Þjóðviljinn - 15.05.1966, Side 9
\
SÍÐA — „u iL maí 1966.
öslcum öllum sjómönnum til hamingju
méð Sjómannadaginn og starfsemi
þeirra.
í tilefni of
Sjómannadeginum
sendum við öllum sjómönnum olskar
beztu kveðjur og heillaóskir.
Laugavegi 178 — Sími 2-1 1-20.
SJÓMENN!
til hamingju með daginn. — Heill og ham-
ingja fylgi störfum ykkar.
Samlag
skreiðarframleiðenda
Hákariaveiðar
Framhald af 7. síðu.
þetta á þeim tíma, hann hefði
fengið pokann sinn.
Gekk allt mjög vel að ná
legufærunum inn og færa skipið í
landf^star. Við bryggjana var
Hjalteyrin frá Akureyri og tók
skipstjórinn af henni, Sæmund-
ur frá Stærraárskógi, við land-
festi frá okkur og kallaði um
leið: „Þetta er gott hjá ykkur,
strákar mínir“, enda kom hann
oft yfir til okkar og vorum við
nokkuð spenntir að hlusta á
sjóferðasögur hans því að hann
sagði vel frá og var skemmti-
legur í viðmóti.
Nú þóttumst við vel hafa gert
í sambandi við það sem okkur
var falið, og vorum glaðir. Fór-
um við út í Gránufélagsverzl-
unina og tókum þar út hveiti
og fléira, því að ákveðið var
að steikja góðar lummur, þar
sem þetta hafði allt tekizt svo
vel, en þegar við vorum að taka
kaupskapinn í hendur okkar,
kom þá verzlunarstjórinn
herðabreiður og vel holdugur
út af skrifstofunni. Þá sagði
annar hvor okkar að Njáll væri
í landfestum við Lýsisbryggj-
una. Brá okkur nokkuð, þegar
þessi holdugi, stóri maður, sem
bar þess glögg merki að hann
hefði um sína daga lifað á
öðru en skonroki og beinakexi,
sagði: „Vitið þið, hvað þið vor-
uð að gera, að færa skipið til
í höfninni án þess að hafa um
borð mann með siglingaréttind-
um?“ Varð okkur svarafátt en
fórum út. Þessi hlið málsins
kom okkur ekki í hug, því ef
svo langt hefði verið hugsað
hefði verið auðsótt að fá Sæ-
mund skipstjóra á Hjalteyrinni
með okkur, þegar við sóttum
Njál út á leguna.
Ekki urðu ummælin þó til þess
að við hættum við að notfæra
okkur kaupskapinn, eins og á-
kveðið var. Fór Stefán heim til
v sín og sótti pönnu til að steikja
á, og neyttum við hinnar steiktu
krásar með óskertri lyst. Þó
útgerðarmaðurinn mæti lítið
það að við komum skipinu að
landi, þá nutum við þess' hjá
Oddi skipstjóra okkar. Fjörð-
urinn. fylltist af ís á stuttum
tíma og hefði Njáll að öllum
líkindum gjöreyðilagzt, ef hann
hefði verið fram á legu.
Kópavogi í marz 1966.
Kristmar Ólafsson.
SkipasmíðasföS Njjarðvíkur
Ytri-Njarðvík.
Öskum öllum sjómönnum
°g fjölskyldum þeirra til Kamingju
a sjómannadaginn, og gæfu og
gengjs í framtíðinni.