Þjóðviljinn - 07.04.1966, Blaðsíða 6
g SlÐA — ÞJÓÐVTLJXNN — Fimmtudagur 7. apríl 1966.
Páskamyndir kvikmyndahúsa
Michele Morgan og Jean-Claude Brialy í Þrjú sannindi.
Hafnarfjarðarbíó:
Þrjú sannindi
Hafnarfjarðarbíó sýnir spenn-
andi franska sakamálamynd
með úrvals leikurum í aðal-
hlutverkum, Michéle Morgan
og Jean-Claude Brialy — einnig
kemur Catherine Spaak við
sögu.
Myndin heitir Þrjú sannindi
og er efni hennar í stuttu máli.
að tvær konur, móðir og dóttir,
leggja ást á sama mann, sem
að lokum giftist dótturinni.
Loftið er þrungið afbrýðissemi
og spennu sem að lokum nær
hámarki og dóttirin finnst dag
einn skotin til bana. Hefur hún
Bæjarbíó:
Dr. Sibelius,
kvennalæknirinn
Lex Barker og Senta Berger.
Læknirinn með eiginkonunni...
----- og með vinkonunni. Lex
Barker og Barbara Rúttjng.
Laeknarómantík blómstrar að
þessu sinni í Bæjarbíói í Hafn-
arfirði í myndinni Kvenna-
læknirinn, sem þar verður
byrjað að sýna um páskana.
Myndin er þýzk. en það er
bandaríski leikarinn Lex Bark-
er sem leikur lækninn, dr. Si-
belius, sem allar konur dá
eins og vant er í slíkum róm-
önum. Hann á fallega eigin-
konUi en afbrýðisemi hennar er
hvað eftir annað nærri búin
að eyðileggja hjónaband þeirra.
Tvær aðrar konur koma mikið
við sögu, æskuvinkona læknis-
ins. sem gengur með banvæn-
an sjúkdóm og systir hennar.
Gengur þarna á ýmsu vegna
» afbrýðisemi eiginkPnunnar, en
úr öllu virðist rætast að lok-
um.
verið myirt eða er hér um sjálfs
morð að ræða? Ef það er morð,
hver er þá morðinginnn, af-
brýðissöm móðirin eða ofsa-
fenginn eiginmaðurinn?
Aðilamir gefa hver á sinn
hátt skýrslu um rás atburð-
anna. (Minnir á japönsku
myndjna Rashomon!). Þrjú
sannindi — þnr möguleikar.
Laugarásbíó:
Rómarför frú
Stone
Páskamynd Laugarásbiós er
alvarlegra eðlis en sumar hinna
páskamyndannna og fjallar um
vinsæli kjaftasöguefni: ásta-
samband eldri efnaðrar konu
og ungs fátæks, en laglegs
pilts. Aðalhlutverkin í þessari
mynd eru í höndum mjög
færra leikkvenna eins og Vivi-
en Xöeigh og Iyotté Lenya, þá
mætti nefna leikarana Warrén
Beatty og Jill St,. John af
yngri kynslóðinni. Myndin heit-
ir Rómarför frú Stone og er
sniðin eftir samnefndri sögu
Tenessee Williams.
Bandarísk leikkona leggur af
stað til Rómarborgar með
manni sínum. en hann deyr á
leiðinni. Á'kveður hún þá að
draga sig frá öllum skarkala
heimsins og lifa í einvera ró-
legu og afskiptalausu lífi.
En brátt fer leikkonunni, sem
Vivien Leigh leikur. að leiðast
einveran og þar kemur, að
greifynja nokkur vinkona
hennar, leikin af Lotte Lenya,
kynnir hana fyrir ungum og
föngulegum manni' Á hann
síðan ef til kemur ag hafa fé
af leikkonunni fyrir þjónustu
sína og greiða greifafrúnni
hluta af tekjunum. en að sjálf-
sögðu veit leikktman ekkert um
þetta ráöabrugg.
Þótt leikkonan fyrrverandi sé
treg í fyrstu, stenzt hún er frá
líður ekki æskuþokka 'unga
mannsins (Warren Beaty) og
gerist ástmær hans. En hann
stendur, þegar til kemur, ekki
við samning sinn við greifa-
frúna og tekur hún því til
sinna ráða og spi’Hir á milli
þeirra með því að kynna hann
annarri leikkonu, yngri, sem
einnig á peninga ...
Endirinn er óvæntur.
Gamla bíó:
Einkalíf
leikkonunnar
Brigitte Bardot hefur verið
ein helzta dollaratekjulind
Frakka síðan Vadim þáverandi
eiginmaður hennar afklæddi
hana í myndinni „Og guð
skaþaði konuna" fyrir einum
áratug eða svo. Um fyrirbærið
BB hafa verið skrifaðar heilar
bækur, um hið sérstæða sam-
Wand kynþokka líkamans og
biamslegraT einfeldnj andlits-
ins og um mögnuð áhrif þess
á útlit vissra aldursflokka
kvenþjóðarinnar víða um heim.
Það var því nærtæk hugmynd
að gera kvikmynd um sjálft
fyrirbærið og feril þess. Það er
sú mynd sem Gamla bíó sýnir
um helgina. „Einkalíf leikkon-
unnar“. ,,Hún gerist tízkusýn-
ingarstúlka bg síðan ljós-
myndafyrirsæta. Það leiðir til
þess að henni er boðið smá-
hlutverk í kvikmynd. Enda
þótt hún hafi engan áhuga á
kvikmyndaleik, vekur hún
mikla athygli á því sviði, og
áður en hún veit af er hún
orðin stjarna og mjög eftirsótt.
.... Hún verður fyrirmyndin,
sem allar stúlkur reyna að líkj-
ast, hvað fas og klæðaburð
snertir“, eins og seg;r í leik-
skránni. Myndina gerði Louis
Malle, hinn víkunni höfundur
„Lcs Amants“, en þótti reynd-
ar ekki vaxa mikið af henni.
Allt um það mun marga sjálf-
sagt fýsa að sjá BB enn einu
sinni. Og ekki spillir það fyrir
að mótleikari hennar er Mar-
cello Mastroianni.
Brigitte Bardot
Tónabíó:
Tom Jones
Af þeim myndum sem sýnd-
ar verða um páskana hér í
grennd verður að líkindum
mestur veigur í „Tom Jones“,
sem Tónabíó hefur orðið sér
úti um.
Kvikmynd þe.ssi er byggð á
snilldarverki eins af feðrum
skáldsögunnar, Henry Field-
ings, sem vár 18.a!darmaðurpg
hefur lýst ágæta vel í þessari
endalausu sögu sinni því káta
Englandi löngu fyrir daga
Viktóríu drottningar, en þá
mótíif ag í heiminn er kom-
inn ungur sveinn og efnilegur
sem enginn veit foreldra að, og
síðan verður ættemið uppvíst á
örlagastund undir lokin, þá er
þar með enginn sannleikur
sagður um söguna og Tom Jon-
es.
Einhver efnilegasti kvik-
myndamaður Bretlands, Tony
Richardson hefur gert .þessa
mynd og verið verðlaunaður
fyrir og með aðalhlutverkið fer
•„.ungur og reiður“ leikari Al-
bert Finney. Og John Osbome
er sá sem hefur gert kvik-
myndahandritið — við munum
eftir þeim náunga fyrir sakjr
leikritsins ..Horfðu reiður um
öxl“.
Nýja bíó:
Sumarfrí á Spáni
Páskamynd Nýja bíós heitir
Sumarfrí á Spáni t>g fjallar um
ástir og ævintýri þriggja u.ngra
stúlkna. Þetta er létt mynd og
fjörug og gerist í Madrid, en
persónur em flestar bandarísk-
ar. Óþarfi er að rekja efnið,
en óhætt að segja, að stúlkum-
ar þrjár og félagar þeirra lenda
í ýmsum vandræðum og ásta-
flækjum, en allt fer þó vel að
lökum eins og venja er til í
skemmtimyndum og þegar
hverri. stúlku hefur tekizt. að
ná í réttan mann, hverfa pörin
þrjú af sviðinu, hamingjusöm
í leit sinni að glaum og
gleði...
Af þekktum leikurum í þess-
ari mýnd mætti nefna Carol
Lynley og Gene Tiemey,
Háskólabíó:
Sirkussöngvarinn
Þótt Elvis Presley verði ó-
neitanlega að láta í minni pok-
ann fyrir B\tlunum, Rollingun-
um og öðrum goðum táning-
anna. má búast við að yngsta
kynslóðin hafj enn til hans
einhverjar taugar, en hann
leikur aðalhlutverkið í páska-
mynd Háskólabíós, Sirkus-
söngvarinn.
Þetta er bandarísk söngva- og
ævintýramynd frá Paramount,
segir frá ferðasirkus og fólki
því er við hann starfar. Elvis
leikur aðstoðarmann við sirkus-
inn, sem gefur sér þó tíma frá
vinnunni til annarra iðkana,
svo sem að töfra stúlkumar
með rödd sinni að þvi er segir
í prógrammi. Mótleikarar El-
vis kvenkyns í þessari mynd
eru þær Barbara Stanwyck og
Joan Freeman.
Albert Finney leikur
TOM JONES
þorðu íbúar þess góða lands
enn að vera til og drýgja
skemmtilegar syndir með stór-
um tilþrifum.
Efni þessarar kvikmynduðu
sögu verður alls ekki endur-
sagt með nokkru móti — þótt
Fielding noti það gamalkunna
Stjörnubíó:
Hinir dæmdu
hafa enga von
Stjörnubíó sýnir um páskana
kristilega mynd sem heitir
„Hinir dæmdu hafa enga von“.
Þar segir frá þrem afbrota-
mönnum. sem verið er að flytja
til Tahiti og eiga þeir í vænd-
um þungar kárínur. Á leiðinni
er komið viö á smáey sem Tal-
ua er nefnd og er þar fyrir
klerkur svo ágætur, að yfir-
valdið er að hrekja hann á
brott. Leikur Spencer Tracy
prest þennan. Fær hann leyfi
tii að láta fangana vinna fyr-
ir sig á holdsveikraspítala sem
hann rekur og er nú hagur
þeirra sæmilegur um hríð. 1
En fleira er á eyju þessari
en illt yfirvald, fcar er og eld-
fjall miáttugt sem enn er til
alls víst. Gerist svo síðari hluti
myndarinnar í ferlegu eld-
gpsi og þá tilraunum til að
bjarga holdsveikum bömum
frá eynni. Eru þá framdar
hetjudáðir margvíslegar og
verða til þess ólíklegustu menn
og að lokum springur eyjan í
loft upp með miklum tilþrifum.
Ekki skal þess getið hér hve
mynd Stjörnubíós,. Annar frá hægri er Spencer Tracy
hlutverki klerksins fórnfúsa.
margir farast í þeim hamför-
um.
Þetta er litmynd frá Colum-
bia. Af almennum upplýsing-
um um myndina má það helzt
ráða, að nokkur von sé í þeim
trausta leikara, Spencer Tracy.
Hitt er svo líklegt, að nágrönn-
um Surtseyjar verði ekki kom-
ið á óvart með tilbúnu eld-
gosi.
Austurbæjarbíó:
4 í Texas
Fjórir í Texas heitir myndin
sem Austurbæjarbíó býður upp
á og eru í aðalhlutverkum
frægir leikarar eins og Frank
Sinatra og Dean Martin og
kynbomburnar Anita Ekberg og
Ursula Andress. Þetta er amer-
ísk stórmynd í litum með ís-
lenzkum texta Hersteins Páls-
sonar. Framleiðandi og leik-
stjóri er Robert Aldrich.
Myndin gerist í villta vestr-
inu, sem virölst vera Banda-
ríkjamönnum eilíf uppspretta
kvikmyndasagna, og fjallar um
ástir, peningarán. spilavíti og
flcira slíkt. Aðalpersónur eru
tveir vinir, Zach Thomae og
Joe Jarrett, sem þeir leika
Frank og Dean. hvorttveggja
heiðarlegir náungar, og eru
þeir á ferð í póstvagni þegar
myndin hefst. Ræningjaflokkur
ræðst á vagninn, þeim tekst að
sigrast á honum. en gruna eft-
ir þetta hvom annan um að
hafa verið í vitorði með ræn-
ingjunum.
Síðar hefja báðir rekstur
spilavíta, en allt fer í handa-
skolum og halda þeir hvor um
sig að hinum sé um að kenna.
En í ljós kemur, að það eru
aðrir sem verið hafa að reyna «,
að etja þeim saman til að kom-
ast yfir fjármuni þeirra. Sætt-
ast þeir síðan eins og vera ber
og tekst sameiginlega að ráða
niðurlögum óvina sinna.
Myndin endar síðan eins og
búast má við í sátt og sam-
lyndi, báðir vinirnir giftaist
unnustum sínum, sem Ursula
og Anita leika o<j fara þau
Ursula Andrcss
að lokum öll fjögur í brúð-
kaupsferð tjl Evrópu.
Stræiisvagnaleiðir um Reykjavík,
Hafnarfjörð og Kppavog um páskana
Strætisvagnar Reykjavíkur
Strætisvagnar Reykjavíkur aka
á öllum leiðum nema leið 12,
Lækjarbotnum, sem hér seg\r:
Á skírdag og á annan í pásk-
um kl. 9—24. Á föstudaginn
langa kl. 14—24. Laugardag fyr-
ir páska kl. 7—1 og á páskadag
kl., 14—1.
Á tímabilinu kl. 07.00—09.00
á skíi'dag og annan páskadag og
kl. 24.00—01.00 römu daga, á
föstudaginn langa kl. 11.00—
14.00 og kl. 24.00—01.00, og á
páskadag kl. 11.00—14.00 verð-
ur ekið á þeim leiðum, sem ek-
ið er nú á sunnudagsmorgnum
kl. 07.00—09.00 og eftir mið-
nætti á virkum dögum.
Á leið 12, Lækjarbotnum,
verður ekið sem hér segir: Á
skírdag og annan í páskum er
fyrsta ferð kl. 9.15 og síðan eins
og á sunnudögum. Á föstudag-
inn langa og páskadag frá kl.
14 og síðan eins og á sunnu-
dögum. Á laugardag eins og
vant er.
Hafnarfjarðarvagnarnir
Samgöngur Landleiða við
Hafnarfjörð verða um páska-
hátíðina sem hér segir:
Á skírdag og á annan í pásk-
um verður ekið eins og venju-
lega á sunnudögum, þ.e. akstur
hefst kl. 10 f.h. og ganga vagn-
arnir allan daginn til kl. 0.30.
Aukaferð er kl. 8 árdegis frá
Reykjavík og kl. 8.30 árdegis
frá Hafnarfirði. Á föstudaginn
langa og á páskadag hefjast
ferðir kí. 2 e.h. og síðan ekið
til kl. 12.30. Á laugardag eru
ferðir eins og venjulega.
Strætisvagnar Kópavogs
Á skírdag og á annan í pásk-
um aka vagnarnir eins og á
sunnudögum kl. 10 f.h. til mið-
nættis. Á föstudaginn langa og
á páskadag hefst akstur kl. 2
e.h. og ekið til kl. 12 s.d. og á
laugardag eru venjulegar ferð-
Úr.
t
i
í