Þjóðviljinn - 06.05.1966, Blaðsíða 1
Kosningaskemmtun H-listans i Kópavogi
■ Kosningaskemmtun H-listans í Kópavogi verður haldin í Félags-
heimili Kópavogs, uppi, n.k. laugardag, 7. maí, og hefst hún kl. 9 e.h.
■ Svandís Skúladóttir bæjarfulltrúi flytur ávarp og síðan verða um
hönd höfð ýmis góð skemmtiatriði, sem nánar verða auglýst hér í
blaðinu síðar. Miðapantanir í síma 41746.
Dómur fallinti í handrifcmtálmu:
Lögin um aíhendingu handrítanna brjóta
ekki í bága við stjórnárskrá Danmerkur
Guðrún Helgadóttir
Svavar Gestsson.
í kvöld efnir æskulýðsnefnd Alþýðu-
bandalagsins til skemmtunar í Lídó og
hefst hún kl. 20.30. — Á dagskrá eru eftir-
talin atriði:
□ Ávarp: Svavar Gestsson.
□ Karl Guðmundsson fer með
pólitískt spé.
□ Stiginn dans fram eftir nóttu.
□ Kynnir: Guðrún Helgadóítir.
□ í hljómsveitarhléi munu þeir Atli
Heimir Sveinsson og Árni
Björnsson pipra upp selskapinn.
□ Um miðnætti flytur Ómar
Ragnarsson gamanvísur.
Aðgöngumiðar fást í dag í bókabúðum Máls
og menningar og KRON, svo og á kosninga-
skrifstofu Alþýðubandalagsins. — Háskóla-
stúdentar og menntaskólanemar fá miða
við hálfvirði.
KAUPMANNAHÖFN 5/5 — í dag kl. 12 á hádegi
var kveðinn upp í Eystra landsrétti í Kaupmanna-
höfn dómur í handritamálinu. Varð niðurstaða
hans sú. að afhending handrita úr Árnasafnj er
ekki talin skerðing á eignarrétti sem brjóti í bága
við stjórnarskrá Danmerkur. Var menntamála-
ráðuneytið danska sýknað af dómkröfum — en
málsaðilum, ríkinu og Árna Magnússonarstofnun,
gert að greiða hvoru sinn hluta málskostnaðar.
Gert er ráð fyrir að sækjandi muni áfrýja dómn-
um til hæstaréttar.
Árnasafn er sjálfseignarstofnun
*
I forsendum dómsins er fallizt
á ýmsar þær röksemdir, sem
sækjandi bar fram í málflutn-
ingi til stuðnings þeirri fullyrð-
ingu að afhending handritanna
sé ólögmæt. Þannig viðurkenndi
rétturinn til að mynda, að Áma
Magnússonarstofnun sé sjálfs-
kvæði einkaréttar, þótt hún sé
svo í nánum tengslum við Kaup-
mannahafnarháskóla. Hinsvegar
lagði rétturinn áherzlu á það,
að stjóm stofnunarinnar sé kos-
in af opinberum aðilum, og út-
gjöld hennar séu að mestu
greidd af varnaraðila f málinu
— m.ö.o. af menntamálaráðu-
eignarstofnun sem falli undir á- neytinu sjálfu.
Njáluhandrit.
en afhendingin er lögmæt
A þessum forsendum telur rétt-
urinn, að stefndur hafi haft rétt-
mæta ástæðu til að triga aðild áð
samþykkt laga frá 26. maí 1965,
sem talin eru leysa þýðingar-
mikil vandamál er varð'a sam-
búð Danmerkur og íslands, þar
eð með þeim er gengið til móts
við þá ósk íslenzku þjóðarinnar
að eignast hluta þeirra handrita
sem varðveitt eru í Danmörku.
Hinsvegar féllst rétturinn ekki
á þá fullyrðingu stefnanda, að
með þessum lögum sé fram-
kvæmd skerðing á eignarrétti,
sem brjóti í bága við stjómar-
skrá landsihs.
Meðal þeirra sem viðstaddir
voiu dómsuppkvaðningu voru
sendiherra fslands, Gunnar Thor-
oddsen og ýmsir Hafnaríslend-
ingar aðrir.
Þær fregnir sem borizt hafa
af viðbrögðum ýmissa þekktra
stjórnmálamanna í Danmörku
eru yfirleitt mjög jákvæðar —
meðal þeirra sem hafa fagnað
niðurstöðum réttarins eru þeir
K.B. Andersen menntamálaráð-
herra, Erik Eriksen, fyrrum for-
sætisráðherra og Aksel Darsen,
formaður Sósíalistíska Alþýðu-
flokksins. íhaldsmaðurinn Poul
Möller virðist hinsvegar vera sá
eini sem vonar að hæstiréttur
felli annan úrskurð en undir-
réttur.
Á tólftu síðu blaðsins I dag
er greint frá áliti ýmissa ís-
lenzkra forvígismanna á þcim
dómi scm feildur var í dag.
Landsleikir
LONDON, DUBLIN — Á mið-
vikudagskvöld sigruðu Bretar
Júgóslava í landsleik í knatt-
spymu á Wembley-leikvangi með
tveim mörkum gegn engu.
Sama kvöld unnu Vestur-Þjóð-
verjar íra í Dublin með 4:0.
SJÓNVARPID
FEEMNISMÁL!
Þingnefnd gerð óvirk til að
hindra afgreiðslu málsins!
■ Stjórnarflokkarnir léku furðulegan skollaleik til að af-
stýra því að Alþingi fengi á ný sjónvarpsmálið til með-
ferðar og yrði að taka afstöðu til þess hvort takmarka
beri hermannas'jónvarpið við herstöðina þegar er íslenzka
sjónvarpið hefst.
■ Hefur það verið unnið til að láta allsherjarnefnd sam-
einaðs þings, sem málinu var vísað til, ekki halda néinn
fund í þrjár vikur, og hefur þetta mætt mjög á nefndar-
formönnunum, tveimur Alþýðuflokksþingmönnum, sem
gripið hafa til skoplegra undanbragða til að halda nefnd-
inni óvirkri allan þennan tíma!
Tillaga Alþýðubandalagsins í borgarstjórn:
BÚR kanni allar leiðir til |sess ai sjá
Reykvíkingum fyrir neyzlufiski
■ Borgarstjórn Reykjavíkur fjallaði á fundi sínum í
gær m.a. um þá tillögu borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins
að fela Bæjarútgerðinni að kanna allar tiltækar leiðir til
þess að sjá Reykvíkingum fyrir nægum og góðum neyzlu-
fiski allan ársins hring.
„Borgarstjórnin ályktar að fcla
Rvjarútgerð Reykjavíkur að taka
-aumgæfilcgrar athugunar all-
ar lciöir, scm tiltækilcgar þættu
til þcss að sjá Rcykvíkingum
fyrir nægum neyzlufiski árið um
kring, þar á meðal hvort nauð-
synlegt sé að Bæjarútgerðin sjálf
reki nokkra vélbáta, er einbeiti
sér að fiskveiðum fyrir borgar-
markaðinn.
Borgarstjóxnin æskir þess, að
athugun þessari verði hraðað,
og að tillögur til iausnar þessu
vandamáli berist hið alira fyrsta.
Jafnframt varar borgarstjórn-
in alvarlega við þcirri þróun í
verðlagsmálum er hefur I för
með sér sífelldar hækkanir á
helztu neyzluvörum almennings.
Bendir borgarstjórnin sérstak-
lega á þá gífurlegu verðhækkun,
sem nýlega hefur orðið á fiski,
einni helztu neyzluvöru aimenn-
ings, og nemur allt að 79%, er
hlýtur að koma n_cð lítt viðráð-
anlcgum þunga á stórar barna-
Framhald á 2. síðu.
Það vakti nokkra undrun
manna að þinglausnadaginn í
gær skyldu settar á dagskrá
þingsins þrjár þingsályktunartil-
lögur, sem allsherjarnefnd sam-
einaðs þings hafði rausnazt til
að skila áliti um.
Um eina þessara tillagna
kvaddi Ragnar Amalds sér hljóðs
og gerði uppskátt um furðuleg-
an skollaleik, serh hafður hefur
verið bak við tjöldin til að af-
stýra því að allsherjamefnd
fjallaði um tillöguna um tak-
mörkun hermannasjónvarpsins
við herstöðina.
□ Enginn fundur i 5 vikur!
Ragnar upplýsti að ekki hefði
verið fundur í allsherjarnefnd
sameinaðs þings í 5 vikur. Fyrir
þrerr.ur vikum var sjónvarpstil-
lögunni vísað til nefndarinnar
og kvaðst Ragnar dögum oftar
hafa beðið formann nefndarinn-
ar Sigurð Ingimundarson um að
halda fund, en einhvern veginn
hafi aldrei af því orðið, svo
nefndin hafi aldrei tekið tillög-
una fyrir, tillagan ekki svo mik-
ið sem lesin í nefndinni.
Nefndarformaðurinn fór síðan
til útlanda og varamaður hans,
Unnar Stefánsson, tók við for-
mannsstörfum. ítrekaði Ragnar
þegar ósk um fund í nefndinni,
en þó slíkum fundi væri marg-
sinnis lofað kom þó jafnan eitt-
hvað fyrir á síðustu stundu svo
að ekki varð af fundi.
□ Feimnisinálið
Hélt Ragnar því fram, að þessi
kynlegi skollaleikur hefði stafað
af því að æðri máttarvöld hefðu
bannað formanninum að halda
fund í nefndinni svo þetta mikla
feimnismál, sjónvarpsmálið, kæm-
ist ekki að. En þá kom það til
Framhald á 2. síðu.