Þjóðviljinn - 17.06.1966, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 17.06.1966, Blaðsíða 7
t Föstudagur 17. júní 1966 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 7 Ðagskrá hátíðahaUannú Framhald aí 1. síðu. auk annars efnis leikhúskvart- etiijn syngja lög úr „Járn- hausnum“, leikþáttur verður sem nefnist Einkunnabókin, vafalaust skemmtiefni börnum og unglingum, sem óttast gjarnan og hata slíkar bók- menntir. Þeir Alli Rúts og Karl Einarsson flytja skemmti- þátt, sem þeir hafa ákveðið að kalla „Gög og Gokke“ eftir gamanleikurunum frægu. Enn- fremur syngur Alli einn gam- anvísur, og hinn góðkunni leikari Rúrik Haraldsson fer með gamanþátt. Heimir Sindra- son og Jónas Tómasson leika og syngja, svo verða skáta- söngvar og að sjálfsögðu lúðra- sveitarleikur. Það eru þeir Gísli Alfreðsson og Klemenz Jónsson, sem völdu efnið og önnuðust undirbúning þes^ar- ar skemmtidagskrár barnanna, Gísli verður kynnir og stjórn- andi. Klukkan fjögur fer fram vin- sælt skemmtiatriði, sem er dans barna og unglinga í Lækjargötunni. Það er Her- mann Ragnar Stefánsson, sem stjórnar dansinum, hljómsveit- in nefnist Toxic og vafalaust nota nú foreldrarnir tækifærið til þess að lofa börnunum að fá sér snúning, það er þá frek- ar stætt á því að láta ungling- ana sitja heima um kvöldið. Á Laugardalsvellinum verð- ur fjölbreytt. dagskrá að vanda. Þar leikur Lúðrasveitin Svan- ur klukkan 16.00, en klukku- stundu síðar flytur Baldur Möller, formaður íþróttabanda- lags - Reykjavíkur, ávarp. Glímusýning verður undir stjórn Rögnvalds Gunnlaugs- sonar, KR-ingar og Ármenn- ingar sýnu áhaldaleikfimi, sem jafnan er augnayndi. Drengja- flokkur Ármanns sýnir enn glímu undir stjórn Harðar Gunnarssonar — muna nú að bola ekki, strákar! Svo fer fram eitthvað sem kallast „vítaspyrnukeppni'* milli Reykjavíkurmeistaranna Þrótt- ar og Knattspyrnufélagsins Vals. Vafalaust skemmtilegt fyrir knattspyrnuunnendur. Boðhlaup verða milli drengja og stúlkna frá íþróttanám- skeiðum Reykjavikurborgar, og svo verður hámark þessar- ar íþróttahátíðar: Keppni i frjálsum íþróttum. Keppt er um hinn veglegasta grip, for- setabikarinn, sem gefinn var þann 17. júní 1954. Leikstjóri verður Sveinn Björnsson og honum til aðstoðar Reynir Sig- urðsson. Og svo víkur sögunni ofan í miðbæ aftur. Hljómlistarunn- endum skal eindregið bent á hljómleika, sem verða í Hall- argarðinum svonefnda klukkan fimm. Lúðrasveit Reykjávík- ur leikur undir stjórn Páls Pampichlers Pálssonar. Um kvöldið er svo kvöldvakan á Arnarhóli: \ Lúðrasveitin Svanur er enn í eldinum og hefur leik sinn klukkan 20.30 — við höfum víst ekki getið þess, að stjórn- andi er Jón Sigurðsson, trom- petleikari. Geir Hallgrímsson borgarstjóri flytur ræðu, og svo verður leikinn Reykjavík- urmarsinn eftir Karl O. Run- ólfsson, en höfundur stjómar sjálfur í það sinn lúðrasveit- inni. Fóstbræður taka lagið undir stjórn Jóns Þórarinsson- ar, og Þorsteinn Ö. Stephen- sen flytur Gunnarshólma Jón- asar Hailgrímssonar. Þeir Bjarni Guðmundsson og Guð- mundur Sigurðsson hafa samið einn mikinn gamanþátt, sem Karl Guðmundsson, leikari, flytur. Kvöldvökunni lýkur með söng þeirra Svölu Niel- sen og Guðmundar Jónssonar, en undirleikari er Ólafur Vignir AlbertSson. Og svo dansa Reykvíkingar og aðrir þjóðhátiðargestir til klukkan eitt á eftirtöldum stöðum: Lækjartorgí, Aðal- stræti og í Lækjargötu. Kynn- ir á Lækjartorgi er Svavar Gests. Kaupfélag Þingeyinga Húsavík Takmark frumherjanna stendur óbreytt. Betri lífskjör fyrir fólkið í landinu með samvinnurekstri. Verzlið við eigið kaupfélag. « Kaupfélag Þingeyinga Húsavik Samvinnuverzlun l tryggir yður sanngjarnt verð. Verzlum með flestar innlendar og erlendar vörutegundir. Kaupfélog A-Skafffellinga Höfn, Hornafirði Samvinnuverilun tryggir sannvirði Viðskipfamenn! Munið, oð með því oð verzla við kaupfélogið fryggið þér bezt yðar eigin hag - Kappkostum að veita sem bezta þiónustu Kaupfélagiö FRAM eskaupstað Hraðfrystum allar fiskafurðir Saltfiskverkun Skreiðarverkun Fiskimiölsverksmiðja r * / • Hraðfrystihús Patreksfja rðar h.f. PATREKSFÍRÐI. 4 Það er hagstætf að verzla í eigin búðum. Seljum hvers konar neyzluvörur innlendar og erlendar. Samvinnuverzlun styður að hag heimilisins. Kaupfélag Hrútfirðinga Borðeyri SAMVINNUMENN. Verzlið við eigin samtök, það tryggir yður sannvirði. Kaupfélag Svalbarðsey. or

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.