Þjóðviljinn - 16.07.1966, Blaðsíða 10
»
Borgarstjórnarmeirihlut-
inn magnar verðbólguna
- i sfaSinn fyrir oð beifa
sér gegn ver&hœkkunum
■ Við umræður í borgarstjórn Reykjavíkur s.l. fimmtu-
dag um þær stórfelldu gjaldahækkanir sem íhaldið hefur
samþykkt að leggja á borgarbúa, lögðu fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins áherzlu á nauðsyn þess að opinberir aðilar,
borgaryfirvöld ekki síður en landsstjómarmenn, beittu sér
af fremsta megni gegn verðhækkunum í stað þess að magna
verðbólguna eins og nú hefur verið gert með ofboðslegum
hækkunum hitaveitugjalda og miklum fargjaldahækkun-
um strætisvagna.
■ Sérstaklega töldu Alþýðubandalagsmenn
þessar haekkanir nú vítaverðar, þar sem þeim
væri skellt á skömmu eftir að hin almennu verka-
lýðsfélög hafi gert samninga um mjög hoflegar
kjarabætur og um svipað leyti og borgarbúum al-
mennt er tilkynnt að útsvör þeirra og önnur op-
inber gjöld verði stórum hærri í ár en á síðast-
liðnu ári.
Guðmundur J. Guðmundsson,
borgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins, sagSi við umræðurnar á
borgarstjórnarfundinum í fyrra-
dag að búast mætti við því að
þessar síðustu hækkanir á hita-
veitugjöldum og fargjijldum
strætisvagna myndu hækká vísi-
töluna um 1 til 2 stig, vísitölu-
hækkunin yrði sennilega nær 2
stigum en einu.
Kemur harðast niður á hinum
fátæku.
Guðmundur benti á að hsekk-
un strætisvagnafargjaldanna
kæmi harðast niður á hinum
fátæku, sem mest notuðu vagn-
aíia, og ekki hvað sízt eldrafólki
og íbúum úthverfanna. Hann
benti í því sambandi á að þjón-
usta borgarinnar við íbúa út-
hverfanna víðast hvar væri
mjög takmörkuð og af skomum
skammti, gatnagerð afar ábóta-
vant o.s.frv. Þessvegna væri sízt
réttlæti í því fólgið, að láta út-
hverfisbúana verða fyrir gjalda-
hækkunum, sem réttlættar væru
með bágum fjárhag borgarsjóðs
eða borgarfyrirtækja.
Eins og ÞJÓÐVILJINN hefur
skýrt frá, fluttu borgarfulltrúar
Alþýðubandalagsins frávísunar-
tillögu, í sambandi við hækkun
hitaveifcugjalda. Sú tillaga var
felld með atkvæðum allra í-
haldsmannanna í borgarstjóm (8),
beggja Framsóknarmannanna og
beggja Alþýðuflokksmannanna.
Alþýðubandalagsmenn greiddu
einir atkvæði með þessari til-
lögu um að engin hækkun yrði
á hitaveitugjöldunum.
TiUögur Framsóknarmanna og
Alþýðuflokksins um minni gjalda-
haekkun en íhaldið lagði til voru
feMdar, og gjaldahækkunin síð-
an samþykkt: 30 prósent hækk-
Þotukaup F.f.
Framhald af 1. síðu.
„Tourist class“ og verða þásæt.i
nokkuð færri.
Fleiri flugvélar af Boeing-
gerð eru seldar en af noklturri
annarri flugvélategund sem
framleidd hefur verið og eru nú
260—270 Boeing vélar á flugi og
um 500 pantaðar.
Vegna þessara kaupa hefur
Flugfélagið ákveðið að auka
hlutafé sitt á þrem árum um
40 milj. kr. og hefur þegar ver-
ið leitað til núverandi hluthafa.
Sex áhafnir verða þjálfaðar
og er gert ráð fyrir að þjálfun-
in hefjist í febrúar eða marz.
Flugfélagið hyggst selja tvær
af þrem millilandaflugvélum
sínum, en búast má við aðfleiri
þotur verði keyptar ef alltgeng-
ur að óskum, sagði örn John-
son að endingu.
un á verði heita vatnsins og
allt að 184 prósent hækkun á
mælaleigu og heimtaugagjöldum.
Kratarnir — og Einar níundi. i
Það vakti athygli á borgar-
stjómarfundinum í fyrrakvöldað
talsmaður Alþýðuflokksins,
Ejörgvin Guðmundsson, skyldi
lýsa samþykki sínu og síðan
greiða atkvæði ásamt fíokks-
bróður sínum, Bárði Daníelssyni,
með hækkun fargjalda strætis-
vagnanna. Kvaðst Björgvin ekki
teljá hækkun þessa óeðlilega háa,
fargjöldin væru ekki úr hófi
o.s.frv.
Þá vakti það og athygli á
fundinum, að annar fulltrúi
Framsóknar, Einar Ágústsson,
bankastjóri. skyldi tvívegis við
atkvæðagreiðslu um strætis-
vagnafargjöldin gerast níundi
maður n'haldsins, og það í ann-
að skiptið er atkvæði voru
greidd um frávísunartillögu Al-
þýðubandalagsins.
Þessa mynd tók ljósmyndari Þjóðviljans, Ari Kárason, af ungum
glókolli að sílaveiðum í Tjörninni með sigtinu hennar mömmu
sinnar einn góðviðrisdaginn. — Kannski hann eigi eftir að verða
mikill veiðimaður á síld, þorsk eða lax síðar þessi ungi sveinn.
Laugardagur 16. júlí 1966 — 31. árgangur — 156. tölublað.
Verk 16 íslendinga
á norrænni listsýn-
ingu í Þýzkalandi
Hinn 25. júní sl. var' opnuö
í Hannover norræn Iistsýning,
ein hin mesta, sem haldin hcf-
ur verið í Þýzkalandi. Þar eiga
hlut að Norðurlönd öll, en
Norræna listbandalagið er sýn-
ingaraðili.
Sýningin var opnuð með við-
höfn og lék Den danske Kvart-
ett norræna tónlist á staðnum.
Frá Hannover mun sýningin
verða send til V-Berlínar og
þaðan til Frankfurt, Stuttgart
og Essen, en hún verður um
hálft ár í landinu.
Sýningunni er ekki stúkað
eftir þjóðerni, heldur Norður-
lönd kynnt sem heild, en sá
háttur hefur verið hafður á um
sýningar Norræna listbandalags-
ins um nokkurt skeið. Á sýn-
ingunni eru verk eftir þessa Is-
lendinga: Kjarval, JóhannBriem,
Jóh Engilberts, Benedikt Gunn-
arsson, Valtý Pétursson, Eirík
Smith, Kjartan Guðjónsson,
Svavar Guðnason, Hafstein Aust-
mann, Jóhannes Jóhannesson,
Sigurjón Ólafsson, Ólöfu Páls-
dóttur, Jóhann Eyfells, Jón
Benediktsson og Guðmund Bene-
diktsson.
(Frá Fél. ísl. myndlistarmanna).
Sunnlenzkir bændur
viijá herða sóknina
Telja afnám innvigtunargjaldsins á mjólk
einungis vera spor í rétta átt en ekki nóg
Myndarlegt rit um sögu
bæjarstjórnar ísafjarðar
100 ár í dag frá fyrstu bæjarstjórnarkosningum þar
■ ísfirðingar minnast um þessar mundir aldar afmæl-
is bæjarstjómar sinnar með myndarlegum hátíðahöldum,
en í dag 16da júlí eru liðin rétt 100 ár síðan fyrstu bæjar-
stjórnarkosningamar fóru fram. Af þessu tilefni hefur ver-
ið gefin út myndarleg bók, „Bæjarstjóm ísafjarðarkaup-
staðar eitt hundrað ára“, en höfundur hennar er Jóhann
Gunnar Ólafsson sýslumaður. Bókin er 288 síður í stóru
broti og prýdd fjölda mynda, m.a. af bæjarfulltrúum og
bæj arstarfsmönnum.
í formála segir Jóhann Gunn-
ar að hann hafi upphaflega tek-
ið að sér að skrifa samfelldaog
rækilega sögu. En hann hafi kom-
izt að þeirri niðurstöðu „að
verkefnið var ofviða og raunar
óframkvæmanlegt, sakir þess að
í fangahúsbrunanum árið 1924
brunnu nær allar gerðarbækur
bæjarstjómar fyrir árabilið 1866
—1905, og nálega allt skjalasafn
Tíðindalaust í ísrael
JERÚSALEM 15/7 — Allt var
með kyrrum kjörum á landa-
mærum Sýrlands og fsraels í
nótt, en í gær sló þar í loft-
orustu milli herflugvéla frá
báðum löndum. Frá Amman ber-
ast þær fréttir, að Jórdanía hafi
boðið Sýrlandi afnot af flug-
flota sínum gegn „sameiginleg-
um óvini“. ,
bæjarstjómar". Því hafi hann
valið þann kost að hafa ritsitt
stutta greinargerð um aðdrag-
anda að stofnun bæjarstjórnar á
fsafirði, löggjöf varðandi hana,
bæjarfulltrúatal, með æviatrið-
um þeima og nokkurra starfs-
manna kaupstaðarins og að lok-
um árbók um það sem helzt
hefur við borið innan vébanda
bæjarstjómar og þessa bæjarfé-
lags. Jóhann Gunnar kveðsthafa
aflað sér heimilda víða til að
fylla upp í þær eyður sembrun-
inn skildi eftir, en drýgsta
heimildin hafi Þjóðvilji Skúla
Thoroddsens orðið, en hann var
gefinn út á ísafirði á árabilinu
1886—1901. Á 100 árum hafa 188
bæjarfulltrúar og varabæjar-
fulltrúar tekið þátt í starfi bæj-
arstjómar og eru í bókinni
myndir af þeim öllum nema
þremur.
f gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
nefnd þeirri '' er sunnlenzkir
bændur kusu í afurðasölumálin
á Selfossfundinum.
„Nefnd sú er bændafundurinn,
sem haldinn var á Selfossi þann
7. júní sl., kaus, til að vinna að
hagstæðari verðlagningu búvara,
ásamt héraðsnefndum annarra
I landshluta og Framleiðsluráði,
kom saman til fundar í Félags-
heimilinu Hvoli í Rangárvalla-
sýslu 12. þm.
Fyrir fundinum lá vitneskja
um það; að mikið skorti á, að
viðunandi lausn verðlagsmálanna
væri fengin. — Af því tilefni
samþykkti fundurinn svohljóð-
andi ályktun:
,,Fundur 15 manna ncfndar
sunnlenzkra bænda um afurða-
sölumál, kom saman að Hvoli
þann 12. júlí 1966 að ræða ár-
angur viðræðna fulltrúa bænda-
samtakanna við landbúnaðarráð-
herra.
Harmar fundurinn, að ekki
skyldi nást sá árangur, að fram-
leiðsluráð sæi sér fært að fclla
niður eða Iækka innvigtunar-
gjaldið af innveginni mjólk nú
þegar, þótt Ioforð um afnám
gjaldsins 1. scptember n.k. og
leiðrétting afurðalána sé spor í
rétta átt.
Telur fundurinn, að bændur
þurfi að haida áfram að standa
fast að baki Stéttarsambandi
bænda í baráttunni fyrir því,
að bændum verði tryggt fullt
vcrðlagsgrundvallarverð fyrir af-
urðir sínar í framtíðinni/*
Fjórburar
AGEN 15/7 — f Þorpinu Agen
í Suður-Frakklandi gerðust þau
tíðindi í dag að frú Apparart
kennslukona eignaðist fjórbura
— þrjá drengi og eina stúlku.
Börnin fæddust tveim mánuð-
um fyrir tímann og er enn ekki
vitað hvemig þeim reiðir af.
Leiðrétting
Þau leiöu mistök urðu í um-
broti á forsíðu Þjóðviljans í gær
að mynd af strætisvagni sem
átti að fylgja frétt um hækkan-
ir strætisvagnafargjalda í Rvík
var skakkt afmörkuð meðstriki,
þannig að hún lenti með frétt
um fjölda banaslysa sem orðið
hafa á þessu ári. Biður blaðið
viðkomandi aðila velvirðingar á
þessum leiðu mistökum.
Þá var ranghermt í fréttinni
um hækkun strætisvagnafar-
gjaldanna að miðum fækkaði á
25 króna farmiðaspjöldunum, á
þeim voru aðeins 6 miðar (ekki
8 eins og sagt var í fréttinni)og
helzt sú tala óbreytt. -Leiðréttist
þessi missögn hér með.
Jóhann Gunnar Ölafsson
Bókin skiptist eftir formála í
sjö meginkafla: Stofnun bæjar-
stjórnar, löggjöf og bæjar-
stjómarkosningar. Bæjarstjórn-
arkosningar. Flokkaskipting í
bæjarstjóm. Yfirlit um kosning-
ar tæjarfulltrúa 1866—1897. Yf-
irlit um kosningar bæjarfulltrúa
1900—1962. Bæjarfulltrúar og
nokkrir bæjarstarfsmenn. Árbók
Isafjarðarkaupstaðar 1866—1905.
Bókin er prentuð í Prentstof-
unni Isrun á ísafœði.
MessaS í skipi Hallgríms-
kirkju á morgun ki. 11 f.h:
Kl. 11 fh. á morgun, sunnu-
dag, verður haldin messa í skipi
hinnar hálfbyggðu Hallgríms-
kirkju. Prestar safnaðarins, séra
Jakob Jónsson og séra Erlendur
Sigmundsson, er þjónar í fjar-
veru séra Sigurjóns Árnasonar,
munu flytja messuna en söng-
flokkur kirkjunnar syngur og
félagar úr Lúðrasveit Rcykja-
víkur Ieika við guðsþjónustuna.
Kirkjan verður opnuð kl. 10
Ih. fyrir þá kirkjugesti er vilja
skoða nýbygginguna en á neðstu
hæð turnbyggingarinnar á að
vera félagsheimili fyrir söfnuð-
inn og er nú unnið að frágangi
þess þannig að hægt sé að taka
það í notkun í haust, sagði séra
Jakob Jónsson í viðtali við
Þjóðviljann í gær.
Þá bað séra Jakob blaðið að
koma á framfæri þökkum til
allra þeirra sem með gjöfum og
áheitum hefðu lagt kirkjubygg-
ingunni lið. Þessi kirkja er
byggð samkvæmt fyrirskipun
löggjafarvaldsins, samanber lög-
in frá 1939, sagði séra Jakob. og
öll þjóðin á að standa að henni.
Sagðist hann að lokum telja
urlandi. Samtals tilkynntu 3 skip
vík, m.a. til þess að hægt væri
að flytja þar kirkjulega músík.
!