Þjóðviljinn - 18.12.1964, Page 16
ALÞÝÐUSAMBANDIÐ og
BSRB MÓTMÆLA
SÖLUSKATTSFRUMVARPINU
i
Mótmælaályktun miðstjórnar Alþýðusambandsins 17. des. \
Miðstjóm A.S.Í. samþykkti eftirfarandi á-
lyktun á fundi sínum í gær:
„Miðstjórn Alþýðusambands íslands mót-
mælir harðlega frumvarpi því, sem nú liggur
fyrir Alþingi um hækkun söluskatts og mun
hafa í för með sér nýjar álögur, sem nema
300 — 400 miljónum króna á ári.
Miðstjórnin telur, að með frumvarpi þessu
sé ýtt af stað nýrri verðbólguöldu, sem stefni
hagsmunum launþega og eðlilegri þróun efna-
hagsmála þjóðarinnar í mikinn háska og tor-
veldi stórlega alla möguleika á friðsamlegum
samningum um eðlilegar kjara- og launabæt-
ur til handa vinnustéttunum.
Miðstjórnin telur, að með slíkum aðgerðum
til stórfelldra nýrra verðhækkana, sé rift þeim
grundvelli, sem lagður var með samkomulagi
ríkisstjórnar, verkalýðssamtaka og atvinnu-
rekenda hinn 5. júní s.l.
Alveg sérstaklega lýsir miðstjómin mótmæl-
um sínum við þá beinu brigð á yfirlýsingum,
sem gefnar voru í sambandi við júnísamkomu-
lagið um það, að engar nýjar álögur yrðu á
lagðar vegna niðurgreiðslna á árinu 1964, en í
frumvarpinu eru 68 miljónir króna áætlaðar
í því skyni.
Miðstjórnin telur, að skattahækkun nú ofaná
skattarán sumarsins, verki sem eitur í ógróin
sár og brjóti niður trú manna á, að ríkisstjórn-
in vilji heils hugar vinna að stöðvun verðbólgu
og vaxandi dýrtíðar.
Þess vegna varar miðstjórnin alvarlega við
því, að söluskattsfrumvarpið verði samþykkt,
og heitir á ríkisstjórnina að hverfa frá því ó-
ráði að gera það að lögum, en freista heldur
að draga úr óhófseyðslu í rekstri ríkisins og
leita sérhverra ráða til að hamla gegn verð-
bólgu og dýrtíð".
BSRB skorar á Alþingi að samþykkja ekki frumvarpið
Á fundi stjórnar Bandalags starfsmanna rík-
is og bæja í dag var einróma samþykkt svofelld
ályktun:
„Stjórn B.S.R.B. hefur rætt frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um hækkun á söluskatti.
Bandalagsstjórnin telur það mjög miður
farið, að frumvarp þetta skyldi lagt fram, án
þess að fyrst væri haft samráð um þessi mál
við launþegasamtökin.
Opinberum starfsmönnum hefur verið synj-
að um leiðréttingu á launum sínum og hafa
þeir því orðið að taka á sig bótalaust allar
verðhækkanir frá 1. júlí 1963, en síðan hefur
vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 23,5
prósent. Eru þeir því illa við því búnir að taka
á sínar herðar nýjar álögur.
Stjórn B.S.R.B. skorar þess vegna á Alþingi
að samþykkja ekki frumvarpið um hækkun á
söluskat'ti, heldur leita í þess stað úrræða til
stöðvunar verðbólgu og hafa um það fullt
samráð við launþegasamtökin".
(Frá B.S.R.B., 17. des. 1964).
I
„Liflu jólin" í Austurbœjarskólanum
13. prófessor-
inn við lækna-
deildina
'if Komið er fram á AI-
þingi frumvarp til Iaga um
fjölgrun prófessoraembætta
við Háskóla fslands. Sam-
kvæmt l>ví verður sett á
laggirnar prófessorsemb-
ætti í Iífeðlisfræði þannig
að prófessorsembætti við
læknadeildina verði 13.
'A’ Hingað til befur Davíð
Davíðsson gegnt kennslu-
störfum bæði í lífeðlis- og
lífefnafræði, en hann mun
gegna kennslu I lífefna-
fræði eftir að maður hefur
verið settur til hins starf-
ans.
DIOBVH
Föstudagur 18. desember 1964 — 29. árgangur — 179. tölublað.
Bók um Kína: Bak
vió bambustjaldið
® í dag kemur í bókaverzlanir ný bók sem mörgum mun
vafalaust þykja forvitnileg fyrir margra hluta sakir, bók-
in Bak við bambustjaldið eftir Magnús Kjartansson rit_
stjóra, en þar segir hann frá ferð sinni um Kína sl. haust
og kynnum sínum af landi og þjóð.
í formála fyrir bókinni segir
höfundur m. a. svo um efni
hennar og tildrög. Mikid hefur
verið rætt um Kína á undan-
förnum árum, og hafa skoðanir
manna verið mjög skiptar, jafnt
sósíalista sem annarra. Því varð
mér það mikið ánægjuefni þegar
okkur hjónunum barst í vor boð
frá Alþýðudagblaðinú í Peking,
Renmin Ribao, um að koma til
Kína og kynnast aðstæðum af
eigin raun. Ég bjó mig eftir
föngum undir ferðina, las mik-
ið af nýlegum bókum og grein-
um, jafnt eftir þá sem hliðholl-
ir eru kínverskum stjórnháttum
sem andstæðinga þeirra, og festi
mér í minni mörg vandamál
sem ég vildi fá vitneskju um.
Við hjónin ferðuðumst síðan um
Kína í septembermánuði og
fram undir miðjan október,
reyndum að hagnýta hverja
stund og komumst raunar yfir
furðanlega mikið með því að
nota einatt næturnar til ferða-
laga. Einnig var að því mikið
hagræði að blaðamenn tóku
hvarvetna á móti ókkur; þeir
gátu rætt af þekkingu um vanda-
mál sem mér voru ofarlega í
huga og leyst úr spumingum.
Einnig áttum við tal við nokkra
valdamikla sérfræðinga og
stjómmálamenn í Kína og höfð-
um af þvi mikiÖ gagn.
Enda þótt ég hafi lært mikið
á þessum tíma dettur mér sízt
í hug að telja mig einhvern
Kínasérfræðing; Kína er sér-
stakur heimur, mjög ólíkur
okkar, og engum vesturlanda-
manni mun takast að átta sig
á honum til nokkurrar hlítar
nema á löngum tíma. Þessi bók
er aðeins frásögn blaðamanns áf
daglegum vandamálum og við-
horfum Kínverja eins og þau
komu mér fyrir sjónir.
Bak við bambustjaldið er
rösklega 200 blaðsíður að lengd
auk 32 myndasíðna og er efni
hennar skipt niður í 12 megin-
kafla er aftur skiptast í undir-
kafla. Geta kaflaheitin gefið
svolitla bendingu um það efni
sem þarna er um fjallað, en
Sorenomq í
WASHINGTON 17/12 — Banda-
rískir vísindamenn sprengdu á
miðvikudag kjarnorkusprengju á
tilraunasvæðinu undir Nevada-
eyðimörkinni. Sprengingin var
ekki sérlega mikil. Þetta var til-
kynnt opinberlega í dag og hafa
nú Bandaríkjamenn samtals
sprengt 21 kjamorkusprengju
neðanjarðar.
vélstjóri í Eyjum hœW
kominn .í eldsvoða
if Það var kátt á hjalla í Ævintýralandið og Fósturson- sonar. Spilað var á blokkflautur
kvlkmyndasal Austurbæjarskól- inn. Einnig gerðu þau góðlát- og sungiö. Jólasvcinar komu í
ans í gærmorgun. Þar héldu 9 legt grín að saumaklúbbum hcimsókn, sýnd var kvikmynd
ára bekkir skólans „Iitlu jólin” mæðra sinna.
hátíðleg. Margt var til skemmt-
unar, börnin sýndu ýmsa æv-! Lúðrasveit drengja lék nokk-
istýraleiki, svo sem Rauðhettu,! ur lög undir stíám F aIs S. Páls-
o.fl. o.fl. Hér á myndinni cru
þrír litlir jólasveinar að skemmta
með söng. — Ljósm. Þjóðv. A.K.
Vestmanhaeyjum 17/12 — I
fyrrinótt kom upp eldur í m.b.
Öðlingi VE 202 hér í Vestmanna-
eyjahöfn og urðu miklar
skemmdir á bátnum. Eldurinn
breyddist út frá kabyssu í lúkar
bátsins og þar hafði vélstjórinn
lagst til svefns og er talið víst
að hann hefði kafnað af reyk, ef
vegfarandi hefði ekki átt leið
þau eru: Á annarlegri ströndj
Hundrað ára stríð, Vélar og fólk,
Lfkamsorka og vatnsorka, A
hirðingjaslóðum, I leit að for-
tíöinni, Menntun og uppeldi og
Stórveldið Kína.
Útgefandi bókarinnar er
Heimskringla, en prentun hefuí
Prentsmiðjan Hólar annazt.
Kápu bókarinnar gerði Gísli B.
Björnsson.
IWWVWVWWVWWWVWWVWVWWWWWI
þarna um á bryggjunni og veitti
eldinum athygli. Hann brá þeg-
ar við og hljóp um borð í bátinn
og tókst að vekja vélstjórann og
kom honum upp úr bátnum við
annan mann, sem bar þama að
um líkt leyti.
Slökkviliðið var síðan kallað á
vettvang og vann brátt bug á
eldinum.
6 DAfSAR
BFTIR
I gær var mikill kraftur íl
5. deild, en heldur var það t
slappt annars staðar. Nú dug-;
ar það ekki lengur að draga;
það að taka á honum stóra I
sínum. Við verðum með skrif-;
stofuna opna til kl. 7 f;
kvöld og viljum vekja at-í
hygli á að opið verður einn-;
ig í matartímanum. Á morg-
un höfum við opið frá kl.:
9 f.h. til kl. 10 annað kvöld.;
Það eru vinsamleg tilmæli j
til allra þeirra sem eiga eft- j
ir að gera upp að líta inn;
til okkar sem fyrst, því síð-;
ustu dagana er mikið áð gera j
og því ös. Við viljum ihinna;
þá sem eru úti á landi á að;
enn er ekki of seint að sendaj
okkur uppgjör í pósti en auk;
þess er hægt að gera upp við;
umboðsmenn okkar, en nöfn jj
þeirra eru birt inni í blað-1
inu.
Gerið skil strax í dag. Efl-
ið útgáfu Þjóðviljans.
Röð deildanna er nú þann- j
|ig:
1. 9 deild Kleppsholt
2. - deild Vesturbær
3. lOb deild Vogar
4. 5 deildNorðurm.
5. 4a deild Þingholt
6. 8a deild Teigar
7. 8b deild Lækir
8. 6 deild Hlíðar
9. 4b deild Skuggahv.
10. 14 deild Háaleiti
1,1. 2 deild Skjólin
12. 13 deild Blesugróf
13. 7 deild Rauðarárh.
14. Norðurland vestra
15. 3 deild, Skfjörður
16. 15 deild Selás
17. lOa deild Heimar
18. Reykjanes
19. Kópavogur
20. 11 deild Sm.íb.hv.
21. 12 deild Sogamýri
22. Suðurland
23. Austurland
24 Norðurland evstra
25 Vesturland
7P ''“stfirðir
63%;
50%;
48% j
46%;
44%;
43% j
42%, I
41%;
39%:
38%;
3i%,;
27%,
24%;
24%:
21%
20%,
17%:
17%i;
i6%:
13%,;
13% j
13%,?
9%:
9%,;
8%:
3%.;;
Gerið skil
\ sem fyrst
A/VVVVAVVVAVVVVVVVWVVVVVVVVVVVVVVVVVVVV
*