Þjóðviljinn - 02.06.1966, Page 8

Þjóðviljinn - 02.06.1966, Page 8
g SfÐÁ —* KROftVftJlNN — Fimmtudagur 2. Jöm' 1086 WILLIAM MULVIHILL IFLUGVÉL HVERFUR| — Það höfum við öll verið, sagði Bain. 0‘Brien reis hægt á fætur og stuHdi. — Við skulum byrja áð- trr «n flugumar hirða allt sam- an. Þau fluttu bálin undir lágu y txén og reykurinn rak burt sæg af flugum og skordýrum sem huldu naestum hrátt. blóðugt kjötið. Grimmelmann skar langar, þunnar ræmur úr stóru kjöt- stykkjunum og rétti hinum, sem hengdu þær varlega upp á grein- amar. Sólin myndi þurrka þær, draga úr þeim safann og þær myndu skbrpna og verða harðar og seigar. Þær myndu ekki rotna. Þær yrði hægt að geyma. Þau skánu eftir röð. Smá- bitunum var safnað saman í kvöldmatinn og þeim vafið inn í húðina til að verja þá fyrir flug- um. Það dró ögn úr sólarhitan- um og þau héldu áfram að vinna. Bain tók með sér hnútur og bein Og fleygði þeim langt burtu og úr vindáttirfni frá kjötinu. Flug- umar hópuðust að þeim; hræ- fuglamir komu nær. Nú hékk siðasta langa kjötræman til þerr- is i trénu. Grimmelmann og O'Brien komu sér saman um að dveljast undir trénu um nótt- ina hjá litlu báli; þeir fóru heim i hellinn að sækja rúmföt- in sín og á meðan söfnuðu hin Handa þeim eldiviði. Kvöldið kom. Tréð stóð í næt- urkuldanum skreytt þomandi kjötræmum. O'Brien og 'gamli maðurinn komu sér fyrir til að hvila sig og vaka. Þau héldu heim i hellinn. Hárgreiðslan Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinn oer Dódó Laugavegi 18. III. hæð Clyfta) SÍMI 24-6-16. PERMA Hárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21. SÍMI 33-968. D Ö M U R Hárgreiðsla við allra hæfi TJARNARSTOFAN Tjamargótu 10. Vonarstrætis- megin — Sími 14-6-62. Hárgreiðslustofa Austurbæjar Maria Guðmundsdóttir Laugavegi 13 Sími 14-6-58. Nuddstofan er á sama stað. Þetta var fcezti dagurinn þeirra. Jefferson Smith skrifaði í dag- bókina; Gemsukjötið bjargaði lífi okk- ar. Bain er að ná sér. Sagðist hafa verið vel menntaður ævin- týramaður. Duglegur. Hvað getum við verið hér lengi? Fimm manneskjur? O1 Brien fer á veiðar en fær lítið. Nú reynir hann að drepa baví- ana. Þeir eru klókir. Gæta sín. Ég held að eitthvað sé að ger- ast hið innra með honum núna. Hann talar miklu minna en áð- ur. Grimmelmann er stórkostleg- ur. Hann er ævintýralega em af svo gömlum marmi. Nægjusam- 24 ur. Harðgerður. Hefur glögga dómgreind. Grace er ágæt. Ég er hraustur og stend mig bærilega Vildi óska að við næðum i aðra gemsu. Hrátt kjöt. Við fáum öll höfuðverk og svimaköst. Okkur vantar salt. Jefferson Smith er berfættur. Buxumar ná niöur á miðjan legg, rifnar og tættar. Við klæð- um okkur á nætumar í allt sem við eigum. Það er kalt á næt- umar. O'Brien gengur í gömlum, skitagum tennisbuxum. Berfætt- ur. Berhöfðaður. Hefur ekki' rakað sig, ekki klippt sig. Segir að það hlífi hauskúpunni fyrir sólinni, haldi heilanum undir suðumarki. Held hann hafi rétt fyrir sér. Hann kemur venju- lega með eðlumar í ppkaskjatta, hreinsaðar og tilbúnar til að steikja. Ég er lélegasti veiði- maðurinn hérna. Grace er dug- legri. Otiloftskvenmaður. Ég miða illa, mig vantar þolinmæði. Grimmelmann er eins og ugla. Bíður eftir að þær komi út úr holunni, sítur tímunum saman, slær þær með stafnum. Hann grefur þær líka út úr brekkunni. O'Brien kastar í þær steinum, það skiptir hann engu hvort hann hittir eða ekki. Menningin er þunn himna sem hylur regindýpt siðleysisins. Þetta er háfleyg setning. Við er- um komin innúr þessari himnu. Ef þessi staður hefði verið stærri með betri möguleikum til fæðu- öflunnar og við hefðum hver haft sinn kvenmann, hefðu böm okkar fæðzt inn í steinöld. Skot- færi O'Briens þrytu, fötin myndu slitna upp til agna. Orðaforði bamanna yrði takmarkaður. Við myndum kenna þeim dálítið, en að okkur liðnum myndu þau orð ekki segja þeim neitt (stærð- fræði, heimspeki o.s.frv.) og þau myndu ekki endast i máll þeirra. Ef til vill myndi vetnissprengjan hafa sömu áhrif. Dag nokkum þegar. þau sáta í skugganum fyrir utan hellinn, varð Smith eirðarlaus af öllu þessu fánýta hjali. Hann reis á fætar, leitaði að vasaljósinu, at- hugaði hvort enn logaði á því og gekk yfir til Mike Bain og Grace. Grimmelmann lá inni í hellinum og hvíldi sig eftir mat- arleit í brennandi sólarhitanum. O'Brien hafði verijð burta síðan í dögun. — Mig langar til að líta betur á þennan svokallaða reykháf, sagði hann. — Eruð þið með? Ég er forvitinn. — Er nokkuð að sjá? sagði Grace. — Er það ekki bara gat upp í gegnum fjallið? Bain reis á fætur. — Ertu að hugsa um að klifra upp? — Já, sagði Smith. — Ég held að göngin liggi í boga. Mig langar að líta á þetta. Ég held ég geti klifrað upp ef þið lýsið mér. Bain kinkaði kplli. — Það get- ur ekki sakað. — Þú getur dottið niður, sagði Grace. — Fótbrotið þig. En Smith ,fór og Báin og Grace elta hann inn í hellinn. Vasaljós Smiths skar sundur myrkrið innar í hellinum; birtan bakvið þau dvínaði. og þegar þau komu fyrir horn hvarf hún alveg. Sandurinn varð dýpri og mýkri. Þeim fannst eins og þau væru að ryðjast inn á stað sem var langt frá hellinum þeirra, stað sem þau áttu ekkert erindi í. Þau komu að enda hellisins, þar sem gólfið hallaði upp á við og steinar og flögur blönduðust sandinum. Þau eltu Ijósgéislann með augunum upp breiða holuna yfir höfðum þeirra, sáu hann leika um óslétta veggina. Göng- in lágu ekki beint upp eins bg þau höfðu haldið, þau beygðu lítið eitt eins og Smith einn hafði tekið eftir og fyrir bragðið væri gerlegt að klifra upp. — Sjáið þið hvar þau beygja? sagði Smith. Hann hélt ljósinu kyrru, og þau sáu að lengra uppi var töluverður halli; ann- ar veggurinn varð eins og þak og hinn hvarf inn í fjallið. — Ég hef farið hingað inn nokkrum sinnum, sagði Smith. — Ég fór að velta fyrir mér hvert göngin lægju. Við ættum að reyna að komast að því. Munið þið ekki hvað Grimmelmann sagði um flóð? Kannski rennur vatn eftir þessum göngum þegar rignir. Ef svo er, þá erum við eins og mýs í gildru; við mynd- um öll drukkna og skolast út úr hellinum. — Það var gott að þér datt það i hug, sagði Bain. Smith fékk Bain vasaljósið. Hann gekk meðfram veggnum og byrjaði svo að klifra, hann rétti upp hendumar og náði taki með fingrunum. Hann var *ber- fættur og þau hin sáu hvernig tæmar leitaðu fyrir sér og fundu staðina, þar sem hand- festan hafði verið. Hann þokað- ist upp og þau færðu sig til, svo að hann lenti ekki á þeim ef hann dytti. Honum tókst það. Þau sáu að hann stanzaði svo sem fimmtíu eða sextíu fetum fyrir ofan þau í göngunum. Honum hafði geng- ið vel að klifra. Eftir fyrstu tattagu og fimm fetin var ekki lengur nein hætta á að hann hrapaði. Bain hafði beint ljós- geislanum til hans og vísað hbn- um leið upp hrufóttan vegginn. En svo hvarf Smith orðalaust inn í myrkrið. Þau biðu. Bain hélt á vasaljósinu og velti fyrir sér hvað þau ætta að gera, ef allt í einu slokknaði á því. Þá kom Smith út úr gatinu með fæt- uriia á undan. Nokkrum mínút- um seinna var hann kominn niður til þeirra, settist í sand- inn og hló með sjálfum sér. Hann var í svitabaði. — Ég fer aftur upp með snærið, sagði hann. — Ég skreið svo sem tíu fet inn í göngin. Ég sá auðvitað ekki handarskil, en einhvérs staðar hljóta þau að enda. Ég fer upp aftar, kasta & BYGGINGA VÖRUR ★ Asbest-plötur ★ Hör-plötur ★ Harðtex ★ Trétex ★ Gips þilplötur ★ Welllt-einangrunarplötur ★ Alu-kraft alumlnpappír til húsa-einangrunar ★ Þakpappi, tjöru og asfalt ★ lcopal pakpappi ★ Rúðugler MARS TRADING CO. H.F. KLAPPARSTÍG 20 SÍM! 17373 þórður sjöairi 4765 — Maud hefur sótt Ethei, sem kemur nú Ijómandi af fögn- uði til að heilsa manninum sínum. — Hún dáist líka að nýja skipinu. Jú, þetta voru góð skipti ......... En það hefur líklega kostað mikið ........ Stanley tekur strax eftir, að eitthvað er að. Hefur nú Bobby aftur ...........? — Ethel segir honum frá öllu.. — En sú lygi í stráknum! hrópar Stanley reiður þegar hann heyrir upphæðina sem Bobby hafði reiknað út. — Að öðru leyti er honum sama um alla þessa smámunalegu afskiptasemi og æs- ingar í tengdamóður sinni og mági. | TRYGGINGAFÉLAGIÐ HEIMIR" LINDARGÖTU 9 • REYKJAVÍK • SÍMI 22122 — 21260 Leðurjakkar — Sjóliðajakkar á stúlkur og drengi — Terylenebuxur ttretch- buxur, gallabuxur og peysur. GrÓÐAR VÖRUR — GOTT VERÐ Verzlunin Ó. L. Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu). ÁBYRGDARTRYGGINEAR LEÐURVERKSTÆÐ! ÚLFARS ATLASONAR Bröttugötu 3 B Sími24678, .......... ■ * vmmiR LEDURJAKKAR RÚSKINNSJAKKAR fyrir herra fyrir drengi Verð frá kr. 1690,00 * BILLIN Rent an Icecar Sími 1 8 8 3 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.