Þjóðviljinn - 05.02.1966, Blaðsíða 10
Prjónastofan Sólin frumsýnd í marz
Sl. firamtudag hófust æf-
ingar í Þjóðleikhúsinu á leik-
riti HaHdórs Laxness, Prjóna-
stofunni sólinni. — Leikstjóri
ér Baldvin Halldórsson en
Gunnar Bjamason gerir leik-
myndir. Þetta er fjórða leik-
ritið, sem Þjóðleikhúsið sýnir
eftir Laxness, en hin voru
fslandskl'ukkan. Silfurtunglið
og Strompleikurinn.
f Prjónastofunni Sólinni,
eru 13 hlutverk, en auk þess
koma þar við sögu sjö þokka-
dísir. Leikurinn gerist á vor-
um dögum í forskála „franskr-
ar villu“ og á rústum henn-
ar.
Þeir sem fara með aðalhlut-
verkin eru leikaramir: Helga
Valtýsdóttir, sem leikur Sól-
borgu prjónakonu. Láms
Pálsson leikur fbsen Ljósdal,
Rúrik Haraldsson leikur Sine
Manibus, Róbert Amfinnsson
er fegurðarstjórinn. Þrídís er
leikin af Sigríði Þorvaldsdótt-
ur og Jón Sigurbjömsson fer
með hlutverk kúabóndans.
Myndin er tekin á fyrstu æf-
ingu leiksins.
Laus hverfi
Óðinsgata
Laufásvegur
Skipholt
Múlahverfi
Heiðargerði.
Hlíðarvegur —
Kópavogi
Þjóðviljinn
sími 17500
Vöruflutningar skipafélaganna aukast stöðugt:
Fkittu alls 1245.3 þúsund
tonn af vörum árið 1964
Sovétríkin 40:1
Bandaríkin 66:1
LONDON 4/2 — Lending Lúnu
9, á tunglinu hefur vakið mönn-
um grun um að Sovétríkin muni
verða á undan Bandaríkjunum
að senda mannað geimfar þang-
að. Bretum sem stofna til veð-
mála um alla skapaða hluti gefst
nú kostur á að veðja um það
hvort mannað geimfar verði
lent á tunglinu fyrir áramótin
næstu. Litlar líkur eru þó tald-
ar á þvi, en meiri líkur á að
ef svo fer verði geimfarið sov-
ézkt heldur en bandarískt, eða
einn á móti 40, en aðeins einn 1
á móti 66 að það verði banda-
rískt. I
□ I nýjustu Hagtíðindum er sagt írá vöruflutn-
ingum íslenzkra skipaútgerða árið 1964 og námu
þeir alls 1245,3 þúsund tonnum, sem er 225,8
þúsund tonnum meira en árið áður. Skipaútgerð-
arfélögin eru 6 að tölu, þ.e. Eimskipafélag íslands,
Skipadeild SÍS, Skipaútgerð ríkisins, Eimskipafé-
lag Reykjavíkur, Jöklar og Hafskip.
Tölur þessar éru að méstu
leyti þyggðar á ársskýrslum
skipaútgerðanna og eru tölum-
ar frá 1963 birtar í sviga.
Flutningar á vörum tii varnar-
liðsins með brezkum skipum,
sem nú eru orðnir mjög litlir
eru taldir með.
Eimskipafélag Islands flutti á
árinu 1964 342,0 þús. tonn
(312.8) með eigin skipum og 19,3
þús. tonn með leiguskipum og
gerir það í allt 361,4 þús. tonn
(326.8) .
Skipadeild SlS flutti með
eigip skipum og er hér líka
átt við sameignarskipin, sem
skipadeildin sér um rekstur á.
Hamrafell og Litlafell, 467,8
þús. tonn (447,9) og með leigu-
skipum 1,4 þús. tonn (18,3) eða
alls 469,3 þús. tonn (466,2). '
Flutningur Skipaútgerðar rík-
isins nam 84,9 þús. tonnum
(74,6) með eigin skipum, en
sem kunnugt er leigir Skipa-
útgefrð ríkisins ekki skip.
Framhald á 7. síðu.
Tíu ára starfsemi Verzlun
\
arbankans og
H Forráðamenn Verzlunarbanka íslands minntust í gær
þeirra tímamóta, að liðin eru tíu ár síðan Verzlunarspari-
sjóðurinn var stofnaður og fimm ár síðan hann varð að
Verzlunarbanka. Jafnframt var tekið í notkun viðbótar-
húsnæði í húseign bankans að Bankastr. 5, þar sem að und-
anfömu hafa farið fram gagngerðar breytingar og er af-
greiðslusalurinn nú helmingi stærri en áður.
I tilefni þessa afmælis Verzl-
unarbankans kallaði bankaráð
fréttamenn á sinn fund og
skýrði Egill Guttormsson for-
maður þass frá stofnun og sögu
Tilboð í mannvirkjageri Búrfells-
virkjunarinnar voru opnnð í gær
Almenna byggingafélagið talið sigurstranglegast
■ f gær var sett á svið virðuleg fjármálaathöfn með
alþjóðlegu svipmóti að Hótel Sögu, — voru þar opnuð til-
boð frá sjö aðilum í mannvirkjagerð Búrfellsvirkjunar, —
voru tilboðin miðuð við tvö virk'junarstig, — annarsvegar
70 þúsund megawatta og hinsvegar 105 þúsund megawatta
virkjun.
■ Þrír aðilar skáru sig úr með lægstu tilboðin og verð-
ur tekin ákvörðun þar á milli síðar við nánari úrvinnslu
tilboðanna. Það eru franska verktakafirmað Société Dumez
með 609.2 miljónir króna miðað við 70 þúsund megawött
og 739.1 miljónir króna miðað við 105 þúsund megawött,
Almenna byggingarfélagið — E. Phil & Sön og Sentab
með 583.6 miljónir króna og 747.0 miljónir króna og belg-
ískir og hollenzkir aðilar Auxella-Béton með 655.3 miljónr-
ir og 799.3 miljónir 'króna.
■ Dr. Jóhannes Nordal, bankastjóri staðfesti við þessa
athöfn í gær, að byggingarframkvæmdir við Búrfellsvirkj-
un hæfust þegar að vori, — sennilega í maí.
Við háborð fyrir enda salar- fyrirferðamikla böggla, — kross-
íns sátu meðlimir Landsvirkjun- bundna með sterklegum snær-
arnefndar og litu með hlutlaus- um, — vafna innan í brúnan
um pókersvip út f salinn og fal- pappír og voru þeir opnaðir i
legt beibídoll var á þönum með viðurvist samkomunnar og til-
boðin lesin upp jafnóðum með
róle'gri og skýrri röddu á ensku.
Við hliðarborð út frá háborð-
inu, — klædd grænum dúki með
spjöldunum ,.Bidders‘‘ sátu bjóð-
endur og biðu spenntir úrslit-
anna, — skrifuðu miljónatölurn-
ar niður á blað og ræddu hljóð-
lega sín á milli og við einstök
borð út um allan salinn sátu
þekkt nöfn úr, fj;í.rmálaheimin-
um og meltu miljóna hundruðin
eins og kauphallarfurstar í Lon-
don eða New York. Þama sat
til dæmfe Gísli Sigurbjömsson á
Elliheimilinu með Þjóðverjahóp
og var ákaflega í essinu sínu,
— ekki bliknaði Gísli, þegar til-
boðið frá Þjóðverjunum var les-
ið upp og reyndist langhæst, —
fór reyndar yfir miljarð króna
— 1029,9 miljónir á fyrra stig-
inu og 1207.5 miljónir á seinna
stiginu við virkjunina. Þarna sat
Jón Kjartansson, ræðismaður
Finna ásamt finnskum fulltrú-
um frá Finnish Cont.ractors og
1 reyndist tilboð þeirra hljóða
upp á 829.0 miljónir og 1052.4
miljónir. Þá voru þarna fulltrú-
ar frá sænska fyrirtækinu
Skánska Cementgjuteriet með
901,7 miljónir og 1126 6 miljónir
og að lokum fulltrúar fyrir
norskt og danska fyrirtæki, —
Höjer — Ellefsen & Höjgert &
Schulz með 609.2 miljónir á
fyrra stiginu og 739.1 miljónir á
seinna stiginu. Átján aðilar víða
um heim voru forvaldir og tóku
sjö aðilar af þeim þátt í til-
boðunum.
Þess má geta, að það kostar
um tvær miljónir að gera svona
tilboð og skilatrygging er 200
miljónir króna. — aðilar þurfa
að sýna bankatryggingu með
beirri upphæð til þess að verða
hlutgengir og talað sé við þá, —
svo að menn geri sér frekari
grein fyrir svona umsvifum.
Fyrir tíu dögum síðan voru
opnuð tilboð í túrbfnur Búrfells-
virkjunar og er nú unnið að úr-
vinnslu úr þeim tilboðum, —
Framhald á 7. síðu,
bankans í stórum dráttum.
Stofnfundur Verzlunarspari-
sjóðsins var haldinn 4. febrúar
1956 og urðu stofnendur og á-
byrgðarmenn sparisjóðsins alls
310, aðallega kaupsýslu- og
verzlunarmenn. Stofnfjárframlag
hvers ábyrgðarmanns var fimm
þús. krónur. í fyrstu stjóm
voru kjörnir af hálfu stofnenda
Egill Guttormsson stórkaupmað-
ur og Þorvaldur Guðmundsson
forstjóri, en Bæjarstjóm Reykja
vikur kaus Pétur Sæmundsen
viðskiptafræðing.
Verzlunarsparisjóðurinn tók til
starfa í september 1956 í Hafn-
arstræti 1. Öx starfsemi hans
fljótlega og vorið 1960 vom af-
greidd lög á alþingi um stofn-
un Verzlunarbanka íslands h/f,
er yfirtæki alla starfsemi spari-
sjóðsins. Var þá þegar stofnað
hlutafélag um stofnun bankans
og er hlutafé hans um tólf
miljónir króna.
Stofnfundur Verzlu’narbanka
íslands var haldinn 4. febrúar
1961 og sóttu hann á fjórða
hundrað manns. Var þar sam-
þykkt reglugerð fyrir starfsemi
bankans og kjömir í bankaráð
sömu menn og skipað höfðu
stjórn sparisjóðsins. Bankinn tók
til starfa í apríl sama ár og
jafnframt hætti þá sparisjóður-
inn störfum. Fékk bankinn á
leigu til starfseminnar hluta af
húsinu Bankastræti 5, sem hann
keypti síðan 1963.
Starfsemi bankans hefur vaxið
mjög frá stofnun hans og orðið
umsvifameiri með ári hverju.
Námu heildarinnstæður við
bankann í lok síðasta árs rúml.
! 544 milj. kr."/ en útlán samtals
i 429 milj.'kr. Á sama tíma höfðu
sparisjóðurinn og bankinn greitt
innstæðueigendum samtals rúml.
127 milj, kr. í vexti þann tíma
sem starfsemin hefur staðið.
Með kaupunum á húseigninni
Bankastræti 5 og breytingunum
sem þar hafa nú verið gerðar
hefur bankinn tryggt sér varan-
lega starfsaðstöðu um næ.stu
framtíð. Getur bankinn nú m.a.
boðið viðskiptavinum sínum af-
not bankahólfa, sem komið hef-
ur verið fyrir í kjallara hússins,
auk afnota af næturhólfi. Þá er
nú í undirbúningi nýtt bókunar-
kerfi sem á að komast í fram-
kvæmd í vor. Er hér um að
ræða IBM bókhaldskerfi. en það
er nú notað í bönkum víða um
lönd til mikils hagræðis og mun
hið nýja fyrirkomulag bæta
mjög alla daglega afgreiðslu.
Að undanförnu hefur verið
unnið að tillögum um stofnlána-
deild við bankann og eins vonast
forráðamenn hans til að af-
numdar verði takmarkanir á
heimild bankanna til erlendra
viðskipta.
Verzlunarbakinn rekur nú tvö
útibú, að Laugavegi 172 og í
Keflavík. að Hafnargötu 31. í
stjórn hans eiga nú sæti auk
Egils Guttormssonar. Þorvaldur
Guðmundsson forstjóri og Magn-
ús Brynjólfsson kaupmaður. —
Bankastjóri er Höskuldur Ólafs-
son lögfræðingur, sem einnig
stjórnaði sparisjóðnum frá stofn-
un hans.
Þvrlur biöreuðu
ureldsvoða
TEL AVIV 4/2 — Þyrlur Isra-
elshers björguðu í dag um 50
manns af þaki logandi fimm
hæða húss í Tel-Aviv.
Eldurinn átti upptök sín á
fyrstu hæð og breiddist fljótt úr.
Mörg hundruð manns voru f
byggingunni og stukku sumir
þeirrg út um glugga, en öðrum
björguðu brunaliðsmenn.
Laugardagur 5. febrúar 1966 — 31. árgangur — 29. tölubla/