarðar.
legar þarfir sjómanna. Þerr
hafa viljað þroska þá á and-
lega sviðinu líka.
Þess skal að síðustu getiS
hverjir hafa verið formenn i
félaginu þessi 40 ár. Eftirtald-
ir menn hafa gegnt þeim
starfa:
Björn Jóhannesson, Júlíus
Sigurðsson, Gunnar Jónsson,
Ingimundur Hjörleifsson, Jens
Pálsson, Óskar Jónsson, Þór-
arinn Guðmundsson, (hann
gegndi lengst formannsstörfum,
eða í 9 árj, Kristján Eyfjörð
Framhald á 0. síðu.
<?>-
Þá hefur félagið beitt sér
fyrir bættum kjörum sjómanna
á ýmsan hátt. Það var tll dæm-
is fyrir tillögu frá Sjómanna-
félagi Hafnarfjarðar að vélbát-
amir Bjargimar svonefndu
voru smiðaðar og gerðir út frá
Hafnarfirði.
Ennfremur hvatti félagið til
' sundlaugarbyggingar i Hafnar-
firði, svo sjömenn gætu lært
sund, og átti félagið mann í
byggingamefndinni.
Félagið stofnaði vinnudeilu-
sjóð. Styrktarsjóði kom félag-
ið sér upp 1943: fyrsti hvata-
maður þess sjððs var Óskar
Jónsson Og hefur félagið veitt
úr þeim sjóði á hverju ári
síðan til þeirra er hafa orðið
fyrir slysum eða þolað heilsu-
brest á annan hátt.
Þá beitti félagið sér fyrir
öryggisráðstöfumum á striðs-
árunum með að hindra of-
hleðslu skipa er sigldu til út-
landa með fisk. Félagið þurfti
að gera mikið átak í þeim efn-
um og urðu forustumenn fé-
lagsins að standa tímum sam-
an á bryggjum til að líta eftir
að settum reglum væri hlýtt.
Var það í samráði við Sjó-
mannafélag Reyk'javíkur.
Á árlnu 1944 skýrir formað-
ur frá þvi, að hann og Ingi-
Kínverjar vilja fund
æðstu manna
WASHINGTON 21/10 — Forsætisráðherra alþýðu-
lýðveldisins Kína hefur sent Johnson forseta bréf,
þar sem hann leggur til að kallaður verði saman
fundur æðstu manna allra helztu rík]‘a í heimi, til
þess að ræða tillögu um fullkomna og algjöra eyði-
leggingu allra kjarnorkuvonna.
Talsmaður forsetans sagði frá því í dag, að bréf-
ið væri eins og aðrar áskoranir sem Kínverjar hafa
beint til fjölda annarra landa eftir að þeir gerðu
fyrstu kiarnorkusnreng'iutilraun sína.
Bréfið til Johnsons forseta var afhent á venju-
bundnum fundi sendiherra Kína o.g Bandaríkjanna
í Varsjá.
Talsmaðurinn sagði. að afstaða Bandarfkjanna til
bessarar tillögu væri ekki brevtt. síðan Dean Busk
utanríkisráðherra lýsti því vfir í siónvarpsviðtali
á sunnudag. að tillagan væri reykjarslæða sem ætti
að róa heiminn.
Talsmaðurinn gat ekkert um það sagt, hvort for-
setinn mundi svara bréfinu.