Þjóðviljinn - 02.06.1966, Síða 10
Ennþá unnið að myndun meirihluta
í bæjarstjórnum ellefu kaupstaða
Meirihluti eins flokks aðeins í Reykjavík, Neskaupstað og Ólafsfirði
■ Þessa dagana er unnið að
myndun starfshæfs meiri-
hluta í hinum nýkjömu bæj-
arstjómum í kaupstöðum
landsins. Aðeins í Reykja-
vík og tveimur kaupstað-
anna, Neskaupstað og Ól-'
afsfirði, hlaut einn flokkur
hreinan meirihluta bæjar-
fulltrúa og Alþýðubandalag-
íð í Neskaupstað hlaut eitt
hreinan meirihluta atkvæða
á bak við bæjarstjómarmeiri-
hluta sinn. Meirihluti S'jálf-
stæðisflokksins í Reykjavík
lafir aðeins á því hve mörg
atkvæði andstæðinga þess
féllu „dauð“ og sömu sögu er
að segja um meirihluta þess
í Ölafsfirði, þar munaði raun-
ar aðeins broti úr atkvæði að
Sjálfstæðisflókkurinn tapaði
meirihluta sínum eins og í
Vestmannaeyjum og á Sauð-
árkróki.
Þjóðviljinn hsfur þegar skýrt
frá því að á fyrsta fundi bæj-
arstjómar Neskaupstaðar eftir
kosningar var Bjarni Þórðarson
er.durkjörinn bæjarstjóri og ,er
það í 5. sinn sem hann er kjör-
inn í þá stöðu. Baejarstjóm Ól-
afsfjarðar hefur einnig haldið
fund og var Ásgrímur Harfc-
m<mnsson endurkjörinn bæjar-
stjóri og er það í 6. sinn sem
hann er kjörinn. Einnig varSig-
valdi Þorleifsson endurkjörinn
forseti bæjarstjómar. Þá verður
fyrsti fundur borgarstjórnar R-
víkur haldinn í dag og verður
Geir Hallgrímsson væntanlega
endurkjörinn borgarstjóri.
I gær leitaði Þjóðviljinn sér
upplýsinga um það hvað liði
samningaviðræðum um myndun
meirihluta í bæjarstjómum í
nokkrum öðrum kaupstöðum en
þær em víða enn skammt á veg
komnar.
Kópavogur
Ólafur Jónsson bæjarfulltrúi
H-listans í Kópavogi skýrði blað-
inu svo frá að viðræður væru
byrjaðar milli bæjarfulltrúa H-
listans og Framsóitnarflokksins
um áframhaldandi samstarf
þessara aðila um stjórn bæjar-
íns en núverandi bæjarstjóri í
Kópavogi er Hjálmar Ólafsson,
en forseti bæjarstjórhar var Ól-
afur Jensson. Fyrsti fundurhinn-
ar nýkjömu bæjarstjórnar verð-
ur væntanlega haldinn um miðj-
an þennan mánuð.
Hafnarfjörður
Hjörleifur Gunnarsson bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins í
Hafnarfirði sagði að enn væri
ófáðið hvenær bæjarstjómin
héldi fyrsta fund sinn. Sjálfstæð-
isflokkurinn og Alþýðuflokkur-
inn halda sameiginlega meiri-
hluta sínum í bæjarstjórninni
þótt hvor flokkur um sig tapaði
einum bæjarfulltrúa til óháða
listans og Framsóknarflokkurinn
þeim þriðja. Bæjarfulltrúar ó-
Ný flugleið
'il Kína
PARÍS V/6 — Samkosnulag hef-
ur náðst milli Frákklands og
Kínverska alþýðulýðveldisins að
koma upp fyrstu flugleiðinni
milli Vestur-Evrópu og Kína.
Samkvæmt samningnum sem
var birtur í dag verður flogið á
milli Parisar og Shanghai um
Karachi og Pnompenb, höfuð-
borgar Kombodja.
Franska flugfélagið Air France
er sagt áætla að hefja ferðir til
'hanghai 19. september.
háða listans hafa ritað fulltrúum
hinna flokkanna þriggja í bæj-
arstjórninni, Sjólfstæðisflokks-
ins, Alþýðuflokksins og Alþýðu-
bandalagsins, bréf og boðið upp
á samvinnu allra flokkanna um
stjóm kaupstaðarins, en hinir
flokkarnir hafa ekki enn svarað
því tilboði óháðra. Núverandi
bæjarstjóri í Hafnarfirði er
Hafsteinn Baldvinsson og Sjálf-
stæðisflokkurinn átti einnig for-
seta bæjarstjómar, Stefán Jóns-
son.
Húsavík
Sl. kjörtímabil stóðu Alþýðu-
bandalagið og Framsóknarflokk-
urinn að stjóm bæjarins og er
Áskell Einarsson bæjarstjóri, en
hann er Framsóknarmaður, og
forseti bæjarstjómar var Jóhann
Hermannsson bæjarfulítrúi Al-
þýðubandalagsins. Nú í kosning-
unum missti Alþýðubandalagið
tvo bæjarfulltrúa til óháðs lista,
en forsvarsmenn hans lýstu sig
í andstöðu við núverandi bæjar-
stjórnarmeirihluta. I viðtali við
Þjóðviljann í gær sagði Jóhann
Hermannsson að fulltrúar óháðra,
Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins myndu eitthvað hafa
ræðzt við um myndun nýs
meirihluta í bæjarstjórn Húsa-
víkur en sér væri ekki kunnugt
um árangur þeirra viðræðna, en
hins vegar kvaðst hann telja
eðlilegt að þessir aðilar tækju
nú að sér stjóm kaupstaðarins.
Hafa þeir samanlagt 5 bæjar-
fulltrúa af níu.
Vestmannaeyjar
1 Eyjum missti Sjálfstæðis-
flokkurinn meirihluta sinn í
kosningunum og hafa að undan-
förnu farið fram viðræður milli
Alþýðubandalagsins, Alþýðu-
flokksins og Framsóknarflokksins
um myndun nýs meirihluta.
Fyrsti fundur hinnar nýkjömu
bæjarstjómar verður haldinn í
dag kl. 4.
Sauðárkrókur
Þar missti Sjálfstæðisflokkur-
inn einnig meirihluta sinn og
standa yfir viðræður um mynd-
un nýs meirihluta í bæjarstjóm-
inni og er frekari frétta af
þeim að vænta síðar í vikunni.
n
I
I
!
I
i
*
Bömin raöa sér upp með hjólin fyrir skoðunina. —(bjósm. Þjóðv, A.K.).
/ . . ... " r’ '■[
Reiðh/olaskoSun í skólum
Reykjavíkur hófst í gær
Þessa dagana fer fram al-
menn reiðhjólaskoðun í átta
barnaskólum hér i borg á
vegum Iögreglunnar í Reykja-
vík og Umferðarnefndar R-
víkur. Yfirumsjón- með skoð-
uniani hefur Ásmundur Matt-
híasson, Iögregluvarðstjóri.
Reiðhjólaskoðunin hófst í
gærmorgun í Hvassaleitisskóla
og hélt áfram í Miðbæjar-
barnaskóla eftir hádegi, en
bömin mæta með hjól sín
við þann skóla sem þau sóttu
s.I. vetur.
I Miðbæjarþarnaskólann
komu um fimmtíu börn með
hjól sin. Fengu krakkarnirað
sjá skuggamyndir sem teknar
hafa verið undanfarið af um-
ferðinni í Reykjavík, t.d. var
þeim sýnt hvemig fer stund-
um fyrir þeim hjólreiða-
mönnum sem kunna ekki um-
ferðarreglurnar.
Skuggamyndasýningar eru
nýjung á þessu sviði og þetta
er í fyrsta sinn sem gerð hef-
ur verið svo víðtæk reið-
hjólaskoðun hér þó að hjól
hafi verið skoðuð í skólum
undanfarin ár.
Merkin límd á hjólin eftir skoðun.
Eftir myndasýninguna var
haldið út í portið og þar var
útþúnaður hjólanna rækilega
skoðaður af þrem lögreglu-
þjónum. Þau böm sem voru
með hjól í góðu standi fengu
viðurkenningarmerki sem þau
festu á hjólin en hin geta
fengið þau í viðkomandi skól-
um þegar gert hefur verið
við það, sem athugavert þótti
við reiðhjól þeirra.
Fimmtudagur 2. júní 1966 — 31. árgangur — 120. tölublað.
Aðalfundur ÆFR er í dag
Aðalfundur Æskulýðsfylkingarinnar í Reykja-
vík verður haldinn í kvöld kl. 8,30 í Tjamar-
götu 20.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Svavar Gestsson ræðir úrslit borgarstjórnar-
kosninganna og starfið framundan.
Félagar, mætið stundvíslega og munið eftir fé-
lagsgjaldinu.
Stjómin.
Loftleiðir kaupa
ný þjálfunartæki
Loftleiðir hafa nú keypt nýtt
flugþjálfunartæki og verður það
tekið í notkun í dag. Tækinu
hefur verið komið fyrir í kjall-
ara í skrifstofubyggingu félags-
ins á Reykjavíkurflugvelii, það
er frá enska fyrirtækinu Redi-
fon og kostar hálfa áttundumilj-
ón króna. Þrátt fyrir það telja
Loftleiðir, að tækið gcti borgað
sig upp á 4—5 árum, svo mikið
æfingaflug sparast, en auk þess
fá flugmenn með þessu margfalt
stöðugrl þjálfun en clla mundi.
Fyrir um það bil fimm árum
leituðu Loftleiðir tilboða í slík
flugþjólfunartæki, en ekki varð
þá af kaupunum, m.a. vegna
þess, að réttara þótti að bíða
með kaup á dýrum tækjum þar
til séð yrði hvaða flugvélateg-
und tæki við af DC-6B-vélum
félagsins. Með tiikomu Rolls
Royce flugvéla félagsins varð enn
ljósari nauðsyn þess að félagið
eignaðist slík þjálfunartæki, og
fyrir rúmu ári var gengið frá
kaupum og smíði.
Tæki þetta er eftirlíking af
flugstjórnarklefa og flugeigin-
leikar miðaðir við Rolls Royce
400, en með litlum tilkostnaði
má breyta klefanum í æfinga-
tæki fyrir þotur, ef þess skyldi
reynast þörf. 1 tæki þessu má
þjálfa flugmenn í blindflugi á-
samt aðflugi að öllum þeim
flugvölltim, er hafa aðflugsvita,
en í tækinu eru fjórar miðunar-
stöðvar og fjórar talstöðvar eins
og í flestum stærri flugvélum.
Þá má framkalla bilanir á mið-
unarstöðvum, mælum, hreyflum,
eld í' hreyfli og fleiri neyðartil-
felli og þjálfa flugmenn í að
bregðast við þeim.
Allir flugstjórar í reglubuqdnu
atvinnuflugi verðá að ganga
undir hæfnispróf á sex mánaða
fresti, en flugmenn á eins árs
fresti. Loftleiðir vona, að hluti
af hæfnisprófum geti fariðfram
i tækinu, flugmenn fá meiri
tíma í þesskonar tækjum sem
eins og áður er sagt spara mikið
fé, en stórar flugvélar á borðvið
Rolls Royce 400 kosta um 40.000
kr. á hvern flugtíma.
Kennari við tækið hefur verið
ráðinn Hörður Sigurjónsson,
fyrrverandi flugstjóri, en við-
gerðarmaður verður Halldór Sig-
urjónsson. Hafa þeir báðirverið
á námskeiði í Englandi og lært
rekstur og viðhald tækisins. Þeg-
ár í dag, fimmtudag, verður tæk-
ið tekið í notkun, en að jafnaði
munu 4—6 flugmenn hafa nct
af því daglega.
Gott veiðiveður
en síldin stygg
Gott veður var á síldármiðun-
um fyrra sólarhring, en lítil veiði.
Síldin er mjög stygg og auk
þess var lítið um síld.
Alls fengu 14 skip 1977 tonn:
Ingvar Guðjónsson GK 130 t.
Búðaklettur GK 170. Guðrún
Guðleifsdóttir ÍS 181. Arnar RE
170. Reykjaborg RE 90. Vigri GK
190. Fróðaklettur GK 100. Gunn-
ar SU 200. Hólmanes SU 86.
Ásþór RE 186. Guðrún Jónsdótt-
ir ÍS 90. Gísli Árni RE 234. Fák-
ur GK 90. Hoffell SU 60.
SkipuB nefnd tíl að endur-
skoða skipun sveitarfélaga
Félagsmálaráðherra hefur skip-
að níu manna nefnd til þess að
endurskofta skiþtingu landsins i
sveitarfélög með þaft fyrir aug-
um að stækka sveitarfélögin.
Jafnframt skal nefndin athuga
j hvort ekki sé rétt að breyta
sýsiuskipuninni og taka upp
! stærri lögbundin sambönd sveit-
arfélaga en sýslufélögin eru nú.
Nefnd þessi skal skila tillögum
sínum i frumvarpsformi eigi
síftar en á árinu 1968.
1 nefndina eru skipaðir þess-
ir menn:
Samkvæmt tilnefningu Sam-
bands íslenzkra sveitarfélaga eru
skipaðir í nefndina þeir Jónas
Guðmundsson formaður sam-
bandsins, Páll Líndal, borgar-
lögmaður og Jón Eiríksson, odd-
viti Skeiðahrepps.
Eftir tilnefningu Dómarafélags
Islands Ásgeir Pétursson, sýslu-
maður.
Eftir tilnefningu Alþýðuflokks-
ins Unnar Stefónsson, viðskipta-
fræðingur.
Eftir tilnefningu Framsóknár-
flokksins Daníel Ágústínusson,
fyrrverandi bæjarstjóri.
Eftir tilnefningu Sjálfstæðis-
flokksins Jón Árnason, alþingis-
maður.
Eftir tilnefningu Alþýðubanda-
lagsins Bjarni Þórðarson, bæjar-
stjóri.
Án tilnefningar Hjálmar VII-
hjálmsson, ráðuneytisstjóri, sem
jafnframt hefur verið skipaður
formaður nefndarinnar.
\
i
(Frá Félagsmálaráðuneytinu).