Þjóðviljinn - 02.02.1966, Blaðsíða 8
t
g SÍÐA — ÞJÓÐVIIaJINN — Miðvik'udagur 2. febr'úar 1360.
STORM JAMESON:
Ó,
BLINDA
HJARTA
Jiristi hann aí sér og ávarpaði
Gaude:
— Ég veit ekki hvað þér haf-
ið í hyggjiu. En þér hljótið að
vera alveg frá yður, ef þér hald-
ið að ég fari núna að ljúga ein-
hverju til um Philippe — hún
galopnaði augun. — Ég sagði
yður áðan og ég segi það enn:
hann vissi ek'kert að peningam-
amir voru hérna fyrr en nokkr-
um tímum áður en þjófamir
komu hingað. Þér getið talað og
hrópað þangað til þér blánið í
framan en þannig var það nú
samt _____ Ef hann hefði ekki
verið saklaus, haldið þér þá að
hann hefði sagt yður að hann
hefði ekki verið saklaus, hald-
ið þér þá að hann hefði vitað
af þeim frá þvi á þriðjudag?
Hann misminnti — það var á
laugardag — en ef hann hefði
ekki verið saklaus, þá hefði
hann áreiðanlega varað sig á
slíku? Hugsið um það, monsieur
Gaude.
— Nema, sagði Gaude lágri
röddu, að hann hafi búizt við að
þér segðuð þriðjudag og hugsað
með sér að það væri eins gott
að láta daginn standa heima.
— Farið burt, sagði hún og
Iækkaði röddina, og farið með
þessa —
Gaude ranghvolfdi augunum
framaní hana og sagði: Uss,
uss, kona góð. Hann hnykkti til
höfðinu og leit á stúlkuna. Ut
með yður, Houché litla -7- og
sitjið rólegar í bílnum eins og
hvert annað góða barn og bíðið
eftir mér. Ég verð aðeins andar-
tak.
Hann horfði á eftir henni
þegar hún gekk út, hreyfði fæt-
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinunn eer Bódá
Laugavegi 18 III hæð (lyfta)
SlMI 24-6-16
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Ggrðsenda 21 SÍMI 33-968
DðMUR
Hárgreiðsla við allra hæfi
FJARNARSTOFAN '
Tjamargötu 10 Vonarstræt-
ismegin — Sími 14-6-62
Hárirreiðdustofa
Austurkæiar
María Guðmundsdóttir.
Laugavegi 13 Sími 14-6-58
Nuddstofan er á sama stað
uma til eins og leikbrúða og
pilsið var svo þröngt að í hverju
spori ýttist það langt upp fyrir
hné.
— Ég þarf að fá mynd af
Philippe, sagði hann um leið
og dymar lokuðust.
— Til hvers? spurði Michal.
— Til hvers heldurðu? Til að
hafa undir koddanum mínum?
Við ætlum að dreifa henni um
landið, á brautarstöðvar, lög-
reglustöðvar, flugvelli og næt-
urklúbba og skemmtistaði í Par-
ís þar sem piltar af hans tagi
kunna við sig. Hann brosti vor-
kunnsamlega. Með þetta . andlit
gef ég honum viku, kannski
tvær vikur nema hann lifi' eins
og munkur, sem ekki er sérlega
trúlegt.
Michal tók sárt að þurfa að
afhenda honum litlu augnabliks-
myndina, sem var eina myndin
sem tekin hafði verið af Phil-
ippe síðast liðin fimm ár; það
var vangamynd, og þótt myndin
væri ekki sérlega góð sýndi hún
þó fríðleika hans og ómótstæði-
legan þokka. Hann losaði hana
úr rammanum og hugsaði með
sér: Þetta er ekki satt. Það get-
ur ekki verið satt.
Gaude stakk myndinni í vas-
ann og fór út. Um leið og hann
tók í höndina á Midhal leit hann
á hann næstum alúðlega. Lotta
hafði snúið í hann baki og hann
skipti sér ekki af henni.
Þegar Miohal var einn eftir
inni hjá henni, horfði hann
stundarkorn á hana þegjandi.
Enn var hann fyrst og fremst
ringlaður, það var eins og grá,
kaéfandi þoka fyllti á honum
höfuðið og stöku sinnum fékk
reiðin útrás gegnum hann eins
og snöggar eldingar. Hann
reyndi að hrista þetta af sér,
teygði fram hálsinn eins og til
að losna við þokuna.
— Af hverju léztu Philippe
hafa peningana? spurði hann.
Hún svaraði ekki.
— Af hverju sagðirðu mér
ekki að hann eyddi meiri pen-
ingum en ég lét hann fá? Ég
gerði ekki illa við hann.
Hún leit ekki á hann þegar
hún sagði:
— Mig langaði til að gefa
honum eitthvað.
Þetta snart hann undarlega.
En þó snart það hann meira að
sjá hversu ljótt andlit hennar
var þessa stundina, al-lar línur
voru einkennilega ýktar og stór
munnurinn með átakanlegum
beiskjusvip; jafnvel augun virt-
ust hafa hörfað inn í höfuðið.
— Vesalings Lotta mín, sagði
hann þungum rómi. Þetta er
leiðindamál. En það er ekki
hægt að ásaka þig.
Hún svaraði ekki heldur núna
og hann lagði höndina á öxl
hennar ems og til að Iáta v-el
að henni. Hún hristi hönd hans
af sér með óvæntum ofsa.
— Láttu mig vera, sagði hún
hranalega. Hún leit upp og
horfði í kringum sig og það fóru
viprur um efri vörina eins og
hún væri að reyna að mynda
bros. Get ég hvergi fengið að
vera ein í þessu húsi?
Hann sneri sér frá henni og
fór út. Frammi í veitingastof-
unni leit ,,gamía geitin“ sem
snöggvast framaní hann og hellti
strax í konjaksglas handa hon-
um. Hann drakk úr því, gleymdi
að segja nokkuð og fór síðan
niður í eldhúsið til að matreiða
þetta kvöld með reiði sinni og
ólýsanlegum sársauka.
10
Hvemig svo sem hugarástand
matreiðslumannsins hafði verið,
þá snæddi George Leighton
kvöldverð sinn með sýnilegri
vellþóknun, og hann lyfti öðru
hverju höfði og leit í kringum
sig i herberginu og augu hans
ljómuðu eins og hann byggi yf-
ir einhvem hugsun, einhverj-
um niðurbældum æsingi.
1 lok máltíðarinnar, þegar
Michal færði honum kaffið,
sagði hann:
26
— 1 kvöld er ég ekki í skapi
til að sitja uppi. Ef til vill vild-
uð þér gera mér þann mikla
greiða, að sitja héma niðri hjá
mér stundarkom, ef þeir geta
verið án yðar uppi. Eigið þér
nokkuð eftir af armagnacinu frá
1911?
— Tvær flöskur.
— Ég vildi gjaman fá aðra.
Áður en Michal sótti flöskuna
fór hann upp í veitingasalinn.
Pibourdin var sá eini úr hópn-
um sem kominn var. Þegar hann
kom auga á Midhal færðist
breitt og dæmalaust IjúHegt bros
um feitlagið andlit hans, and-
lit sem Paul Larrau líkti við
bamsrass. Michal hugsaði í
snöggri reiði: Rétt eins og þeir
hinir er hann nú búinn að frétta
það sem lögreglan veit og tölu-
vert meira. Hann þóttist viss um
að hvorki læknirinn né Blaise
Vincent myndu sýna sig í kvöld.
Hann horfði framhjá Pibourdin
og ávarpaði ,,gömlu geitina“ og
sagði henni að hún þyrfti að
vinna frameftir í kvöld, því að
hann væri vant við látinn í
matstofunni. Arabinn var í sínu
venjulega horni, grannar, dökk-
ar hendumar héldu um kaffi-
glasiðj a®t í e1nu flaug honwm
í hug að segja hennd að færa
manninum annað glas á kostnað
hússins.
Þegar hann kom með armagn-
acflöskuna af borði Leightons,
hafði hann meðferðis tvö glös
og sagði án þess að brosa:
— Skilyrðið fyrir þvi að ég
opni þessa flösku er það, að ég
setji hana ekki á reikning yð-
ar og við drekkum til jafns. Er
það samþykkt?
— Ef þér endilega viljið,
sagði Leighton óánægður.
Michal lét sem hann heyrði
ekki óánægjutóninn í rödd hans,
heldur hellti víninu varlega í
glösin, settist niður, bragðaði á
því og sagði:
— Þér vitið auðvitað hvað
komið hefur fyrir.
Leighton rykkti upp höfðinu.
Hvað þá? Hvað hefur komið fyr-
ir? Þér vitið að ég frétti ekki
neitt nema mér sé sagt það
hérna. Eneinn < i->nrninu myndi
'ria Ahmed þótt stríð hefö'
skollið á.
Hann hlustaði með athygli
meðan Midhal sagði honum
eins stuttlega og gagnort og
hann gat upp alla söguna, jafn-
vel frá ungu stúlkunni. Annað
gammsaugað fylgdist með leik
tilfinninganna í andliti Michals,
sterklegu og sólbrenndu, og tók
eftir því að strokur hans yfir
ræktarlegt yfirskeggið voru nú
eins og taugaveiklunarkækur. Á
eftir frásögninni sagði hann ró-
legri röddu:
— Stundum hef ég saknað
þes® að eiga engan son, en mér
hefur verið hlíft við miklu af
ástæðulausum kvíða og angist.
Ástæðulausum vegna þess að
heilbrigð skynsemi ætti að
segja hverjum að vænta einskis
af bami sem komið er yfir kyn-
þroskaaldurinn. Á þeim aldri
ætti að skeha það burt — til-
finningalega séð.
— Satt er það, sagði Michal.
Hann bætti við hrjúfri röddu:
Það hlægilegasta er, að jafnvel
núna verð ég að minna sjálfan
mig á að hann er ekki sonur
minn. Mér hefur heppnazt of
vel að tengjast honum.
Þeim mun meiri auli ert þú,
hugsaði Leighton. Ég hef aldrei
tekið inn í hús mitt bam né
dýr. Sumir myndu kaUa það ó-
frjótt líf. En ég segi: Það er ró-
legt líf og skynsamlegt. Mér
leiðast böm — ég þoli ekki ó-
þroskaða huga. Og það sem
meira er, þá get ég ómögulega
fómað mér fyrir neina mann-
lega vem á hvaða 'aldri sem hún
er. Eða hvers kyns sem hún er.
Ég get ekki ímyndað mér að ég
gæti eða vildi undir neinum
4671 — Haderi hefur bækistöðvar sínar í nánd við þá leið
sem fara verður til kastalans. Einn manna hans kemur hlaup-
andi: Úlfaldar nálgast, strangur vörður er um lestina. Það má
því ætla, að það séu mikilvægir menn á ferð .... Um miðja
nótt .... Skyldi það vera konungurinn, sem þarna er verið að
færa á brott .... En hvert .... ? Kannski mætti ráðast á lest-
ina .... Hann sveiflar sár á bak úlfaldanum til að geta fylgzt
með lestinni úr fjarlægð. Mustafa fréttir þetta lfka og hann er
á verði. Að tveim tímum liðnum verða fangamir komnir til kast-
alans og þá er engin hætta lengur.
SKOTTA
BYGGINGA
VÖRUR
★ Asbest-plötur
★ Hör-plötur
★ Harðtex
★ Trétex
★ Gips þilplötur
★ Wellit-einangrunarplötur
★ Alu-kraft aluminpappír
til húsa-einangrunar
★ Þakpappi, tjöru og asfalt
'k lcopal pakpappi
k Rúðugler
MARS TRADING C0. H.F.
KLAPPARSTÍG 20 SÍMI 17373
Auglýsið í Þjóðviljanum
1