Þjóðviljinn - 28.11.1964, Page 3

Þjóðviljinn - 28.11.1964, Page 3
Laugardagur 28. nóvember 1964 ÞIÓÐVILHNN Enn harðir bardag- ar í Stanleyville LEOPOLDVILLE 27/11 — Fréttastofa Reuters skýrir svo frá, ad enn séu harðir bardagar í Stanleyville, og engin af göt- wm borgarinnar sé trygg til um- ferðar. Sérstaklega séu bardag- ar harðir í götum þeim, er Bggja á hægri bakka Kongó- ftjótsins, en þar er einnig mið- bik borgarinnar. íbúarnir í Stanleyville hafi flestir flúið til skógar. Bandaríska sendiráðið í Leo- poldville skýrir frá því, að hvít- ir málaliðar Tshombes, sem haidið hafi yfir Kongófljótið frá Stanleyville, hafi fundið 28 lík hvítra manna. Hafi þá uppreisn- armenn drepið samtals milli 70 og áttatíu hvíta menn. Flótta- menn segja, að enn séu um 100 hvítir menn í Pauli, • sem ekkert hafi til spurzt. Frá Addis Abeba berast þær fréttir, að Hailie Selassie, keis- Hellsu eins fimmburans ari í Abyssiniu, hafi farið þess á leit, að haldinn verði fundur alira æðstu mann Afr- íkuríkja til þess að ræða á- standið í Kongó. Þá hefur Jomo Kenyatta, forsætisráðherra í Kenya og formaður nefndar þeirrar hjá Samtökum Afriku- ríkja, er um Kongómálið fjallar, lýst því yfir í ræðu, að hann hafi alltaf verið þeirrar skoð- unar, að samningaviðæður séu gagnslausar ef erlend ríki hlut- ist til um málefni Kongó. II ■ I Held ég enn í austurveq STOKKHÓLMI 27/11 — Forsæt- isráðherrar Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar hafa nú allir á- samt Finnlandsforseta fengið boð um að heimsækja Sovét- ríkin. Áður er ákveðið, að Finn- landsforseti haldi austur í marz næsta ár og þá í sambandi við fyrirhugaða för hans til Ind- lands. Síðar verður svo ákveðiö, hvenær forsætisráðherrarnir þrír halda í heimsókn sína. Kommúnistafundi verður frestal TÖKÍÓ 27/11 — TJm 5.500 vinstri sinnaðir japanskir stúdentar f óru i kvöld í kröfu- göngu i Tókíó til þess að mótmæla því, að kjarnorku- knúnum bandarískum kafbát- um hefur verið leyft að nota japanskar hafnir. hrakar PARlS 27/11 — Prófessor Marcel Lelong, en bann er yfirmaður bamasjúkrahúss þess, er fimm- buramir frönsku dveljast á, skýrði svo frá í dag, að heilsu Dominique, eins þeirra fjögurra, er eftir lifðu, hraki stöðugt. Eigi barnið við öndunarerfiðleika að stríða, og sé mjög tvísýnt um líf þess. Alþingi Framhald af 12. síðu. sér með skeytingarleysj þvf, sem hún hingað til hefði sýnt viðleitni stjórnarandstöðunnar á Alþingi, til að lækka opinþer gjöld frá í sumar. Sfðastur tók til máls Eðvarð Sigurðsson og fef skýrt frá máli hans hér í blaðinu í gær. Frumvarpinu var að umræðu lokinni vísað til nefndar og 2. unrræðu. Fœrð spillisf Framhald af 1. síðu. miili Fljóta og Ólafsfjarðar varð ófær í gærdag. Af Vestfjörðum höfðu borizt ógreinilegar fréttir um ástand vega í gærdag; þó var talið víst að Breiðdalsheiöi milli ön- undarfjarðar væri orðin ófær og sömuleiðis Botnsheiði milli Súgandafjarðar og önundar- fjarðar. Þá er Þingmannaheiði á Barðaströnd ófær. Mikið hefur snjóað á Snæ- fellsnesi undanfarna daga og er færiö orðið ískyggilegt yfir Kerlingaskarð og Fróðárheiði. Annars er akvegasamband frá höfuðborginni austur yfir fja.fl um Suðurlandsundirlendið fært bílum með keðjur og sömuleið- is akvegir norður í land. Síldarleysi Framhald af 1. síðu. RE 3 og Freyfaxi frá Keflavík. Sex Austf jarðarbátar stunda ennþá síldveiðar af hörku fyrir austan, en vcður hefur hamlað veiðum sfðustu viku. Vitað er þó um mikið síldar- magn út af Gerpi sjötíu sjó- mílur út af Gerpi og fá bát- arnir þarna dágóð köst þessa daga. þegar gefur vegna veð- urs. Síldin stendur þó nokk- uð djúpt. Sovézki reknetaflotinn er þarna ennþá að veiðum og virð- ast veiða dável. Síldin sem veið- ist nú fyrir austan fer aðallega í bræðslu í verksmiðjurnar á Eskifirði, Neskaupstað og Seyð- isfirði. Þá fer nokkurt magn til fryst- ingar. Segjast haía unnið sigur á Víetkong SAIGON 27/11 — Stjórnarher-1 inn í Suður-Víetnam kveðst hafa unnið mikinn sigur á skæruli um Víetkong. Segir í fréttinni. að Víetkong hafa skilið eftir að minnsta kosti eitt hundrað fallna á vígvellinum og álíka marga fallna hafi þeir haft á burt með sér, er þeir létu undan síga. Þá kveðst stjórnarherinn hafa tekið mik- ið af vopnum. Enn ríkti umsátursástand í Saigon í dag. Frá Washington berast þær fréttir, að helztu her- og stjórnmálaráðgjafar Johnsons forseta hafi komið saman til fundar á föstudag til þess að ræða ástandið í Suð- ur-Víetnam, og þá með sérstöku tilliti til þess, að Sovétstjórnin hefur opinberlega varað Banda- ríkjastjórn við því að reyna að rétta hlut Saigonsstjórnar- innar með þvf að ráðast á Norð- ur-Víetnam. Dean Rusk, utan- ríkisráðherra, og helztu sam- starfsmenn hans taka þátt í fundi þessum ásamt Maxwell Taylor, sendiherra Bandaríkj- anna í Saigon, en hann hefur sem kunnugt er verið einn helzti hvatamaður þess, að Bandaríkin réðust inn í Norður-Víetnam. Búizt er við þvf, að þessar umræður standi að minnsta kosti nokkra daga. Sjálfur mun Johnson forseti eiga fund með Rysk, Taylor og Robert McNam- ara, varnarmálaráðherra, i næstu viku og verður sá fund- ur í Hvíta húsinu. Bandarískir embættismenn vildu í dag ekk- ert láta uppi um það, hvaða ákvarðanir, ef nokkrar, hefðu verið teknar á fundinum í dag. Landamæradeilur NEW VORK 27/11 — Landa- mæradeilurnar milli Sýrlands og Israel, sem fyrir ellefu dögum ulht hörðum átökum á landamærum, voru í dag teknar til umræðu í Öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna. Eftirlitsnefnd SÞ hefur lýst því yfír, eftir að hafa rann- sakað atburð þenna, að full- víst sé, að það séu Sýrlend- ingar, sem hófu skothríðina. MOSKVD 27/11 — Norska fréttastofan NTB kveðst hafa það eftir áreiðanlegum heim- iidum í Moskvu, að öruggt sé, að Kommúnistaflokkur Ráð- stjórnarríkjanna muni fresta fyrirhuguðum fundi 25 komm- únistaflokka, en hann átti að hefjast í Moskvu þann 15. des. n.k. Skyldi sú ráðstefna ræða hugmyndafræðideilurnar með Kínver.jum og Rússum og vera um Ieið undirbúningsfundur undir heimsráðstefnu kommún- istaflokkanna. Hinsvegar hefur fréttastofan það eftir sömu heimildum, að litlar sem engar líkur séu nú á því, að upp verði teknar á ný viðræður milli kommúnista- flokka Ráðstjórnarríkjanna og Kommúnistaflokks Kína. Ráða- menn í Moskvu hafi tekið mjög óstinnt upp nýja árásargrein Kínverja í flokksmálgagninu „Rauði fáninn“. Þó er það al- mennt álit erlendra fréttamanna í Moskvu, að ráðamenn þar muni ekki taka þann kost að svara greininni, enda hafi hún eingöngu beinzt að Nikita Krúst- joff persónulega. Það sé Kín- verjum einum í hag að hefja nú deilur á ný. Aftur á móti hafi það oftlega verið staðfest opinberlega í Moskvu síðustu vikur, að mikil þörf sé á því að haldinn verði ráðstefna allra kommúnistaflokka heims, og því sé líklegt að unnið verði að því í kyrrþey að koma á fót slíkum fundi. Liðsforingja- fundur KAUPMANN AHÖFN 27/11 — Háttsettir iiðsforingjar frá Noregi, Danmörk og Svíþjóð komu saman í Kaupmanna- höfn til að ræða tæknileg vandamál í sambandi við stofnun skandinavísks fasta- liðs á vegum Sameinuðu þjóðanna. --------------- SlÐA 3 Tunglferð frestað KENNEDYHÖFÐA 27/11 — Hinni nýju tilraun Bandaríkja- manna til að senda geimfar til mánans var frestað á föstudag sökum tæknilegra erfiðleika. Enn hefur ekki verið ákveðið, hvenær tilraunin skuli gerð, en talið er að það muni tefjast um sólarhring. Mariner fjórði, en svo nefnist farið, átti að hefjast til flugs í dag. Mariner þriðja var skotið á loft 5. nóv. sl. en tilraunin misheppnaðist. Uggvænleg aukning STOKKHÓLMI 27/11 — Það kemur fram í skýrslum sænskra heilbrigðisyfirvalda, að kynsjúk- dómar hafa svo mjög aukizt í Svíþjóð að undanförnu, að ugg- vænlegt þykir. Einkum er það syfilis, sem breiðist ört út. Læknar telja, að þessi aukning kynsjúkdóma þar í landi eigi rót sína að rekja til breyttra þjóðfélagshátta, lægri kynþroska- aldurs og frjálslegri kynferðis- maka meðal æskufólks. BLAÐDREIF8NG Þjóðviljann vantar nú þegar blaðbera í þessi hverfi: VESTURBÆR: Skjólin Tjarnargata. AUSTURBÆR: Grettisgata Skúlagata Höfðahverfi Laugateigur Meðalholt Háteigsvegur Langahlíð Mávahlíð Blönduhlíð Safamýri KÓPAVOGUR: Laus hverfi í vest- urbæ: Hraunbraut, Kársnesbraut. Umboðsmaður 1 Kópa- vogi — sími 40-319. i—i SIMI 17-500. Skemmtilegt kvöld að Hótel Sögu Mánudagskvöldið 30. nóvember kl. 9 verður haldin Glæsilegasta tízkusýning ársins TÍZKUS YNING : Finnskir dagkjólar „Mari Mekko“ frá Dimmalimm. Nýjasta tízka í samkvæmiskjólum frá Báru. Dömuhattar frá Hattabúð Soffíu Pálma. Herrafatnaður frá P.Ö. Kápur frá Guðrúnarbúð á Klapparstígnum. Frú ÞURÍÐUR PÁLSDÓTTIR býður gesti velkomna. * Kynnir kynningarkvöldsins verður HERMANN RAGNARS en danspar frá honum sýnir nýjustu dansana. Einnig koma fram okkar vinsælu leikarar ÁRNI TRYGGVASON og KLEMENZ JÓNSSON , með skemmtiþátt. HAPPDRÆTTI: Aðgöngumiðar eru tölusettir og gilda sem happdrættismiðar. Meðal vinninga eru: HERRAFÖT frá P. 0. KÁP A frá Guðrúnarbúð á Klapparstígnum. HATTUR frá Hattabúð Soffíu Pálma. K JÓLL frá Dimmalimm og SINDR ASTÓLL Aðgöngumiðar verða seldir í Guðrúnarbúð á Klapparstígnum á laugardag og mánudag og við innganginn. Borðpantanir í Hótel Sögu eftir kl. 4 á mánudag í síma 20221. Allur ágóði rennur til Dren gjaheimilisins að Breiðuvík. Salurinn verður opnaður kl. 7. F. h. undirbúningsnefndar Guðrún Stefánsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.