Þjóðviljinn - 27.05.1965, Side 12
FYRSTI
HUMAR-
RÓÐUR
(I ★' Þessa daga eru humar-
(• bátar óðum að búa sig til
f veiða og raunar hafa sum-
(( ir þegar hafið veiðar. Þessi
J, mynd er tekin I gærdag
i niður á Grandagarði og
4 sýnir skipverja á Smára
4 frá Reykjavík skipa upp
(• humarafla úr fyrstu sjó-
11 ferðinni.
(* ★’ Aflinn var fjögur tonn
5 og veiddu þcir humarinn
# hjá Eldey og standa þama
f við lestaropið þeir Þór-
4 hallur vélstjóri og Sigurð-
f ur stýrimaður. — (Ljósm.
i Þjóðv. G.M.).
Fimmtudaigur 27. maí 1965 — 30. árgangur — 118. tölublað,
LANDSLIÐIÐ VALIÐ
Landsiið íslendinga sem leikur gegn Coventry á morgun,
föstudag, er þannig skipað: í marki Heimir Guðjónsson
(KR), hægri bakvörður Jón Stefánsson (ÍBA), vinstri
bakvörður Guðjón Jónsson (Fram), miðframvörður Högni
Gunnlaugsson (ÍBK), hægri framvörður Guðni Jónsson
(ÍBA), vinstri framvörður Sigurður Albertsson (ÍBK),
hægri útherji Öm Steinsen r(KR), hægri innherji Karl
Hermannsson (ÍBK), miðframherji Ingvar Elísson (Val),
vinstri innherji Ellert Schram (KR) og er hann jafn-
framt fyrirliði, vinstri útherji Rúnar Júlíusson (ÍBK).
Varamenn; Jón Ingi Ingvarsson (ÍA), Árni Njálsson (Val),
Jón Leósson (ÍA), Steingrímur Dagbjartsson (Val), Axel
Axelsson (Þrótti).
Góðar sildveiSihorfur fyrir ausfan nœstu daga:
Undirhúningur að síldarmóttðku á
Austf jörðum er víðast í lamasessi
■ Síldin er byrjuð að veiðast fyrir austan og síldarflotinn þyrpist óðum á
vettvang næstu daga og veiðihorfur eru taldar glæsilegar á næstu sólar-
hringum.
■ Móttökuskilyrði á Austfjörðum fyrir mikið síldarmagn virðist þó vera
í lamasessi og kemur til með að horfa til stórvandræða.
■ Þjóðviljinn hafði í gær samband við flesta síldarstaðina fyrir austan og
fara hér á eftir "frásagnir fréttaritara á þessum stöðum um ástand og
horfur.
Raufarhöfn
Raufarhöfn — Hér er höfnin
full. af ís og ísbelti liggja fyrir
utan og hindra allar samgöng-
ur á sjó og þar með alla að-
drætti til þorpsins af þungavöru.
Löndunartæki eru þó tilbúin
og hér er mikið þróarrými í
tönkum, en verksmiðjan er sjálf
í lamasessi og verður vart
vinnsluhæf megnið af júní.
Hér stendur til að setja upp
háþrýstiketil, en hann er ennþá
vestur í Ameríku og aðrar rekst-
ursvörur til verksmiðjunnar eru
ókomnar. t .
Þá stendur til að setja upp
flokkunarvélar á öll síldarplön-
ih vegna þess að búizt er við
að síldin verði smá í sumar og
þar af leiðandi mikill úrgangur.
En þær bíða flutnings hingað
til staðarins.
Hér hefur verið mikill grá-
sleppuafli og líflegt fiskerí við
ísröndina og árar þannig vei til
sjávarafla.
Hinsvegar er ákaflega gróður-
snautt og skaflar víða við hús
og mikill klaki í jörðu og nán-
ast heimskautaveður. L.G.
Bakkafjörður
Við höfum ekki séð skip hér
í þrjár vikur og ís hindrar s;gl-
ingu inn á höfnina og óvfst hve-
nær skip komast hér upp að
bryggju.
ísbelti er héma fyrj,r utan og
er óárennilegt fýrir skip að
brjótast í gegn enda ísinn þykk-
ur. Hér er allt í lamasessi með
síldarverksmiðjuna og hefur ekki
verið hægt að vinna að neinum
undirbúningsframkvæmdum. fram
að þessu og vantar allt til alls
f beim efnum.
Við getum áreiðanlega ekki
tekið á móti síld hér á næstu
vikum oa horfir óvænlega í beim
efnum. Hér er orðinn skortur á
nauðsynjavörum og er þó hægt
að píra nauðsvnjum landieið’na
Þá er hér (ilfinnanlegur skort-
ur á áburrV og sementi og timbri
og annarri bungavöru sem að-
eins er hæst, að flvtja sjóleiðina.
Sauðourður stendur hér sem
hæst og er orðinn ckortur á
fóðurvönim og mikill klaki í
jörðu og ákaflega gróðursnautt.
Hér hefur þó verið góður grá-
sleppuafli og eru sumir bátar
búnir að veiða um 140 tunnur
af hrognum og er hver tunna að
verðmæti um fimm þúsund icr.
Hinsvegar er grásleppunni
hent. — M. J.
Vopnafjörður
Við höfum ekki séð skip hér
í þrjár vikur þangað til vita-
skipið Árvakur komst hér inn á
höfnina við illan leik í gærdag.
— þannig hindrar ís alla að-
drætti hingað til þorpsins og er
raunar ófært hingað fyrir öll
stærri skip.
Höfnin er full af ís og ísbelti
er hér út eftir öllum firði og
varasamt fyrir skip að sigla um
fjörðinn.
Þetta er bagalegt fyrir allan
undirbúning fyrir síldarvertíðina
og kemur til með að seinka öll-
um framkvæmdum, og guð má
vita hvenær síldarmóttaka verð-
ur hér framkvæmanleg.
Verksmiðjan er að láta reisa
tvo geymslutanka fyrir síld og
verður þannig aukið þróarrými
í sumar, — hver tanki tekur sjö
þúsund og fimm hundruð mál.
Þessum framkvæmdum miðar
hinsvegar seint áfram og vantar
til dæmis hluta af smíðahráefn-
inu og ekki hægt að flytja það
fyrr en skip komast inn á höfn-
ina.
Þá er' ætlunin að auka sjálf-
virkni á þurrkurum verksmiðj-
unnar og vantar ennþá þessar
vélar til staðarins.
I dag er væntanlegur vöru-
flutningabíll frá Reykjavík og
verður það líklega eina ferðin
i bráð, þar sem fjallavegir verða
senn ófærir vegna þíðu.
Þannig vantar ennþá ýmsar
rekstursvörur og torveldar það
móttöku síldarinnar.
Þá eru hér miklar hafnar-
framkvæmdir og þryggjusmíði og
vantar smíðaefni til þeirra fram-
kvæmda og standa aðkomumenn
uppi verklausir þessa daga. —
S. J.
Borgarfjörður
Hér verður starfrækt fimm
hundruð mála verksmiðja i sum-
ar og getur hún sennilega nafið
bræðslu fyrstu viku af júní. Það
vantar þó vélar í verksmiðjuna
enn þá og eru þær væntanlegar
með skipi að sunnan næstu daga.
Þá verða starfrækt hér tvö
síldarplön og má búast við
nokkru vertíðarlífi hér í sumar
og heldur þannig spillingin inn-
reið sína í þetta friðsæla þorp.
Hér var mikill vöruskortur í
fyrrasumar hjá kaupfélaginu og
var til dæmis ekki hægt að anna
mjólkur- eða kjötsölu til síldar-
flotans eða birgja hann með aðr-
ar nauðsynjavörur, sem voru af
skornum skammti. Verzlunin er
rekin í gömlu verzlunarhúsi sið-
an í tíð Halldórs Ásgrímssonar
og þýðir víst ekki að panta vör-
ur vegna þess að þær seljast
jafnóðum eins og kaupfélags-
stjóra einum varð að orði í öðru
síldarþorpi við svipaðar aðstæð-
ur.
Þá vantar hér tilfinnanlega
netaverkstæði og viðgerðir á
siglingatækjum. — G. E.
Seyðisfjörður
Hér er verið að reisa nýja
síldarverksmiðju á vegum Ing-
vars Vilhjálmssonar út við Naut-
bás og nefnist Hafsíld h.f. og
kemur til að bræða þrjú þúsund
og fimm hundruð mál á sólar-
hring.
Þá hafa verið hér miklar
framkvæmdir á vegum síldar-
verksmiðju ríkisins og kemur sú
verksmiðja til að bræða tíu þús-
und mál á sólarhring í sumar.
Ekki er búist við að þessar
verksmiðjur verði vinnsluhæfar
fyrr en eftir fimmtánda júní, en
mikill klaki hefur verið í jörðu
og tafið þessar framkvæmd’r.
Hér voru miklar frosthörkur
í vetur og tiltölulega skammur
tími hefur verið til stefnu með
þessar byggingaframkvæmdir.
Allt vegakerfið er hér nú í
lamasessi vegna mikillar efnis-
töku til þessara framkvæmda hér
inn í firðinum, — þannig hafa
verið miklir þungavörufLutning-
ar á vegunum og með þíðunni
hefur færðin svo stórspillst að til
vandræða horfir. — J. S.
Reyðarfjörður
Ríkisverksmiðja er starfrækt
hér á Reyðarfirði og verið unn-
ið að breytingum á verksmiðj-
unni £ vetur og búið að skipta
nálega um allan vélakost í verk-
smiðjunni.
Þessum breytmgum hefur mið-
að sæmilega áfram og standa
raunar ennþá yfir og er nokkuð
óvist um hvenær verksmiðjan
verður vinnslufær og getur það
dregist fram efiir júnímánuði.
Tveir bátar verða gerðir út á
síld í sumar og fer Gunnar út
í nótt á veiðar en Snæfuglinn
er hinsvegar ennþá £ Noregi til
klössunar og er ekki væntanleg-
ur hingað til landsins fyrr en
eftir mánaðamót.
Þá er unnið hér að mikilli
bryggjusmiði og er unniðtilmið-
nættis á hverju kvöldi.
Ríkisverksmiðjumar eru Iíka
að byggja miklar verbúðir með
mötuneyti fyrir aðkomufólk og
er verið að steypa grunninn
þessa daga og verður þetta hús
á tveim hæðum.
Hér voru í fyrrasumar þrjátíu
aðkomumenn f verksmiðjunni og
þarf svipaðan fjölda af verka-
mönnum £ sumar en óvfst um
ráðningu þessa fólks ennþá.
Við erum lfka búnir að fá
hótelstýru með friu húsnæði og
fríu fæði og er Margrét Hall-
dórsdóttir frá Seyðisfirði.
Hér er mikil vinna og vantar
fólk fyrir annasama sfldarvertfð
í sumar. — B. J.
Fáslcrúðsfjörður
I kvöld er Krossanesið vænt-
anlegt hingað með sextán hundr-
uð mál af síld og verður verk-
smiðjan sett af stað annað kvöld
til bræðslu. Þetta er hinsvegar
lítil verksmiðja og bræðir aðems
tvö þúsund mál á sólarhring. Við
vorum að bræða hér sfld í febrú-
ar og voru þá vertíðarlok hjá
okkur og þegar byrjaðir að
bræða aftur.
Við höfum aukið þróarrými
okkar um þriðjung og er þetta
panmg allt í Iagi á Fáskrúðs-
firði.
Þrír bátar verða gerðir út á
síld héðan í sumar. Báran heldur
út til veiða í nótt og Hoffellið
heldur út til veiða annað kvöld.
Stefán Ámason fer hinsvegar
í slipp til Seyðisfjarðar og getur
ekki hafið veiðar fyrr en í
næsta mánuði. — Guðjón.
Breiðdalsvík
Hér er verið að stækka síldar-
verksmiðjuna upp í þúsund mála
bræðslu og verður verksmiðjan
sennilega ekki vinnsluhæf fyrr
en um tuttugasta júní.
Von er á nýjum vélum til
verksmiðjunnar og átti. hluti af
þeim að koma með Skjaldbreið
á dögunum, en þær urðu eftir
í höfuðstaðnum.
Einn bátur verður gerður héð-
an út á síldveiðar í sumar, en
það er Sigurður Jónsson. Hefur
hann verið í klössun í Noregi og
er nú á leiðinni til landsins.
Hér er hver hönd vinnandi og
mikið að gera Ádð undirbúning
vertíðarinnar og unnið fram á
kvöld við ýmsar framkvæmdir.
Nokkuð er um íbúðarhúsabygg-
ingar og hér verður starfrækt
eitt síldarplan í sumar með um
fimmtíu stúlkum. — B. E.
Djupivopur
Hér er verið að reisa þúsund
mála sildarverksmiðju og er bú-
izt við að hún verði vinnsluhæf
um miðjan júlí í sumar Smíðin
hófst í öndverðum marz og hafa
unnið hér að jafnaði tuttugu
reykvískir járnsmiðir frá Héðni.
Hefur verið hér líf f tuskunum.
Héðan verður gerður út einn
bátur á síld í sumar og er það
Sunnutindur og verður skipstjóri
5 honum Garðar Eðvarðsson.
Skipverjar eru annars a’lir
heimamenn.
Búizt er við að Sunnutindur
fari á veiðar eftir helgina.
Hér er ’mikil vinna og menn
bjartsýnir á sumarið. Þannig er
unnið til miðnættis á hverju
kvöldi. Menn gáfu sér samt tima
til þess að fara á fund hjá Al-
þýðubandalaginu hér f þorpinu
í gærkvöld og var það góður
fundur. Aðalræðumaður varLúð-
vík Jósepsson. — Á. B.
Coventry sigraði Kefiavík 4:1
Aðeins heppni bjargaði
gestunum frá því að Keflavík
skoraði mark á annarri mín-
útu leiksins, en bakvörður
bjargaði þá á línu eftir að
markmaðurinn hafði misst af
knettinum. Eígi að síður voru
það Bretarnir sem tóku leik-
inn í sínar hendur og héldu
uppi mun meiri sókn en
Keflavík. og á 11, mínútu
skorar Turner, vinstrj útherji
af löngu færi, þar sem mannj
virtist að markmaður hefði
átt að hafa nægan ííma til
að verja, en var kyrr.
Annað mark skora þeir eft-
ir góðan samlevk hægra meg-
inn þar sem Klements sendir
fram til Tumer sem skýtur
í hom marksins, en Kjartan
í markinu var of seinn að
loka.
Þannig endaði fyrri
hálfleikurinn með nokkrum
yfirburðum Bret-anna. í síðarj
hálfleik voru Keflvíkingarnir
heldur líflegri, og eiga við og
við sóknarlotur, þó voru það
Coventry-menn sem skoruðu
sitt þriðja mark og var það
Smith sem það gerðj með
mjög fallegri sveifluspyrnu.
Aðeins 2 mín. síðar á Ólaf-
ur mjög gott skot sem stefn-
ir í bláhornið uppi, en mark-
maður nær að slá i hom. Rún.
ar tekur hornið og markmað-
ur ver og hrekkur knötturinn
út aftur, og enn sendir Rúnar
fyrir og skallar þá Sigurður
Albertsson mjög laglega í
markið Enn líða 3 mín. þar
til Klements skorar fjórða
mark Coventry með mjög
góðu og óverjandi skoti.
Nokkru síðar á Sigurður
Albertsson hörkuskot sem
lendir utarlega á slá og mátt;
þar litlu muns.
Lakara lið Coventry
Coventry lék með aðejns 4
sömu menn og móti KR og
hvört það var því að kenna
eða einhverju öðru þá lék
þetta lið ekki svipað því eins
skemmtilega knattspyrnu-
Þeir voru harðari og ólög-
legri og fengu leikinn ekki
eins leikandi.
Keflvíkingamir náðu sér
aldrei upp í fyrrj hálfleik og
tókst ekki að ná verulega
saman, sérstaklega var fram-
línan sundurlaus og lítið ógn-
andi. Má vera að fjarvera
Jón5 Jóhannssonar hafi haft
sín áhrif
Vörnin var sterkari hluti
liðsins, með Sigurð Alberts
og Högna sem beztu menn í
síðarj hálfleik voru og taug-
arnar greinilega farnar að
jafna sig og leikur þeirra i
heild mun betri en í fyrri
hálfleiknum, og ógnuðu þá
hvað eftir annað marki Cov-
entry, og varð markmaður
oft að hafa sig allan við til
vamar. Gefur það greinilega
til kynna að liðig er í góðri
þjálfun, og það getur mjög
vel við unað frammistöðuna •
í þessum hálfleik. Þeir urðu
líka fyrir því að Hólmbert
varð að yfirgefa völlinn vegna
smámeiðslis er tveir leikmenn
skölluðu saman.
í framlínunni sluppu einna
bezt Jón. Ólafur. Rúnar og
Karl Hermannsson.
☆ ☆ ☆
Dómari var Baldur Þórðar-
son. Áhorfendur voru marg-
ir og veður hið bezta
Frímann.