Þjóðviljinn - 10.07.1966, Side 8
g SIÐA —» ÞJÓÐVIU'INN — Sunnudagar lfl. júlí-1966.
•v*-
Iðnsýningin 1966
\ Iðnsýningin óskar að ráða stúlku vana skrif-
stofustörfum nú þegar. — Vélritunarkunn-
átta nauðsynleg. — Upplýsingar veittar á
skrifstofu Landssambands iðnaðarmanna,
Lækjargötu lOb, IV .hæð.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
# I. DEILD
A Akureyri í dag kl. 4:
keppa á Akureyrarvelli
P’
Iþróttahmdakg Akureyrar
íþróttabandal. Kefíavíkur
Dómari: Guðjón Finnbogason.
MdTANEFND.
------—--------------------------------
Útsö'ustaðir
Þjóðviljans
ísafjörður. Umboð fyrir Þjóðviljann á ísafirði annast Bók-
hlaðan h.f. Blaðið er einnig selt í lausasölu á sama stað.
Flateyri. Blaðið er selt í lausasölu hjá Bókaverzlun Jóns
Eyjólfssonar.
Búðarðalur. Blaðið er selt í lausasölu hjá Söluskála Kaup-
félags Búðardals.
Stykkishólmur. Umboðsmaður Þjóðviljans í Stykkishólmi
er Erlingur Viggósson.
Ólafsvík. Umboðsmaður Þjóðviljans í Ólafsvík er Þórunn
Magnúsdót'tir.
Hellissandur. Umboðsmaður Þjóðviljans á Hellissandi er
Skúli Alexandersson.
Borgames. Umboðsmaður Þjóðviljans í Borgarnesi er 01-
geir Friðfinnsson.
Akranes. Umboðsmaður Þjóðviljans á Akranesi er Am-
mundur Gíslason, Háholti 12.
Auglýsingasími Þjóðviljans
er 17-500
Héraðslæknisembættið
á Patreksfirði er lausttil umsóknar
Héraðslaeknisembættið í Patreksfjarðarhéraði, sem áður
hefur verið auglýst laust, er enn laust til umsóknar.
Landlæknisembættið veitir upplýsingar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
• Halló strákar, hér er ég
• Þessi mynd er tekin á Keflavíkurflugvelli við komu Ú Þants á dögunum og sýnir ívar Guð-
mundsson í hópi íslenzkra hlaðamanna við komuna.
Halló strákar, — hér er ég, varð þessum gamla kollega að orði og menn biðu spenntir eftir
framhaldinu. En það var í mörg hom að líta og mínútumar dýrmætar. (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
8 30 Fílharmoníusveitin í Vín
leikur tónlist eftir Joseph og
Johann Strauss- W. Bosk-
ovsky stjórnar. P. Weston og
hljómsveit hans leika lög
eftir J. Kern.
9,10 Morguntónleikar. a) Guð
ris upp, óvinir hans tvístr-
ast, lofsöngur eftir Hándel. E-
Vaughan, A. Yt>ung og
King's-College-kórinn syngja
t með hljómsveit St. Martin-in-
the-Fields; D. Willcocks stj.
b) Píanókvartett (K 493) eftir
Mozart. M. Horszowski og
meðlimir úr Búdapest-
strengja-kvartettinum leika-
c) Sönglög eftir Rich. Strauss,
E. Lear syngur og E- Werba
leikur undir. d) Sinfónía nr.
4 op- 63 eftir Sibelius. Suisse
» Romande hljómjveitin leikur;
E. Ansermet stj.
11,00 Messa í Kópavogskirkju.
(Séra Gunnar Árnason).
14.00 Miðdegistónleikar- a) Sin-
fónía nr- 3 eftir Schubert.
Fílharmoníusveitin í Berlín
feikur; L. Maazel stj. b) Són-
ata nr- 32 bp- 111 eftir Beet-
hoven. A. B. Michelangeli
leikur á píanó- c) Sinfónía nr.
8. op. 88 eftir Dvorák. Fíl-
harmoníusveitin í Vínarborg
leikur; von Karajan stj,
15.30 Sunnudagslögin.
17-30 Bamatimi: Skeggi Ás-
Bjarnarson stjómar. a)
Sleðaferð, dönsk þjóðsaga.
Stefán Sigurðsson les þýðingu
sína. b) Lög úr kvikmynd-
inni „María Poppins‘‘. Ingi-
björg Þorbergs og Guðrún
Guðmundsdóttir sjmgja við
undirleik C. Billich. c) Síðari
hlutí sögunnar „Skin og
skúrir" eftir Hannes J. Magn-
ússon. Tryggvi Tryggvasbn
les-
18.30 Leo Schútzendorf syngur-
20.00 Blóð og járn fyrir einni
öld. Sverrir Kristjánsson
sagpfræðingur flytur annað
erindi: Andvana bylting.
20-30 Tvö hljómsveitarverk eft-
ir Grieg. Holberg-svíta op. 40
og Kúalokka- Philharmonía
leikur; Weldon stjórnar.
21.00 Stundarkom með Stefáni
Jónssyni og fleirum.
22- 10 Danslög.
23- 30 Dagskrárlök.
Mánudagur 11. júlí-
13-15 Miðdegisútvarp. Ólafur Þ-
Jónsson syngur. fiolshoj-
hljómsveitin í Moskvu leikur
„Klæki ástarinnar". ballett-
tónlist eftir Glazunoff; Golo-
vanoff stj. Sitkowetzki og
Davidovitsj leika svítu fyrir
fiðlu og pianó bp. 43 eftir
Vieuxtemps- Souzay syngur
lög eftir Schubert-
16.30 Sídegisútvarp- Como syng-
ur, hljómsveit B. Sanders
leikur, The High-Los syngja,
L- Logist og hljómsveit hans
leika, Bítlarnir syngja, F.
Pourcel og hljómsveit hans
leika, Fabian syngur og Fran-
cone leikur á harmbniku-
18-00 Atriði úr óperunni „Tosca"
eftir Puccini-
20.00 Um daginn og veginn.
Ragnar Jónsson forstj- talar.
20.20 Gömlu lögin sungin og
leikin.
20.30 Vordagar í Riga og Tallin.
Fjórða frásögn Gunnars Berg-
manns úr blaðamannaför til
Sovétríkjanna — með viðeig-
andi tónlist-
21.15 Konsert I G-dúr fyrir
strengjasveit eftir Vivaldi. I
Solisti Veneti leika; C- Scim-
one stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Hvað
sagði tröllið?"
22.15 „Sólnætur“, smásaga eftir
Mögnu Lúðvíksdóttur. Helga
Bachmann leikkona les-
22-40 Frá tónleikum Musica
Nbva í Austurbæjarbíói í júní
sí. P. Zukofsky, Gunnar Egil-
son, Pétur Þorvaldsson og
Þorkell Sigurbjörnsson leika.
Þorkell Sigurbjömssbn kynn-
ir. a) Sónata fyrir fiðlu og
píanó eftir Jón Nordal. b)
Þrjár tónsmíðar eftir Revu-
eltas- c) Largo eftir Ives- d)
„Hlutir sem sjást til hægri
og vinstri (gleraugnalaust)"
eftir E- Satie. e) „Víxl" eftir
Þorkel Sigurbjörnsson.
23-35 Dagskrárlok-
• Hve gott og
fagurt
Arnljótur hvílir S sinni gröf
auðnin ríkir þar norður við haf
syðra er ekki á tökum töf
traustir menn rétta landið af.
Enginn þótt sæki um Sauðanes-
kall
senn mun hér rætast málum úr
lslandi bjargar Efrafall
„álinii‘‘ í Straumsvík og Kísil-
gúr.
(Árn G. Eylands. Úr „Dagur*'
á Akureyri).
• Heilabrot
• Vitig þið að talan 37 er eina
tveggja stafa talan sem marg-
földuð með summu tölustafa
sinn-a gefur sömu útkomu og
surnman er af. þríveldistölum
þeirra beggja. Þanni-g: ■
37 — sum-ma tölustafanna er
10 sem margfölduð rneð 37 gef-
ur 370.
37 — 3 í þriðja veldi = 27
7 í þriðja veldi = 343
• Og summan 370,.
• Tilkynning
• Vegna sumarleyfa verður
skrifstofa Sósíalistafélags R-
víkur í Tjarnargötu 20 fyrstum
sinn þar tíl öðru vísi verður
ákveðið aðeins opin kl. 18—19,
virka daga, nema láugardaga.
Sósíalistafélag Rvíkur.
• Enn til Mývatnssveitar
Nú bjargar þér ekkert, ó sveit mín, og sýnt
að í síðasta skjól þitt er fokið;
þitt veldi af fegurð og velsæld er týnt
og vordraumi barnanna lokið.
Dís í Mikley.
K.R.R. Mánudagskvöld kl. 8.30 K.S.L
ÚRVAL — F.B.U:
á Laugardalsvellinum
Dómari: Magnús V. Péiursson. KNATTSPYRNDRÁÐ REtKJAVÍKDR
Sláttur hafinn
um aflt land
REYKJAVÍK, 8/7 — Sláttu:
hófst almennt í öllum land:
íjórðungum í þessari viku o-
hefur grasspretta dafnað frábær
lega vel síðustu vikur. Hita
bylgjur hafa gengið ■ yfir Norður-
og Austurland með tíðum gróðra -
skúrum og iofa bændur þar
sérstaklega öra grassprettu.
Um miðjan júnímánuð voru
horfur heldur slæmar um allt
land með allan gróður, og gras-
spretta hafði tekið seint við sér
vegna hins slæma vors og var
þá í rýrara lagi og á eftir tím-
anum miðað við venjulega gras-
fulltrúi hjá Búnaðarfélaginu.
En nú þarf ekki að örváenta
um grassprettuna og er þetta
að verða með mestu grasspréttu-
ái-um hér á landi — svoha hef-
ur hún tekið við sér síðan.
Bændurnir í Brautarholti á
Kjalarnesi munu fyrstir hafa
hafið slátt hér á landi nokkrurrs
dögum fyrir mánaðamót ogmunú
senn hafa lokið slætti.
Það eru synir Ólafs bónda í
Brautarholti. Það væri vért að
ryfja hér upp eina sláttuvísu
frá árunum kringum 1940 um
þann mæta mann.
Braufarholtstúnið grænkar og
grær,
grasið það leggst á svig.
Ólafur slær og Ólafur slær,
Ciafur slær um sig.
Kolbeinn í Kollafirði orti þá
í orðasíað Ólafs:
Ólafi þarf ekki að lá,
aðra menn ég þekki,
þeir eru að slá og þeir eru að slá,
þótt þeir siái ekki.
Nýtt leikhús
Franihald af 12. síðu.
leyndu. Gerir hann ágætlega ve)
grein fyrir ýmsum þeim atvik-
um Vietnammálsins sem ekki
eru mjög oft til umræðu — tií
að mynda því, hverjir græða á
'átyrjöldinni og með hvaðahætti.
í ritstjórnargrein er fjallað urn
þessa greinargerð — þar segir
m.a. „Um oss íslendinga má
segja, eins og vanalega, að álit
vort skipti varla miklu, og vér
getum engin áhrif haft á gang
þessara mála. En véf eigum það
sammerkt við allar aðrarþjóðir,
að ef vér látum oss á sama
standa um stríðsglæpina í Viet-
nam munum vér ekki eiga mik-
ið eftir af virðingu fyrir sjálf-
um oss um það er lýkur. Yfir-
drottnun Bandaríkjamanna fylg-
sú ákveðna viðleitni að útrýma
mannlegri sjálfsvirðingu, og þar
eru til aðstoðar þéir flokkar
sníkjudýra sem hreiðra um sig
í valdastólum hinna amerísk-
hollu ríkja. Það getur sem sé
ekki farið saman að bera virð-
ingu fyrir ófreskjunni og fyrir
sjálfum sér. Um leið til að öðl-
ast aftur sjálfsvirðingu má lesa
í síðustu málsgrein ritgerðarinn-
ar eftir hinn ónefnda Evrópu-
mann í Vietnam."
Nýjar bækur
í heftinu eru þrjú ný kvæði
eftir Guðmund Böðvarsson,
kvæði eftir Ögmund Helgason,
Vilborgu Dagbjartsdóttur,’ Nis
Petersen og sönglög eftir Bjprn
Franzson. Sögur eft-ir Unni Ei-
ríksdóttur og Jón Björnsson. Þá
er birt dagbók Bjarna amt-
manns Thorsteinssonar frá ut-
anferðum hans og hefur Nanna
Ólafsdóttir búið til prentunar og
skrifað formála og skýringar.
Kristinn E. Andrésson ritar við-
tal við dr. Unnstein Stefánsson.
Bjarni Einarsson ritar um norsk-
ar bækur. Minnzt er Stefáns
Jónssonar rithöfundar.
Þá segir frá því að í haust
komi út ný félagsbók MM, Daf-
nis og Klói eftir Longus, ein af
elztu skáldsögum Evrópu. Frið-
rik Þórðarson þýðir söguna úr
grísku. Þá er boðuð ný ljóða-
bók eftir Snorra Hjartarson, ög
um þessar mundir éru að koma
út tvær bækur á vegum Heims-
kringlu — ljóðabók eftir Guð-
mund Böðvarsson, „í manna-
byggð“, og kínversk skáldsaga
í þýðingu Þóru Vigfúsdóttur. er
nefnist „Brennandi æska“.