Þjóðviljinn - 17.06.1966, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 17.06.1966, Qupperneq 3
Föstudagur 17. JfinÍ Ífi66 — ÞJÖBVIEJINN — SÍÐA 3 Enn um Reynistaða menn a Kili Hinn 6. maí sl. hélt Jön Ey- þórsson veðurfræðingur erindi í útvarpið um Reynistaðamenn á Kili. Var hann þar að gera at- hugasemdir viS samskonar er- indi, er áður hafði verið flutt á sama vettVangi, eftir Þormóð Sveinsson á Akureyri, glögg- an mann á söguleg fræði.Samt var þetta erindi Þ.S. hugarfóst- ur, svo sem margt hefur orðið í sambandi við slysið á Kili 1780. Þormóður gerði, minnir mig, mikla hugarsmíð afhrakn- ingum þessara manna og fjár- ins, sem þeir ráku, í vötnum upp af Hrunamannahreppi, þar sem leið þeirra lá. Þetta vildi Jón Eyþórsson hrekja, tíðin hafði verið góð, eftir hitamæl- ingum Hannesar biskups Finns- sonar í Skálholti, sjálfsagt lít- ið orðið í vötnunum og auð- velt að reka féð yfir þau, þótt vita megi að minnsta kosti jök- ulfallið er sundvatn á fé. En hér bætir Jón ekkert úr skák. Ef hann, eins og Þ.S. álítur að viti bornir menn sund- reki fé í frosti, þá þarf hann að vita betur. Og hvað sem líður hitamælingum í Skálholti á hádegi, þá er vízt, að á þess- um tíma er frostupp á fjöllum, dag og nótt. Dvöl þeirra Reyni- staðamanna, efst í Hruna- mannahreppi er aðeins bið eft- ir því að vötnin frjósi, ogmunu þeir þó hafa teflt á tæpt vað í því efni £ Jökulfalli, og þurft á mannsöfnuði að halda til að draga eina og tvær kindur í senn yfir ísinn, enda fylgdu þeim margir Hreppamenn, ytra, þangað norður. 'Þ.S. má segja það, að léttara fé £ rekstri gátu þeir norðanmenn ekki fengið en £ Skaftaféllssýslu, og hefur fjöldi af fénu verið forustufé, og sennilega allt léttrækt. (Ég hef sjálfur átt skaftfellskar ær). Þetta fé fer með lestagangs- hraða eða vel það, 4 km á klukkustund og er ákaflega þolið á göngu, en það er lög- mál, númer eitt, £ rekstrí fjár, að það blotni ekki £ frosti. Hita- mælingamar £ Skálholti sýna það að tfð hefur verið stilltog orðspor af þvi riorðan fjalla er á líka lund, aðeins getið um rosa af landátt, en ekki snjókomu. En Jón Eyþórsson segir merkilega sögu eftir merku fólki í Ytri-Hrepp, en hún er á þá leið, að þeir hreppa- menn, sem íylgdu þeim norðan- mönnum að Jökulfalli, hafi litlu eftir að þeir snéru við hreppt hið versta veður, snjó- byl, svo að þeir hafi ekki allir vitað hvaða leið var rétt að fara. Líklega er fótur fyrir þessari sögu, jen þó gat varia skeð að Hreppamenn safni þá ekki liði til liðs við þá norð- anmenn, því þá hlutu þeir að vita þá í nauðum stadda. Þáð verður ekki, og þessvegna þarf líklega að breyta snjóbyl í æsilega stórrigningu. Nóttina sem þeir norðanmenn eru í Gránunesi hreppa þeir stór- rigningu og féð verður hold- vott, þetta holdvota fé reka þeir svo á stað, en brátt er komið frost, og þegar að Bein- hól er komið. er féð orðið gangslaust og fjöídinn af þvi biður dauða síns. þar sem það er komið. Þetta er eðlilegasta skýringin á dauða fjárins þama við Beinhól, en ég hafði gert ráð fyrir 'því að staðið hefði vérið fyrir þvi, þangað til það var fennt. Hér þurfti ekki að vera um neinn snjc að ræða, bara talsvert frost. til þess að svona tækist tii með féð. Þeir eru staddir á hagleysu, en geta sýnilega ekki hreyft sig með féð- Hestar gerast hungraðir oe eru hraktir, og eitthvað af þeim gat drepizt. Tveir hestar i ferð Sigurðar prests Gunnars- sonar og J. e. Schythe dráp- ust á Fagradal á Brúaröræfum 1840, við tjald þeirra félaga. Þeir deyja brátt úr lofteitrun þeir Sigurður á Daufá og Guð- mundur Daðason, og nú gat það skeð að Jón Austmann freisti þess að komast með bræðuma til byggða, þvi það er engin sönnun fyrir þvf, áð beinin sem blésu upp á Kili 1846, séu bein þeirra bræðra. Hefðu þeir dáið fyrst og verið lagðir þarna til geymslu og v'arnar vargi, hefðu þeir verið f fullum klæðnaði, meira að segja vel klæddir og eftir 66 ár, uppi á þurmm og köldum Kili, hefðu þessi föt enn verið Eftir Benedikt Gíslason frá Hofteigi að meira eða mirina leyti lítt fú’in, húr þeirra bræðra sömu- leiðis og haldið lit, ekki síður en kynhár Sigríðar Vidalíns, biskupsfrúar f Skálholti, eftir meira en 200 ár, er sáust að hefðu verið rauð. En Jósep læknir slcoöar skinin bein. Sannarlega hefðu líkin sannað það sjálf aö þau voru af þei,m bræðrum ef svo hefði verið. En þá koma þeir sem segja að líkunum hafi verið rænt úr tjaldinu og flett klæðum, og þykist nú sá illi fögnuður í fullri jötu standa. En hári þeirra bræðra hefðu þeir þó ekki rænt, og það er ófúið eftir 66 ár. En það eru hungr- aðir og hraktir hestar, sem þeir Jón leggja á Kjalveg (hraun) og enginn þeirra kemst lífs af. ísar strax ótraustir i Seyðis- árdrögum, þar sem hestur Jóns Austmanns fannst í feni. Um einn hest er getið að hann hafi komizt norður af. Ef þjóðsög- una um Gránu i Gránunesi væri nokkuð að marka, þáhafa þeir misst hana frá sér um nótt og ekki getað eftir leitað. Átta voru hestarnir í feröinni, og einhverjir af þeim voru taldir liggja dauðir hjá fénu. Sumt af því bjargast, en nauðafátt. Annars er frumrann- sókn þessara mála svo til eng- in, allt snýst um lfkrán úr tjaldinu, sem um málið hefur geymzt, sem aldrei hefur verið nema hugarburður, en ástfóst- ur iriikið í hugmyndaheimi manna. Þá sögu sagði Jón Ey- þórsson einnig eftir einhverj- um, að þeir tjaldbúar hefðu verið að töngla hrátt kjöt. Við það eiga fullhraustir menn að dunda, dagleið frá Þórarins- stöðum í Hrunamannaheiði! Engin sannindi birtust um það að mennimir hefðu lifað ein- hvern tíma í tialdinu. Um það gátu þó sézt óræk merki, að örna sinna hefðu þeir gengið út fyrir það. Um slíkt hefur ekki verið að ræða. Ég hef skriíað um þetta mál í bók- inni „Fólk og Saga“ og gerði þar ráð fyrir því oð bræðumír hefðu dáið fyrst af lofteitrun í tjöldum og var það að ábend- ingu Sigurðar Ölasonar lög- fróeðings, fróðs og viturs manns. Allir hlutu að sjá hvað h'k- fundurinn á Kili var keimlfk- ur líkfundi Svía á Hvíteyju og þeir töldu mennina hiklaust hafa dáið af lofteitrun, sem þar fundust. Mörg dæmi munuvera um slíkt og sagt hefur mér skilríkur Þingeyingur, að Sig- urgeir á Helluvaði, nýlega dá- inn merkismaður, hefði bjarg- azt nauðuglega frá lofteitrun í tjaldi á Mývatnsöræfum. Bræð- urna var hægt að grafa með- an jörð var lítt frosin, en með engu móti snemma vors. Hann er óviðfelldinn þessi gröftur á bræðmnum, og ég held að sú skoðun þurfi endurskoðunar við, um leið og ferð Jónsverð- ur þá heldur ekki neinn flótti, ef hann leggurú stað með bræð- urna eftir að hann sér að fénu var óbjargandi, öllu í klaka- böggli. Við nánari athugun er það líka ljóst, að það em alls ekki bein þeirra bræðra sem fundust 1846. Það em nógir menn til að bera bein á Kili, fyrr og síðar. Segja má að styttra hafi verið fyrir Jón að halda til baka, en ekki norð- ur af, en hann hefur ályktað, að eftir rigninguna væm vötn- in sunnan við ófær og það mun honum einnig hafa reynztnorð- an megin, er þangað kom. Hér má enn segja það að frumrannsókn á þessum atburði sé engin til og hafi lítt verið framkvæmd. Allt bendir strax í hjátrú og glæpagrun um lík- rán, og síðan taka við röklaus- ar sögur og getgátur, en áöllu þessu er etfitt að byggja nið- urstöðu nú á tímum: Ein af þessum röklausu sögum, og sú sem mest er haldið uppi, að hér hafi verið barn 1 för, 11 — 12 ára drengur. Reynistaða- hjón eiga að senda barn í lífs- hættulegar mannraunir! Þau hefðu varla komizt hjá stórvít- um fyrir slfkt athæfi. Hús- bændur bám ábyrgð á börnum, og gerast dæmi um það, að þau verða fyrir útlátum ef þau far- ast fyrir hándvömm. Hér var líka um þá ferð að ræða, að börn komu að engu haldi, og gátu ekki komið að neinu haldi. Það verður að minnsta kosti að vera búið að staðfesta Ein- ar, en eftir bann tíma bera menn ábyrgð á sjálfum sér. Þau Reynistaðahjón, Halidór og Ragnheiður, ganga í hjúskap 1759 og árið eftir 20. október 1760 fæðist fyrsta barn þeirra, Hólmfríður. Björg var fædd 11. marz 1763 og milli þeirra er Bjarni f. um áramót 1761—62, gat hann að vísu verið tvíburi við Hólmfríði. Líklegt er þó að Einar fœðist um áramót 1764 —65 og verið á 16. ári. Hann er náttúmlega hálfgert barn fyrir þvf, o'g sama er um Bjarna að segja þótt hann sé um 19 ára að aldri. Þessir unglingar duga ekki neitt í neinu og þeir eru öllu óvanir, sem nokkur mannraun er í. Hefur þjóðin reynt að gera sem mest úr Bjarna, en sem minnst úd Ein- ari, en þeir em hvor sem ann- ar, óharðnaðir unglingar. Sézt það bezt hvaða traust Jón Aust- mann hefur getað borið til Bjarna, að strax austur í Skaftafellssýslu Jcaupir hann tii liðs við sig Guðmund. son Daða prests í Reynisþingum, sem ef- laust hefur verið mikið karl- menni. eins og faðir hans var talinn að vera. Þessir ungling- ar gefa sig strax f fyrstu raun og það er ekki ósanngjarnt að trúa þvi, að Jón Austmann freisti þess að bjarga þeim norður, og gætu þeir þá verið lifandi, Sigurður og Guðmund- ur, og átt að freista þess að snúa við niður í Gránunes með féð, ef það kæmist á ról, og því fari Jón ekki með allahest- ana. En líkin f tjaldinu og beinin við Beinhól sýna úrslit málsins Síldveiðiskipstfórar - útgerðarmenn Höfum flestar útgerðarvörur til síldveiðanna, svo sem alls konar lása og vírklemmur, snurpuhringi, blakkir úr tré og járni, gálga- blakkir, háflása, lásavír, hífivír, snurpuvír og alls konar tógverk úr sísal, hampi og gerviefnum. TÖKUM yARANÆTUR TIL GEYMSLU OG VIÐGEKÐA. « Önnumst nótaviðgerðir á Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Breiðdalsvík, eftir ástæðum. * Ef skipshöfnin tekur sér frí einhvem tíma sumars, þá sjáum við um skipið á meðan. Netagerð Jóhanns Klausen, Eskifirði Kaupfélag Siglfiriinga KAUPUM landbúnaðarvörur. 1 \ SELJUM allar nauðsynjavörur til lands og sjávar, járnvörur og byggingarvörur. STARFRÆKJUM SÍLDARSÖLTUN, ÁVÖXTUM SPARIFE. TRYGGJUM á vegum Sa mvinnutrygginga og Lífi tryggingafélagsins Andvöku. Kaupféiag Siglfiriinga S i g 1 u f i r ð i . FEROAMENN í Mjólkurbar Mjólkursamsölunnar er framreiddur heitur og kaldur matur. Smurt brauð — skyr og rjómi allan daginn. — Allir ferðamenn eiga leið hjá Mjólkurbarnum, Laugavegi 162 er þeir koma til Reykjavíkur. OPNUM Kl. 7 f.h. Mjólkursamsolan

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.