Þjóðviljinn - 11.12.1964, Page 11
Föstudagur 11. desember 1964
M6ÐVILJINN
SlÐA JJ
Aðeins 2000 af 12000 stríðsglæpa-
mönnum hefur verið refsaÓ
Af þeim sem frömdu glæpi sína í Póllandi
Pólski forsætisráðherrann, Cyrankewicz
getur búizt við að verða kallaður fyrir rétt
í Auschwitz réttarhöldunum í Frankfurt til
þess að bera vitni fyrir einn hinna ákærðu.
Hann á að skýra frá því hvernig ákærður
Klaus Dylewski SS yfirforingi bjargaði lífi
hans í Auschwitz. Það er verjandi hinna á-
kærðu, Hans Laternser, sem hefur sett fram
þéssa kröfu.
Cyrankiewicz var fangi í
Auschwitz og er sagður hafa
reynt ad flýja þaðan. Sam-
kvajrnt frásögn Latemser verj-
anda skýrði hann forstöðu-
mönnum Krupp-fyrirtækisins
B. Beitz og Hundhausen frá
. þessari misheppnuðu flóttatil-
raun í samtali við þá í janúar
1961. Dylewski komst á snoðir
um fyrirhugaðan flótta, en sá
til þess að rannsókn málsins
ónýttist
Eiginlega get ég þakkað Dyí-
ewski það að ég get gegnt nú-
verandi starfi mínu sagði
pólski forsætisráðherrann. við
fulltrúa Krupp í viðræðum við
þá í Varsjá, ef hægt er að
trúa orðum verjandans.
Cyrankiewicz
Þess vegna á. Cyrankiewicz
sjálfur að fá færi á að árétta
þetta í réttarsalnum í Frank-
furt Til öryggis hefur Latem-
ser einnig beðið um að fá að
kalla Hundhausen til vitnis.
Önnur vitni hafa greinilega
ekki uppgötvað jafn mannlega
eiginleika* hjá Dylewski. Þau
segja að hann hafi sjálfur
komið blóðbaði af stað og
hrópað: „Drepum júðana.”
Auschwitz réttarhöldin hafa
staðið yfir í næstum því ár,
en vintnaleiðslum er enn ekki
lokið. Verjendumir unnu smá-
sigur þegar þeir fengu fram-
gengt kröfum sínum um að
myndir af hinum ákærðu væru
fjarlægðar af Auschwitz sýn-
ingunni í Pálskirkju. En helzt
vildu þeir að sýningunni væri
alveg lokað. Þeir héldu þv£
fram að hún væri íhlutun í
réttarhöldin.
Frankfurter Allgemein Zei-
tung skýrði frá því frá Var-
sjá að ákvörðun Bonn-stjóm-
arinnar um að lengja ekki
fyrningarfrest fyrir stríðs-
Framhald á bls. 13.
*
Heimsmet
í sölu
kúlu-
penna
Þess vegna er BIC framúrskarandi. Enginn annar
penni á sama verði og BIC, hefir „demants“-kúlu
úr harðmálmi: BIC skrifar þess vegna betur og
!engur en pennar, sem eru margfalt dýrari.
5130 (Cristal) Kr 8:00
5130 (Gulur’1 t-r 9.00
mwwinmiiiuilllluiMliHHI
M 10 (Clic) kr. 10,00.
Heildsala: ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. H.F
Kraftaverkið síðasta sýning
Á morgun, laugardag verður leikritiö KRAFTAVERKIÐ sýnt í
síðasta sinn í Þjóðleikhúsinu, og er það 25. sýning leiksins. Leik-
urinn vax frumsýndur þann 20. september sl. — Myndin er af
talið frá vinstri: Amari Jónssyni, Val Gislasyni og Helgu Val-
týsdóttur í hiutverkum sínum.
Trésmiðjan Víðir hf. auglýsir
Bjóðum yður
nú sem fyrr stórglæsilegt húsgagnaúrval. Getum
nú boðið yður húsgögn í alla íbúðina. í>að er 3 sett:
Svefnherbergissett, sófasett og borðstofusett, sam-
tals kr. 51,800,00 allt 1. flokks húsgögn. — Verðið
ótrúlega lágt miðað við gæði.
Hvar gerið þér betri kaup ? ? ? ?
Við ykkur unga fólkið, sem eruð að stofna heimili,
viljum við segja þetta: Lítið inn til okkar og kynn-
ist af eigin raun hinu ótrúlega lága verði og hag-
stæðu greiðsluskilmálum.
Það hefur ávallt verið markmið Trésmiðjfunnar
Víðis, að ná til sem flestra landsmanna með við-
skipti sín. Og til að auðvelda viðskiptavinum vor-
um húsgagnaúrvalið, höfum við nýlega gefið út
myndalista ásamt verðskrá, sem verður dreift út
við fyrsta tækifæri. Skrifið eða símið og við mun-
um senda yður svar um hæl.
Trésmiðjan Víðír hf.
Símar 2-22-22 og 2-22-29. '
Opið fil klukkan 10 í kvöld.
Auglýsið í Þjóðviljanum