Þjóðviljinn - 31.07.1965, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 31. júlí 1965
tJtgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 á mánuði.
Þungbærar álögur
^ugljóst er af gjaldaskrá Reykvíkinga, þeirri sem
nú hefur verið birt, að alþýða manna á sér
enga undankomu frá þeim gífurlegu álögum sem
opinberir aðilar eru farnir að heimta í sinn hlut
árlega af tekjum manna, nema að berjast gegn
slíkum álögum með atkvæði sínu, skipa Alþingi
á þann veg að þar sé meirihluti sem skilur að
þessum miklu álögum á alþýðufólk verður ekki
haldið til frambúðar, og breytir lögum í þá átt,
að tekjuöflun ríkis og bæjarfélaga verði fyrst
og fremst með því að skattleggja gróða- og auð-
félög. í>essu verður ekki fram komið með því
móti að verkalýðshreyfingin sé að reyna það í
sambandi við kjarasamninga, til þess hefur hún
enn ekki afl, miðað við að gróðalýðurinn ráði
meiri hluta á Alþingi og ge’ti látið stjórnmála-
flokka móta skattalöggjöfina sér í hag. .Alþýða
manna sem finnur til hinnar opinberu skattlagn-
ingar sem óþolandi byrðar hlýtur fyrr eða síðar
að svara þeim álögum á stjórnmálasviðinu, gera
ráðstafanir til þess að ekki sé stjórnað á þessu
sviði_ og öðrum fyrir hagsmuni stórgróðamanna
og auðbraskara. Það breytir í engu heildarmynd
þessara álagna, þó í einstökum smærri atriðum
hafi verið látið undan gagnrýni s'tjórnarandstæð-
inga, t.d. að hætt er að eltast við þúsundir manna
með sáralág útsvör, en þá jafnframt svo tekjulágt
fólk að það munar um hverja krónu.
porystumenn verkalýðshreyfingarinnar hafa ein-
mitt í vor minnt verkamenn og aðra laun-
þega eftirminnilega á, að það er sjálf stefnan í
skattamálunum sem er röng. Á Dagsbrúnarfundi
30. maí í vor, þegar rætt var um skattamálin í
sambandi við fyrirhugaða samninga lagði formað-
ur félagsins, Eðvarð Sigurðsson, þunga áherzlu á
þetta atriði. „Skattamál eru ekki einfaldur hlut-
ur“, sagði Eðvarð. „í fjárhagsáætlun Reykjavík-
urborgar og fjárlögum ríkisins er ekki einungis
ákveðin upphæðin, heldur einnig hvernig hennar
skuli aflað og hvemig henni skuli varið. Skatta-
málin eru spurning um heildarstefnuna í fjár-
málum. í hvert sinn sem við kjósum til Alþingis
og bæjarstjórnar erum við að velja þá menn sem
ákveða stefnuna í skattamálum og húsnæðismál-
um. Hverjir hafa verið valdir? Hverjir fara með
stjórn? Það eru fulltrúar gróðastéttanna. Og hvers
vegna skyldu þeir leggja meira á sig en þeir
þurfa? Þetta þurfa verkamenn að hafa í huga í
hvert sinn sem þeir ganga að kjörborðinu“. Og
fyrr í ræðu sinni á Dagsbrúnarfundinum hafði
Eðvarð sýnt fram á að meginþungi skattabyrðar-
innar sé lagður á launafólk, á sama tíma og alls
konar fyrirtækjum og gróðafélögum er ívilnað
með skatta. Nú þegar alþýðumenn sjá, að það er
ætlun núverandi stjórnarvalda að hinar gífurlegu
álögur frá í fyrra á alþýðufólk skuli verða varan-
leg byrði og jafnvel aukast, eru orð Eðvarðs Sig-
urðssonar sem hér var vitnað til brýnt umhugs-
unarefni. — s.
Á þriðjudaginn fer fram á Laugardalsvell-
inum leikur á milli ,,landsliðs“, sem landsliðs-
nefnd KSÍ hefur valið, og ,,pressuliðs“, sem
íþróttafréttaritarar hafa valið. Það er æfinga-
leikur íslenzka landsliðsins fyrir landsleikinn
gegn írum sem fram fer 9. ágúst n.k.
Landsliðið gegn ,pressuliði'
—æfingaleikur landsliðsins fyrir landsleikinn við íra
Þær breytingar sem lands-
liðsnefnd befur gert á landslið-
inu frá leiknum við Dani eru
fær að Ríkharður Jónsson
kemur í stað ÞórólfS sem ekki
getur verið með í þessum leik
þar sem hann er ekki hér á
KR-ingar sigruðu Fram í
gærkvöld með einu marki gegn
engu. Með þessu aukast lík-
umar á því að KR-ingar verði
Islandsmeistarar í ár. Hins
vegar má nú telja öruggt að
Fram falli niður í aðra deild
eftir þennan ósigur.
Leikurinn var mjög lélegur
landi. í stað Sigurþórs kemur
Karl Hermannsson ÍBK (v.
útherji) og Jón Stefánsson
leikur í stöðu vinstri bakvarð-
ar í stað Sigurvins, en Högni
Gunnlaugsson ÍBK verður mið-
vörður.
og óskemmtilegur enda slæmt
veður allan timann. Mark sitt
skoruðu KR-ingar úr víta
spymu, er Hrannar Haraldsson
hafði að óþörfu slegið knöttinn
með hendinni innan vítateigs.
Sigur KR-inga var ekki verð
skuldaður, því Fram átti tals-
vert meira í leiknum.
sitt qf hverju
/*•] Eftir fyrri daginn í Jands-
keppninni milli Finnlands og
Austur-Þýzkalands hafa A-
Þjóðverjar 54 stig, en Finn-
ar 53 stig. Þjóðverjinn Jiirg-
en May (H-met í 1000 og E-
met í 1500 m) vann 1500 m.
á 3.38,4 og setti nýtt vallar-
met á ólympíuleikvanginum
í Helsingfors. May hljóp
fyrstu 400 metrana á 56,6 —
800 metrana á 1.55,7. Landi
May Erich Richter hélt uppi
hraðanum en varð 90 metr-
um á eftir í mark.
Spjótkastið vann Kinnunen
og kastaði 86,12 metra. tJrslit
í öðrum greinum: 400 metra
grind: Pipola F. 52,5, Pyrree
F. 53,0. 100 m hl.: Erbströss-
er Þ. 10,8, Ehrström F. 10,9.
1500 m: May Þ. 3.38,4, Richt-
er Þ. 3.49,0. Sleggjukast: Lotz
Þ. 63,58, Losch Þ. 63,22: 3000
metra hindrunarhlaup: Siren
F. 8.46,4, Buhl Þ. 8,52,8.
Spjótkast: Kinnunen F. 86,12,
Stolle Þ. 83,28. 5000 m. Haase
Þ. 14.06,0, Krebs Þ. 14.16,18.
Laryjstökk: Stenius F. 7,85,
Vogel Þ. 7,53. Hástökk: La-
anti F. 2,04 m., Wille Þ. 1,98
metra. 4x100 m: Þýzka sveit-
in hljóp á 40,3, en sú
finnska á 40,6.
Nýtt sovézkt met í 2000 :
metra hindrunarhlaupi setti
Iwan Belizki — 5:06,6. Eldra
metið átti Pipine og var það
5:08,4.
Nýtt Evrópumet í 200 m.
skriðsundi setti ítalska sund-
konan Daniela Beneck og
48,7: 400 m. grind. 1. Librand
Svíþjóð 52,6.2. Wistam 52,7.
utan úr heimi
Landslið landsliðsnefndar:
Heimir Gnðjónsson
Árni Njálsson Jón Stefánsson
Magnús Jónatansson Högni Gunnlaugsson Ellert Schram
Ríkharður Jónsson Eyleifur Hafsteinsson
Gunnar Felixson Baldvin Baldvinsson Karl Hermannsson
KR vann Fram með Igegn 0
11 Islendingar á Norður-
iandamót í frjálsíþróttum
Stjóm Frjálsíþróttasambands íslands hefur valið 11
íþróttamenn og konur til að keppa fyrir íslands hönd
á Norðurlandameistaramótinu í frjálsum íþróttum sem
fram fer í Helsinki dagana 15. til 17. ágúst n.k. Keppa
íslendingarnir f 17 greinum, 12 hlaupagreinum, einni
stökkgrein, tveim kastgremum, tugþraut og fimmtarþraut
kvenna.
fslenzku keppendurnir sem
keppa á Norðurlandameistara-
mótinu fara héðan 8. ágúst til
Osló en þar munu þeir keppa
á alþjóðlegu móti á Bislet þann
10. ágúst. Fararstjóri flokksins
er Svavar Markússon en þjálf-
ari Benedikt Jafcobsson. Flokk-
urinn mun síðan ag loknu mót-
inu halda til Skotlands og
hitta þar aðra keppendur í
landskeppninni við Skota.
Þeir sem keppa á Norður-
landameistaramótinu I Helsinki
eru þessir:
Jón Þ. Ólafsson ÍR, keppir í
hástökki.
Valbjörn Þorláksson, KR,
keppir í tugþraut og 4x100 m
boðhlaupi.
Ólafur Guðmundsson KR
keppir í 100 m 200 m, 400 m,
4x100 m boðhl., og 4x400 m
boðhlaupi.
Kjartan Guðjónsson, ÍR
keppir í tugþraut og 4x100 m
boðhlaupi.
Kristleifur Guðbjörnsson KR
keppir í 3000 m hindrunar-
hlaupi og 5000 m hlaupi, 4x400
m boðhlaupi.
, Guðmundur Hermannsson
KR keppir í kúluvarpi.
Erlendur Valdemarsson ÍR,
keppir í kringlukasti.
Halldór Guðbjörnsson KR,
keppir í 800 m, 1500 m hlaupi
og 4x400 m boðhlaupi.
Kristján Mikaelsson Á, kepp-
ir í 400 m grindahlaupi, 400 m
hlaupi, 4x100 m boðhlaupi og
4x40Qi m boðhlaupi.
Björk Ingimundardóttir UM
SB, keppir í fimmtarþraut.
Halldóra Ilelgadóttir, KR
keppir í 100 m .hlaupi og 400
m hlaupi.
Jón Þ. Ólafsson getur
framarlega í hástökki á
urlandameistaramótim
Landslið íslands gegn Skotlandi
Stjóm Frjálsíþróttasambands Islands hefur valið lands-
lið sem keppa á við Skotland í landskeppni sem fram fer í
Edingorg 21. ágúst n.k. Liðið er þannig skipað:
100 yarda hlaup:...
1. Ólafur Guðmundsson KR
2. Ragnar Guðmundsson Á
Varam.;
Guðmundur Jónsson HSK.
220 yarda hlaup:
1. Ólafur Guðmundsson KR.
2. Ragnár Guðmundsson Á.
Varam.;
Valbjörn Þorláksson KR.
440 yarda hlaup:
1. Ólafur Guðmundsson KR.
2. Kristján Mikaelsson Á.
Varam.;
Þórarinn Ragnarsson KR.
880 yarda hlaup;
1. Halldór Guðbjömsson KR.
2. Þórarinn Amórsson ÍR.
3. Þórarinn Ragnarsson KR
1 mílu hlaup:
1. Agnar Levy KR.
2. Þórður Guðmundss. UBK.
2 milu hlaup;
1. Kristleifur Guðbjernss. KR
2. Halldór Jóhannsson HSÞ.
120 yarda grindahlaup:
1. Valbjöm Þorláksson KR.
2. Kjartan Guðjónsson ÍR.
Hástökk:
1. Jón Þ. Ólafsson ÍR.
2. Kjartan Guðjónsson ÍR-
Stangarstökk:
1. Valbjörn Þorláksson KR.
2. Páll Eiríksson KR.
4x120 yarda boðhlaup;
, Ólafur Guðmundsson KR,
Ragnar Guðmundsson Á, Val-
björn Þorláksson KR, Guð-
mundur Jónsson HSK.
K O N U R :
80 m grindahl.;
1. Halldóra Helgadóttir KR.
2. Linda Ríkárðsdóttir ÍR.
100 yarda hlaup:
1. Björk Ingimundard. UMSB
2. Lilja Sigurðardóttir HSÞ.
220 yarda hlaup;
1. Halldóra Helgadóttir KR,
2. Björk Ingimundard. UMSB
4x120 yarda boðhlaup:
Björk Ingimundard. UMSB
SB, Halldóra Helgadóttir KR,
Lilja Sigurðardóttir HSÞ,
Linda Ríkarðsdóttir ÍR.
Sumargistihús starf-
rækt ai Skúlagarði
I sumar er gistihús og greiða- manna herbergi, öll nýmáluð
sala starfrækt að Skúlagarði í með handlaugum og heitu og
Kelduhverfi og verður svo fram köldu vatni, flest búin húsgöngn-
I lok næsta mánaðar. um. Herbergin kosta frá 250 upp
Húsið Skúlagarður, sambygg- í 350 kr. á sólarhring, en svefn-
ing skóla og félagsheimilis reist pokapláss á 35 kr. er þarna
fyrir 7—10 árum, er í nágrenni fyrir allt að 70 .manns.
Ásbyrgis, Hljóðakletta og fleiri I . Skúlagarði er hægt að fá
tilkomumikilla staða á þessum keyptar veitingar: kaffi, xe,
slóðum, um kílómetra vestan mjólk, smurt brauð. .og kökur,
Lindarbrekku. skyr og hafragraut, gosdrykki,
Þarna eru á boðstólum tveggja, tóbak og sælgæti. — Aðalbjörn
þriggja, fjögurra og fimm Gunnlaugsson, er veitingam.