Þjóðviljinn - 28.11.1964, Page 10
V
|Q SlÐA
Jonathan |h!! 1 Æ B Jl
Goodman ^ggl aaMiaMLi JPT[|
HNEIGÐIR
Brjálæði. Ég glæpamaður? .. Ég
er varla manngerðm í það. ÖU
árin mín sem leikari, hef ég
aldrei fengið hlutverk sem
glæpamaður — og nú er farið
fram á að ég leiki einn slíkan
í lífinu sjálfu. En gleymdu því
ekki að þú ert ekki enn búinn
að sjá handritið. Kannski er það
geysilegt avant-garde, persónum
og atburðum snúið við, góð-
mennin gerð að fúlmennum, hið
illa sigrar hið góða, þorparinn
hlýtur góðu stúlkuna í leikslok.
Hver veit.
— Bernard .... byrjaði hann.
— Hvað er það, gamli vinur?
— Ég skil þetta ekki almenni-
lega með peningana sem koma
engum að gagni daginn eftir, ef
þeir eru ekki hirtir daginn áður.
Væri þér sama .. ?
Bemard otaði að honum fingri.
Uhu .. Ekki fleiri spurningar,
ekki núna. Hugsaðu bara um
svörin við þeim tveimur spum-
ingum sem ég er þegar búinn
að leggja fyrir þig. Þær halda
þér gangandi þangað til annað
kvöld.
— En án þess að vita neitt
um —
— Vona að þér finnist ég ekki
ruddalegur, gamli vinur, en það
er að verða býsna framorðið.
Verð að fá mér ’fegrunarblund-
inn, skilurðu. Hvað segirðu um
að gefa mér bolla af þessu há-
væra kaffi þínu? Svo verð ég að
fara.
Alex reis upp og sótti tvo
bolla og undirskálar. Þegar hann
beygði sig yfir kaffihitarann,
hvíslaði rödd að honum — var
það rödd Bemards eða bara
rödd hans sjálfs? —: Hugsaðu
um alla þessa dásamlegu pen-
inga.
Hugsaðu um þá!
Hann hugsaði um þá, hugsaði
um þá ákaflega lengi, hann
vaknaði um nóttina, sveittur eft-
ir drauma um þá; hann hugsaði
um þá þar sem hann stóð í
langri biðröð atvinnuleysingja
við skráningarskrifstofuna. hugs-
aði um þá þegar hann opnaði
brúnt umslag og horfði á reikn-
ing sem hann átti ógreiddan,
hugsaði um þá, þegar Anna birt-
ist óvænt þetta kvöld, meðan
hann kyssti hana og reyndi að
halda uppi samræðum. Hann
var enn að hugsa um þá. þegar
síminn hringdi.
— Jæja. ætlarðu ekki að
svara? sagði Anna.
■Sfminn virtist í margra mflna
fiarfægð. Hann hættir að hringia
áðTir en ég kemst þangað. það er
alveg víst — Ó. guð. láttu hann
hætta að hringja .. töngu áður
en ég. kemst að nímanum bá
heldur Bemard að ég sé farinn
HÁRGRF'OSI.AN
H^T’imaiðslu og snvrtistofu
STETNU og DÓDÓ Dausavegi 1fi
TIT hæð fivftal «!Tlvn ->4616
P E R M A Garðsenda 21 —
StMT- fifiðfifi HárgreiðsTu og
snvrtistofa
D ö M U R »
HárffreiðsTa ffið allra hæfl —
TJ ARNApcTOFAN - Tjamar-
gðtu 10 — Vonarstrætismegin —
StMT' 14 0R2
HARGRETÐSLUSTOFA AUST-
URBA5.TAR - Marfa Guðmunds-
dóttir Langavegi 13 — SÍMT
14 6 56 — NTTDDSTOTiAN RR 4
SAMA STAÐ
út; hann heldur það sem ligg-
ur beint við — ekkert svar tákn-
ar að ég hafi ekki áhuga á ráða-
gerð hans; ég þarf ekki að taka
ákvörðun.
Hann áttaði sig varla á þvi að
hann hélt á tólinu í hendinni og
sagði númerið sitt.
Rödd Bemards hljómaði í eyr-
um hans. Var ég að vekja þig
eða hvað? Þú ert svei mér ekki
að flýta þér að svara í símann,
ha?
— Fyrirgefðu, en . . ég var að
tala.
— Tala? Áttu við .. Attu við
að einhver sé hjá þér?
— Það er rétt.
— Svei mér þá, þú hefðir get-
að séð til þess að þú værir einn.
Hver er það?
— Vinur.
— Þessi vinkona þín?
— Já.
— Þetta þannsett kvenfólk ..
það er alltaf þar sem sfzt skyldi.
Er hún að hlusta? Ég á við,
getur hún heyrt það sem ég
segi?
— Ekki held ég það.
Rödd Bernards varð háværari.
Getur hún það eða getur hún
það ekki? Segðu mér það hreint
út. Ég veit hvemig kvenfólk er
— það notar á sér hausinn til
að halda eyrunum úti. Og það
sem fer inn um eyrun kemur út
urrt mu.nninn. Fáðu hana t.il að
fara og púðra á sér nefið eða
eitthvað.
— Þetta er allt í lagi. örugg-
lega.
Þögn. örugglega?
— Já já.
— Það er líka eins gott. Ég
veit hvernig kvenfólk er.
— Þú sagðir það áðan.
— Uhm .. Farðu nú ekki í
fýlu, gamli vinur. Ég er að líta
eftir þínum hugsmunum ekki
síður en mínum, eins og þú
veizt.
Það varð lengri þögn. Svo
sagði Bemard: Hefurðu hugsað
nokkuð um .. um þetta mál
sem við minntumst á í gær-
kvöld?
— Já.
— Og .. héma .. þessar tvær
spurningar sem ég lagði fyrir
þig. Hefurðu svör við þeim?
— Já.
— Ég skil. Þögn. Gott og vel.
Spuming eitt — já eða nei?
— Já.
— Og spuming tvö — sama
svarið býst ég við?
Alex Tokaði augunum. Sím-
tólið var rakt við eyrað á hon-
um. Guð minn góður, betta er
ekki alvara mín. Þetta er ekki
alvara mín .. Ég vil ekki sjá
neitt' af þessum blóðpeningum
Bemards. Ég vil bara fá að
vera —
— Fyrirgefðu, en ég heyrði
ekki almennilega hvað þú sagð-
ir, gamli v.inur. Sambandið er
dálftið óskýrt. Væri bér sama
þótt þú talaðir ögn hærra?
— Svarið er já.
— Ég er feginn að heyra það.
Þú getu.r ekki gert þér í hugar-
lund hve feginn ég er. Það verð-
ur gott að vinna saman, Alex
gamTi vinur. Héma .. aðeins
eitt .. ég verð að biðja þig fyr-
irffefningar á því hvernig ég tal-
aði um hana .. héma .. vin-
konu bína. Taugaóstyrkur. skil-
urðu. Fyrirgefðu mér og allt bað.
— Það gerir ekkert tfl.
— Mjög indæl stúlka að mínu
viti. En nefndu ekkert við hana.
ATex? Þú skflur hvað ég á við.
Fæst orð hafa minnsta ábyrgð
eins og stendur, ha?
— Það er víst.
— Og það er mikið til í þessu
Jæja, ég ætla ekki að tefja þig
Iengur frá vinkonunni. Kysstu
ÞlðÐVIUIM
Laugardagur 28. nóvember 1964
hana frá mér. Ha? Og hann
skémhló.
Alex lagði tólið á.
— Hver var þetta? spurði
Anna.
Hann svaraði henni ekki.
Hann gekk útúr herberginu og
yfir ganginn að baðherberginu.
Hann hallaði sér yfir vaskinn og
kastaði upp.
Honum létti ekkert við það.
— Alveg á hlaðinu hjá þér,
gamli vinur. Það er það stórkost-
legasta við áætlunina mína. Það
er undirstaðan, skal ég segja þér.
Komdu hingað.
Hann tók um handlegginn á
Alex og leiddi hann að gluggan-
um.
7
— Jæja þá, þú segist ekki vita
hvað þeir gera i verksmiðjun-
um þama við endann á götunni
— jæja, ég skal segja þér hvað
þeir gera sem máli skiptir og
okkur kemur við. Hefurðu nokk-
urn tíma tekið eftir þvi á
fimmtudögum að stórir, svartir
sendiferðabflar aka inn i portið?
Hefurðu nokkum tíma tekið eft-
ir því á fimmtudagskvöldum að
það er ekki kveikt á sumum
ijósum þangað til rétt fyrir hálf-
átta? Sérðu gluggann þama,
sjáðu, þú getur aðeins greint
hann — fyrsti, annar þriðji frá
vinstri — jæja, það er glugginn
á herberginu sem okkur varðar.
Eftirlitsherberginu. Langar þig
að gizka á hvað þeir eru að gera
þar á fimmtudagskvöldum? Ég
skal segja þér það. Þeir eru að
gera smávik fyrir Englands-
banka. Þeir em að eftirlíta
knippi af gömlum peningaseðl-
um sem fluttir hafa verið á stað-
inn til þess að hægt sé að
brenna þá daginn eftir.
Hann þagnaði og sneri sér að
Alex. Maður fer að hugsa sitt
af hverju. gamli vinur? Allir
þessir indælu, skítugu peningar
fara í súginn. Sérðu þennan
reykháf? — hann er yfir ofn-
unum. Svo sem hálf mfljón kem-
ur upp um þennan stromp á
hverjum föstudagsmorgni. Er
það ekki skelffleg tilhugsun?
— Þú sagðir að það væri eft-
iriitsherbergið sem kæmi okkur
við.
— Það er rétt, ég sagði það.
Þar inni er risastór peninga-
skápur — þar eru peningamir
geymdir. Það er tímalás á hon-
um. Vagnamir koma á hverj-
um fimmtudegi milli klukkan
hálffjögur og fjögur. Klukkan
fjögur á slaginu er skápurinn
opnaður, peningarnir fara inn í
hann og klukkan kortér yfir
fjögur lokast skápurinn aftur. Ef
hann lokast ekki klukkan kortér
yfir, þá byrjar aðvörunarbjall-
an að hringja i djöfulmóð. Þeir
era með þessar bjöllur alls stað-
ar. Það er furðulegt að þeim
skuli ekki hafa dottið í hug að
setja eina á Big Ben. Mér er al-
vara.
— Og hvemig hefurðu þá
hugsað þér að ná peningunum
út?
— Bíddu hægur, bíddu hæg-
ur .. Það er mjög einfalt ef þú
leyfir mér aö útskýra málið.
Náungarnir í eftirlitsherberginu
— þeir era sex eða svo — þeir
hafa tímann til tíu mínútur yf-
ir sjö til. að yfirfara öll fylgi-
skjölin sem koma með banka-
seðlunum. Þau hafa verið yfir-
farin áðUr, en þessir vesalings
náungar verða aftur að athuga
þau. Þetta er Englandsbanki út
í yztu æsar, gamli vinur, tvö-
falt öryggi á öllum sviðum.
— Og hvað gerist klukkan tíu
mínútur yfir sjö?
— Þá er tímalásinn á skápn-
um opnaður. 1 tíu mínútur, það
er allt og sumt. Frá tíu mínút-
ur yfir til tuttugu mínútur yfir.
Þá æða allir þessir náungar inn
með blöðin sín til að athuga
hvort númerin á pokunum
standa heima við athuganir
Húsmæður athugið
Hreinsum teppi og húsgögn i heimahúsum.
Vanir menn — vönduð vinna.
Teppa- og húsgagnahreinsunin.
Sími 18283.
HREINSUM
rússkinsjakka
rússkinskápur
sérstök meðhöndlun
EFNALAUGIN BJÖRG
Sólvallagötu 7«. Slml 13237
BarmahllB 6. Slmi 23337
VÖRUR
Kartöflumús * Kókómalt * Kaffi * Kakó.
KROJN ■BUÐIRNAR
CONSUL CORTINA
bflaleiga
magnúsar
skipholti 21
sfmar: 21190-21185
VÖNBUÐ II n 11 n Skmbórjónsson &co
PIANO 'a SERVICE^p TUNINd~~ai REPAIRING Píanóstillingar OTTO R YEL Sími 19354.
SKIPATRYGGINGAR
á vöpum í flutningl
á eigum skipverja
Heímistnygging henfar yður
Aflafryggingar
TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIR"
LINDARGATA 9 REYKJAVIK SlMI 21 260 SÍMNEFNI , SURETY
^iaukur (^uömundóaon
HEIMASÍMI 21037
FERÐIZT
MED
LANDSÝN
• Seífum farseðla með flugvélum og
skipum
Greiðsluskilmálar Loftleiða:
• FLOGIÐ STRAX - FARGJALD
GREITT SÍÐAR
• Skipuleggjum hópferðir og ein-
staklingsferðir
REYNIÐ VIÐSKIPTIN
FERÐASKRIFSTOFAN
L/\ ISI O S V ISI ^
TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. B0X 465 — REYKJAVÍK,
UMBOÐ LOFTLEIÐA.