Þjóðviljinn - 02.07.1966, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 02.07.1966, Blaðsíða 1
Fjömtíu ára starf: Goðafíkneski frá 1. öld Þetta er keltneskt goðalíkn- eski úr steini frá fyrstu öld e. Kr. og er ein af mörgum myndutn í nýjustu féiagsbók Máls og menningar „Mann- kynssögu 300—630“ eftir Sverri Kristjánsson sagnfræð- ing. í Þjóðviljanum á morgun, sunnudag, birtist ritdómur um bókina, en af öðru efni blaðsins má nefna: Skúli á Ljótunnarstöðum skrifar um útvarpsdagskrána fýrir og eftir kosningarnar i vor. Austri nefnir hvíldardagspist- il sinn að þessu sinni „Við- reisn og verðbólga“. Kópavogsbúi ritar Lyndon B. Johnson, forseta Bandaríkj- 'anna, bréf. Einnig: Skákþátt- ur, Landshornasyrpa og sitt- hvað fleira. Landhelgisgæzlan eignast nýtt skip □ Landhelgisgæzla íslands er fertug um þess- ar mundir. í tilefni af því, át’ti forstjóri hennar, Pétur Sigurðsson, tal við fréttamenn í gær, og skýrði þá svo frá, að Landhelgisgæzlan muni vænt- anlega senn eignast nýtt ,skip. Ekkert vildi Pétur segja að svo stöddu um nafn hins nýja skips, en með tilliti til þess, að „Ægir“ er nú að syngja sitt síðasta vers eftir langa og dygga þjónus’tu, geta menn gizkað á það, að hið nýja skip hljóti verð- ugt nafn. Pétur skýrði ennfremur svo frá, að til landsins séu á nsest- unni væntanlegir fulltrúar er- lendra skipasmíðastöðva til þess að skýra tilboð sín um hið nýja skip og ganga frá samningum, ef af verður. Þegar hefur verið lögð fram útlitsteikning hins nýja „Ægis“ — hvort sem hann hlýtur nú það nafn eðúr ei — og kemur í Ijós af henni, að ganghraðinn_ verður greinilega meiri en „Óðins“, sennilega 2 mílum meiri. Skipið verður um 1200 tonn, Óðinn er um 1000, bg lengdin eitthvað um 60 m. Þess'má geta í þessu sambandi að „Ægir“ hefur staðið sig flest- um skipum betur, það mun hafa verið á árinu 1928 sem hann kom fyrst til landsins og hefur frá því fyrsta reynzt hið mesta happaskip. — Ýmislegt fleira at- hyglisvert kom fram í þessu við- tali, t.d. það að tala tekinna tog- ara frá því í ársbyrjun 1952 til ársloka 1965 hafi verið 372, en ekki treystist Pétur að svo komnu máli að nefna ákveðna heildartölu tekinna togara á 40 ára starfsferli landhelgisgæzl- unnar, — það er býsna há tala, sagði Pétur. — Nánar verður síðar í Þjóð- viljanum skýrt frá störf#n Landhelgisgæzlunnar á þessu 40 ára tímabili. Tækniskólanum slitið í gærdag •k Tækniskóla íslands var slitið í gær. Hér að ofan sjáum við nokkra þeirra manna, sem luku fyrri- hlutaprófi frá skólanum og halda nú vel flestir að minnsta kosti til fram- haldsnáms erlendis. Flestir munu halda til Noregs, enda hafa Norð- menn reynzt íslendingum sérlega velviljaðir í því að taka við mönnum til framhaldsnáms í tækni- fræðum. ★ Nánar segir frá skólaslit- um í frétt á baksíðu blaðs- ins í dag. — (Ljósm. A.K.) Lítil síldveiði Flotinn heldur sig á takmörkuSu svæði Lítil síldveiði hefur veriðfyrir austan undanfarna sólarhringa og hefur flotinn haldið sig á heidur takmörkuðu svæði um 120 mílur austsuðaustur af Norðfjarðar- horni og orðið Iítils var. Gott veður var s.I. sólarhring og fengu 18 skip samtals 1705 tonn. Þessi skip fengu afla: Halkicn 70, Sveinbjörn Jakobsson 90, Þorsteinn 180, Þorleifur 185, Hannes Hafsteinn 50, Akurey 80, Jón Finnsson 130, Lómur 150, Helgi Flóventsson 150, Ingiber Glafsson 65, Ámi Magnúson 110, Höfrungur XII 110, Reykjaborg 130, Garðar 150, Gjafar 70, Ól. Sigurðsson 90, Anna og Baldur I 35. ENN BIÐ Á FÉLAGA- SKRÁNNI ■fmsir lesendur Þjóðviljans hafa spurzt fyrir um það, hvort blaðið ætlaði ekki að birta eins og jafnan áður skrá um hæstu gjaldendur útsvara í Reykjavík, einstaklinga og félög. Því er til að svara að félagaskráin mun ekki liggja frammi á Skattstof- unni fyrr en á mánudaginn kem- ur og stofnunin hefur enn , ekki sent frá sér eins og heitið hefur verið, skrá yfir hæstu gjaldehdur í hópi einstaklinga. Örlagarík ákvörðun Johnsons forseta: Bandaríkjamenn svífast einskis í Yietnamstríðinu Loftárásirnar.á olíustöðvar í Hanoi og Haiphong eru aðeins fyrstu að- gerðir þeirra til að knýja Vietnam til uppgjafar hvað sem það kostar WASHINGTON, MO§KVA 1/7 — Norska fréttastofan NTB hefur það eftir áreiðanleg- um heimildum í Washington í dag, að alveg nýlega hafi það verið ákveðið á æðstu stöðum í Bandaríkjunum að knýja andstæðinga þeirra í Vietnam til að gefast upp. □ Er þessi ákvörðun talin mjög mikilvæg breyting á þeirri stefnu, sem Johnson Bandaríkjaforseti hefur fylgt til þessa og heimildarmenn telja að hafi verið „tiltölu- lega varkár“.., □ Leonid Brésjnéf aðal- ritari kommúnis^aflokks Sov- étríkjanna sagði í dag að að- Þjónadeilan óleyst Boða verkíall n.k. föstudag Næsta íöstudag boða þjónar verkfall og er það miðað við veitingahús á öllu landinu, — þar sém Félag framreiðslumanna er landsfélag. Verður þetta áhrifarík aðgerð hjá þjónunum, þar sem ferða- mannastraumurinn stendur nú sem hæst til 'andsins um þetta leyti. Einkennilegur seinagangur hefur verið á samningaumræð- um við fulltrúa Félags fram- reiðslumanna og hafa fulltrúar Sambands gisti- og veitinga- húsaeigenda beðið um frest hvað eftir annað til þess að ræða málin. Loks kom fram tilboð frá veitingahúsaeigendum og telja þjónarnir það ná skemmra en skyldi og þar sé hreinlfega geng- ið á hlut þjóna. stoð Sovétríkjanna við Vi- etnam verði aukin vegna loftárása Bandaríkjamanna á Hanoi og Haiphong. □ Landvarnaráðherra Sov- étríkjanna Rodin Málinovski sagði að stefna Bandaríkja- manna gerði Sovétríkjunum nauðsynlegt að auka viðbún- að sinn og „halda púðrinu þurru“. □ Ríkisst'jórnin í Norður- Vietnam hefur ákveðið að hefja þegar í stað brottflutn- ing íbúa . höfuðborgarinnar Hanoi. í ræðu í Iowá í gær sagði Johnson Bandaríkjaforseti að loftárásir Bandaríkjamanna séu gerðar því kommúnistar hafi ekki gert annárra kosta völ. Fréttamenn segj a að forsetinn U'nmæli de Gaulle — sjá síðu @ hafi augsýnilega verið sannfœrð-^ ur um að hann hefði þegar gert allt sem í hans valdi stóð til að ná friðsamlegrí lausn í Vi- etnam. Sagt er að nýjar tilraun- ir verði gerðar til friðarsamn- ingu miklu seinna, en þangað til fái fjandmennirnir heldur bet- ur áð finna fyrir þvi. Andstæðingarnir verða dregn- ir að samningaborðinu á hnján- um, jafnvel þó hætta sé á bein- um átökurn við Kina, segja sömu heimildarmenn. Kínverjar Höfuðmálgagn kínverskr^ kommúnista, Alþýðudagblaðig í Peking, sakaði í dag leiðtoga Sovétrikjanna um þátttöku í því sem blaðið kallaði bandaríska á- ætlun til að koma á friðj með sprengjum. Sovétríkin Ræða , Brésnjéfs aðalritara • í dag þykir benda til þess, að Sovétríkin séu nú að • athuga möguleika á aukinni hernaðarað- stoð vig Nprður-Vietnam. í yfirlýsingu sovézku ríkis- stjómarinnar í gærkvöld lofaði hún að veita Norður-Vietnam alla hugsanlega aðstoð. Brésnjéf talaði við lokapróf i herakademíu Sovétríkjanna og sagði að hinir nýju atburðir í Vietnam væru alvarlegt áhyggju- efni og bætti við að Sovétríkin mundu aldrei svfkja íbúa Viet- nam. Malinovskij landvarnaráðherra, sem talað; við sama tækifæri, Framhald á 3. síðu. •■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■! Samninga- fundir á Reyðarfirði í dag fer fram samninga- fundur á Reyðarfirði milli atvinnurekenda og verka- lýðsfélaga á Austurlandi. Hefst fundurinn klukkan fimm síðdegis. Klukkan tvö hefst hins- vegar fulltrúafundur verka- lýðsfélaganna til undirbún- ings samningafundinum á grundvelli rammasamnings- ins. Á þessum fundi mseta Þórir Daníelsson, fram- : kvæmdastjóri Verkamanna- sambandsins, Barði Frið- ! riksson, skrifststj. Vinnu- veitendasamb. og Skúli ; Pálmason, lögfræðingur frá Vinnumálasambandi sam- I vinnufélaganna. Vantar enn vitni Rannsóknarlögreglan hefur beðið blaðið að koma því á framfæri að enn vantar vitni að banaslysinu sem varð á Skúla- götu á móts við benzínstöð BP kl. ,15.50 á miðvikudaginn. nOflVllJINN Laugardagur 2. julí [1966 — 31. árgangur — 144, tölublað.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.