Þjóðviljinn - 01.08.1965, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 01.08.1965, Qupperneq 3
Sunnudagur L. ágúst 1965 — ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA 3 „ VerSmæt reynsla af rekstri heaa ft- verzlunar í N. Y." ■ Eins og getið hefur verið um í blöðum, stofnuðu nokkrir iðnrekendur og áhugamenn um íslenzkt atvinnu- líf til samtaka á síðastliðnu ári í þeim tilgangi að kanna möguleika á sölu íslenzkra iðnaðarvara á Bandaríkjamark- aði. Kristján Friðriksson, íyrsti forstjóri Icecrafts, og Jón Haralds- son arkitekt, sem skipulagði verzlunarliúsnæðið, framan við verzl- unina í New York Þannig er upphaf fréttatil- kynningar, sem blaðinu hefur borizt frá fyrirtækinu „Iceland- ic Arts & Crafts Inc“ — ICE- CRAFT. — Og þar segir enn- fremur: Samið var um húsnæði fyrir starfsemina í nýju húsi á álit- legum stað, en féiagið varð fyr- ir því óhappi strax ; byrjun að húsnaeðið var ekki tilbúið af hálfu húseigenda fyrr en tveim og hálfum mánuði seinna en því hafði verig lofað. Varð því ekki unnt að opna verzlunina fyrr en undir miðjan desember sl. Þetta var mjög óhagstætt, þar eð mestur hluti söluvaranna eru haust- og vetrarvörur. kynni að sýna að hagkvæmast væri að selja á þennan hátt. Af starfseminni hefur fengizt verðmæt reynsla. Allýtarleg markaðskönnun hefur verið framkvæmd að því er snertir ýmsar vörutegundir og hafa mörg athyglisverð atriði komið í Ijós í því sambandi. Sumar vörutegundir virðast hafa mikla sölumöguleika. Aðrar vörutegundir virðast litla eða enga möguleika hafa, a.m.k. við núverandi aðstæður. Kristján Friðriksson forstjóri i tiltíma tók að sér fyrir hönd félagsstjórnarinnar að stofnsetja verzlunina og sjá um rekstur hennar í byrjun. Telur Kristján að þegar hafi fengizt reynsla fyr- ir því að nauðsynlegt sé að leggja nú þegar sem mesta á- herzlu á heildsöluþáttinn í starf- seminni. Hefur því Kristján í samráði við stjórn félagsins lagt áherzlu á að ráða mann sem eftirmann sinn, sem hafði sér- staka reynslu og hæfileika til að sinna þeim þætti. Þessi mað- ur hefur nú verið ráðinn og telur Kristján Friðriksson, sem nú hefur starfað með þessum manni um 3ja mán. sikeið, að ráðning þessi hafi tekizt mjög vel. Er nú mikið undir því komið að verzlunin hljóti þá samvinnu og aðstoð héðan að heiman sem nauðsynleg er til þess að þessi viðleitni til eflingar íslenzku at- vinnulífi geti borið árangur. ís- j ienzkur iðnaður á nú mjög í vök að verjast á heimamarkaði vegna erlends innflutnings. Væri því mikilsvert ef einhverjar greinar hans gætu náð fótfestu á erlendum mörkuðum Má í þvj sambandi benda á skýrslu Ame Haar, ráðunauts ríkisstjórnar- | innar um iðnaðarmál, þar sem hann benti á helztu möguleika okkar til þess að flytja út ull- arvörur og húsgögn. Mikið er nú selt af svipuðum iðnaðarvörum og við höfum frá Noregi og Danmörku í Banda- ríkjunum. Flestar þessar verzl- anir hafa átt í erfiðleikum í byrjun, en þær sem hafa kom- izt yfir byrjunarörðugleikana standa nú með miklum blóma og afla þjóðum sínum gjaldeyr- is, svo um munar. Leitað hefur verið eftir nokk- urri fjárhagsaðstoð frá ríkis- stjórninni til stuðnin.gs þessari markaðsleit og hafa fengizt góð- ar undirtektir, enda í samræmi við fyrirmyndir frá hinum Norð- urlöndunum um samstarf ríkis og einstaklinga um slíka starf- semi. Greiðsluhalli Breta eykst enn LONDON 29/7 — Hallinn á við- skiptajöfnuði Bretlands hefur aukizt siðustu þrjá mánuði upp í 40 miljónir punda að jafnaði á mánuði úr 13 miljónum punda að jafnaði fyrstu þrjá mánuði ársins. Jöfnuðurinn er þó hag- stæðari í ár en hann var fyrstu sex mánuði síðasta árs; þá nam hann 246 miljónum punda, en í ár 156 miljónum. Pegasus-tungl með Satnrn-flaug KENNEDYHÖFÐA 30/7 — Skot- ið var í dag á loft frá Kenn- edyhöfða gervitungli af gerð- inni Pegasus og er því ætlað að mæla geimryk sem kann að geta orðið hættulegt geimförum framtíðarinnar. Pegasus var skotið á loft með eldflaug af gerðinni Sa1/>n, og er þetta tí- unda og síðasta vel heppnaða tilraunin með eldflaugar af þeirri gerð. TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIR" LINOAR6ATA 9 REYKJAVIK SlMI 21260 SfMNEFNI t SURETY íslenzk hörn og æskufélk prófað fyrir sænska sjonvarpið Sænska sjónvarpið tekur upp nokkrar dagskrár á íslandi í ágúst og september, þar á meðal skemmtidagskrá fyrir börn, sem íslenzkt æskufólk tekur þátt í Prófun fyrir þennan sjónvarpsþátt fer fram í útvarpssalnum, Skúlagötu 4, 16. ágúst. ' Til greina kemur söngur, hljóðfæraleikur, dans og fleira, og miðast þátttaka jafnt við einstakling, kór, hljómsveit eða hvaðeina. Aldursmörk eru frá fimm ára til tvítugs. Veitið því sérstaklega athygli, að við viljum gjarnan að framlag hvers og eins hafi á sér þjóðlegan blæ. Tilkynnt verði um þátttöku til Ríkisútvarpsins eigi síðar en 6. ágúst, annað- hvort bréflega eða símleiðis. — Síminn er 22260, og fyrir svörum verður Baldur Pálmason. Verið velkomin. SVERIGES RADIO/TV -Var í upphafi ákveðið að opna smásöluverzlun í þessu skyni, einkum til sjálfstæðrar markaðskönnunar, en snúa sér síðan að því sem aðalverkefni að byggja upp heildsölumarkað fyrir þær vörur sem reynslan Nýr uppdráttur Fi af Þórsmörk Ferðafélag fslands hefur lát- ið gera nýjan og sérlega vand- aðan uppdrátt af Þórsmöhk í mælikv. 1:50.000. Hafa Land- mælingar íslands gert teikning- ar allar, en Lithóprent prentað í sex litum. Mörg örnefni eru á uppdrættinum, og hefur Gestur Guðfinnsson safnað þeim. Hann hefur líka skrifað stutta lýs- ingu á Þórsmörk, sem er prent- uð aftan á uppdráttinn. Margir ferðamenn eiga erfitt með að átta sig á kennileitum á venjulegum uppdráttum Þessi uppdráttur er þannig gerður, að landslagið blasir við auganu. Er hann því mjög handhægur. Uppdrátturinn kostar 45 krón- ur og fæst fyrst um sinn á skrifstofu Ferðafélagsins, Öldu- götu 3, og í bókaverzlun Sigfús- ar Eymundssonar FERÐIR í VIKU TIL N0REGS JFJL UGFÉLÆG STORA HRESSANDI PEPSI-FLASKAN Þegar á að skemmta sér í stórum stíl er ekkert eins upplífgandi og stóra flaskan af Pepsi-Cola. Pepsi er beztu kaupin, bezta hressingin — og mestu gæðin. Og langmest svalandi. Hvar sem er og hvenær, sem þú þarft á upp- Iyftingu að halda, þá lífgar Pepsi — stóra flaskan 14 1- Framleitt á íslandi af h.f. SANITAS, Reykjavík. - Sími 35350. Einkaumboð fyrir Pepsi-Cola Company, N.Y., eigendur að skrásettu vörumerki: PEPSI-COLA og PEPSI

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.