Þjóðviljinn - 28.11.1964, Síða 2

Þjóðviljinn - 28.11.1964, Síða 2
2 SÍÐA ÞIÓ3VHIINN Lokabréf Baldurs Pálmasonar frá Ql- ympíuskákmótinu í Tel Aviv SIGURINN VANNST Aðalfundi Alþjóðaaam- bands skákmanna er lokið, og var stjórn þess að mestu end- urkjörin. Folke Rogard hinn virðulegi málaflutningsmaður frá Stokkhólmi verður forseti sambandsins næsta árið, en hann er orðinn maður fullorð- inn, og líður sjálfsagt senn að hvarfi hans af þeim vettvangi. Samþykkt var tillaga um að bæta einum skákmanni enn i stórmeistarahópinn, David Yan- ovsky frá Kanada, sem teflir hér á fyrsta borði fyrir land sitt og hefur staðið sig með á- gætum, aðeins tapað fyrir Bot- vinnik og Unzicker. Sunnudaginn 22. nóv. hófst lokahrina mótsins að því er segja má. Eftir voru þá þrjár umferðir og allt í megnustu ó- vissu um útkomuna, ekki sízt í okkar flokki, þar sem fjórar þjóðir hafa verið næstum jafnar í fararbroddi, þótt Sviss- lendingar hafi lengstum verið ívið fremstir. Hitt voru Finn- ar, Kolumbíumenn og við Frónbúar. Frakkar og Venzu- elamenn voru svo spölkom á eftir; af hinum átta þjóðunum stafaði ekki nein hætta lengur. Og þennan dag stóð bardag- inn við Kólumbíumenn. Voru báðar þjóðir hnífjafnar að Þarna leiða þeir saman hesta sína í Te! Aviv Islendingar (til hægri á myndinni) og Uruguay- menn. Það mun vera Bjöm Þorsteinsson sem er fremstur lsl. á myndinnl, þá Jónas Þorvaldsson. Barnabækur og orðabók frí- merkjasafnara frá Setbergi Ungur Reykvíkingur, Þórir S. Guðbergsson, hefur sent frá sér sína fyrstu bók, barna- bókina „Knattspymudrengur- inn”. Þetta er saga um stráka í starfi og leik og fyrst og fremst skrifuð fyrir drengi á aldrin- um 10—14 ára. ' Höfundurinn, 25 ára gamall, hefur starfað mikið með ung- um drengjum í íþróttahreyf- , ingunni og KFUM. Það er Setberg, sem gefið hefur „Knattspyrnudrenginn” út, en frá sama forlagi er einnig komið safn sagna fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 6—10 ára. Bókin nefnist: „Pabbi segðu mér sögu” og hefur Vilbergur Júlíusson, skólastjóri valið sögurnar, Margar teikningar eru í bók- inni. Þá hefur Setberg gefið út Orðabók frímerkjasafnara eft- ir Sigurð H. Þorsteinsson. Þetta er orðasafn: íslenzkt — enskt, enskt — íslenzkt, íslenzkt — þýzkt, þýzkt — íslenzkt, ís- lenzkt — danskt, danskt — ís- lenzkt — og fyrst og fremst ætlað þeim, sem nota vilja er- lenda frímerkjalista. Ennfrem- ur er safnið handhægt sem uppsláttarbók í bréfaviðskipt- um innlendra safnara við er- lenda. vinningum fyrir umferöina, 28 vinningar á hvora hlið. Hvor- ug var farin að tapa viður- eign í C-flokki, einustu þjóð- ir flokksins með svo góða einkunn. Sviss hafði tapað fyr- ir íslendingum, þótt það væri <$• vinningi ofar í heild. Kólum- bfumenn voru þó að því leyti okkur fremri, að þeir höfðu unnið allar viðureignir sínar, flestar með litlum mun, en við höfðum tvisvar deilt vinn- ingum að jöfnu með andstæð- ingunum. Sumir vinningamir voru þeim mun ríflegri. Hófst svo atgangur. Bjöm tefldi með hvítu gegn Cuellar, alþjóðleg- um meistara, sem titlar sig prófessor. Hann komst á há- tind frægðar sinnar á heims- svæðamótinu í Stokkhólmi 1961, er hann vann Geller og Kortsno.i frá Sovétríkjunum í tveim fyrstu umferðunum, en náði svo ekki að vinna skák eftir það. Hér á mótinu hefur hann teflt í þvf sem næs.t hverri umferð og hefur hátt vinningshlutfall. P rjunin var spænskur leikur og kom upp afbrigði með. drottningarkaup- um snemma tafls, jafnframt því sem biskupar hurfu af borði. Tefldu þeir Bjöm og Kapp og forsjá Um síðustu helgi var liðið eitt ár siðan Kennedy Banda- ríkjaforseti var myrtur í ríki sínu. Af því tilefni birti Morgunblaðið einkennilegt kvæði á síðu þeirri sem jafn- an er lögð undir léttmeti: nefndist það „Loginn á leiði Kennedys“ og hófst á þessum línum sem ekki eru aðeins grunsamlegar vegna stuðla- setningarinnar: „Flöktir ljós á fölum meiði / Fjúka blóm af lágu leiði. / Snjórinn sinni værðarvoð / veltir yfir sprek og moð.“ Eftir nokkum inn- gang i svipuðum stíl segir höfundur síðan: „Þessi logi er ljós þess manns, / sem ligg- ur undir rótum hans / . og þessvegna hann hvílir hér / með heimsins ljós við fætur sér“ hvemig sem lesendum er ætlað að skilja það sam- hengi Ennfremur fáum við að vita að „Hann var eins og ég og þú / en hann var ekki ejns og við“, og er það eflaust háleit túlkun á ýmsum heimspekikenningum um einstaklinginn og fjöld- ann. Eftir fleiri vafasamar stað- hæfingar af þessu tagi kemur síðan ákaflega einkennileg og mótsagnafull mannlýsing: „Þrek og hugdirfð mat hann mest / en mátti oft vægja ef það var bezt, / þvi stundum mátti of mikið gera. / Það mátti stundum láta Vera. / Hann átti oft í vök að verj- ast / og vildi glaður meira berjast / en krækti þó hjá kröppum sundum, / því kapp er bezt með forsjá — stund- um.“ Og síðan beitir höfund- urinn hátíðlegasta og fágað- asta orðfæri sínu: „ — og núna logar ljós hans hér / en launmorðingjar erum vér .. / allir þeir sem ekkert gera / en alltaf láta vera, / því sitthvað er að „elska frið- inn“ / eða „strjúka kvið- inn“ “ Þannig er að „láta vera“ eitt af eftirlætisorða- tiltækjum höfundarins og ým- ist loflegt eða vanþóknan- legt eftir atvikum, og fer það væntanlega eftir því hvaða líkamsæfingar menn stunda ’ sambandi við það. Menn skyldu ætla að eftir betta gæti kvæðið ekki risið öllu hærra, en höfundinum er fátt ómáttugt. Hann segir enn; „Eldurinn, sem ætíð log- ar; / eldur þess, sem þorir vogar; / þetta litla ljós á gröf / líkist heimi á V7tu nðf / sem hangir á þunnum þræði / úr þrotlausu haturs- æði.“ Þannig breytist ljósið í veröldina og kveikurinn í þunnan þráð sem heimurinn „hangir á“, og má hann þá naumast valtari vera. Það sem nærir logann og heldur heiminum uppi er „haturs- æði“, en þeir sem síður vildu hrapa með veröldinni geta þó huggað sig við það að sú óskemmtilega kennd er „þrot- laus“. Eins og menn muna varð morðið á Kennedy forseta til þess að mörg eftirmæli voru ort á íslandi og voru þar að verki margvísleg ljóðskáld allt upp í ritstjóra Morgun- blaðsins. Þvi miður tókst svo til að flest þessi kvæði skírskotuðu til allt annarra tilfinninga en þeirra sem mönnum voru efstar í huga eftir válegan atburð. Naum- ast verður kvæðið sem Morg- unblaðið birti á sunnudaginn var skilið öðruvísi en svo að höfundurinn, hinn al- kunni Ómar Ragnarsson, hafi þar að skotspæni ýmsa þessa kollega sína í ríki ljóðlistar- innar. En tilefnið sýnir svo furðulegan skort á háttvísi að maður kinokar sér næst- um því við að vekja athygli á honum, bæði hjá höfund- inum og ráðamönnum létt- metissíðunnar, hvort sem beir síðarnefndu hafa áttað sig á samhenginu eða ekki Er þess að vænta að Ómar sjálfur minnist eftirleiðis bfeirra sanninda sinna að ,k?pp er bezt með forsjá — stundum" — Austri. Cuellar svo lengi hrókum sín- um, riddurum, peðum og kóng- um. Var Cuellar heldur í sókn, og varð Björn að hafa sig all- an við að tapa ekki peði. Tók hann síðan að þrýsta sjálfur með riddara á fremra tvípeð Ouellars á miðborði, og þar kom, að Ouellar afréð að láta hrók fyrir þennan riddara og peð, til þess að ná sóknarfær- um að nýju. Fqr skákin í bið um það leyti, og þótti Birni einsætt, að um vinning gæti ekki orðið að ræða af sinni hálfu. Stefndi hann því að jafntefli, lét skiptamuninn aft- ur, og kom þá upp staða með hrók Bjöms móti hrók og tveim miðborðsfrípeðum pró- fessorsins. Er það theoretískt jafntefli ef rétt er að farið i vörninni, og fer Bjöm ekki í grafgötur um, hvemig henni tók annað peð Cuellars, þótt ist og lét taflið fara 1 bið öðru sinni er komnir voru 88 leik- ir. Hafði hann þá verið stað- inn að því frammi í forsalnum að bera stöðu stna undir farar- stjóra Rússanna Kotoff á vasa- tafli sínu. Þykir mér ólíklegt að Kotoff hafi getað gefið hon- um góð ráð og eflaust ekki kært sig um það heldur. I þriðju setu virtist Cuellar vera orðinn nokkuð fullviss um jafnteflisúrslit, en hann lék þó allt til enda, er Bjöm tók annað peð Ceuellars, þótt valdað væri af kóngnum. Hefði 3 - hann staðið leiklaus, ef hrók- urinn var þeginn. Skiikin Minaya — Trausti var hlaðin spennu, einkum drottningarmegin, enda er Kólumbíumaðurinn þéttings- djarfur sóknarskákmaður. Vildi hann ólmur brjóta upp stöð- una og kostaði til peði og síð- an öðru. Trausti varð einkum að vara sig á að iáta ekki drottningu sína lenda í klandri og fór svo að hann lét annað umframpeðið fjúka. Var hann þá orðinn tímalítill og átti ó- leikið fáeinum leikjum, svo að hann stakk upp á jafntefli. Minaya tók boðinu samstund- is, og munu báðir aðilar hafa vel við unað. — Jón átti í höggi við Cuartas og tókst með lagni að smáhagræða stöðu sinni, s. s. einn og tvo millimetra með hverjum leik, unz eftir stóðu á borði auk kónganna hvítur riddari og svartur og hvít peð tvö, sitt á hvorum vallarhelmingi, eins og þeir segja í knattspymunnl. Þá sá Cuartas að hann réð ekki lengur við neitt. — Mót- herji Magnúsar er lunkinn skákmaður, og var hans hlut- ur heldur meiri í byrjun, enda hafði hann hvítt. En Magnús lét ekki fipast, og eftir drottn- ingakaup og meiri uppskipti voru báðir komnir með ein- stæð frípeð, og var þeim nú att af stað. Undir lok fyrri setu var Tejeda orðið svolítið órótt vegna klukkunnar. Ýtti hann frípeði sinu feti framar í flíótfærni og kostaði það hann biskup. Fór svo skákin f bið, og er ekki að efa að Kólumbíumenn hafa lagt sig í líma að finna sem bezta leið I gegn vandanum, enda var mesta furða, hve góðir leikir leyndust fyrir hvítan, þegar áfram var haldið. Leit um tíma ut fyrir að hann næði öllum peðum Magnúsar og innsiglaði þar með jafnteflið, en Magnús lék ekki síður hug- vitsamlega, og þar kom að hann gat tryggt síðasta peði sínu líf. Tejeda sá þá sína sæng upp reidda. Okkar hlutur varð því 3 vinningar gegn Kolumbíu- mönnum, og var það vel af sér vikið, ekki síður en sams- konar sigur yfir Svisslending- um. Þar með voru báðar þess- ar þjóðir sigraðar af íslend- ingum, og þeim einum. Hver yrði svo útkoman á viðureign þeirra f milli í síðustu urn- ferðinni? Um það varð ekki spáð á þessu stigi máls. önnur úrslit 11 umferðar f C-flokki: Irland 2 7? Grikklqnd ll/T, Tyrklands 2% Frakkland- -\'/r,. Mexíkó 2V2 Mónakó IVj, Sviss 21/? Iran IV2, Finnland 4 Porto Rico 0j, Yenqzyieja .4 JndJand 0. Höfum við nú dregið hálfan vinning á Svisslendinga og fengið Finna upp að hlið okk- ar í stað Kólumbíumanna. I A-flokki enduðu þrennar viðureignir þessarar umferðar með 3,5 gegn 0,5. Sigurvegarar: Sovétríkin. Vestur-Þýzkaland og Rúmenía. Sigraðir: Argen- tína, Kanada og Spánn. Svo - Fðsáudagur 27. nóvember 1964 að harkan sýnist færast í auk- ana. Norðmenn unnu fjórða og stærsta sigur sinn í B- flokki, fengu 3,5 vinninga móti Perúmönnum. Og þá var röðin komin að Tyrkjum Björn hafði svart og brá fyrir sig Sikileyjarvöm gegn kóngspeðsleik Suers, en afbrigði það er hann leiddist inn á var næsta slæmt og hefði kannski getað farið nið- ur, ef Tyrkinn hefði verið nógu séður til að auka Birni erfiðið. Var t.d. hægðarleikur fyrir hann að spilla fyrir stuttri hrókun á svarta borð- inu. En þótt hann hefði þægi- legra tafl, mistókst honum að gera haldkvæma áætlun til framrásar, og gekk mjög á tíma hans í þeim vangavett- um. Fór þá Björn að sækja sig, gat tvöfaldað hróka sína á peðaröð andstæðingsins, rót- að þar til í peðaskaranum og komið við máthótun. Suer gafst upp. ’— Trausti fékk við að glíma hollenzka vörn Kul- urs og fór víst ekki nýjustu . leiðir í þeim efnum. Varð hon- um lítiö ágengt, enda þótt staða hans væri kannski svo- lítið skárri og þegar honum fannst nóg að gert í árangurs- lausum þæfingi, þrálék hann og samdi frið. — Jónas henti sér út í Pirc-vörn í fyrsta skipti í alvarlegri kappskák, og var svo að sjá sem upp úr henni kæmi jafnt tafl á báða bóga. Þó fór svo eftir upp- skipti að Tyrkinn Tebi, sem er fararstjóri sveitar sinnar og hinn viðfeldnasti maður, nokk- uð við aldur, fékk heldur rýmra endatafl, en þar eð hann átti verri tíma bauð hann jafntefli, Jónas var í bar- dagahug og hafnaði boðinu, og gekk hann þó ekki heill til skógar, hafði kvefazt og kenni hitalumbru síðan um hádegi, en þá var búið að tílkynna liðskipan dagsins, og varð ekki aftur snúið. Svo fór að Tebi tapaði peði fyrir aðgæzluleysi og síðan öðru, svo að biðstað- an gaf ótvírætt hugboð um vinning fyrir Jónas, enda kom það 4 daginn. Tébi varðist þó sem mest hann mátti alveg fram í andlátið, og þótti hálf- súrt í brotið að tapa skákinrri, sem hafði lengstum verið jafnr - teflisleg. — Magnús tefldi við Bilyale og var það uppskipta- afbrigði í drottningarpeðsbyrj- un. Hrókaði Magnús langt en hinn stutt. Náði Magnús betri tökum í byrjun og hóf kóngs- sókn fremur snemma, og tófc þá hinn til bragðs að merkja Framhald á 9. sfðu. Að gefnu tí/efni vilja neðanskráð samtök taka fram eftirfarandl: Skv. ákvæðum 11. greinar kjaradóms verzlunar- manna frá 6. febrúar 1964, er 1. desember ekki samningsbundinn frídagur verzlunarmanna. 1. des- ember ber því að skoða sem virkan dag. Félag íslenzkra íðnrekenda. Félag íslenzkra stórkaupmanna. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis. Kaupmannasamtök íslands. Verzlunarráð íslands. Vinnumálasamband samvinnufélaga. Vinnuveitendasamband íslands. frá STR0JEXP0RT RAFMÓTORAR lokaðir, 0,5 til 38 hestöfl SLÍPIHRINGJA- MÓTORAR 38 og 62 hestöfl. HEOINN vélaverzlun

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.