Þjóðviljinn - 09.06.1965, Page 12
> MYNDIR OG
TEXTI: G. M.
Sarrsið við veik-
asta aðilann
Ég er íurðu lostinn yfir
þessum samningum norð-
anmanna, — reykvískir hafn-
arverkamenn saetta sig ekiú
víð þessa óverulegu kaup-
hækkun.
í morgun hef ég talað við
marga vinnufélaga mína
hérna hjá Eimskip, og mér
er óhætt að fullyrða, að þeir
eru allir rasandj.
Svona var nú hljóðið í
Kristvin Kristinssyni hjá
Eimskip.
Hann hefur unnið tólf ár
við höfnina og er lyftumað-
ur.
Og Kristvin heldur áfram:
Annars eru þetta tveir ó-
líkir heimar, — Norður-
landið og Suðurlandið í dag
og ólíkt um viðhorf verka-
Gunnar Jónsson
vill ekki súkkulaðisnakk
Guðmundur Ingimundarson
— hætta klukkan fimm
Rætt við reykvíska verkamenn um samningana fyrir norðan
manna í þessum landsfjórð-
ungum.
Verkamenn í norðlenzkum
þorpum hafa þurft að berj-
ast gegn atvinnuleysi og
skorti og leggja þar af leið-
andi mikið upp úr atvinnu-
uppbyggingu á þessurh stöð-
um eins og lofað er í þess-
um samningum.
Hvernig er það annars með
heildarstjórnina á verklýðs-
hreyfingunni?
. . Hversvegna er samið við
veikasta aðilann fyrst?
Hversvegna er þetta látið
viðgangast?
Barizt til úrsSita
Hann var að vinna við
lestun á Selfossi í gærdag og
hefur unnið lengi við höfn-
ina.
Hann heitir Guðmundur
Ingimundarson og stýrir ein-
um krananna.
Ég er furðu sleginn yfir
þessum samningum norðan-
og austanmanna og kemur
ekki til mála að fella sig
við þessi kjör.
, Þessir samningar leysa
engan veginn vanda okkar
reykvískra verkamanna og
við höfum mörg ráð á hend-
inni að berjast til úrslita.
Nú er til dæmis á döfinni
að hætti vinnu hér við höfn-
ina klukkan fimm að degin-
um og bv'a bó skipin hér í
hrönnum.
Þetta samningamakk hefur
tekið alltof langan tíma og
það * þýöir ekki að tala við
okkur um annað en veru-
lega kauphækkun.
Ég hef þó fyllilega samúð
með stéttarbræðcym minum
fyrir norðan og austan og
virðist þeir fórna verulegri
kauphækkun fyrir atvinnuör-
yggi á þessum stöðum.
En það kemur aldrei til
mála að sætta sig við þessi
kiör.
Ólíkar aðstæður
Þá hittum við að máii
Gunnar Jónsson og stóð
hann á einum hafnarbakk-
anum rétt fyrir klukkan eitt
og bjó sig undir að hefja
vinnu eftir hádegishvíld.
Mér fellur bezt að tala
hreint út úr pokahorninu og
ég vil ekkert mas kringum
ummæli mín.
Það kemur aldrei til mála
að samþykkja svona samn-
inga, og eru reykvískir hafn-
arverkamenn ekki til viðtals
um annað en verulega kaup-
hækkun og það kauphækkun,
sem fer ekki út í verðlagið
jafnóðum.
Við erum reiðubúnir til að
hefja harða baráttu og tala
• ég þar í anda f jölmargra
vinnufélaga minna hér við
höfnina.
Við höfum líka mörg ráð
á hendinni og getur þessi
barátta birzt í mörgum
myndum til þess að knýja
fram viðunandi lausn.
Við hlustum ekki lengur á
neitt súkkulaðisnakk og við
erum orðnir svo langþreytt-
Tíðindin voru fljót að berast út um borgina í gærmorgun um jnni-
hald kaupgjaldssamninganna við verkalýðsfélögin fyrir norðan og
austan, — ríkti þó einkennileg leynd yfir þeim í fréttum útvarps-
ins kvöldið áður.
Vöktu þessir samningar mikla a thygli um allt land.
í gærkvöld voru þeir lagðir fyrir fundi verkalýðsfélaganna á við-
komandi stöðum fyrir norðan og austan til samþykktar.
En hvernig er hljóðið í reykvískum verkamönnum við þessum tíð-
indum? —
Hér birtist stutt spjall við fjóra verkamenn við höfnina.
Kristvin Kristinsson
— veikasti aðilinn
Hugi Vigfússon
er í djöflagenginu
ir á þessu samningamakki, að
almennur hljómgrunnur er
nú hjá hafnarverkamönnum
að leggja niður vinnu klukk-
an fimm að deginum til þess
að flýta fyrir viðunandi
» lausn. |
Ég fordæmi þó ekki stétt-
arbræður mína fyrir norðan
og austan fyrir viðhorf
þeirra og virðist mér atvinnu-
leysið og skorturinn að und-
anförnu, — sérstaklega fyrir
norðan hafa legið þarna
þungt á metunum, — þetta
eru ólíkar aðstæður.
Djöflagengið
Hann vinnur hjá fjórða
genginu hjá Eimskip og
stundum er það kallað
djöflagengið niður við höfn.
Þeir voru að vinna í for-
lestinni á Selfossi og þar náð-
um við örstuttu spjalli við
Huginn Vigfússon.
Huginn sagði meðal annars.
Þegar við fréttum þessi
tíðindi í fjórða genginu í
morgun, þá fórum við tveir
upp á skrifstofu Dagsbrúnar
til þess að láta þá heyra í
okkur hljóðið og skaðar ekki
að endurtaka þau ummæli..
Við munum aldrei sætta
okkur við þessi kjör hér við
höfnina og erum ekki til við-
tals um annað en verulega
kauphækkun.
I kaffitímanum í morgun
voru vinnufélagar mínir yfir-
leitt rasandi yfir þessum úr-
slitum og þýðir ekki að taia
við okkur um samsvarandi
lausn á málum enda enj
þessir samningar gerðir við
allt aðrar aðstæður en reyk-
vískir verkamenn búa við :
dag.
Svona tíðindi þjappa okkur
bara betur saman enda bíð-
um við eftir að leggja til
atlögu og það sem fyrst.
— Þórður flutti blómasöluna yfir Fossvogslækinn
Kalt blómastríð
í Kóeavoainum!
Á hvítasunnudag dró enn til
nokkurra tíðinda í „blómastríð-
inu“ í Kópavogi. í viðtali við
Þjóðviljann í gær skýrði Þórð-
ur á Sæbóli svo frá að hann
hefði verið við öllu býinn og
spfið í Blómaskálanum um nótt-
ina. Kvaðst hann ekki hafa haft
skálann opinn á hvítasunnudags-
morguninn en hins vegar hafi
hann hleypt inn fólki sem hann
þekkti og látið það hafa blóm
að gjöf. Beið lögreglan átekta í
bíl nálægt skálanum og kom
strax á vettvang er hún sá Þórð
opna fyrir fólkinu. Átti Þórður
nokkur orðaskipti við lögreglu-
mennina og kvað skálann lok-
aðan og sagði að sér væri heim-
ilt að gefa fólki blóm ef hann
vildi. Héldu lögreglumennimir
vakt við skálann og gættu í
bíla er þangað komu. hvort
fólkið færi á burt með blóm, en
lét það að öðru leyti afskipta-
laust. Einnig kom bíll með blóm
til að selja Þórði og sagði hann
að lögreglan hefði ekki skipt sér
af því.
Þá kvaðst Þórður hafa gert
þá ráðstöfun á laugardaginn
að hann flutti blóm yfir í
Nesti í Fossvogi og seldi þar
fyrir hádegi á hvítasunnudag.
Lét Reykjavíkurlögreglan það
með öllu afskiptalaust og
Kópavogslögreglan lét sér
nægja að aka þar framhjá og
fylgjast með sölunni.
Um kvöldið fór Þórður aftur
í Blómaskálann um eða upp úr
kl. 9 og seldi þá nokkuð af blóm-
um Kom Kópavogslögreglan aft-
ur á vettvang og tók m.a. mynd-
ir af fólkinu sem komið var tjl
að kaupa blóm en ekki lokaði
hún skálanum.
Þá kvað Þórður að Gróðr-
arstöðin Alaska hefði aug-
lýst að hún hefði opna á
hvítasunnudag blómasöluna.
Og einnig kvað hann sér
kunnugt um það að blóma-
sala hefði verið í fullum
gangi i Hveragerði á hvíta-
sunnudag.
Þjóðviljinn átti einnig tal við
Sigurgeir Jónsson bæjarfógeta í
Kópavogi og innti hann frétta
af þessu máli. Sagði hann að
lögregluvörður væri á Reykja-
Framhald á 9. síðu.
Or. Alexaiider
iébnttesson
lézt í fyrradag
Dr. Alexander Jóhann-
esson, fyrrverandi háskóla-
rektor andaðist á annan
í hvítasunnu nær 77 ára
að aldri.
Hann var fæddur að Gili
í Skagafirði 15. júlí 1888
sonur Margrétar Guð-
mundsdóttur og Jóhannes-
ar Ólafssonar sýslumanns.
Lauk meistaraprófi í þýzku
við Kaupmannahafnarhá-
skóla 1913 og doktorsprófi
í Halle 1915. Dósent við
Háskóla íslands 1926 og
prófessor 1930—1958. Rekt-
or Háskólans 1932—’35,
1939—’'42 og 1948—’54. Dr.
Alexander átti sæti í fjöl-
mörgum nefndum og
stjórnum og vann mjög
mikið starf í þágu háskól-
ans, m.a. í sambandi við
byggingamál hans. Eftir
hann liggja mörg vísinda-
rit. Kvæntur var dr.
Alexander Hebu Geirs-
dóttur, vígslubiskups Sæ-
mundssonar.
Óspektir 600 unglinga á Laugarvatni:
Hver selur ung-
lingunum vínið?
Þjúðviljinn aflaði sér í gær frétta frá lögreglunni um
atburði helgarinnar. Var yfirleitt allt með ró og spekt
nema austur á Laugarvatni, þar sem stór hópur ungmenna
var saman komin með áfengi meðferðis.
Ekki tókst lögreglunni að grafast fyrir um það hvaðan
þessum 15-20 ára gömlu unglingum kom vínið, en það
hlýtur þó að vera eitt frumskilyrðið til að gera sér grein
fyrir þeirri mcinscmd. sem við er að etja, og er lögregl-
unni vitanlega í lófa Iagið að fá upplýsingar um þetla
hjá unsglingunum, þó þeir kunni að harðneita í fyrstu.
Um hvítusurtnuna urðu nokkr-
ar óspektir ungmenna á Laug-
arvatni. Voru þar saman komn-
ir um 800 unglingar og voru
margir þeirra ólvaðir. Ungling-
arnir voru á aldrinum 15—20
ára.
Lögreglan var á verði á Vest-
urlands- og Suðurlandsvegi á
laugardaginn og skoðaði í bíla,
sem fóru um veginni. Tók hún
120 flöskur áfengis fyrir utan
Reykjavík af unglingunum. Tals-
vert af víni var komið austur
fyrir helgina og var það vendi-
lega falii) f vegabrúnum og á
milli þúfna. Þá fóru allmörg
Pramhald á 9. síðu.