Þjóðviljinn - 22.01.1966, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJlNN — Laugíjrdagur 22. janúar 1966
Dtgefandi: Samelningarfloklcur alþýðu — Sósiaiistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. \p.
Sími 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 95.00 á mánuði.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Þreföldun
Á alþingi^ voru í vetur numin úr gildi lögin um
hámarlcshúsaleigu an þess að nokkur önnur á-
kvæði væru sett í þeirra stað. Lög þessi hafa að
langmestu leyti verið marklaust pappírsplagg, enda
engin tilraun gerð af hálfu stjórnarvaldanna til
þess að tryggja framkvæmd þeirra. Þó hefur til að
mynda Reykjavíkurborg ekki séð sér annað fært en
að leigja íbúðir sínar samkvæmt lögum, þótt borg-
in hafi hins vegar greitt margfalda lögleyfða leigu
fyrir húsnæði sem hún hefur fengið hjá einstak-
lingum. Afnám húsaleigulaganna hefur nú haft þau
áhrif að Reykjavíkurborg hefur hækkað húsaleigu
í íbúðum sínum. Er þar um allt að því þreföldun
að ræða, þótt sumar af íbúðum þeim sem borgin
hefur á boðstólum séu þess eðlis að þær eru engan
veginn boðlegar sem mannabústaðir — hvað þá
að takandi sé greiðsla fyrir þær.
£]n þótt húsaleigulögin hafi verið langflestum
leigjendum marklaust pappírsgagn hafa þau þó
haft áhrif á kjör alls launafólks. I vísitölu fram-
færslukostnaðar er liður*sem heitir „húsnæði" og
hefur hækkað langminnst allra kostnaðarliða. Á-
stæðan er sú að engin tilraun hefur verið gerð til
þess að vega og meta hvernig raunverulegur hús-
næðiskostnaður hefur breytzt, heldur hefur þessi
liður verið reiknaður í samræmi við lög þau sem
annars voru yfirleitt hvergi í heiðri höfð. Þessi
staðnaði húsnæðisliður hefur stuðlað að því að
halda vísitölunni niðri og þar með þeirri vísitölu-
uppbót á kaup sem launafóík á að fá ársfjórðungs-
lega. Þannig hafa lög þau sem áttu að vernda leigj-
endur í staðinn orðið til þess að draga úr réttmæt-
um kaupgreiðslum.
Jj]n nú er óhjákvæmilegt að þessi liður vísitölunnar
breytist; kauplagsnefnd getur ekki lengur reikn-
að hann samkvæmt lögum sem felld hafa verið úr
gildi. Taki kauplagsnefnd leiguhúsnæði borgarinn-
ar sem mælikvarða á liðurinn umsvifalaust að þre-
faldast og kaup síðan að breytast í samræmi við
það. Væri það raunar lítil uppbót á margra ára
vangreiðslu.
jr
Oþolandi
J]nn gerist það ef hitastig fer niður fyrir frostmark,
að hitaveitan bregzt á ýmsum stöðum í Reykja-
vík, og hafi fólk ekki önnur hitunartæki verður
það að hírast skjálfandi í íbúðum sínum. Meðan
sérfræðingar voru að safna reynslu og prófa sig á-
fram var hægt að afsaka slíkt ófremdarástand, en
sá tími er löngu liðinn að nokkrar slíkar afsakanir
séu frambærilegar; sérfræðingar kunna nú mæta-j
vel bau ráð sem duga. Ástæðan til þess að kuldinn
er á hverjum vetri. leiddur inn í vistarverur mann'
er einvörðnnmi framtaksleysi sem borgararnir ein-
ekki að þola. — m.
*
Keppt um veglega verðlaunagripi á
innanfélagsmóti skíðadeildar I.R.
Skíðadeild IR eínir til sins
árlega innanfélagsmóts við
skála félagsins í Hamragili, á
morgun, sunnudag, 23. janúar
kl. 1 e.h. en mót þetta er orð-
ið fastur Iiður í starfi deild-
arinnar og er nær jafngamalt
skíðadeild IR.
1 öllum flokkum er keppt
um veglega bikara og hefur
rausnarleg verðlaunaveiting
jafnan sett nokkurn svip á
mótið.
Hér fylgir mynd af þeim
fjórum glæsilegu verðlauna-
gripum sem nú er keppt um.
Lengst t.v. á myndinni er bik-
ar sem gefin var fyrir þetta
mót í fyrra. Gefandi var Sig-
- rún Sigurðardóttir, sem lengi
var bezta skíðakona IR og
vann m. a. á þremur árum
veglegan bikar sem í upphafi
þessa innanfélagsmóts var gef-
inn til kvennaflokks. Bikar
Sigrúnar er veittur sigurveg-
ara í kvennaflokki. Handhafi
hans er nú Jakobína Jakobs-
dóttir.
Næst stendur ..Alberts-bikar-
inn‘‘ gefinn af Albert Guð-
mundssyni í fyrra. Um hanp
er keppt í flokki drengja yngri
en 16 ára. Það ætti að verða^
keppikefli allra stráka IR að
varðveita þennan fagra grip.
Handhafi hans nú er Eyþór
Haraldsson.
Þriðji frá vinstri er svigbik-
ar karla. Hann var ásamt
tveim öðrum bikurum gefinn
1943 til keppni á Innanfélags-
móti IR. Gefendur bikaranna
þriggja voru Ásgarður h.f.,
Eggert Kristjánsson og Egill
Vilhjálmsson. Tveir bikarar
unnust fljótt. en um þennan
bikar, sem keppt er um í
karlaflokki, hefur orðið geýsi-
hörð keppni. Margir af beztu
skíðamönnum landsins hafa
unnið bikarinn, en enginn 3
sinum I röð eða fimm sinnum
alls, eins og þarf til að eign-
ast þennan bikar og alla hina.
Eysteinn Þórðarson er sá
eini sem unnið hefur hann
þrisvar, árin 1952, 53 og 1959.
Handhafi bikarsins nú er Þor-
bergur Eysteinsson.
Lengst t.h. er bikar erMagn-
ús Baldvinsson gaf í fyrra og
er keppt. um hann í flokki
Handknatt-
leiksmótíð
um helgina
• Islandsmótið í handknattleik
heldur áfram að Hálogalandi i
dag, laugardaginn 22. jan. og
hefst kl. 20,15. Fyrst verður
leikið f 2. fl. kvenna.
A-riðiII: Þór — IA.
B-riðiIl: Týr — Ármann.
2. deild kvenna: Þór — KR.
III. flokkur karla: — A-riðill
Þróttur — Víkingur.
Síðasti leikur kvöldsins verð-
ur í II. deild karla, milli IBK
og Í A.
Á sunnud. heldur svo mótið
áfram að Hálogalandi en þá
hefst það kl. 14,00. Verða þá
leiknir 9 spennandi og fjörugir
leikir. /
II. flokkur kvénna — A-riðilI:
ÍA — Fram, Þór — IBK.
B-riðill: Víkingur — Týr.
II. flokkur karla — B-riðill:
FH — IBK.
A-riðfll: IR — KR.
XII í >kkur karla — A-riðill:
ÍBK — Fram. B-riðilI: Breiða-
blik — Ármann. Valur —
FH.
II. deild karla: IA — Víkingur.
stúlkna yngri en 16 ára, Hand-
hafi bikarsins er Auður Björg
Sigurjónsdóttir.
Allir skíðamenn og konur
innan IR eru hlutgengir kepp-
endur á þessu móti og má bú-
ast við harðri keppni um svo
veglega gripi nú eins og raun-
ar jafnan áður. Skráning og
nafnakall fer fram í skála fé-
lagsins sunnudaginn 23. jan.
kl. 12 á hádegi.
Skíðadeild IR vonast til
þess að sjá sem flest skíða-
fólk í Hamragili um hélgina.
Skorað er í ÍR-inga eldri og
yngri að fjölmenna við skál-
ann. (Frá IR)
Verðlaunagripirnir sem getið er um í greinjnni.
Góð þátttaka í skíðanám-
skeiði og móti á Húsavík
Húsavík — 17/1 J966.
Síðastliðna viku hefur hinn
landskunni skíðamaður, Krist-
inn Benediktsson, dvalizt hér á
Húsavík og þjálfað skíðamenn
bæjarins. Var þátttaka í nám- ,
skeiði þessu mjög góð.
1 gær, sunnudaginn 16. jan-
úar, var svo efnt til skíðamóts
í Húsavíkurfjalli og komu til
keppni menn frá Akureyri og
Siglufirði, auk Húsvíkinga.
Mótsstjóri var Vilhjálmur
Pálsson íþróttakennari.
Brautimar lagði Kristinn
Benediktsson.
Keppt var í fjórum flokkum^
í svigi.
1 karlafflokki voru keppendur
15 og urðu úrslit þessi: (sam-
anlagður tími tilgreindur)
Kristinn Benediktsson Isafirði,
66.6 sek.
Reynir Brynjólfsson, Akureyri,
71,5
Agúst Stefánsson Siglufirði
71.8.
Viðar Garðarsson, Akureyri
74.7
Reynir Pálmason Akureyri
81,0
Magpús Ingólfsson Akurcyri
82.9.
Beztum brautartíma náði
Kristinn Benediktsson, 33,1
sek.
í kvennaflokki voru kepp-
endur aðeins tveir. Sigurvegari
varð Karólína Guðmundsdóttir,
Akureyri, og var samanlagður
tími hennar 92,4 sek. Hinn
þátttakandinn lauk ekki keppni.
I unglingaflokki voru kepp-
endur 18 og urðu úrslit þessi:
Ámi Óðinsson Akureyri
68.6 sek.
Ingvi Óðinsson Akureyri
68.7
Bjöm Haraldsson Húsavík
71,3
Jónas Sigurbjömsson Akurcyri
73,9.
Þórhallur Bjarnason Húsavík
74,2.
0rn Þórðarson Akureyri
76.6.
Beztum brautartíma náði
Ámi Óðinsson, 33.8 sek.
í drengjaflokki voru kepp-
endur 4. Úrslit urðu þessi:
Gunnlaugur Frímannsson 38,5
Haraldur Haraldsson 54,8
Gunnar Jakobsson 99,4
Mótinu var slitið með hófi í
veitingahúsinu Hlöðufelli og
þar voru verðlaun veitt.
K.E.J.
Urslit leikjanna á
mið vikudagskvöidið
Á miðvikudagskvöldið var
Handknattleiksmeistaramóti Is-
lands haldið áfram að Háloga-
landi og þá leiknir þrir leikir
í 1. deild kvenna og tveir leik-
ir í unglingaflokkum.
1 kvennakeppninni urðu úr-
slit þau að Víkingur og Ung-
mennafélagið Breiðablik , i
Kópavogi gerðu jafntefli, 9:9,
eftir jafnan og skemmtilegan
leik. Valur sigraði Ármann
méð nokkrum yfirburðum
18:10, í leikhléi var staðan
11:6. Þá sigraði FH Fram eftir
alltvísýnan leik með 7 mörk-
um gegn 6.
I 3. flokki karla sigraði iR
Keflavík með 11 mörkum gegn
10 í fjörugunfi leik.
Loks vann Þróttur Keflavík
í 2. fl. karla með 17 mörkum
gegn 8.
«msœlnttír vkortnrinir
'óhannes skólavörðustig 7