Þjóðviljinn - 20.11.1964, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.11.1964, Blaðsíða 2
SÍDA HÓBVIUINN SLAND SRAEL Annað fréttabréf Baldurs Pálma- sonar frá Olympíuskákmótinu Síðari hluti Eftir hádegisverð var gengið á fjallið Zíon og skoðuð and- látskirkja Maríu meyjar. Er það nýleg bygging, að mestu reist snemma á okkar öld, i og með til virðingar við Vil- hjálm II Þýzkalandskeisara. og var hún honum gefin, er hann ferðaðist hingað austur sem opinber gestur Er kirkj- an hin fegursta að innanverðu. Á þessum bletti á hin heitaga Guðsmóðir að hafa sofnað hinzta svefni, og til merkis um það er líkneskja af henni liggjandi á líkbörum í hvelf- ingu undir kirkjusalnum. Loga þar kertaljós jafnt og þétt. Grafarbeður hennar er hins- vegar á öðrum stað, sem heyr- ir til Jórdaníu. En Davíð konungur Israels er sagður gráfinn undir stein- bákni einu þarna á fjallinu, •vog- virtum við legstað hans fyrir okkur. Þar í áfastri byggingu •> er. gotnesk hvelfing, bar sem gefur að líta súlnabrot af býzantískri gerð. og er það tákn um stað bann, þar sem Kristur kvaddi lærisveina sína í heilagri kvöldmáltíð hið fyrsta skírdagskvöld I hvelf- ingunni má sjá nokkrar menj- ar frá krossferðatímunum. t.d skialdarmerki riddaranna riso- uð og lituð f steininn. og sums- staðar eru svartír sótblettir eftir logana frá kyndlum þeirra. Við Islendingar urðum svo eftir í Jerúsalem. þeaar vagn- inn hélt aftur til Tel Aviv. bvf að nú hafði okkur veríð boðið að koma til kveðjuhófs bess. er forsætisráðherrahjóo ísiands. dr. Biarni Benedikts- son og frú Sigríður Björns- dóttir. héidu kvöidið fyrir brottför beirra úr Israel eftir vikudvöl sem opinberir gestir ríkisstjórnarinnar. En varla er hægt að stíga svo út úr vagninum, að ekki sé minnzt á leiðsögumann okkar um borgina, bráðfæran og röskan mann, sem lét sér aldrei verða fótaskort á tungunni, er hann flutti okkur ferðalöngunum skýringu á ensku, frönsku og spænsku til skiptis. Starfsbróð- ir hans, sem leiðbeindi okkur á ensku og þýzku í fyrri Jerú- salemsferðinni, er ég nefndi um daginn, var einnig mikill öndvegismaður, góður húmor- isti, og húmanisti líka trúi ég. Hann hét eftir forföður sín- um Haggaí spámanni.1 Tímanum fram til veizlunnar eyddum við mestmegnis á ein- asta íslenzka heimilinu í Jer- úsalem. Þar ei*u húsráðendur Þorgeir ^Þorgeirsson lækna- kandídat og kona hans Krist- jana, sem hafa haldið þarna heimili í þriggja herbergja í- búð fast að elnu ári. Þorgeir stundar framhaldsnám við vinstri), til Þegar Bjarni Benediktsson forsætisráðhcrra hcim sótti ísrael á dögunum hitti hann m.a. Þorgeir Þorgeirsson cand. med, sem Ieggur stund á sjúk dómafræði við Hadassab-stofnunina við Lækna- deiid hebreska háskólans í Jcrúsalem. A myndinni sést ráðherrann ræða við Þorgeir (til hægri er forstöðumaður stofnunarinnar. læknisfræðistofnunina. sem er sjálfstæð stofnun í tengslum við háskólann, og leggur hann stund á krufningar fyrst og fremst. Mun hann þurfa að vera vjðbúinn því, að vera til kvaddur til þess ama hvort sem er á nóttu eða degi, því að ekki er beðið boðanna í þeim efnum. Annars kynnu ættingjar hins látna að hindra verkið með offorsi. Þarna var gaman að koma, og ekki spilltu blessuð börnin tvö, kát og frískleg, bæði á fyrsta ára- tugnum. Munu ekki önnur ís- lenzk börn finnast nokkurs- staðar, er hafa hebresku fyrir daglegt mál utan heimilis og - jafnvel sín f milli. Farið var með börnin til gæzlu í nær- liggjandi húsi, og síðan urðum HADASSAII—STOFNUNIN I JERÚSALEM við öll samferða til kvöldfagn- aðarins, hjónin, Ingvar stúd- ent og skákaramir, alls tíu manna hópur. Ellefti maður, Björgúlfur loftskeytamaður, kom rakleitt til veizlunnar frá Tel Aviv. Mannfagnaður þessi fór fram í veglegasta hóteli höfuðborgar ríkisins, hóteli Davíðs konungs, sem hefur mörgum salarkynn- um til að tjalda. Fyrir enda þessa salar þaktist veggur breiðum línborðum í litum ís- lenzka fánans. Á langborði öðrumegin stóðu drykkjarföng og matarföng, og gat hver gengið þar að og gætt sér á að vild. I boðinu var margt embættismanna, þ.á.m. forsæt- isráðherra Israels Levi Eshkol, svo og sendiherrar margra rfkja, bæði blakkir og bjartir yfirlitum. Forsætisráðherra- hjónin og sendiherrahjónin Andersen létu hið bezta yfir ferðinni hingað, en oft kváðu þau dagskrána hafa verið nokkuð stffa, farið af stað árla dags og ekki komið til rólegheita fyrr en síðla kvölds. Nær aldrei gist tvær nætur á sama stað. Á eftir bauð Ingvar Bjöms- son okkur heim til sfn á stúd- entagarðinn, en slík hús eru þrjú og eigi smá. Rúma þau þó nokkur hundmð erlendra og annarra aðkomustúdenta. Tngvar hefur tvo herbergisfé- laga, bóða af Gyðingakyni, og er annar þeirra rússneskur en hinn frá Chile. Þeir hafa frem- ur rúmgott herbergi með eld- húskrók og snyrtiklefa fyrir sig. Sýnist mér fara vel um þá þama, og samkomulagið segir Ingvar vera ágætt, en hann er nýliðinn í hópnum, kominn fyrir u.þ.b. tíu vikum. Rúss- neski stúdentinn var háttaður, er við komum þama, sat upp við dogg og var að lesa, en hinn var ókominn til náða, enda kvað hann vera búinn að trúlofa sig. Rússinn var við- ræðugóður í bezta lagi, hýr og hláturmildur, og þótti gaman að sjá þessi eintök af Islend- Föstudagur 20. nóvember 1964 ingum til viðbótar hinum fyrrL Klukkan var langt gengin í tólf, er við tókum okkur leigu- bfl. til Tel Aviv, því að al- menningsvagnar voru þá hætt- ir akstri. Kvöddum við þau Kristjönu, Þorgeir og Ingvar þar úti á götunni f von um að hitta þau aftur á skákstað, áður en mótinu lýkur. Til Tel Aviv ókum við á fimm stund- arfjórðungum í ágætum amer- fskum bíl af stætstu gerð. Vegalengdin er 75 km, en veg- urinn er talsvert mishæðóttur og mörg er bugðan. En öku- maðurinn var með afbrigðum traustur. svo að okkur óaði lít- ið, þótt mælirinn sýndi 120 km hraða á kafla og kafla. Ég hrósaði honum mikið fyrir bílstjómina í lokin, eins og rétt var og skylt, og sást það vel á svipnum að hann kunni gott að meta. Núnú, áfram með smérið, Mangi minn, ég meina Ólymp- íuskákmótið. Ekki höfðu stríðs- fjendur okkar þar setið auð- um höndum daginn áður, með- an við undum ofekur vel f Jerúsalem, heldur bætt við sig vinningum eftir megni. ITla tókst þó fyrir Uruguaymönn- um, því að þeir töpmðu á öll- um borðum fyrir álfubræðr- um sínum í Argentínu. Kana- da vann Mónakó með 3,5 gegn 0,5 og Austur-Þjóðverjar Ek- vadormenn með 3 gegn 1. 1 sfðustu umferð forkeppn- innar áttum við svo í höggi við Uruguaymenn, sem voru neðstir í riðlinum en við næst- neðstir. Þeir með 3 vinninga við með 5,5. Urðum við því að ná einum vinning gegn þeim, ef ekki átti að henda okkur að lenda í tossabekk mótsins. D-riðli úrslitanna, þar sem aðeins myndu tefla átta sveit- Framhald á 9. síðu. öfuga Svo er að sjá sem Hamra- feilið, olíuflutningaskip Sam- bandsins, hafi ekki getað tek- ið þátt í alþjóðlegri sam- keppni með árangri. Hjörtur Hjartar, forstjóri skipadeildar SlS, hefur skýrt svo frá að skipið hafi verið rekið með tapi að undanförnu, og nú hafi Rússar boðið svo lág farmgjöld á næsta ári að skipið geti með engu móti keppt við bá og verði annað- hvort að leggja því. leigja þrð eða selja það. Birtir Mrrgunblaðið forustugrein af bessu tilefni < gær og fer hörðum orðum um það sví- virðilega athæfi Rússa að bjóðast til þess að flytja hingað olíur fyrir allt of lágt verð: „vissulega er illt til þess að vita, ef þessar aðgerðir Rússa verða til þess að selja verður úr landi eina stóra ol- íuflutningaskip Islendinga.” Þannig er örðugt fyrir sov- ézka að gera Morgunblaðinu til hæfis f viðskiptamálum, þeir eru jafn slæmir hvort sem þeir bjóða góða kosti eða óhagkvæma. Hins vegar beinir blaðið skeytum sínum greinilega í öfuga átt. Það er ekki ákveðið í Moskvu heldur f stjómarráðinu f Reykjavík hvemig Islending- ar haga olíuflutningum sín- um. Séu tilboð Sovétríkjanna talin óeðlileg er ekkert auð- veldara fyrir ríkisstjóm Is- lands en að hafna þeim. Sé það í samræmi við íslenzka hagsmuni að láta Hamrafell- ið flytja olíu til landsins á mun hærra verði en aðrir bjóða, er það á valdi ís- lenzkra ráðamanna að taka þá ákvörðun. Telji Morgunblaðið að röng stefna hafi verið valin,' hefur það við engan að sakast nema ríkisstjóm Bjama Benediktssonar, for- manns Sjálfstæðisflokksins. Raunar getur Eyjólfur Kon- ráð Jónsson, ritstjóri Morgun- blaðsins, kippt þessu máli í liðinn á svipstundu með því að stofna til að mynda al- menningshlutafélag sem taki að sér að greiða hallann af olíuflutningaskini Framsókn- arflokksins UfTP'lir í stjórnarráðirm Mikill uggur hefur gripið heimamenn í stjómarráðinu eftir að hermálaráðherra Bandaríkjanna skýrði frá því að ákveðið væri að leggja niður 95 herstöðvar í Banda- ríkjunum og 5 Evrópulönd- um. Hemámsflokkamir vita ekki nema ísland sé með í hópnum, því Bandaríkin beita þeim húsbóndasið að ákveða fyrst en mæla því næst fyr- ir. Þannig sá Guðmundur I. Guðmundsson utanríkisráð- herra það fyrst í erlendum blöðum á sfnum tíma að á- kveðið hefði verið að banda- rísfei landherinn — hið eig- inlega vamarlið — yrði kvaddur heim af Islandi. Hann trúði fréttunum ekki, heldur lýsti hátíðlega yfir því á þingi að landherlnn færi hvergi; ríkisstjóm Islands myndi aldrei samþykkja það. Herinn fór engu að síður nokkrum mánuðum seinna og skildi aðeins eftir rakka einn með liðþjálfanafnbót. Georg að nafni. utanríkisráðherra til trausts og halds. Vona nú ráðherramir og biðja að sag- an endurtaki sig ekki, þótt enn muni að vísu eitthvað um húsdýrahald á KeflavíJi- urflugvelli. — Austri. Ný bók, sem máli skiptir fyrir sérhvem einstakling: Þetta er bók kynþroska fólk. Á meðal undirstöðuhlutverka fjölskyldunnar er að sjá um endurnýjun og viðhald kynstofnsins og barnauppeldið. Frjóvgun, barnsfæðing og bama- uppeldi eru því fyrst og fremst fjölskyldumálefnL — En hvenær á fjölskyldan að stækka og hversu stór á hún að verða? Á hverjum degi vaknar sú spurning hjá miklum hluta þjóðarinnar, hvort innilegustu samskipti karls og konu eigi að leiða til þungunar, bamsfæðinGfar, fiölskyldustækkunar. Bókin FJÖLSKYLDUÁÆTI> ANIR OG SIÐFRÆÐI KYNLÍFS, eftir Hannes Jónsson, félagsfræðing, fjallar á heilbrigðan hátt um þessi mál, þ.á-m. um fjölskylduáætlanir, frjóvgunarvarnir og siðfrœði kynlífsins. — í bókinni eru um 60 líffæramyndir og -myndir af frjóvgunarvörnum. Bókin fæst hiá flestum bóksölum en einnig beint frá útgefanda. FÉLAGSMÁLASTOFNTJNIN, Pósthólf 31, Reykjavík, sími 40624. PÖNTUNARSEÐILL; Sendi hér með kr. 150,00 til greiðslu á einu eintaki af bókinni Fjölskylduáfetlanir og siðfraeði kynlífs, sem óskast póstlagt strax. Nafn: Heimili:

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.