Þjóðviljinn - 02.07.1966, Side 4
4 stoA — ÞJÓSVmJDÍN — Laugardagor 2. Jólf 1960
Otgetaadi: Samelnirigarfloktour alþýðu — SóeialistaQokto-
itrlTin.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnúa Kjartansaon,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjórit Sigurður V. Filöþjóísson.
Auglýsingastj.t Þorva’dur Jó’tannesson.
Sími 17-500 (5 lfnur). Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Laiusa-
soluverð kr. 5.00.
Félagslegt ranglœtí
rr'
k rið 1960 greiddu fyrir'tækin í Reykjavík 24% út-
svaranna, næstum því fjórðung. Á þessu ári er
hlutur fyrirtækja aðeins rúm 13%, en það jafn-
gildir því að greiðslur þeirra í borgarsjóð hafi
hlutfallslega lækkað um helming í samanburði
við launafólk. Ekki stafar þetta af því að borgar-
sjóður hafi dregið úr útsvarsbyrðum sínum og lát-
ið fyrirtækin njóta þess, heldur hefur það verið ár-
viss regla að heildarupphaaðin hefur hækkað mjög
verulega ár frá ári og alltaf raunar miklu meira en
vísitöluhækkuninni nemur. Alla þá hækkun hef-
ur launafólk orðið að taka á sig og í þokkabót
helminginn af þeim byrðum sem gróðafyrirtækin
báru í upphafi viðreisnar. Ekki stafar þetta heldur
af því að afkoma fyrirtækja hafi jafnt og þétt ver-
ið að versna undir viðreisnarstjórn; hér hefur ver-
ið gullöld og gleðitíð, eins og marka má af verzl-
unarhöllum og mammonsmusterum; fjármála-
mennimir berast nú meira á en nokkru sinni fyrr
1 sögu þjóðarinnar. Hér er aðeins að verki blygð-
unarlaust félagslegt ranglæ’ti; hinar köldu tölur
skattskrárinnar eru skýringin á því. hversvegna
auðmennimir í Reykjavík hnappast saman fyrir
hverjar kosningar og leggja Sjálfstæðisflokknum
til ótakmörkuð fjárráð.
17'yrir borgarstjómarkosningamar í Reykjavík
varaði Þjóðviljinn launafólk við þeim stað-
reyndum sem nú blasa við, mönnum var bent á
að þeir gætu kosið af sér ranglát útsvör. Ekki gerðu
nægilega margir sér þessar staðreyndir ljósar til
þess að Sjálfstæðisflokkurinn missti meirihluta
sinn. Nú ættu menn að geyma skattaseðilinn sinn
á vísum stað og taka hann fram áður en kjörið
verður til alþingis á næsta ári.
Ömurlegt hlutskiptí
¥ Hafnarfirði hefur myndazt einkennilegt ástand
•*-. eftir bæjarstjómarkosningamar. Á síðasta kjör-
tímabili fóru stjómarflokkarnir, Sjálfstæðisflokk-
urinn og Alþýðuflokkurinn, þar með stjórn, og
raunar kom Framsóknarflokkurinn um skeið við
þá sögu. í kosningunum nú veittu kjósendur þess-
um flokkum mjög eftirminnilega hirtingu, Fram-
sóknarfulltrúinn valt úr bæjarstjórn og stjórnar-
flokkamir töpuðu hvor sínum fulltrúa. Síðan hef-
ur ekki tekizt að mynda neinn meirihluta, hvorki
formlegan né óformlegan.
Ctjórnarflokkarnir fara enn með meirihluta í bæj-
^ arstjórn. Þeir virðast þó ekki þora að halda
áfram samvinnu sinni, né heldur koma á annarri
samstöðu. Þeir eru að breyta bæjarmálefnum
Hafnfirðinga í fáránlegan skopleik. Það er ömur-
legt hlutskipti, ekki sízt fyrir Alþýðuflokkinn sem
fyrir skömmu fór með öll völd í bænum og taldi
hann sóma sinn. — m.
□ Góð þáttfaka í flestum greinum, án þess
árangur væri þó sérstakur, var það sem framar
öðm setti svip sinn á Meistaramót Reykjavíkur
í frjálsum íþróttum, en það var háð á Laugar-
dalsvellinum sl. miðvikudags- og fimmtudags-
kvöld.
Frjálsar íþróttir:
Ágætt 800 m. hl aup og góð þátt-
taka settu svip sinn á keppni MR
Fyrra kvöldið bar 800 metra
blaupið hæst, en Þar var keppni
afar jöfn osr tvísýn oe árangur
afar eóður á íslenzkan mæli-
kvarða. Þar kom fram á sjón-
arsviðið gjörsamlega óþekktur
hlaupari, Gísli Friðgeirsson Á,
ungur piltur sem hljóp nú í
fyrsta skipti í keppni og náði
tímanum 2.00,2 mín„ sem ein-
hverntíma hefði þótt hoðlegur
tfmi sigurvegara á þessari
vegalengd.
f hlaupi þessu var keppnin
hörðust milli þeirra Þprsteins
Þorsteinssonar KR og Halldórs^
Guðbjörnssonar KR. Þorsteinn
sigraði, hlaut tímann 1.56,5
mín., Halldór varð í öðru sæti
á 1.56,7, Þórainn Ragnarsson ÍR
varð Þriðji á 1.59,6 mín., Gisli
Friðgeirsson Á fjórði á 2.00’,2
mín. Agnar Leví KR fimmfi á
sama tíma.
Önnur helztu úrslit á mið-
vikudagsikvöldið urðu Þau, að
Valbjörn Þorláksson KR sigr-
aði x 200 m hlaupi á 22, 6 sek.
en Ólafur Guðmundsson KR
varð annar á 22,7.
Kristleifur Guðbjörnsson KR
vann 5000 m hlaupið á 16.017,3
mín. en Agnar Leví KR varð
annar á 18. 36,5.
Helgi Hólm ÍR sigraði í 400
m grindahlaupi á 58,1 sek. en,
Halldór Guðbjörnsson KR varð
annar á 58,9 sek.
Jón Þ. Ólafsson ÍR vann há-
stökkið, stö'kk 1,95 m. en Kjart-
an Guðjónsson ÍR varð annar
og stökk 1,80 m. ,
Langstökkið vann Ólafur Guð-
mundsson KR, stöklk 6,85, en
Kjartan Guðjónssqn stökk 6,61
metra.
Guðmundur Hermannsson KR
vann kúluvarpið, kastaði ’ 15,05
m. Valbjörn Þorláksson KR
vann spjótkastið, 58,05 m. Sveit
KR vann 4x100 m. boðhlaup
á 45,1 sek.
Mikil • þáttaka var í kvenna-
greinum. í 100 m hlaupi sigr-
aði Guðný Eiríksdóttir KR á
14,2 sek., Sólveig Hanna-m ÍR
vann hástökkið, 1,30, (söm-u
hæð stökk María Hauksdót-tir
ÍR og Regína Höskuldsdóttir
KR), Hlíf Danielsdóttir vann
kúluvarpið, 8,34 m. (Hrafnhild-
ur Guðmundsdóttir, hin snjalla
sundkon-a, varð önnur, kastaði
8,31). Þá vann Sigrún Ein-
arsdóttir KR kringlukastið,
24.91 m.
KR varð stigahæst
félaganna
Síðari mótsd-aginn urðu helztu
úrslit þessi:
Ragnar Guðmundsson Á vann
100 m hlaupið á 11,1 sek., Ól-
áfur Guðmundsson varð annar
á 11,2 og Val'björn Þorláksson
þriðjj, á 11,3.
f 400 m hlaupi si-graði Þor-
steinn Þorsteinsson KR á 50,3
sek. Þórarinn Ragnarsson hljóp
á 52,3 sek. og Þórarinn Am-
órsson á 52,6.
Halldór Guðbjörnsson v-ann
1500 m .hlaupið á 4.05,5 mín.
og Valbjörn vann 110 m grinda-
hlaup á 15,5 sek. Sveit KR
vann 4x400 m boðhlaup á 3.29,0
mín.
Þá vann Valbjö-rn Þorláfcs-
son stangarstökk, 4,02 m., og
Jón Þ. Ólafsson ÍR vann þrí-
stökk, 13,72 m.
Kringlukastið vann Þorsteinn
Alfreðsson Kópavogi sem keppti
sem gestur og náði 45,84 m.
kasti, en Reykjavíkurrneistari
varð Erlendur Valdimarsson ÍR,
kastaði 44,87 m.
Jón Magnússon ÍR vann nú
Þórð B. Sigurðsson KR í fyrsta
skipti í sleggjukastinu, kastaði
49,90 metra, en Þórður 46,45
metra.
200 m hl-aup kvenn-a vann
Halldóra Helgadóttir á 29,6 sek.
og hún vanp einnig langstökk-
ið, 4,59 m. Élísabet Brand varð
Reykjavikurmeistari í krihglu-
kasti, 25,25, en tvaer stúi-kur
úr Kópavogi köstuðu lengra en
hún: A-rndís Bjömsdóttir (kast-
aði 29,10) og Bima Ágúsfsdóttir
(26.00). í 4x100 m boðhláupi
kvenna sigraði sveit KR á 57,2
sek.
1 félagakeppninni sigraði KR,
hlaut samtals 336 stig. ÍRvárð
í öðrn sæti með 219 stig og
Ármann í þriðja sæti með 49
stig.
Danska lands-
liðið skipað
Landslið Dana verður þannig
skipað á Laugardalsvelli 4. júlí:
Heinz Hildebrandt, Vejle; Börge
Thomp, Bröns-höj; Niels Yde,
AB; Niels Erik Andersen, Vejle;
Börge Enemark, Esbjerg; 'Niels
Huttel, Vejle; Niels Erik Kilde-
moes Odense KFUM; Jör-gen
Jörgensen, Holbæ-k; Bent Jen-
sen, B. 1913; le Björnmose,
1909; Finn Wiberg, AB.
Þjálfarí liðsins verður Ernst
Netuka, Hvjdövre.
Undirbuningur fyrir landsleikinn við Dani:
Yfir tuttugu sænskir frjáls-
íþróttamenn til keppni hér
A sunnudaginn, 3. júlí, eru
væntanlegir hingað 20 frjáls-
íþróttamenn og 2 stúlkur, ásamt
4 fararstjórum, frá Idrottsring-
en í Gautaborg í Svíþjóð.
Hópur þessi kemur hingað á
vegum frjálsíþróttadeildar KR,
en frjálsíþrótt-amenn KR nutu
gestrisni Idrottsringen á keppn-^
isferðalagi í Svíþjóð sumarið
1964.
Svíamir dvelja hér viku-
tíma, skoða bor-gina og ná-
grennig og helztu ferða-manna-
staði á Suðurlandinu, auk þess
sem þeir tak-a hér þátt í frjáis-
íþrótta-móti, sem KR stendur
fyrir fimmtudaginn 7. júlí n.k.
í þessum sænska hópi er að-
eins einn keppandi, "sem á betri
árángur en íslenzkt met. Erþað
kúl-uvarparinn Stig-Lennart Er-
iksson, sem v-arpað h©fur kúl-
unni 17,14 m. En í hópnum eru
margir hlauparar, og eiga þeir
beztu þeirra tím-a, sem eru á
borð vig áranigur beztu hlauþ-
ar-a okkar nú, svo að bú-ast má
við skem-mtilegri keppni í
hlaupunum.
Aðalgrein mótsins verður 800
m hlaupið, en þar má nefna
Svíana To-m Person (1:55),
Tommy Hanson (1:56), Lennart
Norberg (2:00) Per Olisspn
(1:58) og Rune All-ansson
(2:00). Á móti þeim hlaupa
Þorsteinn Þorsteinsson og Úall-
dór Guðbjömsson KR-, sem
fengu tímana 1:56,5 og 1:56,7 á
Rvíkurmeistaramótinu, Þórar-
inn Ragnarsson, KR (1:59,6 á
sa-ma móti), Agnar Levý, KR
(2:00,2), Þórarinn Arnórsson,
ÍR (2:00,6), að ógleymdum
læikn-anemanum Gísla H. Frið-
gúrssyni, Á, sem hljóp á 2:00,2
mín. f sínu fyrsta 800 m hl-auþi
og jafnframt sinni fyrstu keppni
á Reykjavíkurmeistar-amótinu
nú í vikunni. Er þar ótvírætt
um mikið hlauparaefni að ræða,
sem vaenta má af hinna óvænt-
ustu afreka.
Aðrir, sem sérstaklega »á
nefna úr sænska liðinu, em:
406 m hlauparamir Lars Philip
(50,8), Holger Kallqvist '(51,0),
langstökkvarann Stig Fassberg
(6,89), hástökvarann Kjell
Bemtsson (1,86) og þrístökkv-
arinn Lennart Larsson (13,50).
Á mótinu verður keppt í
þessum greinum;
KARLAR: 100 m, 400 m, 800
m, 1500 m og 3000i m hlaup,
4x400 m boðhlaup, 1-an-gstökk,
stangarstökk, kúluvarp og
kringlukast.
KON-UR: 100 m hlaup og lan-g-
StÖkk. ;
SVEINAR: 300 m hlaup,
Þátttökutilkynningar þurfa
að berast Einari Frímannssyni
c/o Samvin nutryggingar sími
3-85-00, heimasimi: 1-84-16, í
síðasta lagi á mánudag,. 4.
júlí n.k.
SKIPATRYGGINGAR
ÚTGERÐARMENN.
TRYGGJUM HVERS KONAR SKIP OG ALLT,
SEM ÞEIM VIÐKEMUR
TRYGGINGAFÉLAGIÐ HEIMIR"
jUnjJDAJRGÖTU^JREYKJAVf^^fMi^2T22^^T26^
Leðurjakkar - Sjóliðajakkar
á stúlkur og drengi — Terylenebuxur, stretch-
buxur, gallabuxur og peysur.
GÓÐAR VÖRUR — GOTT VERÐ
Verzlunin O. L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).
k