Þjóðviljinn - 06.02.1966, Qupperneq 3
StmmaÖagur 6. febröar 1966 — ÞJÓBVXLJINN — SÍÐA J
Bandariskar hersveitir leita að týndu sprengjunni á spánskri grund.'
Fyrir nokkra var frá þvi
skýrt í fréttum, að menn væra
famir að biðjast fyrir í guðs-
húsum sínum suður í Afríku,
vegna tregðu himins þar í
landi á vatnsgjöfum, mönnum
og málleysingjum til lífs og
þrifa. Ekki þarf að efa, að hver
maður hefur þakkað sínum
guði af heilum hug þá himna-
sendingu er regn féll yfir
skrælnandi jörð og búpening
örmagna af þorsta. Og hversu
ólíkir sem þeir guðir kunna að
vera, sem stóðu að þeirri send-
ingu. þykir mér trúlegt, að
enginn efist um að þar hafi
góðir guðir að verki verið.
En um svipað leyti kom á
kreik orðrómur um himna-
sendingu af öðru tagi. Fyrir
þeirri sendingu varð fátækt
bændafólk, ekki allfjarri þeim
bænheita landsmúg, er kallaði
regn yfir brennandi jörð úr
pússi guða sinna. Ekki var
þess getið að Spánarbúum hefði
auðnazt himnasending sú er í
þeirra hlut kom fyrir nokkum
bænastað. En vera má að þeir.
í alþýðlegri fáfræði sinni, líkt
og sá kaunum slegni Job, sem
prestar kunna frá að segja.
leiti nokkurrar ástæðu til
himnasendingar þeirrar, sem
nú kvaS ógna uppskeru og lífi
umhverfis. sinn lendingarstað.
Og ekki er ósennilegt, að ef
um guðlega himnasendingu
hefði verið að ræða. tækist al-
þýðlegum hugsanaferli fátæk-
linga þessara að rekja ástæðu
til reiði forsjónar sinnar útaf
þeyn margvíslegum mannleg-
um yfirsjónum, sem allsstaðar
er auðvelt að finna.
En í þessu tilfelli var ekki
um neina sendingu frá forsjón-
inni að ræða. Sú himnasend-
ing, sem féll í hlut Spánverja
var nefnilega af algerlega
mannlegum toga og mætti
send. auk heldur frá vinum og
bandamönnum, nánar skil-
greint: amerísk kjarnorku-
sprengja. —
Hingað, norður í afskekkta
sveit, hafa enn ekki borizt
fregnir af viðbrögðum Suður-
nesjabúa á Islandi við þessum
athyglisverða atburði. Útvarp-
ið, sem er tengiliður okkár
strjálbýlisfólks við aðra lands-
hluta, ekki sízt Suðurnes, hef-
ur ekki gefið í skyn með einu
orði, að almenningur þar syðra
hafi nokkurt viðbragð tekið.
þrátt fyrir daglegt flug amer-
ískra herflugvéla yfir húsþök-
um mannflesta þéttbýlis á Is-
landi. Enda lítið meiri ástæða
til fyrir Suðumesjabúa en
aðra íslendinga aðhugaaðsínu
ráði af tilefni þessarar himna-
sendingar Bandaríkjamanna til
Spánverja. Sönnun þess, að
hver sem leyfir slíkt flug yfir
landi sínu hefur þar með boðið
slíkri sendingu heim, sú sönn-
un er fengin. svo hörmulega
áþreifanlega, að ekki verður
um deilt.
Við sósíalistar og aðrir her-
námsandstæðingar hér á landi
höfum að vísu margsinnis var-
að við þessari hættu, sem og
öðrum þeim hættum, sem af
hemáminu leiða, en eftir þenn-
an atburð ætti varla að fyrir-
finnast sá skynskiptingur, sem
ekki getur tekið afstöðu með
áskapaðri dómgreind, án á-
bendinga annarra.
Og þá hlýtur sú spurning að
vakna hver sé ástæðan til
slíkrar himnasendingar. Spán-
verjar era ekki kjamorkuveldi,
Islendingar ekki heldur. En
báðar þjóðimar hafa leyft er-
lendu kjamorkuveldi hemað-
araðstöðu í löndum sínum. Og
ástæðuna sem hér um ræðir,
ber vissulega að flokka undir
mannlegar yfirsjónir. hvort
heldur er spænskra eða ís-
lenákra forráðamanna.
þar sem hinn óbreytti alþýðu-
maður spyr, þegar gengið er
fellt: Afhverju er ekki komið
verkfall? Ekki veit ég hversu
margir hafa lesið þetta ljóð
Dags, en erindi átti það við
hvern alþýðumann og alþýðu-
konu á íslandi og á enn
Því við verðum að gera okk-
ur ljóst hvers erindi forysta
Jakobína Slgurðaxdóttir.
En er þá örugglega hægt að
sýkna það fátæka bændafólk
á Spáni, sem fyrir nokkrum
dögum meðtók svo áþreifan-
lega hina bandarísku himna-
sendingu? Eða það vinnusljóa
velferðarríkisfólk á íslandi,
sem ekki virðist þykja ómaks-
ins vert að orða atburði sem
þennan, ekki einu sinni að vik-
ið sé að honum í þætti um dag
og veg í útvarpinu? Höfum við
þá einhverja tryggingu fyrir
þvi, að það sem gerðist á Spáni
geti ekki gerzt á Islandi? Alls
ekki. Hvers vegna er það þá
ekki umtalsvert á Islandi, að
4 kjarnorkusprengjur glutrist
niður úr herþotum Bandaríkja-
manna yfir Spáni? Er geislun
ekki jafn hættuleg úr hvaða
átt sem hún kemur? Og hver
er sú yfirsjón óbreytts borgara,
svo á íslandi sem á Spáni. sem
kallar yfir hann slíka himna-
sendingu? Ég leyfi mér að
segja, að sú yfirsjón sé fyrst
og fremst skortur hins al-
menna borgara á sjálfsvirð-
ingu, hvort heldur er við sjó
eða í sveit á íslandi eða ann-
ars staðar á hnettinum.
Það kann að vera þægilegt
að eiga sér forsjón, sem varpa
má á allri ábyrgð ef illafer. en
slíkt lífsviðhorf sæmir ekki
mönnum, heldur einhverskonar
millistigi húsdýrs og manns.
hvort heldur sú skepnutegund
býr í fínum villum með öllum
nútímaþægindum' eða í aum-
ustu hreysum við allsleysi og
nauð.
Ég minnist hins snjalla Ijóðs
Dags Si^urðarsonar, Á torgunij
okkar á að reka. Forysta okk-
ar verður að hafa það- aðhald
af okkur, almennum kjósend-
um, að hún geri sér Ijóst að
menn standa á bak við hana,
en ekki sú skepnutegund, sem
ég höfðaði til hér á undan. Og
við eram skyldug til að beita
dómgreind okkar til þess að
taka á okkur þá ábyrgð og
þær skyldur, sem manni sæma.
Að öðrum kosti hefur forysta
okkar engra erinda að reka
fyrir okkur, og heldur engan
bakhjarl þegar alvöramál
krefjast afstöðu og úrlausnar.
Þar gildir einu um þjóðarfor-
ystu, verkalýðsforystu og svo
þjóðemismálabaráttu okkar.
Sú alþýða, sem fær yfir sig
himnasendingu af slíku tagi og
þá sem féll á Spáni fyrir
skemmstu, en vissulega ekki
undanþegin ábyrgð.
Og nóg er um sendingar,
sem ýmsir hugsa til sem
himnasendinga, þótt annað sé
innihaldið en í Spánarsprengj-
unni. Ýmsar himnasendingar
höfum við þegar móttekið og
kvittað fyrir að nokkra, þar
sem eru herstöðvar Banda-
ríkjamanna, dátasjónvarpið og
allur sá andlegi óþverri, sem
þaðan flýtur. Hlálegir aðilar að
hemaðarbandalagi höfum við
gerzt vopnlausir. Og þegar
þeir, sem enn hafa sjálfstraust
til að vera menn, afþakka
slíkar himnasendingar, ber
fiöldi manna sér á brjóst-
hniprar sig saman eins og
hræddur brekkusnigill og
fullyrðir: Ég hef ekkert vit á
þessum málum. Það eru vfst
bara kommúnistar, sem era á
móti þessu. Hvemig getur svo
það fólk, sem á við þetta lé-
lega dómgceind að búa, tekið á
sig þá ábyrgð, sem ætti að
fylgja kosningarétti?
Og í hvaða tilgangi kýs slíkt
fólk þjóðarforystu? Ekki getur
sú forysta átt neinna erinda að
reka á þess vegum, þvi svo
dómgreindarlítið fólk hlýtur
að gera hinar sömu kröfur til
lífsins og húsdýrin: að fá það
.að éta, sem gefið er á garða,
mikið eða lítið eftir ástæðum
og geðþótta forsjónar þess, tóra
einhvemveginn, eðla sig og
sálgast síðan eins og verkast
vill.
En því miður er dómgreind-
arleysi þess ekki um að kenna,
heldur þeim skorti á sjálfsvirð-
ingu, sem er okkar versti löst-
ur, að minni hyggju.
Um þessar mundir er verið
að demba einni himnasending-
unni yfir fólk hér í sveit. Sagt
er að slfkt sé af forráðamönn-
um okkar gert í tilraunaskyni,
eins konar undanrás væntan-
legrar stóriðju erlends fjár-
magns á Islandi. Kísiliðjan er
lítið fyrirtæki, að mér er tjáð,
og skammt á veg komið fram-
kvæmdum þeim, sem ráðgerð-
ar eru. En áhrifin á þá at-
vinnuvegi, sem fyrir voru, eru
þegar farin að koma- í Ijós,
engu lífvænni en áhrif sprengj-
unnar á Spáni, þótt annarrar
tegundar sé sú dauðageislun.
sem hér ógnar þeim atvinnu-
vegum og menningu, sem borið
hefur uppi þó nokkum hlut ís-
lenzkrár þjóðmenningar og
sögu.
En áreiðanlega mun jarðveg-
urinn gliðna frá rótum sumra,
sem á hann hafa treyst til
þessa, þegar það los er orðið
að skriðu, sem þegar er hrund-
ið af stað með himnasendingu
þessari. Margur bóndinn lítur
nú gimdarauga til yfirtaxta-
kaups og annarra fríðinda, sem
hin nýja atvinnugrein hefur
upp á að bjóða, enda þótt uppi
séu raddir um það, að var-
legt sé að treysta varanleik og
framhaldi þessarar dýrðar. Að
sjálfsögðu láta ýmsir sér fátt
um finnast, þótt nokkrir
bændaræflar i einni harðbýl-
ustu sveit á Islandi flosni upp
frá sniðasmáum búrekstri og
gerist verksmiðjuþrælar í eig-
in sveit. Annað eins hefur
skeð. Og ekki hætta allir bú-
skap í einu.
Nei, þeir hættu ekki heldur
allir í einu í Sléttuhreppi og
Grunnavíkurhreppi, ég get sagt^
ykkur hvemig það gerðist:
einn og einn hættir, unz svo fá-
ir eru eftir að ekki borgar sig að
halda uppi afurðaflutningum,
ekki verður smöluð afrétt, sak-
ir mannfæðar í búendastétt, og
þegar svo er komið fellur
skriðan af sjálfu sér, hér eins
og þar. Sá er þó munur að þær
sveitir fóra hreinlega í eyði, en
hér á að taka við verksmiðju-
fólk, að sagt er. Hver verður
aðstaða þess fólks þegar eng-
inn er bakhjarlinn?
Hvar mundi finnast hald
þess og traust þegar örfoka er
sá járðvegur sem feður þess-og
mæður ætluðu því að erfa og
nýta? Sá brandari er viða
kunnur að Þingeyingar hafi til
þessa búið að meira sjálfsáliti
en algengt er. Eitthvað kann
að vera til í því. Ef til vill
hafa forráðamenn okkar kjörið
þessari undanrás stóriðjunnar
stað í Mývatnssveit með það í
huga, að stæði þingeyska
sjálfsvirðingin ekki fyrir sínu
í skiptum við þessa himna-
sendingu, yrði tæpast vand-
ráðinn alúmíndansinn syðra.
Mig minnir að hæstvirtur for-
sætisráðherra viki að þvi í
áramótaþulu sinni, að ljótt sé
að amast við lífsþægindastefn-
unni. Hann veit hvað fólki
lætur bezt í eyram.
Mikið og oft hefur verið
vitnað til hins mikla skálds
Einars Benediktssonar, til
styrktar brölti þeirra stóriðju-
manna, Ég vil minna á erindi
úr kvæði hans, Kvöld í Róm,
til hugleiðingar þeim. sem lífs-
þægindin ein eru hið æðsta
takmark. Hann segir svo:
Beinleit fljóð og brúnaþungir
halir
bekkjast síðar fast við hóglífs-
kvalir.
Línur andlits lúðar eru og
sjúkar,
limir mýkri en dýnan sem þá
hvílir.
Styrk og fríðleik hniginn hjúpa
dúkar.
Hjartað ástalaust í munuð
veilist.
Uppgert fjör í eitur nautnar.
seilist,
ofláts mælgi hrömun þankans
skýlir.
Skyldi það hafa verið sú
þjóðlífsmynd, sem brugðið er
upp í þessum ljóðlínum, sem
Einar Benediktsson vildi stefna
að, sem takmarki íslenzkrar
þjóðar? Kynni einhver að vera
í vafa um svar við þeirri
spurningu, ræð ég honum til
að lesa ljóð Einars og þýðingu
á Pétri Gaut Ibsens, og lesa
vakandi en ekki mókandi.
Lífsþægindi eru, eins og
annað, það sem menn gera þau
að. Góð eru þau meðan þau
hjálpa manninum til að vera
maður, hugsandi vera með ó-
skerta- sjálfsvirðingu. Vond
þegar þau eru orðin eina Iífs-
gildi sljórrar, óseðjandi
skepnu, í mannsmynd að nafni
til. Ekki efa ég að ýrpsum
þyki ofmælt. en viðbrögð al-
mennings við hinni væntan-
legu himnasendingu, alúmín-
inu, munu skera úr um það.
Mörgum er ljóst að íslenzk-
ir atvinnuvegir hljóta að riða
allt til falls. takist að land-
festa hér þá óhappasendingu
að svo komnu máli. Og enn
sem komið er virðist flestum
viðkvæmast það högg, sem,
eins og Káinn orðaði það, hitt-
ir fyrirvaralaust á budduna.
Og þó — mörgum sem enn
treysta eigin dómgreind ægir
sú tilhugsun að áhrif erlendra
framkvæmda leppaðra með
samþykki íslenzkra s.tjómar-
valda, smjúgi eins og dauða-
geislun um undirstöðuatvinnu-
vegi Islendinga og sjúgi úr
þeim merg og blóð.
Hvað eigum við að gera?
Hvað getum við gért? Nægir
að skipta um forystu? Ég er
efins um það. En okkur vantar
sjálfsvirðingu, þá sjálfsvirðingu
almennings, sem treystir dóm-
greind sinni til að velja og
hafna, án tillits til lífsþæginda
og stundarhagnaðar. Slíka al-
þýðu skortir aldrei forystu.
Slíkir alþýðumenn stóðu að
baki þingeysku bændunum,
sem risu upp gegn erlendri
verzlunarkúgun á sínum tíma.
stofnuðu sitt eigið kaupfélag,
og skráðu í verki einn hinna
minnisverðustu þátta íslenzkr-
ar þjóðarsögu. Vfst hlutu þeir
að finna til manngildis síns,
án fullvissunar um það hefðu
þeir enga ástasðu haft til þess
að taka á sig alla þá áhættu.
óþægindi og eflaust oft von-
brigði, sem baráttan fyrir mál-
stað þeirra og þess fólks, er
að baki þeim stóð, hlaut að
færa þeim. Trúlega hefði þaðt
verið næðissamara og á ýmsa
Iund þægilegra líf að móka
Iftilþægur á fleti sínu og bíða
himnasendingar.
En þá hefði enginn neitt til
þeirra að sækja og enginn af-
komenda þeirra neitt að at-
huga við þá dýrategund, sem
þeir án efa hlytu að héyra til,
né heldur þær sendingar, er
þeim kynnu að falla í hlut,
hvort heldur er af himni eða
að öðrum leiðum Ég minnti í
upphafi þessa greinarkorns á
þá guðlegu sendingu af himni,
sem mörgum búanda þessa
hnattar hefur tfðum verið
kærkomin. Slíkri sendingu
taka menn glaðvaktir með
lotningu og þökk. Hinar aðrar
sendingar, sem hér hefur ver-
ið drepið á, vekja ugg og vam-
aðarviðbrögð hverjum manni,
hverjum raunverulegum manni.
Megi íslenzkur almenningur
bera gæfu til slíkra eðlilegra
viðbragða lifandi manna í
þeirri gemingahríð, sem nú
ógnar landi og þjóð.
Blaöadreifing
Unglingar óskast til blaðburðar í eftirtalin
hverfi:
Öðinsgata — Laufásvegur — Skipholt —
Múlahverfi — Heiðargerði — Hlíðarvegur,
Kópavogi.
ÞJÖÐVILJINN
sími 17-500.