Þjóðviljinn - 23.10.1964, Side 10

Þjóðviljinn - 23.10.1964, Side 10
2Q SlÐA ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. október 1964 ANDRÉ BJERKE. EIN- HYRNINGURINN til blóðs en að vera þátttakandi í stríðinu milli foreldranna. Hvers konar móðir ert þú eig- inlega? En það er ekki ég, heldur hann. sem hefur framið hjú- skaparhrot! Þvi hefurðu sjálf komið í kring. Ég? Já, þú. Þú vissir hvað myndi koma fyrir ef þú leiddir þau saman. Þú vildir refsa hon- um með Bibbi, þvi að hún er sannkölluð refsing, finnst þér ekki? Refsa honum fyrir hvað? Fyrir kuldann við þig. Fyrir það að hann varð kaldur af þvi að taka á Snædrottningunni. En það er ég ekki lengur! Nei, ég hef aldrei verið það — bara feimin og heimsk og óreynd og .... .... og illgjöm. Kallaðu sjálfa þig að minnsta kosti ekki siðsama konu þegar þú gerir annað eins. Æ, kæra spegilmynd, vertu miskunnsöm! Ég gat ekki unnið bug á honum á neinn annan hátt. Honum? Það þarf að vinna bug á sjálfri þér. Já, já, já! Það er bara sárt að horfa á hann og þetta — kyn- dýr. Og þetta segir þú, meðan kroppur þinn æpir á hann? Vegna þess að hann hefur ekki snert þig í heila eilífð. Ekki tala svona ruddalega! Þú sem átt bara eina ósk:að hann bindi á þér hendumar og nálgist þig með ofsa og tryll- ingi — eins og þú værir valin gleðikona. Þú með blúndu- giuggatjöldin þín og fjólur á náttborðinu, varst þú eitthvað að tala um kyndýr? Æ. hættu! Ég elska hann! Ágætt. Þá verður hægt að vinna bug á þér, bíddu bara hæg.... Það tók á taugamar að halda uppi samræðum við spegilmynd. Hún teygði sig eftir krukkunni með andlitskremi. Hún varð að gera eitthvað við þessa hrukku við munninn. Gram sat í stofunni í frakka og með hatt og leit óþolinmóð- lega á klukkuna. Nú hefði bam- fóstran átt að vera komin; hann gat ekki farið fyrr en hún kom. Rigmor var á fundi í húsmæðra- félaginu. Og hann átti stefnu- mót við Bibbi í kvöld. Hún vildi tala við hann um dálítið mikil- vægt, mjög mikilvægt. Hann hafði grun um hvað það var, ] og hann hafði fulla ástæðu til að vera taugaóstyrkur. HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðslu og snyrtistofu STEINU og DÓDÓ Laugavegi 18 III hæð (lyfta) SÍMI 2 4616. P E R M A Garðsenda 21 — SÍMI: 33 9 68. Hárgreiðslu og snyrtistofa. D ö M U R ! Hárgreiðsla við allra hæfi — TJARNARSTOFAN — Tjamar- götu 10 — Vonarstrætismegin — SÍMI: 14 6 62. HARGREIÐSLUSTOFA AUST- URBÆJAR — María Guðmunds- dóttir Laugavegi 13. — SlMI: 14 6 56 — NUDDSTOFAN ER A SAMA STAÐ. Elskaði hann Bibbi? Hann vissi það ekki. En í kvöld hefði hann víst átt að vita það? Upp á síðkastið hafði honum fundizt hann vera eins og skip- reika maður í björgunarbát án vatns. Loks verður maðurinn frá sér og drekkur sjó. Með hverj- um sopa vex þorstinn. Já, þú ert sjórinn. Bibbi. Þú fyllir mig salti. Getur hinn þyrsti elskað saltvatn? Kannski hafði Rigmor haft rétt fyrir sér þegar hún sagði að hann hefði ekkert hjarta. Er það þess vegna sem fólkið nú á dögum er svo vansælt? Hjartað í okkur er í ágætu standi og kynfærin eru laus undan okinu. En það er ekkert sem tengir okkur saman að ofan og neðan. 21 Við erum sundurlausir, dauðir í miðjunni......og þótt ég fram- seldi líkama minn til þess að ég yrði brenndur, en hefði ekki kærleika, væri ég engu bætt- ari. Bæði Rigmor og Páll postuli hafa rétt fyrir sér. hugsaði hann. Ég er hljómandi málmur og hvellandi bjalla. Ég verð að finna aftur hjartað í mér. Ég hef mislagt það einhvers stað- ar. Hjartað? Þvættingur: Hjartað er holur vöðvi, sem með takt- bundnum samdrætti dælir blóð- inu eftir blóðæðunum. Það er með hólf og lokur og eegir lubb-dubb, lubb-dubb og sam- svarar stimplinum í bílhreyfli. Þar getur ekkert tilfinningalíf haft aðsetur .... En af h-verju finnum við alltaf til hræðslunn- ar vinstra megin í brjóstinu? Það var einmitt þar sem hann hafði óþægindi núna. Hann var hræddur; guði sé lof, þá hafði hann lifandi hjarta þrátt fyrir allt! Aftur leit hann óþolinmóðlega á úrið. Ó, þessi kona! Sem eig- inkona er hún svarkur og sem ástmey galdrakind. Ekki er hægt að fá heimilisaðstoð, þvf að það víll hún ekki vera — og svei mér ef hún ætlar ekki líka að svíkja sem bamfóstra! Hann gat ekki setið kyrr leng- ur; hann gekk inn til Myrth. Það hafði góð áhrif á hann að horfa á sofandi bamið í rökkr- inu. Kringluleitt andlitið á kodd- anum ljómaði af djúpum friði. Ennið var bjart og stimdi á það; litla nefið dró andann með vel- þóknun. eins og það drægi að sér blómailm meðfram Vetrar- brautinni. Veslings hnátan, ein- hvem tíma yrði hún að fara út i hringrásina. En ennþá sat Púkk á rúmstokknum og gætti henn- ar. Síminn hringdi frammi í gang- inum; hann flýtti sér fram og anzaði. — Hvað í ósköpunum ertu að hangsa? Þolinmæði var ekki ein af dyggðum Bibbiar; hún þoldi aldrei að bíða eina einustu mínútu. öðru máli gegndi þegar hún lét hann bíða klukkutíma eftir sér. Að því leyti hefur kon- an aldrei heimtað jafnrétti milli kynjanna. Hann sagði henni hvemig þetta væri með bamfóstruna. Og til allrar hamtngju hringdi dyrabjallan áður en Bibbi gat fleygt tólinu á. — Þarna kermir hún! Ég verð kominn eftir fjórar imnútur! Gamla konan ser.i inn kom, var mjög leið yfir því r.ð hafa tapað af strætísvaigni. Henm hafði ekki tíma til að fyrirgefa henni áður en harm þaut út Þau höfðu setið og spjaBað saman á veitingastofunni í heila khikkustund áður en hún komst að efninu. En hún hafði stýrt samræðtmum í stóran sveig í áttina að því sem segja átti. Og nú kom það; — Já! Ég er orðin leið á að vera slæma samvizkan þín. Ef þú vilt hafa meira samanvið mig að sælda, þá kostar það þig gullhring. Hún lyfti baugfingri hægri handar. Skilurðu það? Einbaug! Loksins kom það. Og hann vissi að henni var alvara með þetta. Hún getur gert gys að kynlífinu, en ekki að gullinu. Hann byrjaði stamandi: Viltu? — .... verða konan þin. já. Forstjórafrúin þín! Nei, Bibbi var ekki félagi í Siðgæðishreyfingunni. En hún uppfyllti eina af fjórum kröfum hreyfingarinnar: Alger einlægni. — Þessi leiðinda frænka mín kann hvort semer ekki að meta þessa tilveru. En það kann ég .... Jæja, hvað segirðu? Hann sagði ekki neitt, horfði bara dolfallinn í augu hennar. Isblá. Sá litur sést ekki víða í náttúrunni. Þú getur séð hann í jökulsprungum. Isfuglinn hef- trr hann á vængjunum. Hann getur birzt á himninum í nánd ávið sjóndeildarrfmnginn. Og hann er í augunum á Bibbi. Hún endurtók: Hvað segirðu? Hann var í björgunarbát úti á rúmsjó. Aralaus og án vatns. Hann rak fyrir straumi og vindi. Þetta urðu örlögin að ákveða. Gæti hann ekki dregið svarið ögn á langinn? Hann leitaði á- kaft í jakka- og buxnavösum. Hvað ég segi? Ég segi .... hm .. áttu sígarettu? — Leitaðu í frakkavasa þín- um. Hún benti á vetrarfrakkann hans sem lá á stólbakinu. — Já, í frakkavasanum .... Hann stakk hendinni niður í vasann. Hann var djúpur og' rúmgóður. Hvað varð fyrir hon- um þama niðri? Hann tók það upp og setti það á borðið. Það var ekki sígarettupakki. Það var Púkk. Rigmor opnaði útidymar. Hún hlustaði . Var það grátur sem hún heyrði? Bamfóstran kom fram í and- dyrið: Myrth er vöknuð og hún heldur því fram að brúðan hennar sé týnd. Hún er alveg óhuggandi. Já, þama sat hún í rúminu og hágrét. Rigmor strauk henni um hárið: Svona, svona! Púkk hefur sjálfsagt sprangað út í tunglsljósið eins og hann er vanur. Og svo hefur hann villzt aftur. — Nei, það er pabbi sem hef- ur tekið hann! kjökraði Myrth. Og hann sem krossaði sig og allt! — Það er ég viss um að pabhi hefur ekki gert. Ekki fyrst hann krossaði sig og hvað eina. Það væri ekki líkt honum. — En Púkk er ekki úti í tunglsljósinu. Þvi að glugginn er lokaður eins og þú sérð. Nú kom nýtt táraflóð. Rigmor kyssti hana á saltan nebbann. Við finnum hann á- reiðanlega. Ég held ég vitá hvar hann er. — Jæja? Myrt leit á móður- ina með nýja von vakvið tárm. — Já. Og svo lofa ég því, að ég skal búa til hús handa hon- um, svo að hann sé ekki að flækjast þetta um í reiðileysi. — Ætlarðu að krossa þig? — Ég krossa mig! Bamfóstran var ekki farin enn. Hún fékk tækifæri til að sitja lengur. — Af hverju komstu með hann hingað? Rödd Bibbiar var nístandi. Hann hafði ekki minnstu hugmynd um það. Hann hafði verið í frakkanum þegar hann fór inn í bamaherbergið, rétt áður en síminn hringdi. Hafði Myrth laumast til að —? Nei, hún var steinsofandi. Þama sat hann að mirensta kosti á miðju borðinu og var staðreynd á skíðafótum. Topp- húfan var komin með nýtt brot og Skegglýjumar voru rytjulegri en nokkru sinni fyrr eftir dvöl- ina í frakkavasanum. En að öðru leyti virtist hann við beztu heilsu. Kringlótt íkomaaugun horfðu með mildum svip á Bibbi. — Heyrirðu ekki hvað ég er að segja? Af hverju ertu kom- inn með hann hingað? Ég tók hann ekki .... And- mælin virtust máttleysisleg. Síð- ast þegar ég sá hann, sat hann á rúmstokknum hjá Myrh; ég var inni hjá henni rétt áður en ég fór .... Eöng, éldrauð nögl klóraði i dúkinn. Og svo tróðstu honum ■í vasann — alveg viðutan, var það ekki? Bibbi hafði naumast lesið Freud. En hún beitti honum. Þetta var kaflinn um röngu við- brögðin. — Ég skil ekki .... tatrtaði hann. — En ég skil það! hreytti hún útúr sér. Þú hefur eitthvað meö þér til að vernda þig — fyrir mér. Brúðuna hennar litlu dótt- ur minnar! Æ, ég þekki ykkurr eiginmennina! Hann svaraði með sptimrngu: Hvers vegna viltu fá mig sem — eiginmann? Púkk hafði aldrei getað bros- að, því að láréttur munnurinn var saumaður niður í eitt skipti fyrir öll. En nú var alveg eins og ólýsanlegt bros hvíldi yfir saumuðum andlitsdráttunum. Káttna, sem var ekki af þess- um heimi. Hvaðan kemurðu Púkk? Bibbi sló flötum lófanum f borðið af miklu afli. Það var eins og skoti væri hleypt af í veitingastofunni. — Nú verðurðu að velja milli mín og þessarar brúðu. Skilurðu það? ísbláu augun leiftruðu. Svo Ieit hún niður á borðið og hún hrökk við. Hvgmig er hann kominn þangað? Allt frá hatti oní skó CONSUL CORTINA bflaielga magnúsap •*■■■ skipholtl 21 slmar: 21190-21185 ' ' \ . t > » ' * -4 : • •»>».!»« ;> ; 3£aukur (^u&mundóðc' ~ HEIMASÍMI 21037 SKOTTA „Ég get ekki verið með þér Alfreð... en ég skal fara út með þér þriðjudags-, miðvikudags-, fimmtudags- og föstudagskvöld. FERDIZT MEÐ LANDSÝN # Seljum farseðla með flugvélum og skipum Greiðsluskilmélar Loftleiða: # FLOGIÐ STRAX — FARGJALD GREITT SÍÐAR # Skipuleggjum hópferðir og ein- staídingsferðir REYNIÐ VIÐSKIPTIN FERÐASKRIFSTOFAN Lf\ N a S V IM TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.a BOX 465 — REYKJAVÍK. CMBOÐ LOFTLEEÐA. Kartöflumús * Kókómalt * Kaffi * Kakó. KR01N - BÚÐIRNAR. Sendisveinar óskast Hafið samband við skrifstofuna, sími 17-500. MMIi /

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.