Þjóðviljinn - 11.12.1964, Page 4
4 SÍDA
ÞIÓBVXLIINN
Föstudagur 11. desember 1964
uaifli
Otgetandi: SameinlngarQokkur alþýöu — Sósíallstaflofclr-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús KJartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjórl Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, aígreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19,
Sími 17-500 (5 Linur). Ásfcriftarverð kl. 90,00 á mánuði.
Lögleysur og myrkraverk
• •
Qllum samningum fiemámsflokkanna um hemám
íslands og herstöðvar á íslandi er það sameig-
inlegt, að þeir hafa í raun verið gerðir bak við Al-
þingi og þjóðina, lítil klíka manna í hernámsflokk-
unum hefur í raun ráðið því, að þessir örlagaríku
samningar voru gerðir, fáeinir menn hafa staðið
í makkinu við Bandaríkjastjórn. Það sem þessir
fáu menn hafa samið um hefur svo verið lamið
inn í þingflokka þeirra með aðferðum sem sjálf-
sagt þyldu illa dagsbirtu. Einstöku sinnum hafa
opnazt glufur inn í þann sirkus, eins og þegar
þingmaður úr íhaldsliðinu lýsti því yfir á Alþingi
að hann samþykkti hinar erlendu fyrirskipanir
vegna þess að andstaðan væri eins og hnífur stæði
á barka manns. Það var 1941, þegar Bandaríkja-
her var beðinn um „vemd“ eftir að allt var raun-
ar klappað og klárt og þingmenn hemámsflokk-
anna fengu einungis að samþykkja gerðan hlut.
Að vísu fylgdi drengskaparloforð Bandaríkjafor-
seta að her Bandaríkjanna skyldi hypja sig á brott
af íslandi í stríðslok. Allir vita hvemig það loforð
var efnt. Fyrst með kröfu um þrjár herstöðvar á
íslandi til 99 ára. Því var neitað vegna áhrifa Sós-
^íalistaflokksins í ríkisstjóm. Þá tók Bandaríkja-
stjórn að framfylgja áformum sínum í áföngum,
og er að því enn, með stuðningi hernámsflokkanna
íslenzku. Ein herstöðin sem krafizt var 1945 til 99
ára var Hvalfjörður.
fjr]
svífnast gengu þó hernámsflokkarnir til verka
vorið 1951. Þeir höfðu við inngönguna í Atlanz-
hafsbandalagið haft uppi stóra svardaga að á ís-
landi skyldi aldrei verða her eða herstöðvar á frið-
artímum. En þetta vor var Bandaríkjaher hleypt
inn í landið og Bandaríkjunum afhentar ódulbún-
ar herstöðvar á íslandi. Hafi nokkru sinni verið
framið stjórnarskrárbrot var það með þessum
verknaði, þar sem hann var ekki borinn undir Al-
þingi. Þingmenn hernámsflokkanna voru kallað-
ir til klíkufunda í Alþingishúsinu og látnir þar
samþykkja svokallaðan samning sem ríkisstjórn-
in gerði við Bandaríkjastjórn um nýtt hernám ís-
lands. Síðar hefur því ‘ verið fleygt að umboðs-
menn Bandaríkjanna, aðalmenn hernámsflokk-
anna hafi þulið yfir þingmönnum á þessum klíku-
fundum lygasögu úr bandarískum áróðri um yfir-
vofandi hættu á heimsstyrjöld næstu daga. Á
grundvelli slíkra „upplýsinga“ var hernámssamn-
ingurinn 1951 gerður! Það breytir engu um sak-
næmi þess verknaðar hernámsflokkanna að samn-
ingurinn var hespaður gegnum Alþingi mörgum
mánuðum síðar, undir nauðung orðins hlutar.
gnn er haldið áfram á sömu ógæfubraut. Um-
boðsmenn erlends valds gera enn samning um
aukið hernám íslands bak við Alþingi og þjóðina,
meira að segja án þess að utanríkismálanefnd Al-
þingis fái um hann að vita. Þannig er allur vegur
hernámsins varðaður smánarlegri misnotkun
valds, lögbrotum og óvirðingu við Alþingi og þjóð-
ina. Og er mál að linni. — s.
OTG.: ÆSKULÝÐSFYLKINGIN — RITSTJÖRAR: HRAFN MAGNOSSON,
ARNMUNDUR BACHMANN OG SVAVAR GESTSSON
A þessari mynd sést landslið lslands f körfuknattleik, sem fer t il Bandaríkjanna 27. þon. Yzt til vinstri í fremri röð leikmanna
er Guttormur Ólafsson.
Rætt við landsliðsmann um hús-
næðismál íþróttahreyfingarinnar
□ Forustulið Reykjavíkur í menningarmálum hefur
margt óhreint á samvizkunni. Ber þar til dæmis að taka
sinnuleysið, sem ríkjandi er um sæmilega uppbyggingu
íþróttahúsnæðis handa íþróttaæskunni. Ekki er unnt
að kenna löglegan fjölda kennslustunda í leikfimi á
viku sakir húsnæðisleysis. Og síðast en ekki sízt: fjöl-
margir efnilegir íþróttamenn verða oft í viku að leita
suður á Keflavíkurflugvöll til æfinga.
□ Þetta er tvímælalaust eitt hróplegasta dæmið um þá
skipulögðu ameríkaníseringu, sem hér á sér stað. ís-
lenzkir æskumenn verða að leita á náöir herliðsins til
að komast í sæmilega æfingaaðstöðu.
□ f tilefni þessa ræddum við við Guttorm Ólafsson,
menntaskólanema, sem á sumrin er markvörður í knatt-
spymuliði Þróttar, en á vetuma er virkur þátttakandi
í körfuknattleiksdeild KR, meira að segja svo virkur að
hann var umsvifalaust settur í landslið, sem- valið var
til Bandaríkjaferðar nú seinni hluta þessa mánaðar.
— Eina húsið, sem nú er til
almennra kappleikja er Há-
logaland, kannski þú segir mér
eitthvað um höllina þá.
— Iþróttahúsið að Háloga-
landi var byggt 1941—1942 af
Bretunum, sem hér voru. Þrátt
fyrir þennan háa aldur var þar
til skamms tíma stærsti salur í
bænum og rúmar jafnframt
flesta áhorfendur eða um 800.
Samt fullnægir þessi salur
okkar Islendinga ekki sett-
um lágmarksskilyröum um
vallarstærð þegar um er að
ræða flokkaíþróttir.
Segja má með nokkurri vissu
að stærð hússins hafi staðið
hand- og körfuknattleik fyr-
ir þrifum hér héima og hefur
t.d. verið með öllu ókleift að
bjóða erlendum landsliðum
hingað heim til keppni í þess-
um greinum, unz það ráð var
tekið að notast við íþróttahúsið
á Keflavíkurflugvelli fyrst fyr-
ir u.þ.b. ári.
— En segðu mér, hvemig er
Hálogalandshúsið úr garði gert
' að öðru leyti með tilliti til al-
menns þrifnaðar, bóningsher-
bergja o.þ.h.?
— Ef við athugum búnings-
herbergin fyrst þá má geta
þess, að þegar danska liðið
„Ajax“ var hér á dögunum,
neituðu leikmenn þess að hafa
fataskipti í búningsklefunum
að Hálogalandi. Þá má heita
að salemi þar sé ónothæft.
Eins og öllum mun kunnugt
stendur Hálogalandsbragginn
við Gnoðarvog og er þversum
við allt skipulag þar.
Þá er loftræsting varla til
í húsinu. Loks má geta þess að
þarna er náttúrlega afar mikil
brunahætta og öryggisráðstaf-
anir þar til bóta næsta litlar
og aðeins tvennar dyr fyrir
800 manns til að hlaupa út um!
Af öllu þessu er ljóst að
Hálogalandsheimilið er með
öllu óviðundandi svo ekki sé
fastar að orði kveðið. KR- og
Valssalimir, sem eru stærstu
íþróttasalir á landinu hafa
ekkert rúm fyrir áhorfendur.
Þau íþróttafélög, sem ekki
eiga húsakynni eru i standandi
vandræðum til að æfa á vet-
uma. T.d. verður Þróttur að
Guttormur Ólafsson
láta sér nægja að komast öðru
hverju yfir veturinn í leikfimi-
sal Laugamesskólans.
— Og svo gerir fólk grín að
íþróttunum, og árangri íþrótta-
manna okkar.
— Já, nóg er af því. En af
þessu, sem ég hefi hér sagt má
ljóst vera, að íþróttamenn eiga
ekki við neitt sældarbrauð að
búa. T.d. verðum við lands-
liðsmenn í körfuknattleik að
fara 2svar í viku suður í Kefla-
vik til æfinga. Við leggjum
af stað kl. 8 að kvöldi og kom-
um aftur eftir miðnætti. Semsé
fimm tíma ferð á eina æfingu
og þar af 2 tímar í bíl á slæm-
um vegi. Síðan þurfum við
margir að koma í skóla kl. átta
að morgninum. En það er ekki
nóg með það, að þessar æf-
ingaferðir taki tíma og séu erf-
iðar heldur verðum við að
greiða kr. 25 fyrir hverja ferð
sem þó er ekki nema helming-
ur, en Körfuknattleifcssamband
Islands greiðir hinn helming-
inn.
Væri einhver aðstaða hér til
að iðka flokkaíþróttir gætum
við staðið hinum beztu liðum
hvar sem er í heiminum á
sporði. En meðan svona er að
íþróttamönnum okkar búið er
ekki ástæða til að krefjast
mikils af þeim.
— Hvemig er húsið á Kefl^-
víkurflugvelli?
— Það er mjög gott íþrótta-
hús, einfalt í sniðum en hag-
anlega fyrirkomið. Það rúmar
um 1500 áhorfendur.
— Hvað geturðu svo sagt
Framhald á 13. síðu.
ÆFR - Skálctferð - ÆFH
Næst komandi Iaugardag efna Æskulýðsfylkingardeild-
imar í Reykjavík og Hafnarfirði til skíða- og skálaferðar
í skála sinn í Sauðadölum. Skálaferðir þessar hafa löngum
verið snar þáttur í vetrarstarfi Æskulýðsfylkingarinnar og
er ekki að efast um góða þátttöku, nú sem endranær.
Rögnvaldur Hannesson framkvæmdastjóri Æskulýðs-
fylkingarinnar gefur allar nauðsynlegar upplýsingar um út-
búnað og vegarnesti ferðalanga, — en samkvæmt upplýs-
ingum skálanefndar verður lagt af stað kl. 18 á laug-
ardaginn og komið til baka um kvöldmatarleytið daginn
eftir.
_______________________ ._________ o: