Þjóðviljinn - 06.02.1966, Page 10

Þjóðviljinn - 06.02.1966, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Suitrmdagur 6. febrúar 1966. STORM JAMESON: bLinda HJARTA að og meira en móðurlegar til- finningar til hans, ha? — Þér gangið fram af mér, sagði dómarinn rólega. — Hamingjan sanna, þér þekkið ekki karla og konur. Allra hversdagslegasta fólk, hið göfugasta og siðavandasta á sin- ar stundir. Stundir — hvað skal segja? — sjálfstortímingar. — Ég á erfitt með að trúa því — byrjaði dómarinn. Hann þagnaði um leið og dymar opnuðust. Einkaritari hans kom inn til að skýra frá því að Michalhjónin vaeru í bið- stofunni. — Gerið svo vel að vísa þeim inn. Hann stóð upp um leið og þau komu inn, þótt hann rétti ekki fram höndina. — Gerið svo vel að fá yður sæti, frá Miehal. Þið verðið að afsaka að við skulum ómaka ykkur hingað, en .... Lotta Horfði á hann án þess að brosa. Hún hafði farðað sig meira en venja hennar var; stór munnurinn var litaður með dökkum og þykkum lit. Hár hennar, sem hún hafði burstað fram á ennið. næstum niður að augum og aftur með eyrunum, glóði eins og bráðin tjara. — Að sjálfsögðu. — Setjizt líka, monsieur Mic- hal, sagði dómarinn og settist við borð sitt. Gaude hafði látið sér nægja að hneigja höfuðið í átt til Lottu. Hann hagræddi sér mak- indalega í stólnum og leit á monsieur Garuche. | — Viljið þér spyrja einhverra spuminga? — Nei, nei, sagði dómarinn og Hárgreiðslan HárgreiSslu- og snyrtistofa Steinu og Dód6 Laugavegi 18 III hæð (lyfta) SIMI 24-6-16 P E R M A Hárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21 SÍMI 33-968 DÖMUR Hárgreiðsla við allra hæfi TJARNARSTOFAN Tjarnargötu 10 Vonarstræt- ismegtn — Simi 14-6-62 Hároreiðslustofa Austurhæiar María Guðmundsdóttir. Laugavegi 13 Sími 14-6-58 Nuddstofán er á sama stað brosti ögn við. Ég læt yður um það. — Monsieur Michal, byrjaði Gaude með alúðlegri kurteisd. Hann rifjaði upp með Michal þegar hann hafði hirt upp af götu sinni og tekið að sér lítið bam, sem virtist hafa verið skilið þar eftir í reiðuieysi og það sem gerzt hafði í stórum dráttum þar til hann kom frá Nice með fimm miljónir í lán- aðri ferðatösku. — Þegar þér fóruð til Nice þennan morgun í marz, höfðuð þér ekki í hyggju að koma heim með fulla tösku af peningum? — Nei, auðvitað ekki, sagði Michal þungum rómi. Hann var ekkert hrifinn af þVí. að láta minna sig á þessa glópsku og hann yggldi sig framaní lög- reglustjórann. — Og þér sögðuð engum — nema auðvitað konunni yðar — að þér væruð með þessa pen- inga? — Engum. Ég var búinn að segja yður það. — Og þér eruð alveg vissir um það? Engum í þorpinu og alls engum nema Jouassaint lögfræðingi í Nice? — Auðvitað er ég viss um það. Ég er fífl en ekki kjaftandi fifl. — Það er ég sem er kjaftandi fífl, sagði Gaude vingjamlega. Hann spurði fleiri spuminga, sem hann hafði flestar borið fram áður í einni eða annarri mynd. Síðan lækkaði hann rödd- ina og gerðist dimmraddaðri. — Þér hafið ef til vili fyrr haft ástæðu til að kvarta svo- lítið undan synl yðar — við köllum hann son yðar, það er einfaldara — áður en hann tók upp á að hlaupast að heiman? Drengir eru nú einu sinni drengir, ha? — Aldrei, sagði Michal. örvæntingin og léiðinn sem sagntóku hann minntu mest á líkamlegan sársauka. Hann greip um armana á stólnum. Jahá. I stuttu máli — þér þekktuð hann ekki eins vel og þér gerðuð yður í hugarlund. Ekki eins vel og konan yðar þekkti hann. Án þass að líta á Lottu hristi Michal höfuðið, vatt því til og frá til að liðka hálsvöðvana. Hann sagði ekkert. — Hver skyldi svo sem þekkja böm, sagði Gaude angurvær. Hann var bamlaus. Hann sneri sér að Lottu: Segið mér hvenær yður fór að gruna að pilturinn, s'onur yðar — hann lagði á- herzlu á orðið — lifði dálítið vafasömu líferni fyrir utan hót- elið og þorpið. — Aldrei, sagði Lotta þurrlega Hún hnyklaði brýmar og rétti úr sér í stólnum. Þetta var ef til v® stundin sem bón hafði beð- ið efiárj þegar hættulega villi- dýrið sem sat andspænis þeim, myndi snúa sér frá Michal til að ógna henni. — Jæja. Já, við komum að því eftir andartak. Fyrst ætla ég að lesa fyrir ykkur uppúr skýrslunni, sem Philippe gaf, þegar hann kom hingað eftir ránið. . . Fáið mér skjölin, sagði hann hranalega. Hann þreif þau af ritaranum án þess að þakka fyrir og las upp frásögnina af því hvað Philippe hefði sagt, þegar hann var spurður hvenær hann hefði fengið að vita að peningarnir væru í skápnum: Á þriðjudaginn — og útskýrði síð- an nánar hvers vegna að hann myndi að það var á þriðjudag en ekki neinn annan dag. — Þama sjáið þið, sagði Gaude. Hann var alveg öruggur og hreinskilinn. Af hverju hald- ið þér fast við að hann hafi fiarið dagavillt? Lotta leit á hann og brosti hæðnislega: — Það er auðséð, að þér eruð staðráðin í að sanna að ég sé að ljúga. * 30 — Svona, svona, frú Michal. Hvers vegna skylduð þér Ijúga? Misminni — yður gæti hafa mis- minnt. Og svo er enn eitt. Þér sögðuzt muna greinilega, að allt þetba kvöld hefði Philippe ekki farið útúr eldhúsinu og hefði þvi alls ekki séð ungu mennina sem komu til kvöldverðar og báðu um næturgistingu. En Theresa gamla er líka alveg viss um að hann hafi farið úr eld- húsinu í fimm mínútur að minnsta kosti, og hana minnir að hann hafi farið upp stigann og staðið þar og horft inn í veitingasalinn, þar sem menn- imir sátu að drykkju. En þér hafið ef til vill snúið í hann bakinu allan þann tíma? Ha? — Theresa er gömul kona. — Og hann Philippe yðar er mjög ungur maður. En þau hafa mjög slæmt minni. Svipur hans var bæði ísmeygilegur og vin- gjamlegur. Þér eruð göfug móð- ir, madame Michal, þér verjið afkvæmi yðar áður en ráðizt er á þau. Blóðið þaut fram í dökkleita vangana á Lottu, roðaði kinn- beinin og ennið. Hún hnyklaði dökkar, þykkar brúnimar og starði á kvalara sinn eins og hún hefði getað horft á skor- kvikindi við fætur sér. Michal þekkti einkennin, hún var að ‘missa stjóm á sér og gæti sagt hvað sem var. — Og þótt svo væri? sagði hún dimmrödduð. — Að verja of fljótt getur verið eins slæmt og að verja aUs ekki, sagði Gaude og brosti enn. Þér vitið það, að þetta er misskilningur. — Nújæja, þér skuluð ráða, sagði hún ofsalega. Það var á þriðjudag, miðvikudag, fimmtu- dag, föstudag — ég man það ekki. Þér getið valið þann dag- inn sem hentar bezt fyrir hinn sauruga hugsunarhátt yðar. Ungi rannsóknardómarinn hallaði sér fram á borðið. Rödd hans var hálfvandræðaleg. Frú Michal, það er ekki tilgangurinn að fá yður til að segja eitthvað sem þér meinið ekki. Eruð þér alveg vissar um, að þér munið ekki hvaða dag vikunnar það var sem — Lotta greip fram í fyrir hon- um. Já ég man það ekki. — Hvers vegna sögðuð þér .. ? — Vegna þess að ég vissi að þér, monsieur Gaude,. mynduð reyna að leggja fyrir hann gildru. — Og þar sem þér vissuð að hann var saklaus — að minnsta kosti saklaus um þjófnað, sagði Gaude, þá hélduð þér að hann gengi örugglega í gildru sem slæmur maður legði fyrir hann. Sakleysi, vamarlaust sakleysi, ha? Aristide Michal gat með engu móti setið kyrr lengur. Hann sagði: — Þér mættuð þó minnast þess, að þorpararnir sem yður hefur ekki ennþá tekizt að finna, meðhöndluðu konuna mína þannig að það væri ekki óeðlilegt þótt hún ruglaðist eitt- hvað í ríminu. 1 hjarta sínu trúði hann þessu ekki, en honum var dálítill léttir að því að ergja Gaude. — Þegið þér, sagði Gaude hranalega. Hann sneri sér aftur að Lottu. Eruð þér enn vissar um að hann hafi ekki komið upp til að virða fyrir sér menn- ina tvo? Það er ekki enn einn misskilningurinn ? Hún hafði aftur náð stjóm á sér. Ég er alveg viss um það, sagði hún lágt og kuldalega. Theresa stígur ekki í vitið og hún myndi gleyma sinni eigin jarðarför — og eflaust hafð þér gert hana hrædda. Pilturinn kom ekki nálægt þessum þjófn- aði. Svo bætti hún við eins og til að sýnast sanngjörn: í versta falli hefði hann getað minnzt á peningana við einhvem í Nice eða Marseilles ef hann hefði vit- að um þá í tíma. En það er ekki sennilegt. Hann er enginn auli. — Ég er ekki viss um að hann sé auli, sagði Gaude og var mjög þórður sjóari SKOTTA — Vú kannt nú alls ekki að leika tennis, en þú ert svaka töff í stuttbuxum. BYGGINGA VÖRUR ★ Asbest-plötur ★ Hör-plötur ★ Harðtex ★ Trétex ★ Gips þifplötur ★ Wellit-einangrunarplötur ★ Alu-kraft aluminpappír til húsa-einangrunar ★ Þakpappi# tjöru og asfait ★ Icopal þakpappi ^ Rúðugler MARS TRADING CO. H.F. KLAPPARSTfG 20 SÍMI 17373 Gamier hórfði í att til strandar og hann segir Þórði í trúnaði að áhugi hans á velferð Hassans sé einnig af einkaástæð- um. Hann er að vísu Frakki sjálfur, en kona hans er af göfugri arabískri ætt, og Magdalena, dóttir hans, er trúlofuð Hannan prinsi. „Framtíð Hassans er einnig framtíð t dóttur minnar. Ég hef þvi tvöfalda ástæðu tii að láta mér annt um hann.“ Þá heyrðist allt í einu hrópað frá verðinum í mastrinu: ,,Reykmerki á ströndinni!‘‘ Auglýsið í Þjóðviljanum I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.