Þjóðviljinn - 16.03.1966, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Miðvikudagur 16. marz 1966.
FUNDUR UM OKUR
OG MEIÐYRÐAMÁL
Æskulýðsfylkingin, ÆFR og Félag róttækra
stúdenta gengust fyrir fundi í Tjarnargötu 20 á
sunnudagskvöldið um meiðyrðamál Lárusar Jó-
hannessonar gegn ábyrgðarmönnum Frjálsrar
þjóðar og aðdraganda málsins.
En í undirrétti var Einar Bragi dæmdur í hæstu
sektir sem hérlendis hafa verið dæmdar og lík-
lega hæstu sektir sem dæmdar hafa verið í meið-
yrðamáli á Norðurlöndum.
Fundurinn var fjölsóttur og eftir nokkrar um-
ræður og svör við mörgum fyrirspurnum þótti
málið ligja Ijóst fyrir.
Haraldur Henrýsson lögfræð-
ingur flutti erindi um málið og
rakti fyrst aödraganda þess:
Síðla sumars 1963 kærði Ágúst
Sigurðsson verkamaður í
Reykjavík. Jóhannes Lárusson
lögmann fyrir að hafa haft af
sér fé í lánaviðskiptum á refsi-
verðan hátt og jafnframt kærði
hann Búnaðarbanka Islands
fyrir að hafa verið hjálpartæki
lögmannsins við hina meintu
féflettingu.
Jafnframt því sem kæra
\/WVVWWVWWWWWWVWVVVWVVWWWWWVVVWVVWVWVWWWVVWWWWWWWWWV
Með
silkihanzka
Það var mjög fróðlegt —
• og ekki laust við að vera
dálítið kímilegt — að líta inn
í móttöku Alþýðusambands
íslands í Lindarbæ á laugar-
daginn var í tilefni af hálfr-
ar aldar afmæli samtakanna.
Til þeirrar ágætu dúfnaveizlu
voru mættir ýmsir þeir menn
sem um langt skeið hafa bar-
izt hvað harðast gegn verk-
lýðssamtökum á íslandi og
farið um þau grimmilegustum
orðum, eins og marka mátti
af myndum beim sem birtar
voru hér í blaðinu í gær.
Atvinnurekendur voru að bessu
sinni ekki mættir f hópum
til þess að hremma Hannibai
Valdimarsson með ofbeldi og
flytja hann nauðugan á brott.
heldur kváðust þeir nú vera
himinlifandi yfir því að þeim
hefði ekki tekizt að brjóta
verklýðshreyfinguna á bak
aftur eins og reynt var ára-
tugum saman. Forustumenn
Sjálfstæðisflokksins — þeirra
á meðal allir ráðherrar hans
og borgarstjórinn í Reykjavík
— voru ekki komnir til þess
að bera forustumenn albýðu-
samtakanna þeim sökum að
þeir væru skemmdarafl í þjóð-
félaginu, græfu undan at-
vinnulífi og heilbrigðu efna-
hagskerfi, væru handbendi
alþjóðlegra ofbeldisafla eða
hafa uppi annan þann munn-
söfnuð sem fvllt hefur mál-
gögn Sjálfstæðisflokksins ára-
tugum saman; nú var mælt
til vináttu af fágaðri kurt-
eisi. Ýmsir forustumenn Al-
þýðuflokksins. sem undan-
fama daga hafa verið sér-
staklega iðnir við að hrak-
yrða hinn róttækari arm verk-
lýðshreyfingarinnar, voru engu
að síður mættir þarna mildir
og brosandi Víst var þetta
sönn dúfnaveizla, einnig f
þeim skilningi að gestgjafinn
var fjarstaddur við vinnu
sína.
Engu að síður var þetta
táknrænn atburður sem sönn-
un bess hvert vald alþýðu-
samtökin eru orðin f iandinu
En þótt máttarstólpar þjóðfé-
lagsins hafi komið og lotið
valdinu skyldi enginn ætla að
þeir hafi breytt um afstöðu
— hin raunverulegu viðhorf
birtast daglega í stefnu ríkis-
stjórnarinnar og munu án efa
koma enn glögglegar í ljós
þegar líður að næstu kjara-
samningum. En auðvitað má
reyna hvort ekki er unnt að
ná árangri með silkihönzkum,
þótt valdhafarnir ættu raun-
ar að vita að sú flík er ekki
í notkun meðal verkafólks á
Islandi.
Leiðin
okkar allra
Tíminn greinir frá því í
gær að Helgi Bergs, ritari
Framsóknarflokksins, hafi
flutt ávarp er aðalfundi mið-
stjórnar flokksins lauk á
sunnudagskvöldið var. Dreg-
ur Tíminn efni ávarpsins
réttilega saman í eina setn-
ingu og notar hana í fvrir-
sögn: ,,Aðeins ein leið til —
það er hin leiðin". Er þetta
næsta óvænt kjörorð, og væri
fróðlegt ef sá ágæti verk-
fræðingur Helgi Bergs vildi
gefa á því raunvísindalega
skýringu hvernig unnt er að
tala um hina leiðina ef að-
eins er ein leið til.
En að sjálfsögðu á stefna
Framsóknarflokksins ekkert
skylt við raunvísindi, heldur
ber hún í sívaxandi mæli
keim af guðfræði. Þegar rit-
ari Framsóknarflokksins not-
ar þá samlfkingu um vegferð
manna hér á jarðrfki að að-
eins sé til ein leið. hlýtur
hann að eiga • við ..leiðina
okkar allra“. þá leið sem
oddviti ungra Framsóknar-
manna benti á fyrir skemmstu
er hann gerði útfararsálminn
„Kallið er komið“ að bar-
áttulióði flokksins. Hins vegar
er flokksritarinn auðsjáanlega
meiri fagurkeri í sálmasmekk
sínum; hann hefur greinilega
í huga sjálfan Hallgrím Pét-
ursson: „Lffið manns hratt
fram hlevnur./hafandi öngva
bið,/í dauðans grimmar grein-
ur,/— gröfin tekur þar við.7
allrar veraldar vegur Tvfkur
að sama punkt./fetar bann fús
sem tregur.'/hvort fellur létt
eða þungt“. — Austri.
þessi var send til Sakadóms
Reykjavíkur var hún send
Frjálsri þjóð með ósk um birt-
ingu. Blaðið taldi að birting
kænunnar gæti orði til þess að
eitthvað raunhæft yrði gert í
okurmálum, en sem kunnugt er
hefur slík starfsemi vaxið með
hverju ári, en ákæru- og dóms-
vald virtust algerlega hafa
lokað augunum.
Auk þess var þetta mál ekki
einungis einfalt okurlánamál
heldur var hér einnig um að
ræða ætlaða misnotkun eins
ríkisbankans í sambandi við
slíka starfsemi og jafnvel á-
stæða til að ætla að um sam-
vinnu gæti verið að ræða.
Afgreiðsla þessa máls Ágúst-
ar gegn Jóhannesi Lárussyni
varð sú að ákveðið var að
fella niður málið þar sem full-
yrðing stæði gegn fullyrðingu,
því auðvitað hafði Jóhannes
Lárusson neitað því að hafa
fengizt við okurstarfsemi.
Taldi Haraldur að þessi af-
greiðsla hefði verið mjög hæp-
inn og sagði m.a.: „Það getur
tæplega talizt í anda lýðræðis-
legs réttarfars að ákæruvaldið
stöðvi rannsókn mála, án þess
þau hafi verið upplýst að
nokkru ráði og fjölda spum-
inga ósvarað".
Lárus
Þegar málin voru komin á
þetta stig. þ.e. frekari rannsókn
hindruð, fer Lárus Jóhannes-
son, hæstaréttardómari á stjá.
Stéfndí hánn þlaðinu fyrir
meiðyrði óg munu kröfur hans
nú í átta málum skipta miljón-
Utn... Lánis. Jóhannes&on byggir
kröfur sínar á hví, að Frjáls
þjóð hafi brotið meiðyrðaá-
kvæði 25. kafla almennra
hegningarlaga með því að
leggja sig í einelti með sví-
virðilegum aðdróttunum. Hina
háu bótakröfu byggir hann á
því, að hér sé ekki ráðizt á
neinn venjulegan mann, held-
ur dómara við æðsta dómstól
landsins.
Af hálfu Frjálsrar þjóðar
hefur verið lögð á það áherzla
að ekkert af því, er blaðið hélt
fram í málum þessum, hafi
verið hrakið enda þótt í ýms-
um tilfellum skorti réttarfars-
legar sannanir. sem stafi þó
fyrst og fremst af linkind á-
kæru- og dómsvalds.
Þá skrifuðu ábyrgðarmenn
blaðsins dómsmálaráðherra í
nóvember 1964 og fóru fram á
það, að opinber framhaldsrann-
sókn yrði gerði í kærumáli
Ágústar Sigurðssonar. Bréfi
þessu fylgdu ný gögn. en það
var listi yfir nöfn fólks, er
hafði orðið fyrir svipaðri reynslu
og Ágúst Sigurðsson og tiáði sig
fúst að koma fvrir rétt sem
vitni ef þess yrði óskað. Jafn-
framt fylgdi skýrsla eins þess-
ara aðila um viðskipti sín við
þá feðga Jóhannes og Lárus.
Þagnarmúr
Eini árangur þessa bréfs til
dómsmálaráðherra var sá,- að
Lárus Jóhannesson sendi þeim
aðila, er hafði gefið fyrrgreinda
skýrslu, bréf sem nánast mætti
kalla hótunarbréf. Var ekki
um annað að ræða en hann
hefði séð hana hjá ráðherra,
sem þannig hafði brotið trún-
að við ábyrgðarmenn blaðsins
og skýrslugjafann en auk þess
þverbrotið reglur um rannsókn
opinberra mála með því að
hefja meðferð málsins með því
að sýna kærðum kæruna utan
réttar. áður en hann yrði sjálf-
ur spurður sjálfstætt um máls-
atvik. Var kröfu ábyrgðar-
manna og gögnum algerlega
stungið undir stól.
Þá töldu ákærendur mjög
mikilvægt að í málaferlum
þessum kæmi allt fram um við-
skipti þeirra feðga við Búnað-
arbankann og stefnu því til
sem vitnum ýmsum starfs-
mönnum hans á umræddu
tímabili.
Reis þá upp annar þagnar-
múr: Hæstiréttur úrskurðaði,
að bankamenn mættu ekki
bera vitni um málefni banka
síns án leyfis ráðherra og
jíegar að ráðherra kom neitaði
har,n.
Ovefengjanlegt
Að lokum dró Haraldur Hen-
rýsson saman þau atriði máls-
ins sem óvefengjanleg eru:
1. Það er óvefengjanlegt að
Ágúst Sigurðsson kærir Jó-
hannes Lárusson fyrir að hafa
haft af sér stórfé á refsiverðan
hátt. Sekt hins kærða er ekki
réttarfarslega sönnuð og koma
bar fyrst oe fremst til slæ-
leg vinnubrögð ákæru- og
dómsvalds. Fjöldi fólks veit um
hessa refsiverðu starfsemi
kærða og margir eru fúsir að
bera um hana fyrir rétti.
2. Það Iiggur fyrir sannað, að
Búnaðarbankinn kcypti víxil
hann, er um ræðir í máli
Agústs Sigurðssonar og aðra
víxla áður af Jóhannesi Lár-
ussyni á útgáfudegi og útveg-
aði honum, eða réttara sagt
gaf honum þannig fé til hinnar
ætluðu refsiverðu starfsemi.
3. Það Iiggur einnig sannað,
að Lárus Jóhannesson hæsta-
réttardómari er milligöngumað-
ur bankans og sonar síns Jó-
hannesar f þessum víxlavið-
skiptum og sá er færir Jó-
hannesi peningana.
Haraldur lauk máli sínu með
því að ræða nokkuð um meið-
yrðaákvæði láganna.
Ný gögn
Næstur tók til máls Einar
Bragi og skýrði hann frá því
að sektir sem hann hefði þeg-
ar verið dæmdur í mundu nema
um 125 þús. króna með vöxt-
um, þá hefðu ábyrgðarmenn
Frjálsrar þjóðar þegar greitt
málflytjanda sínum 50 þúsund
uppí laun og ekki mundi kostn-
aður við áfrýjunina eina til
Hæstaréttar nema minnu en 25
þúsundum. Væri því kostnaður
þeirra ábyrgðarmanna þegar
kominn upp í 200 þúsund, þó
þetta væri aðeins fyrsta mál
af 8.
Hann skýrði frá því að helztu
erfiðleikar ábyrgðarmanna í
þessum málaferlum stöfuðu af
því að fólk sem tekið hefði ok-
urlán væri af mismunandi á-
stæðum ófúst að bera vitni,
ýmsir væru hræddir og teldu
það geta haft slæm áhrif á
lánamöguleika sína jafnvel i
ríkisbönkum. Hann hefði samt
undir höndum skýrslur nokk-
urra aðila um okurlán og
mundi hann leggja þær fram
í réttinum er hér væri komið,
þó hann hefði hlífzt við því
hingað til.
Þá rakti Einar Bragi dæmi
um fésýslu þeirra aðila, sem
Framhald á 7. síðu.
Hagtrygging kf.
vill ráða eftirfarandi starfsfólk:
Aðstoðarmann í tjónadeild, þarf að hafa
þekkingu á bílaviðgerðum (boddyviðgerð).
Stúlku við IBM skýrsluvélar.
Skrifstofumann í söludeild.
Eiginhandarumsókn með upplýsingum um
menntun og fyrri störf, óskast send skrif-
stofu félagsins fyrir 25. þ.m.
HAGTRYGGING H.F.
Bolholti 4
Staða matráðskonu
við Fæðingarheimili Reykjavíkurborgar er laus
til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningi op-
inberra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf, sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavikur, Heilsu-
vemdarstöðinni Reykjavík, fyrir 25. þ.m.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
BAÐKER
Vestur-þýzk baðker á aðeins kr. 3.495,00. Trygg-
ið yður baðker á þessu hagstæða verði.
BURSTAFELL ■*
Byggingavöruverzlun,
Réttarholtsvegi 3.-Sími 38840. **•
LÖGTQK
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunn-
ar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, upp-
kveðnum 15. þ.m. verða lögtök látin fram fara til
tryggingar ógreiddum fasteignasköttum og bruna-
bótaiðgjöldum, samkvæmt II. kafla laga nr. 51/1964
um tekjustofna sveitarfélaga. en gjalddagi þeirra
var 15. fjanúar s.l.
Lögtökin fyrir framangreindum gjöldum, ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði, verða látin fram fara
að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýs-
ingar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess
tíma.
Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 15. marz 1966.
Kr. Kristjánsson.
S A L T
CEREBOS
í HANDHÆGU BLÁU DÓSUNUM
HEIMSÞEKKT GÆÐAVARA
Messrs. Kristján Ó Skagfjörð Limit
Post Box 411. Reykjavik. Iceland