Þjóðviljinn - 06.02.1966, Page 5
Sunnudagur 6. febrúar 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA J
Breytt verði ákvæðum um veitingu og svipt-
ingu ökuréttinda og refsingarnar þyngdar
Á ráðstefnunni um umferðarmál, sem haldin var í
Reykj avík um fyrri helgi, flutti Sigurjón Sigurðsson
lögreglustjóri bráðabirgðaálit það sem rannsóknarnefnd
umferðarslysa hefur sent frá sér. I nefnd þessari eiga
sæti, auk lögreglustjóra, Arinbjöm Kolbeinsson formað-
ur Félags íslenzkra bifreiðaeigenda, Sigurður Jóhanns-
son vegamálastjóri, Gestur Ólafsson forstöðumaður bif-
reiðaeftirlitsins, Bergsteinn Guðjónsson formaður Bif-
reiðastjórafélagsins Frama, Einar Ögmundsson formað-
ur Landssambands vörubifreiðastjóra og Jóhannes Briem.
Tillögur rannsóknarnefndarinnar fara í heild hér á
eftir:
I. Tillögur um breytingar á
gildandi reglum um veitingu
ökuréttinda, sbr. 27. gr. um-
ferðarlaga nr. 26, 1958.
1. Lagt er til, að orðið „reglu-
semi“ í 2. mgr. 27. gr. verði
skýrt þannig, að umsækjandi
skuii synjað um ökuskírteini, ef
hann á sl. tólf mánuðum hefur
hlotið refsingu fyrir ölvun.
nema um sé að ræða einstakt
atvik hjá manni, sem að öðru
leyti má telja áreiðanlegan og
samvizkusaman.
2. Lagt er til, að ökuskírteini
til byrjenda verði gefið út sem
bráðabirgðaskírteini til eins árs.
Áður en bráðabirgðaskírteini
er endurnýjað og fullnaðarskír-
teini er gefið út, skal fara fram
sérstök athugun á ferli um-
sækjandans sem ökumanns.
Ef umsækjandi hefur lent i
umferdarslysum eða umferðar-
óhöppum og kenna má um van-
kunnáttu, vanhæfni. vítaverðum
akstursháttum eða öðrum brot-
um gegn ákvæðum umferðar-
laga, má eigi endurnýja skír-
teini, nema umsækjandi hafi
staðizt próf að nýju í umferð-
arreglum og akstri bifreiðar.
Skal. þá Jiggja fyrir vottorð
trúnaðarsérfræðings um það,
að líkamleg og andleg heilbrigði
og andiegur þroski umsækjand-
ans fullnægi þeim kröfum, sem
gerðar eru í 4. gr. reglugerðar
nr. 57, 1960, um ökukennslu,
próf ökumanna o.fl.
3. Lagt er til, að þátttaka í
námskeiði í meðferð og stjórn
leigubifreiða til mannflutninga
og 5 smálesta vörubifreiða verði
bundin því ski'lyrði, að um-
sækjandi hafi ekki á síðustu
tólf mánuðum fyrir umsókn
verið refsað fyrir vítaverða
aksturshætti, auk þeirra skil-
yrða, sem rakin eru í d-lið 2.
mgr. 12. gr. reglugerðar nr. 57,
1960.
4. Lagt er til, að sú regla
verði upp tekin i sambandi við
endurnýjun ökuskírteina sam-
kvæmt 6. mgr. 27. gr. umferð-
arlaga, að umsækjandi verði
látinn sanna kunnáttu sína í
umferðarlöggjöfinni með skrif-
legri próftöku. Jafnframt geti
lögreglustjóri krafizt þess, að
umsækjandi gangist að nýju
undir aksturspróf, og verði sú
krafa að jafnaði gerð, ef meira
en eitt ár er liðið frá því, að
ökuréttindi umsækjandans féllu
niður. Sama gildir, ef umsækj-
andi hefur eigi stjórnað bifreið
síðasta árið. áður en umsókn
er fram borin.
5. Lagt er til, að settar verði
ákveðnar og ýtarlegar reglur
um það, hvernig læknisrann-
sókn á þeim, er um • ökuskír-
teini sækja skuli hagað, svo og
að gefin verði út ný eyðublöð
fyrir læknisvottorðin.
II. Tillögur um breytingu á
reglum um sviptingu ökurétt-
inda.
1. Lagt er til að reglum um
bráðabirgðasviptingu ökurétt-
inda skv. 6. mgr. 81. gr. um-
ferðarlaga nr. 26. 1958, verði
breytt þannig, að fellt verði
niður ákvæði um að ákvörðun
lögreglustjöra skuii borin undir
úrskurð dómara svo fljótt sem
v^rða megi og eigi síðar en
viku eftir sviptinguna. 1 þfess
stað komi ákvæði, er veiti söku-
naut heimild til að bera ákvörð-
un lögreglustjóra undir úrskurð
dómara innan tiltekins, hæfi- •
legs frests, og að þann úrskurð
megi kæra til æðra dóms af
hálfu aðila og ákæruvalds.
2. Lagt er til, að gildandi
lagaákvæði um ökuleyfissvipt-
ingar vegna ]þgbrota verði nú
þegar tekin til gagngerðrar
endurskoðusiar með það fyrir
augum, að ökuleyfissviptingum
verði beitt í langtum ríkara
aðar verði nú þegar reglur um
meðferð mála út af brotum á
umferðarlögum með það fyrir
augum, að brot, er eigi varðar
hærri viðurlögum en 3000 kr.
sekt, megi afgreiða með sektar-
gerð yfirvalds. Ennfremur að
meðferð annarra mála, er varða
umferðarlagabrot og afgreidd
eru fyrir dómi, verði gerð ein-
faldari í sniðum, þannig að af-
greiðslu þeirra megi hraða.
V. Tillaga tun endurkröfurétf
vátryggingafélaga.
1. Lagt er til, að nefnd sú,
sem gert er ráð fyrir I 76. gr.
umferðarlaga nr. 26, 1958, til
þess að kveða á um, hvort
endurkröfuiétti tryggingafélaga
skuli beitt gegn þeim, sem tal-
inn er eiga sök, verði skipuð og'
taki hið ailra fyrst’til starfa,
GREINAUGERÐ:
Skal nú í stuttu
máli gerð
ökumannsferli byrjenda. Komi
ágallar í ljós, verði nauðsyn-
legar ráðstafanir gerðar til þess
að rannsaka nánar, hvortkunn-
átta og hæfni ökumannsins sé
fullnægjandi m.a. með próftöku
og umsögn lækna eða annarra
sérfræðinga.
Um I, 3: í 12. gr. reglugerð-
ar um ökukennslu, próf öku—
manna o.fl. nr. 57, 1960, eru
þau skilyrði sett fyrir þátttöku
í námskeiði fyrir þá, er ætla
að þreyta próf bifreiðastjóra á
leigubifreiðum og 5 smálesta
vörúbifreiðum, að umsækjandi
hafi ekki á undanfömum tólf
mánuðum verið sviptur öku-
skírteini né gerzt brotlegur við
ákvæðið um neyzlu eða með-
ferð áfengra drykkja.
Nefndin telur mjög æskilegt,
að eigi fái aðrir framangreind
réttindi en þeir ökumenn, sem
sýnt haía löghlýðni gagnvart
umferðarreglum. Þykir eigi
Frá sctnjngu ráðstcfnunnar um umfcrðarmál á dögunum. Lengst til vinstri á myndinni er Jó-
hann Hafstein dómsmálaráðherra, en næstur honum situr Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóri.
mæli en verið hefur. Við þá
endurskoðun telur nefndin
mjög koma til greina að gera
ökuleyfissviptingu vegna lög-
brota að stjórnvaldsráðstöfun
í formi afturköllunar ökuskír-
teinis, er leiði af ákveðnum
brotum, sem snerta umferðar-
öryggi. Settar verði þá reglur,
er stjórnvaldi ber að fara eftir
við mat á því, hvort rétt sé að
afturkalla ökuskírteini vegna
lögbrota skírteinishafa. Ákvörð-
un stjómvalds verði byggt á
grundvelli dóma á hendur öku-
manni eða refsinga, er honum
hafa verið gerðar. Dómstólar
hafi heimild til að stytta afur-
köllunartíma eða fella aftur-
köllun niður, ef sérstakar á-
stæður mæla með því, eða hún
myndi koma óeðlilega hart nið-
ur á sökunaut, miðað við mála-
vexti. Jafnframt verði stjórn-
valdi veitt heimild til að veita
formlega aðvörun í stað aftur-
köllunar, ef um tiltekin, minni-
háttar brot er að ræða og lík-
legt má telja, að aðvörun muni
koma að fu'llu gagni.
III. Tillögur, er sncrta
rcfsingar.
1. Lagt er til, að sektir fyrir
brot á umferðarlöggjöfinni
verði stórhækkaðar frá því sem
nú er, þannig að þær verði a.
m.k. ekki lægri en tíðkast í ná-
grannalöndum vorum.
2. Lagt er til, að endurskoð-
aðar verði- reglur um framkv.
refsidóma í málum út af ölv-
un við akstur, svo og reglur um
sektarupphæðir, þegar vai'ð-
haldsrefsingu er breytt í sekt-
arrefsingu með náðun.
IV. Tillögur
greiðslu mála
Iagabrotum.
1. Lagt er ti'l,
um hraðari af-
út af umferðar-
að endurskoð-
nokkur grein fyrir bráðabirgða-
tillögum nefndarinnar.
Um I, I: Eigi fer milli mála
að reglusemi er mikilvægt skil-
yrði þess, að mönnum sé trú-
andi fyrir réttindum til að
stjórna vélknúnum ökutækjum.
Ákvæði um reglusemi þeirra er
sækja um ökuskírteini, er að
finna í 27. gr. umferðarlag-
anna. Eig_i hafa verið gefin út
fyrirmæli um það, hvaða lág-
markskröfur skuli gerðar um
það efni. Rétt þykir að leggja
til, að settar verði ákveðnar
túlkunarreglur varðandi mat á
umræddu ákvæði um reglu-
semi, þannig að samræmis gæti
í framkvæmd hvar sem er á
landinu. Þykir tímamark það,
sem miðað er við, hæfilegt tólf
mánuðir, ef hliðsjón er höfð af
prófi leigubifreiðastjóra. Víða
erlendis eru þó strangari regl-
ur í lögum um þessi efni og
er t.d. miðað við tvö ár í Sví-
þjóð, en þrjú í Noregi.
Um I, 2: Nokkrar raddireru
uppi um það, að lágmarksald-
ur bifreiðastjóra sé of lágur
hér á landi. Ekki liggja fyrir
þær tö'lfræðilegar upplýsingar,
sem unnt er að byggja þáskoð-
un á. Hins vegar má telja víst,
að æfingaskortur á fyrsta
akstursári þeirra, sem stjóma
vélknúnum ökutækjum, leiði yf-
irleitt til aukinnar hættu fyrir
umferðaröryggið. Nauðsynlegt
er því, að byrjendur gæti ýtr-
ustu varúðar. Ástæða þykir til
að vekja athygli á þeirri nauð-
syn með sérstökum ráðstöfun-
um. Er því lagt til, að byrjend-
um verði gefin út bráðabirgða-
ökuskírteini, sem gildi aðeins í
eitt ár. Má ætla, að sú ráð-
stöfun geti leitt til aukinnar
aðgæzlu af hálfu byrjendá. 1
tillögunni er gert ráð fyrir, að
sérstaklega verði fylgzt með
mega gera minni kröfu í þeim
efnum en að umsækjandi hafi
ekki á síðustu tólf mánuðum
hlotið refsingu fyrir. vítaverða
aksturshætti.
Um I, 4: Á síðari árum hefur
orðið mjög ör þróun á sviði
umferðarmála hér á landi. Hef-
ur þróunin leitt til umfangs-
mikilia breytinga á umferðar-
löggjöfinni síðasta áratuginn.
Öhjákvæmilegt mun verða að
gera frekari breytingar á lög-
unum næstu árin. Nokkur á-
stæða er til að ætla, að a'll-
margir ökumenn fylgist ekki
nægilega með þeim breytingum,
sem löggjöfinni verða. Líkur
benda og til þess, að ófullnægj-
andi þekking á umfprðarregl-
um eigi þeinan eða óbeinan^
þátt í allverulegri tölu um-
ferðarslysa. Traust þekking á
gildandi umferðarreglum • er
undirstöðuatriði öruggrar um-
ferðar. Leggja ber á það mikla
áherzlu, að ökumenn séu áva’llt
vel að sér á því sviði. Próftaka
í umferðarreglum áður en
ökuskírteini er endurnýjað, þyk-
ir líkleg leið til þess að tryggja
það, að ökumenn rifji upp
kunnáttu sína í umferðarregl-
um og fylgist með þeim breyt-
ingum og nýmælum, sem orð-
ið hafa frá fyrri próftöku.
Nefndin gerir sér grein fyrir,
að framkvæmd prófa samkv.
tillögunni er umfangsmikið
verkefni. Enn er fjöldi endur-
nýjana ökuskírteina hér á landi
þó ekki svo mikill, að próf séu
óframkvæmanleg. Á það eink-
um við, ef haft er í huga ein-
falt form skriflegra prófa, þar
sem próftaki þarf einungis að
merkja við rétt svör. Ef tillag-
an nær fram að ganga, þarf að
gefa út stuttan leiðbeininga-
bækling með upplýsingum um
allar þær reglur, sem ökumanni
er nauðsynlegt að kunna fyrir
próf.
Samkv. gildandi reglum er
gert ráð fyrir að lögreglustjóri
krefjist þess, að sá, sem sækir
um endurnýjun skírteinis, gangi
undir próf að nýju, ef meira en
tvö ár eru liðin frá því að
ökuréttindi umsækjanda féllu
niður. Nefndin leggur til, að
þessu ákvæði verði breytt þann-
ig, að umsækjandi verði lát-
inn ganga undir próf, ef meira
en eitt ár er liðið frá því að
ökuréttindi hans féllu niður.
Um I, 5: Nefndin telur nauð-
synlegt, að settar verði reglur
um læknisskoðun á þeim. er
sækja um ökuskírteini, og gef-
in verði út sérstök eyðublöð
fyrir vottorð. Engar reglur
hafa verið settar um þetta efni
og eyðublöð þau, sem nú eru
notuð eru ófullnægjandi.
Um II, 1: Samkvæmt 6. mgr.
81. gr. umferðarlaganna skal
lögreglustjóri svipta mann öku-
leyfi til bráðabirgða, ef hann
telur sökunaut hafa unnið til
ökuleyfissviptingar. Skal sú á-
kvörðun lögreglustjóra borin
undir úrskurð dómara svo fljótt
sem verða má og eigi síðar en
viku eftir sviptinguna. Ákvæði
þessi hafa reynzt mjög erfið i
framkvæmd, aðallega vegna
þess, að dómendur telja óeðli-
legt, að þeir tjái sig um við-
urlög við brotum, fyrr en öll
gögn málsins liggja fyrir, nema
mjög sérstak'lega standi á.
Með breytingu þeirri, sem til-
lagan gerir ráð fyrir, er fram-
kvæmd ákvæða um bráðabirgða-
sviptingu gerð auðveldari, án
þess að gengið sé á sjálfsagðan
rétt sökunauta til að bera á-
kvörðun stjórnvalds undir
dómara.
Um II, 2: Nefndin telur öku-
leyfissviptingu eitt hið allra
mikilvægasta tæki til réttar-
vörzlu í umferðarmálum og
einna líklegustu ráðstöfun til
þess að varna alvarlegum um-
ferðarlagabrotum. Af þeim á-
stæðum telur nefndin að beita
beri ökuleyfissviptingu í til
muna ríkari mæli, en gert hef-
ur verið til þessa.
Vegna ört vaxandi málafjölda
mun eigi verða hjá þvi komizt
að breyta ákvæðum laga um
ökuleyfissviptingu þannig, að
beita megi þeim án langvar-
andi málareksturs. í tillögum
nefndarinnar er bent á nýjar
leiðir í þessum efnum, að for-
dæmi ýmissa nágrannalanda
vorra. Eru reglur þar nokkuð
mismunandi, en víðast hvar er
svipting ökuréttinda og aftur-
köllun skírteinis stjórnvalds-
ráðstöfun.
Samkv. norskri, löggjöf er
það á starfssviði lögreglustjóra
að kveða upp úrskurð um aft-
urköllun ökuskírteinis, ef skír-
teinishafi hefur verið dæmdur
fyrir refsiverðan verknað og
nauðsynlegt þykir, vegna um-
ferðaröbyggis eða annarrahags-
muna almennings.
1 Svíþjóð er svipting ökurétt-
inda og afturköllun ökuskír-
teina stjórnvaldsráðstöfun með
svipuðum hætti eins og í Nor-
egi. Samkvæmt sænskri löggjöf
gefur héraðsstjórn út ökuskír-
teini og sami aðili hefur vald
til að afturkalla útgefið öku-
skírteini um tiltekinn tíma éða
fyrir fu'llt og a]lt. Svipaðar
reglur gilda i ýmsum öðrum
löndum Evrópu og í Bandaríkj-
um Norður-Ameríku.
1 Bretlandi vora sett ný um-
ferðarlög á árinu 1962, en nýj-
ar reglur um sviptingu ökurétt-
inda tóku gildi þar í landi 29.
maí 1963. Eru þar gerðar mjög
róttækar breytingar frá fyrri
reglum og er lögð áherzla á
mikilvægi ökuleyfissviptinga til
að halda uppi góðri reglu í
umferðarmálum. Meginreglan
er sú í Bretlandi, að dómstólar
ákveða ökuleyfissviptingu, en
þeim era settar mjög ákveðnar
starfsreglur í þeim efnum.
Hér er um mikilsvert mál
að ræða og leggur nefndin til,
að lagaákvæði um ökuleyfis-
sviptingu verði tekin til gagn-
gerðrar endurskoðunar.
Um III, 1: Miðað við að-
stæður hér á landi og eðli máls-
ins, hljóta sektir að vera aða'l-
refsing fyrir umferðarlagabrot
Á miklu veltur, að upphæðir
sekta séu í samræmi við verð-
gildi peninga og hæfilega háar
til þess að hafa tilætluð varn-
aráhrif. Vitað er, að núverandi
sektaru pph æðir eru allmiklu
lægri en áður tíðkaðist, miðað
við verðgildi peninga svo og
að þær eru margfalt lægri en
sektir fyrir samsvarandi brot í
nágrannalöndunum. Leggur
nefndin til, að þessu verði breytt
• hið fyrsta.
Um III, 2: ölvun við akstur
er eitt allra alvarlegasta brot
gegn umferðaröryggi. Þráttfyr-
ir mikla vamarvörzlu, hefur
geigvænleg aukning orðið á
tölu þeirra manna, sem, akai
með áfengisáhrifum. Orkar eigi
tvímælis, að leita beri allra
ráða til að fyrirbyggja það brot.
Réttindasvipting er þar vafa-
laust mikilsvert tæki, sem æski-
legt er, að beitt verði án óeðli-
legrar tafár, en um það er m.
a. fjallað í tillögu nefndarinn-
ar í tölulið II. Ennfremur er
framkvæmd refsidóma mikil-
vægt atriði.
Upplýst er, að eigi hefir verið
unnt að fullnægja varðhalds-
dómum þeim, er upp hafa ver-
ið kveðnir út af ölvunarbrotufn
við akstur. Hefur þeim mörg
undanfarin ár verið breytt í
sektir.
Lagt er til, að mál þessi
verði tekin til sérstakrar at-
hugunar og að sektir í sam-
bandi við náðanir verði lækk-
aðar til miki'Ila muna, að
framkvæmdareglunni óbreyttri.
Um IV, 1: Hinn mikli fjöldi
umferðarlagabrota undanfarin
ár, hefur í vaxandi mæliíþyngt
dómstólum landsins. Þetta hef-
ur í mörgum tilvikum leitt til
Framhald á 9. síðu.
A.