Þjóðviljinn - 06.05.1966, Side 7
MS
Föstudagur 6. maí 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA ^
Nýjar leiðir
húsnœðismáiu
Eftir
Guðmund
Vigfússon
Við þær aðstædur sem ríkja
hér á landi eru húsnædismálin
eitt örðugasta og torleystasta
vandamál hverrar fjölskyldu.
Við búum við ófullkornið lána-
kerfi til íbúðabygginga. Lánin
nema yfirleitt 280 þús. kr. á í-
búð og það er ekki nema tæp-
lega 30% af byggingarkostnaði
meðal-íbúðar. .
Þótt reynt sé að hækka lán-
in í krónutölu, eins og verka-
lýðssamtökin knúðu íram með
júnísamkomulaginu 1964, hrekk-
ur það skammt í hömlulausri
verðbólgu og dýrtíð. Lánshækk-
unin er óðar horfin og meira
til í svelg dýrtíðarinnar og
húsbyggjandinn stendur eftir
ver settur en áður, og þarf að
svara út hærri upphæð úr eig-
in vasa eða með óhagstæðum
og stuttum skyndilánum.
Þetta er ástand lánamálanna
undir marglofaðri viðreisn
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins. En lítum einnig á
þá alvarlegu hlið að íbúðarhús-
næði almennings hefur verið
gert að beinni braskvöru, notað
til okurstarfsemi og stórkost-
legrar féflettingar á almenn-
ingi.
Ástandið í lánamálunum og
hinn langi vinnutími launa-
manna gerir fléstum erfitt eða
útilokar að annast sjálfir fram-
kvæmdir frá byrjun byggingar,
enda er það út af fyrir sig
hvergi talinn hagkvæmur
byggingarmáti. Þorri þeirra, a.
m. k. hér 'í Reykjavik, sem
þurfa að eignast íbúð, verður
því að kaupa þær misjafnlega
á veg komnar. Og seljendumir
eru í flestum tilfellum ýmsir
byggingaraðilar, sem hafa það
að atvinnu Og gróðastarfsemi
að byggja íbúðir, og fá til þess
lóðir hjá borgaryfirvöldum.
Lélegt skipulag og forn-
eskjuleg vinnubrögð gera bygg-
ingarnar óeðlilega dýrar. Það
er t.d. algengt að þrír aðdlar
byggi sama sambýlishúsið, sinn
stigaganginn hver! Allir koma
þeir með sín einkatæki, eigin
vinnuflokka og hver með
sitt efni til byggingar sama
hússins. Þetta enu fráleit vinnu-
brögð og þau eiga að hverfa.
Það er þannig ,.skipulagður“
byggingariðnaður sem býður
fólkj í húsnæðisþörf íbúðir til
verður borgarfélagið sjálít að
sölu í margvíslegu ástandi, fok-
heldar, fokheldar með miðstöð,,
komnar undir tréverk os.frv. Þess-
ar byggingar eru raunverulega
dýrar, en eigi að síður tekst
mörgum, serh fyrir þeim standa
ýmist sjálfir eða sem leppar
annarra fínni og fjórsterkari
bakaðila, að hirða af þessari
starfsemi ótrúlegan gróða. 30n/n
álagning á raunverulegan bygg-
ingarkostnað er ekki óalgeng,
þ. e. 200-300 þús. kr. gróði á
íbúð. Og þetta fé er sótt í
hendur íbúðakaupendanna. sem
yfirleitt eru fjárvana og búa
við léleg lánsskilyrði.
Þetta er einhver ófélegasta
gróðastarfsemi og féfletting
sem þekkist í þjóðfélaginu og
er þó víða pottur brotinn. Ég
hefi ekki spumir af neinu ná-
lægu þjóðfélagi sem líður
slíka starfsemi í húsnæð’smál-
um, sem horfir án aðgerða upp
á eina brýnustu lífsnauðsyn
fólksins gerða að gróðavæn-
legustu braskstarfsemi þjóðfé-
lagsins.
Allar nágrannaþjóðir okkar
og þótt lengra sé leitað. hafa
fyrir löngu viðurkennt þá
skyldu samfélagsins, ríkisins
eða sveitarfélaganna, að veita
almenningi öfluga opinbera að-
stoð til þess að koma upp yfir
sig og sína nauðsynlegu hús-
næði á viðráðanlegu verði mið-
að við launatekjur og afkomu.
Nágrannaþjóðir okkar búa
allar eða flestar vlð lánakerfi
til íbúðabygginga sem tryggir
mönnum 00-90ft'l| og jafnvel í
vissum tilvikum allt að 100%
kostnaðarverðs íbúða, sem lán
til langs tíma og með lágum
vöxtum, Hluti láns er jafnvel
afborganalaus, sem sérstök
styrktarlán til þeirra, sem
Bæjarfélagið sjálft verður að hafa forystu um lausn húsnæðisvandamálsins.
lægst laun hafa eða verst eru
settir.
Ég hygg að það þætti mikil
fásinna í ílestum öðrum lönd-
um að íbúðarþörf almennings
væri afhent bröskurum og fjár-
plógsmönnum sem tekjumikil
íjárgróðastarfsemi. En þetta
þykir góð latína á fslandi í dag
og nýtur viðurkenningar og
stuðnings valdhafa og lána-
stofnana — og jjað sem merki-
legast mætti þykja — sjálfra
stjórnenda fjölmennasta byggð-
arlagsins í landinu, höfuðborg-
arinnar.
Á þessu verður að fást
breyting og að því hefur verka-
lýðshreyfingin . og Alþýðu-
bandalagið unnið. Fyrsta skref-
ið sem um munar var stigið
með ákvörðuninni um bygg-
ingu 1250 íbúðanna, sem verka-
lýðsfélögin fengu framgengt
með samningunum í fyrrasumar.
Þar er um að ræða félagslegt
átak sem á að tryggja lækkun
byggingai'kostnaðar og betri
lánakjör en hingað til hafa
tíðkazt. Er það von allra, að
hér megi vel til takast og já-
kvæður árangur náist.
En hér þarf meira til, eigi
að fást fram sómasamleg fram-
tíðarlausn húsnæðismálanna.
Það ' verður að hrífa íbúðar-
byggingarnar almennt úr klóm
einkabrasksins og gróðahyggj-
unnar. Húsnæðismálin á að
leysa á grundvelli félagslegra
aðgerða. Framkvæmd bygging-
arstarfseminnar á að skipu-
leggja í stórum áföngum og
beita við hana nútíma vinnu-
brögðum og tækni. Þetta á al-
mennt byggingarfélag fólksins
sem á að njóta íbúðanna að
gera sjálft og njóta til þess
öflugs fjárhagsstuðnings frá
opinberum lánastofnp.num.
Lán til slíkra íbúða eiga að
nema allt að 8t)% byggingar-.
kostnaðar, en 20% framlag ein-
staklinganna að greiðast á
byggingartímanum eða nokkru
lengri tfma. Og þessi lán þurfa
að vera til langs tíma og vextir
lágir. Það er skilyrði þess, að
húsnæðiskostnaðurinn geti ver-
ið hóflegur. Léleg lán með vfsi-
tölubindingu, eins og nú er,
stefna hins vegar í þveröfuga
átt.
I stefnuyfirlýsingu Alþýðu-
bandalagsins í borgarmálum,
sem Þjóðviljinn birti sl. þriðju-
dag eru þessar nýju leiðir nán-
ar raktar og rökstuddar, Ég
verð í haeginatriðum að vísa
til þess en ég vil hvetja menn
til að kynna sér þá leið og þær
leiðir, sem þar eru settar fram,
tjl lausnar á húsnæðismálum
Reykvíkinga og um leið margra
annarra landsmanna því vissu-
lega takmarkast vandamálið
ekki yið. Reykjavík eina, þótt
þungi þess sé einna mestur hér
og í nágrannasveitarfélögunum.
Höfuðatriði hinnar nýju leið-
atT húsnæðismálúnum ér, að
félagsleg viðhorf og félagsleg
tök leysi af hólmi baslið og
braskið sem viðgengst í íbúða-
byggingunum. Lausn þess
vandamáls að komast yfir í-
búð, sem unnt er að búa í við
sæmilegt öryggi, má ekki og á
ekki að vera einstaklingnum og
fjölskyldu hans fjárhagsleg
drápsklyf í tíu eða tuttugu ár,
sem sviptir hann öllum tóm-
stundum og möguleikum til
félagsstarfsemi og menningar-
lífs.
Samtímis því sem venjlegur
hluti nauðsynlegra íbúðabygg-
inga væri framkvæmdur eftir
hinni félagslegu leið, þarf einn-
ig að styðja betur en nú er
gert alla heilbrigða sjálfsbjarg-
arviðleitni einstaklinga. I-Iækka
þarf verulega lán til þeirra,
sem byggja vilja og byggt geta
íbúðir til eigin nota.
Þann þáttinn, sem ekki
verður leystur með þátttöku í
þeim félagssamtökum sem
stæðu fyrir stórum hluta í-
búðabygginganna, né heldur af
einstaklingunum sjálfum, verð-
ur borgarfélagið sjálft að ann-
ast. Er þar fyrst og fremst
um að rasða byggingu leiguí-
búða fyrir barnmargar og
tekjulágar fjölskyldur, aldrað
fólk sem er í húsnæðisvand-
i-æðum, og svo ung hjón sem
eru að byrja búskap.
Að lokum þetta: Húsnæðis-
vandamálið er svo stórt og af-
drifaríkt og grípur svo víða
inn í önnur vandamál sem við
er fengizt, að það er skylda
bæjarfélagsins að láta lausn
þess meir til sín taka en verið
hefur Bæjarfélagið sjálft verð-
ur að hafa forustu um lausn
málsins og það getur vissulega
haft drjúg áhrif á afstöðu rík-
isvaldsins. sem hér verður
einnig að korna mikið við sögu.
Alþýðubandalagið hefur jafn-
an látið húsnæðismálin mikið
til sín fcaka innan borgai-stjóiTi-
ar og réynt að þoka umbótum
á þessu mikilvæga sviði áleið-
is. eftir því sem áhrif þess og
aðstaða hefur leyft. Svo mun
einnig verða á komandi árum.
Og það er ekki sízt vegna þessa
mikilvæga máls, sem varðar
svo mjög alla aðstöðu og af-
komu launastéttanna og þá
ekki sízt ungu kynslóðarinnar,
sem Alþýðubandalagið þarf á
auknum liðstyrk að halda.a*
Þeir sem vilja styðja hina
félagslegu leið í húsnæðismál-
unum þurfa nú að þjappa sér
saman og gera samtök sín á-
hrifarík og sterk. Leiðin til
þess er að standa með mál-
stað og hagsmunum launastétt-
anna, og gera Alþýðubandalag-
ið að sem öflugustum aðila i
borgarmálum.
Hæstu vinningar í
Happdrætti DAS
Nýll var dregjð í 1. fl. Happ-
drættis DAS um 300 vinninga og
féllu hæstu vinningar þannig:
íbúð eftir eigin vali fyrir kr.
1.000.000.00 kom á nr. 9391. Um-
boð Aðalumboð. Bifreið eftir
eigin vali kr. 200 þús. kom á nr.
23666. Umb. Hafnarfjörður. Bif-
reið eftir eigin vali kr. 150 þús.
kom á nr. 23886. Umb. Aðalum-
boð. Bifreið eftir eigin vali kr.
150 þús. kom á nr. 25106. Umb.
Aðalumboð. Bifreið eftir eigin
vali kr. 150 þús. kom á nr. 37266.
Umb. Vestm.eyjar. Bifreið eftir
eigin vali kr. 150 þús. kom á nr.
37652. Umb. Aðalumboð. Bjfreið
eftir eigin vali kr. 150 þús. kom
á nr. 39601. Umb. Aðalumboð.
Bifreið eftir eigin vali kr. 150
þús. kom á nr. 58549. Umb. Aðal-
umboð. Húsbúnaður eftir eigin
vali fyrir kr. 50 þús. kom á nr.
60376. Umb. Aðalumboð. Hús-
búnaður eftir eigin vali fyrir kr.
25 þús. kom á nr. 9310. Aðal-
umboð. Húsbúnaður eftir eigin
vali fyrir kr. 20 þús. kom á nr.
45744. Verzl. Roði og 51742. Umb.
Aðalumboð. Húsbúnaður eftir
eigin vali fjtrir kr. 15 þús. kom
á nr. 9153. Hafnarfj. 33342 Umb.
Vestm.eyjar, 56296. Umb. Aðal-
umboð.
(Birt án ábyrgðar).
____:______ V
Ambassador Finna
Hinn nýi ambassador Finn-
lands, herra Pentti Suomela af-
henti nýlega forseta íslands
trúnaðarbréf sitt við hátíðlega
athöfn á Bessastöðum, að við-
stöddum utanríkisráðherra.
(Frá skrifstofu forseta Islands).
L