Þjóðviljinn - 27.05.1965, Page 6
6. SIDA
Helztu niðurstöður búreikninga 1962
ÞiésmiiwH
Fimmtudagur 27. maí 1965
Shastrí hrsætisráðherra ávarpar bæadar
ÁRIÐ 1962 VAR VERRA
BÚSKAPARÁR EN 1961
Búnaðarfélag íslands hefur
nýlega gefið út „Skýrslu um
niðurstöður búreikninga fyrir
árið 1962“, en skýrsla þessi er
gerð af Búreikningaskrifstofu
ríkisins og nær yfir helztu nið-
urstöður búreikninga þeirra, er
bárust skrifstofunni fyrir árið
1962 eða fardagaárið 1962 til
1963.
Búreikningar þessir eru 21 að
tðlu og skiptast þannig eftir
sýslum;
Borgarfjarðarsýsla 2
Hnappadalssýsla 1
Dalasýsla 1
Vestur-ísafjarðarsýsla 2
Strandasýsla 2
Austur-Húnavatnssýsla 1
Eyjafjarðarsýsla 1
Suður-Þingeyjarsýgla 2
Norður-Þingeyjarsýsla 2
Norður-Múlasýsla 1
Suður-Múlasýsla 1
Vestur-Skaftafellssýsla 2
Ámessýsla 2
Kjósarsýsla 1
í skýrjlu þessari er gerð
grein fyrir helztu þáttum bú-
reikninganna en meginniður-
stöðumar dregnar saman I
lokakaflanum. Þetta em niður-
stöðutölur búreikninga fyrir ár-
ið 1962, eða fardagaárið 1. maí
1962 til 1. maí 1963. Fer megin-
efni þessa lokakafla hér á eftir;
Fjármunir þeir, sem bundnir
eru við rekstur landbúnaðarins
hjá þejsum bændum, eru að
meðaltali kr. 617.859,68 í árs-
byrjun. Þar af er eign bóndans
kr. 617.545,39, en á leigu kr.
314,29. Af þes-sari upphæð er
fasteign 64.4%, búfé 19.0%,
verkfseri 11,4% og forði (aðal-
lega hey) 5,2%.
... Efftahagur bændanna er að
meðaltali þannig í ársbyrjun,
að eign er kr. 730.167,54, en
skuld kr. 168.016,56, hrein eign
því kr. 562.150,98. Skuldir eru
þvj 23,0% af eignum alls. en
hrein eign 77,0%. Hrein eign
óx á árinu um kr. 68.961,01.
Heildararður aðalbúgreina er
að meðaltali kr. 240.914,42. Þar
af frá búfé 80,7%, frá jarðrækt
9,8% og ýmislegt 9,5%. Heild-
ararðurinn er kr. 14.459,59
hærri en árið á undan.
Rekjturskostnaður aðalbú-
greina er að meðaltali kr. 245.
476,95. Þar af er vinnukostnað-
ur 68,6%, útgjöld vegna búfjár
14,7%, útgjöld vegna jarðrækt-
ar 11,4% og annar kostnaður
+ 5,3%. Hæ'kkun frá fyrra ári
nemur kr. 28.374,27. Hefur þvi
reksturkostnaður hækkað og
heildararður einnig, en minna.
Arður búsfcaparins er — kr.
4.562,53 og hefur lækkað um
kr. 13.914,65 frá fyrra ári.
Búrenta er — 9,78.
Bústærðin er sem hér segir
1962 oig 1962:
1962 1961
Tala hrossa (reikn-
uð) ............ 2,6 2,4
Tala sauðfjár 158,0 149,8
Tala nautgripa (reikn-
uð) ............ 8,2 10,4
Töðuuppskeran '(hest-
burðir) .... 607,5 736,0
Útheysuppskera 42,0 25,0
Garðávextir (ein-
ingar) ........ 19,0 8,7
Nautgripir eru færri 1961, en
uppskera garðávaxta er meiri.
Vinnustundafjöldi er 339
minni en 1961, en vinnustund-
ir karla í hlutfalli aðeins hærri
en 1961.
Fyming og viðhald er hjá
jörð 11,32%, byggingum 10,0%
og verkfærum 40,62%. Þetta
eru háar tölur, en þess ber að
geta, að mat þessara eigna er
lágt, en allur viðhaldskostnað-
ur hár. Talið í krónum er
fyming og viðhald hjá fast.
eign og verkfærum kr. 40.512,03
en var kr. 32.521,15 árið 1961.
Fæðiskostnaður. Karlmanns-
fæðið er kr. 97,00 á kfd. éða kr.
9,83 á klst. og hefur hækkað
frá 1961. Fæðisdagar eru færri
en 1961 Vinnustundir á karl-
mannsfæðisdag eru 2,54 og
voru 2,5 fyrra ár.
Hestavinna kostaði í fram-
leiðslu kr. 28,81 á vinnustund,
hefur hækkað um kr. 7.70.
Vinnustundir á vinnuhross voru
100,0 og hefur fjölgað um 21,2
stundir frá 1961.
Taða kostaði í framleiðslu
kr. 138,25 á hestburð. Ef tek-
ið er vegið meðaltal, kostar
taða í framleiðslu kr 127,92,
sem sýnir, að taðan er ódýrari
hjá stærri búum. Vinna við öfl-
un töðunnar 2,1 klst, og er 0,2
hærri en 1961.
Úthey kostar í framleiðslu
kr. 146,99 á hestburð. Vegið
meðaltal er kr. 101,61, sem sýn-
ir, að útheyið er dýrara á
minni Ibúunum, en búin eru nú
aðeins 9 sem nytja úthey.
Vinna við öflun útheys var
4,69 klst og eru þær 1.39 fleiri
en 1961.
Tilkostnaður á sauðkind er
kr. 696,76, afurðir kr. 582,91 og
því tap kr. 113,85. Vegið með-
altal sýnir tap á kind kr. 79,00,
svo að stærri sauðfjárbúin gefa
mikið betri útkomu á sauðfé
heldur en þau minni.
Tilkoytnaður á nautgrip er
kr. 16.00il,86, afurðir kr. 12.449,
22 og tap kr. 3.557,64. Vegið
meðaltali gefur tap 2.909,81. svo
að stærri kúabúin sýna mikið
betri útkomu heldur en þau
minni og er eðlilegt, að þau bú
sem aðeins framleiða mjólk til
heimilisnota, sýni verrj útkomu
á nautgripareikningi. Vinnu-
stundir á nautgrip eru fleiri
en 1961. Framleiðsluverð mjólk-
Ur er kr. 6.15 á kg.
Framleiðjluverð garðávaxta
er að meðaltali kr. 461,21 á
uppskerueiningu. Vegið meðal-
tal gefur kr. 437.12, svo að
augljóst er, að framleiðsla garð-
ávaxta er ódýrari hjá þeim,
sem framleiða í stórum stil
Eftir framanskráðum bú-
reikningum virðist árið 1962
hafa verið verra fjárhagslega
fyrir búskap bænda en árið
1961.
1962 var mikið kal i sumum
túnum og hey því dýrara.
Er skynsamlegt að drepa
starfsfræðsluna?
Að nýloknum tveimur vel-
heppnuðum starfsfræðsludögum
í Reykjavík og einum úti á
landi, kvisuðust þau tíðindi, að
þéssari liðlega áratugs gömlu
starfsemi væri nú lokið. og
frumkvöðull hennar á förum úr
landinu Mönnum varð þeim
mun undarlegar við sem fleiri
höfðu orðið til að lofa þessa
ítarfsemi og gagnsemi hennar
æ rækilegar undirstrikuð með
endurteknum starfsfræðsludög-
um á æ fleiri stöðum á land-
inu
Ýmsar skýringar voru uppi.
þar á meðal sú, að reykvískar
mæður bæru nú orðið bune-
an hug til starfsfræðslunnar
vegna þess. að hún tældi börn
þeirra t.il ýmissa erfiðra og
hættulegra starfa svo' sem sió-
mennsku og landbúnaðar ov
annarra- heiðarlegrar vinnu. í
stað bess að undirstrika þá
staðrevnd. að þeim mun minna
sem meon leaðu sig fram við
að vinna bjóðfélaginu gagn
þeim mun méira bera beir úr
býtum 02 þó mest með siálf-
skinaðri milligöngu við að
miðla plmenningi naiiðþurftum
Menn geta verið á ýmsu máli
um gagnsemi starfsfræðslunn-
ar. en enginn mun neita því.
að í fjölbreyttu og fjölmennu
samfélagi eins og við lifum nú
í, er aðstaða unglingsins allt
önnur en áður var til að kynn-
ast hinni margháttuðu starf-
semi þjöðfélagsins og finna sína
réttu hillu. Starfsfræðsludag-
arnir voru lofsverð viðleitnj til
að bæta úr þes;um vanda. Þar
var reynt að safna á einn stað
sem flestum þeim upplýsingum
sem hinn leitandi unglingvan-
hagaði um
Nú er okkur sagt að starfs-
fræðsludagamir séu óþarfir,
því að nú eigi að flytja þessa
starfsemi inn í skólana og kom-
inn sé til landsins maður, sem
að undanförnu hafi dvalizt er-
tendis og kynnt sér starfs-
fræðslu í skólum. Þá er í fyrsta
lagi þess að spyrja: Mun
starfsfræðsla í skólum alger-
lega geta komið í stað hinna
almennu starfsfræð;ludaga, þar
sem safnað er saman á einn
stað talsmönnum helztu at-
vinnugreioa og stét.ta? A.m.k.
vrði erfitt að endurtaka i hverj-
um einasta skóla borgarinnar
hinar vönduðu fræðslusýningar
vinhuvega að skokka milli4>-
á starfsfræðsludögum. og þá
mun ekki síður verða erilssamt
fyrir fulltrúa hinna ýmsu at-
atvinnuveganna, sem verið hafa
skóla ^orgarinnar til að ræða
við nemendur.
í öðru lagi má spyrja, hver
hlutur dreifbýlisins eigi að
verða. Skólamenn víða í dreif-
býUnu hafa einmitt fengið Ólaf
Gunnarsson til að skipuleggja
starfsfræðsludaga, sumsstaðar
oftar en einu sinni. Flestir, ef
ekki allir á viðkomandi stöðum,
hafa fagnað þessarj starfsemi
og víða voru starfsfræðsludag-
arnir sóttir um langan veg.
Hvar á nú skólaæskan í dreif-
býlinu að fá sina starfsfræðslu?
í þriðja lagi má spyrja,
hvaða ástæður séu til þess, að
fætinum er nú kippt undan
starfsfræðsludögunum og Ólafi
Gunnarssyni, sem unnið hefur
brautryðjandastarf á þessum
vettvangi, nú -fleygt burt eins
og ónýtum hlut. Skólamenn
ýmsir hafa (í Vísi þann 4. maí
og Tímanum þann 14. maí) lýst
fullum stuðningi við starfs-
fræðsludagana og enginn hefur
mælt gegn þeim svo vitað sé.
Þvi má spyrja að lokum:
Hafa íflendingar ráð á því að
drepa nú niður þessa starísemi,
sem verið hefur að þróast síð-
asta áratuginn, og snúa rassin-
um í reynslu o.g starfsvilja þess
manns, sem hefur komið henni
á rekspöl?
Rögnvaldur Hannesson
LONDON 25/5 — Enska stjórn-
in lagði á þriðjudag á hilluna
áætlanir um að gera kynþátta-
misrétti refsivert athæfi og var
í staðinn ákveðið, að slíkum
málum skuli vfsað tíl sérstakra
sáttanefnda.
Viðsjár hafa að undanförnu vcrið nokkrar með hcrsveitum Indvcrja og Pakinstana á lan,da-
mærum ríkjanna. Myndin var tckin fyrir skömmu, er Lal Bahadur Shastri, forsætisráðherra
Indlands, ávarpaði irdverska bændur, scm lagt höfðu Ieið sína til höfuðborgarinnar Nýju Dehli
frá þeim landamærahéruðum er átök urðu cinna hörðust milli indverskra og pakistansura
Herdeild Meo Lao Hashat / Laos á göngu
Laos cr eitt þefrra ríkja, sem stofnað var til mað Gcnfarsamningunum eftir ósigur Frakka í
frclsisbaráttu íbuanna í Indókína. Bandaríkjamenn hafa þar afskipti af málum líkt og í Vietnam,
kasta sí og æ sprengjum á þau landsvæði scm Neo Lao Hahsat-hreyfingin svooefnda ’ékk
í sinn hlut við fyrmefnda samninga og hafa aðrar hernaðaraðgerðir í frammi. Á myndinni sést
deild úr hcr sjálfstæðishreyfingar Laos-manna á göngu.
Félagar Læknafélags
Reykjavíkur 279
Nýlcga var haldinn aðal-
fundur Læknafélags Reykja-
víkur og Iauk þar mcð fimm-
tugasta og fimmta starfsári fé-
lagsins. AIIs ncmur nú tala fé-
lagsmanna 279, þar af eru
starfandi læknar í borginni
um 180, en um 100 læknar eru
við nám eða bráðabirgðastörf
hér og erlendis eða hættir
störfum.
Óvenju margir almennir
félagsfundir og fræðsluerindi
voru haldin á starfsárinv.; m.a.
héldu 7 erltndir ryrirlesarar
erindi lækna'ræðilegs eðlis á
fundum félagsins.
Á vegum félagsins hafa ver-
ið fluttir hálfsmánaðarlega
þættir í ríkisútvarpinu undir
heitinu „Raddir lækna“.
Læknablaðið hefur nú verið
gefið út frá árinu 1915, en að
útgáfunni standa Læknafélag
Reykjavíkur og Læknafélag ís-
lands. Veruleg aukning blaðs-
ins átti sér stað á liðnu starfs-
ári.
L.R. kemur fram sem samn-
ingsaðili fjrrir félagsmenn sina
í umfangsmiklum samningum
m.a. við Sjúkrasamlag Reykja-
vikur og Tryggingastofnun
ríkisins
Víðtæk athugun hefur farið
fram innan félagsins um
framtíðarskipulag læknisþjón-
ustumála og tillögur gerðar til
úrbóta og breytinga. Auk þess
á L.R. aðild að læknaþjónustu-
nefnd Reykjavíkurborgar, er
vinnur að endurskoðun lækn-
isþjónustu í Reykjavík utan
sjúkrahúsa og sambandi henn-
ar við sjúkrahúsin.
Vel hefur miðað byggingu
læknahússins, „Domus Medica“
en eins og kunnugt er á L.R.
hlutdeild á móti Læknafélagi
Islands í sjálfseignarstofnun-
inni „Domus Medica."
Að undangenginni sam-
keppni um tillögur að félags-
merki fyrir Læknafélag Rvík-
ur var verðlaunatillaga Ingva
H. Magnússonar, auglýsinga-
teiknara samþykkt félags-
merki Læknafélags Reykja-
víkur.
A síðast liðnu starfsári var
Framhald á 9. síðo.