Þjóðviljinn - 11.12.1964, Page 16

Þjóðviljinn - 11.12.1964, Page 16
W Á I ! I SfLDINNI EKIÐ f HAUGA Á FROSNA JÖRÐ EYSTRA DUMUINN Föstudagur 11. desember 1964 — 29. árgangur — 273. tölublað. Neskaupstaður Neskaupstað, 10/12 — Síld- arskipin koma hér inn dag eftir dag með fullfermi og höfum við tekið á móti 50 þúsund málum af síld í des- ember. Þróarrými er hér tak- markað og er síldinni tekið á tún hér í plássinu og er nú hér margur myndarlegur haugurinn, sem stækkar dag frá degi. í dag komu hingað inn Hólmanes með 800 mál, ís- leifur IV. 1000, Eldey 1100, Eldborg 1300, Þórður Jónas- son 1300 og Arnar 1100. Hér er fryst á tveim stöð- um og slattar ofan af skipum saltaðir eftir því sem aðstæð- ur leyfa og skortir þó tilfinn- anlega húsakynni hér á staðnum. f gær voru þannig saltaðar um 200 tunnur hjá Mána og það sett þegar um borð í Esju og sent til Kefla- víkur til frekari verkunar. í dag er verið að salta hjá Sún. Þá eru komnir hingað menn frá Bæjarútgerð Reykjarvíkur og togari þaðan er vsentanlegur í fyrramálið og ætlar hann að taka 300 tonn af síld og ísa hana og flytja hana til Reykjavíkur. Þá er Pétur HaUdórsson að koma úr sölutúr til Englands og kemur hingað og ísar hér fullfermi og siglír með það á Þýzkalandsmarkað. Mun togarinn þurfa um 100 tonn af ís og er Neskaupstaður eini staðurinn hér fyrir aust- an, sem getur látið slíkt ís- magn af hendi úr frystihús- unum. Hér er unnið dag og nótt og þó er reynt að halda Skólaunglingum fyrir utan atvinnulífið og standa nú yfir pfóf hjá nemendum. En þegar jólaleyfin hefjast má búast við að unglingarnir sogist inn í atvinnulífið. R.S. Fáskrúðsfjörður Fáskrúðsfirði, 10/12 — Við erum búin að taka á móti 25 þúsund málum af síld í desember og ökum þessu jafnóðum inn í fjarð- arbotn á sléttar grundir og geymum síldina þar á fros- inni grundinni, sagði Guðjón Friðgeirsson, kaupfélagsstjóri í viðtali við Þjóðviljann í dag. Þarna eru nú komin fimmtán þúsund mál í haug og snjóar yfir þetta jafnharð- an. Ætlunin er að taka á móti tíu þúsundum í viðbót og geyma síldina á þennan hátt. í dag komu hingað inn Margrét með 1200 mál, Ögri 1200 og Óskar Halldórsson 1200. í gær komu þessi sömu skip inn með sama skammt og sex bátar í viðbót með samtals tíu þúsund mál. Síldarbræðslan hér á Fá- skrúðsfirði tók á móti 160 þúsund málum af sumarsíld og hafa afurðirnar verið að fara þessa dagana. Hér vinna allir, sem vettl- ingi geta valdið frá því snemma á morgnana og langt fram yfir miðnætti. Okkur hefur þó tekizt að halda skólaunglingum fyrir utan þessa vinnu. Hér á Austurlandi er £ uppsiglingu mikið vandamál og er ekki hægt að sjá annað en hér sé yfirvofandi raf- magnsskömmtun. Síldarbræðslan á Seyðis- firði og Reyðarfirði hefja bræðslu á morgun eða hinn daginn og er þá búizt við að rafmagnsskömmtun skelli yf- ir Austfirði. Grímsárvirkjun- in býr nú við vatnsskort og er vatni hleypt á virkjunina þrjá til fjóra tíma á dag. Kemur þessi orkuskömmt- un til með að valda erfiðleik- um í rekstri síldarverksmiðj- anna á næstu vikum. Eskifjörður Eskifiröi, 10/12 — Skínandi gott veður er nú á miðunum og komu þessi skip inn með síld í dag. Sæhrímnir 1000 mál, Jón Kjartansson 1600, Helga Guðmundsdóttir 1600, Guðrún Þorkelsdóttir 850, Þorgeir 600, Vigri 1100, Sig- urpáll 800 og Gísli lóðs 800. Síldin fer að mestu í bræðslu og hefur þannig ekkert verið saltað hér í dag. Er tunnu- laust og koma ekki tunnur fyr en með Esju. Annars er búið að salta hér rúmlega tvö þúsund tunnur síðustu daga og fer öll sú síld á Rúmeníu- markað. Er síldin söltuð á vegum Auðbjargar og fer fram inn- anhúss. Síldin er lögð í tunnurnar með hausi og innvolsi eins og hún kemur upp úr sjónum og verður síðan flokkuð í stærðarflokka. Svona vilja Rúmenar fá síldina. Þá fer lítilsháttar í frystingu. Síldin fer að mestu í bræðglu og höfum við tekið hér á móti 30 þúsund málum af síld í desember og kallast það vetrarsíldveiði. Fólkið vinnur fjórtán stund- ir á sólarhring og er mikil vinna framundan á Eskifirði. Síldarbræðslan hér á Eski- firði tók á móti 210 þúsund málum af sumarsíld. Næstu daga kemur hingað nýtt síld- arskip og heitir það Krossa- nesið og fer þegar út á mið- in. Skipstjóri hefur verið ráð- inn og heitir hann Árni Hall- dórsson og var áður með Vattarnesið og fylgir honum að mestu gamla skipshöfnin. Hinsvegar hefur Vattarnesið verið selt til Neskaupstaðar og hefur Gísli Brynjólfsson, útgerðarmaður þar keypt " bátinn og ber hann nú nafn- ið Björg NK 103. Seyðisfjörður SeySisfirði, 10/12 — Síld- arverksmiðjan á Seyðisfirði byrjaði að taka á móti síld í fyrradag og hafa tólf skip landað hjá verksmiðjunni ná- lægt 20 þúsund málum, en þróarrými hjá verksmiðjunni er einmitt 20 þús. mál, sagði Gunnlaugur Jónasson í stuttu viðtali við Þjóðviljann í gær. Við munum ekki safna síldnini fyrir í hauga á fros- inni grundinni enda erfitt um vik í landleysinu hér á Seyðisfirði. Við erum líka hræddir um að síldin súrni við þá með- ferð. Ætlunin er að hefja bræðslu næsta laugardag og hefur þó verið erfitt að fá menn í verksmiðjuna og fáum við til dæmis aðeins 20 menn hér á Seyðisfirði. Hér er ennþá mikil vinna í kringum salt- k síldina. Hingað eru væntan- " legir aðkomumenn ofan af | Héraði og sunnanfrá Reykja- vík og þurfum við 60 menn til þess að starfrækja verk- smiðjuna. Afurðir verksmiðjunnar frá sumrinu eru að mestu farnar og er aðeins eftir 400 tonn af lýsi og fer það á næst- unni. Hinsvegar eru eftir 2000 tonn af mjöli og fer helming- urinn með Selá á morgun og Goðafossi á mánudaginn. ! Þó er o5eíns 42% bllaskaffanna variS fil vegamála SVIPUÐ FJÁRHAEÐINNHEIMT MEÐ BIFREIÐASKATTI OG ÚTSVÖRUM Hverfistigi settur í verzlanahús KEA □ í nýjasta hefti ÖKUÞÓRS, tímariti Félags íslenzkra bifreiðaeigenda, er það harðlega gagnrýnt að ríkissjóður skuli ár frá ári hækka skatta af bifreiðum og rekstrarvör- um þeirra, án þess sjáist nokkurn stað í auknum vega- framkvæmdum. Er fullyrt í ritinu, að sjaldan eða aldrei hafi ástand fjölförnustu þjóðveganna verið verra en á síð_ astliðnu sumri. 1 ÖKUÞÓR er lögð áherzla á þetta með því að benda á eftir- farandi staðreyndir: -k Á þessu ári munu íslcnzkir bifreiðaeigendur greíða alls í skatta af bifreiðum og rekstr- Miljén kréna vinningur kom á heilmiða í gær var dregið í 12. flokki Happdrættis Háskóla íslands. Dregnir voru 6.300 vinningar að fjárhæð 15.780.000 krónur. Hæsti vinningurinn, ein millj- ón krónur, kom á heilmiða núm- er 36.580, sem seldur var í um- boði Frímanns Frímannssonar í Hafnarhúsinu. Þessa tvo sam- stæðu heilmiða átti sinn hivor maðurinn. Aukavinningarnir, sem eru 50.000 krónur að þessu sinni, skiptust milli þriggja að- ila. Númer 36.579 skiptust milli tveggja manna, en sá sem átti númer 36.581 hafði bætt við sig miðanum í aukaflokknum og fékk þar af leiðandi 100.000 kr. 200.000 króna vinningurinn kom á hálfmiða númer 18.816. Tveir hálfmiðar voru seldir í umboði Þóreyjar Bjarnadóttur, Lauga- vegi 66, einn hálfmiðinn var seldur hjá Frímanni Frímanns- syni og sá fjórði var seldur hjá Arndísi Þorvaldsdóttur, Vestur- götu 10. 100.000 króna vinningurinn kom á heilmiða númer 48.082, sem seldir voru í umboði Frí- manns Frímannssonar í Hafnar- húsinu. Sá, sem átti annan heil- miðann átti röð af miðum. arvörum þeirra um 570 miljónir króna. Er það álíka fjárhæð og öll útsvör á Iandinu samanlögð. -k Af þcssu fé er aðeins varið 240 miljónum króna til vega- mála, og er þá þar með talið það fé, sem ríkið Ieggur til gatnagerðar í Reykjavík og öðrum kaupstöðum landsins. •k Þcssi fjárhæð þyrfti að vera að minnsta kosti 350—400 milj. kr. til þess að vegaframltvæmd- um hér á landi miðaði eðlilega áfram. -k Aðeins um 35 milj. kr. vcrð- ur varið á þessu ári til endur- byggingar ýmissa þjóðbrauta og hraðbrauta. Sú fjárhæð myndi aðeins nægja fyrir þriðjungi kostnaðar við byggingu verzl- unarhúss í Ueykjavfk á stærð við Bændahöllina eða 15—20 í- búðarhúsa. Þykja þessar fram- kvæmdir þó engum tíðindum sæta og eru samt gerðar fyrir atbeina einstaklinga en ekki þjóðfélagsins sem heildar. •k Arið 1963 voru hinir sérstöku skattar, sem Iagðir voru á bif- reiðar og rekstrarvörur þeirra af ríkisins hálfu 470 milj. kr. ! Það ár var aðeins varið um 150 milj. kr. til vegamála í land- inu. ic Sambærilegar tölur árið 1962 voru 300 og 100 milj. kr. Orgeltónleikar í Kristskirkju á sunnudag Tékkneskur orgelleikari, Kar- el Baukert heldur tónleika í Kristskirkju næsta sunnudag og næsta þriðjudag á Akranesi. Karel Baukert dvaldi hér á landi veturinn 1961 og 1962 og var þá óbóleikari £ Sinfóníu- hljómsveitinni og hélt hér einn- ig sjálfstæða tónleika. Síðan hefur hann haldið tónleika í Þýzkalandi, Belgíu og heima- landi sínu. Nú er hann á leið vestur til Bandaríkjanna og heldur þar tónleika á komandi vetri. Á þessum tónleikum leikur hann verk eftir Bach, César Franck og sjálfan sig. Aðgöngu- miðar að tónleikunum í Krists- kirkju verða seldir í Bókaverzl- un Sigfúsar Eymundssonar og Hljóðfæraverzl. Sigríður Helga- dóttur £ Vesturveri. 8. des. s.1. lauk umfangsmikl- um breytingum á verzlunum Kaupfélags Eyfirðinga, í Ilafn- arstræti 91 og 93. Þá opnaði Herradeildin á fyrstu hæð i Hafnarstræti 93 og Vefnaðar- vörudcildin tók alla aðra hæð fyrir sínar vörur. Auk þess er teppasala í kjallara hússins, svo að nú er verzlað á þrem hæðum þcss í björtum og mjög rúm- góðum húsakynnum. Verzlunar- plássið í kjallara er um 80 fer- metrar, á fyrstu hæð um 250 fermetrar og á annarri hæð um 270 fermetrar. Flest öllum varningi deild- anna er fyrirkomið á lausum borðum eða „eyjum’’ þannig að viðskiptavinirnir eiga mjög auðvelt með að skoða, hann. Teikningar af breytingunum annaðist teiknistofa S.I.S., en verkstjórn Stefán Halldórsson, byggingameistari, sameinuðu verkstæðin Marz og Vélsmiðjan Oddi, sáu um hitalagnir, en Raflagnadeild KEA um raflagn- ir. Jón A. Jónsson, málarameist- ari, og menn hans önnuðust málningu, en Húsgagnavinnu- stofa Ólafs Ágústssonar sá um smi'ði og uppsetningu verzlunar- innréttingar. Til algerrar nýjungar £ útbún- aði verzlunar hér í bæ er hinn svonefndi hverfistigi, sem er hinn fyrsti, sem settur er upp hér á landi utan Reykjavfkur. Stiginn er smiðaður hjá OTIS- ELEVATOR Company i Þýzka- landi, sem er eitt elzta og reynd- asta fyrirtæki heims í smiði hverfistiga og lyftna. Stiginn er af sömu gerð og í mörgum stærstu verzlunarhúsum megin- iandsins. Hann er með full- komnum öryggisútbúnaði svo að engin slysahætta er talin stafa af honum. Uppsetningu stigans annaðist Mr. W. J. Davis frá Otis-fyrirtækinu £ Englandi, en hann hefur farið viða um heim í slíkum erindagerðum. Hverfistiginn flytur viðskipta- vinina úr Herradeildinni upp í Vefnaðarvörudeildina, og er staðsettur nálægt miðju þessara deilda, en að sjálfsögðu er einn- ig venjulegur stigi milli þeirra, ELLEFTIBREZKI TOCARINN TEKINN | | Um miðnætti í fyrrinótt tók varðskipið Þór brezk- an togara að ólöglegum veiðum 2,4 sjómílur fyrir innan fiskveiðitakmörkin á Húnaflóa út af Geirólfsnúp á Strönd- um. Heitir togarinn Kongston Jacinth, H 198, og er frá Hull. Þór fór með togarann til Akureyrar og þar hófust réttarhöld í máli skipstjórans kl. 2 síðdegis 1 gær. Ellefu brezkir togarar hafa verið teknir í landhelgi við ís- land á árinu 1964. Níu af þess- um togurum hafa verið teknir út af Vestfjörðum og tveir út af Langanesi. Sex af brezku togurunum hafa verið út af Barða og tveir út af Horni og 1 út af Látrabjargi. Engir aðrir erlendir togarar hafa verið teknir í landhelgi á árinu og var þó til dæmis al- gengt, að belgískir togarar væru teknir og ennfremur þýzkir. Þrír íslenzkir togarar hafa verið teknir í landhelgi á árinu. Fyrsti togarinn sem tekinn var í landhelgi á þessu ári var tekinn 31. ágúst sl. og er ó- vanalegt að jafnmargir togarar hafi .verið teknir í landhelgi á svo skömmum tíma þótt heild- artalan á árinu sé ekki hærri en oft áður. ♦ »

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.