Þjóðviljinn - 23.08.1966, Síða 10
Saltað í 14
þús. tumar
á 3 dögum
RA'UFARHÖFN, 22/8 — Undan-
farna þrjá daga hefur veriðsalt-
að bér á Raufarhöfn í um 14
þúsund tunnur en í dag ernokk-
urt hlé á löndun og söltun þar
eö „ræningjaskipin" sem við
Raufarhafnarbúar köllum svo. þ.
e. síldarflutningaskipm Síldin og
Haförninn, eru bæði á miðunum
og Ianda skipin beint í þau.
Heildarsöltunin hér er nú orð-
ir 42.180 tunnur og skiptist hún
þannig á stöðvamar: Norðursíld
9656 tunnur, Borgir 8781, Óð-
ir.n 5860, Síldin 5198, Björg 5065,
Óskarsstöð 4838, Hafsilfur 2659
og Möl 122. 1 dag er aðeins
saltað hjá einni stöð, Norðursíld,
og verður 10 þúsundasta tunnan
því væntanlega söltuS þar í
kvöld. Mun þetta vera eina sölt-
itmarstöðin á landinu sem kom-
m er í 10 þúsund tunnur í sum-
ar.
SOdarverksmiðjan hefur nú
tekið á móti samtals 37.775 lest-
«m í bræðslu.
1 dag er sólskin og blíða hér
á Raufarhöfn, einhver bezti dag-
ur sumarsins. — H.R.
Ríkið leigir tvö
herhergi fyrir
stúdenta í París
íslenzka ríkið hefur keypt
íeigurétt að tveimur herbergjum
á stúdentagarði í nágrenni París-
ar til afnota fyrir íslendinga,
sem þar stunda háskólanám.
Umsóknir um vist í herbergjum
þessum næsta vetur þurfa að
berast menntamálaráðuneytinu,
Stjórnarráðshúsinu við Lækjar-
torg, fyrir 30. þ.m. Umsóknar-
^yðublöð fást í ráðuneytinu.
(Frá menntamálaráðuneytinu)
Tvennt slasast
á dráttarvélum
á Snæfellsnesi
S.l. laugardag urðu tvö slys
vestur á Snæfellsnesi, er drátt-
arvélum hvolfdi.
Um kvöldverðarleytið á laugar-
dag fór dráttarvél út af vegin-
um skammt frá bænum Grund
í Grundarfirði og lenti þar á
hvolfi ofan í skurð. 11 ára
drengur úr Reykjavík, sem er í
sumardvöl að Grund, ,ók drátt-
arvélinni og slasaðist hann á
brjósti og handleggsbrotnaði.
Læknir kom fljótt á vettvang
og var drengurinn fluttur í
sjúkrahúsið á Stykkishólmi.
Stuttu síðar eða um kl. 10
um kvöldið varð húsfreyjan á
Setbergi á Skógaströnd undir
dráttarvél, sem hvolfdi þar sem
hún ók henni á túninu við bæ-
inn. Konan var sótt í sjúkrabíl
og flutt í sjúkrahúsið í Stykk-
ishólmi, og mun hún hafa
m j aðmagri ndarbrotnað.
Fékk um 70
lestum meira
en skipið ber!
RAUFARHÖFN, 22/8 — I
gærkvöld fékk síldveiðiskipið
Dagfari frá Húsavík mjög
stórt kast á miðunum norð-
austur af Raufarhöfn. Þegar
skipið hafði fyllt sig vat enn
mikil síld eftir í nótinni. S'ld-
arflutningaskipið Haförninn
var þarna nærstatt og kall-
aði Dagfari i það. Kom Haf-
örninn á vettvang og dældi
síldinni jafnóðum úr Dagfara
og þeir á Dagfara háfuðu úr
nótinni. Fékk Dagfari mcð
þessum hætti 326 Iestir út úr
kastinu, en það er líklegaum
70 lestum meira en skipið ber!
— H. R.
Þriðjudagur 23. ágúst 1966 — 31. árgangur — 197. tölublað.
Síldveiðin:
Helgara
sant'
Menn úr Flugbjörgunarsveitinni bera líkin niður af jöklinum að þyrlunni. — (Ljósm. J.G.)
Lík bandarískra flugmanna
innast á Eyjafjallajökli
Flugvél þeirra fórst með 5 manna áhöfn árið 1952
■ Um helgina fundust lik þriggja bandarískra flug-
manna á Eyjafjallajökli, en rúm 14 ár eru síðan flug-
vél þeirra fórst á jöklinum með fimm manna áhöfn.
Fannst flugvélarflakið og lík eins flugmannsins á jökl-
inum þrem dögum eftir slysið.
Sl. laugardag voru þeir Guðjón inn þar sem líkin voru, um 200
Gíslason og Kjartan Benjamíns-
son við mælingar þar sem fall-
jökullinn er norðanmeginn í
Eyjafjallajökli og fundu þeir lík
af tveim mönnum þar á jökl-
inum. Þeir tilkynntu það strax
sýslumanninum í Rangárvalla-
sýslu, og var Flugbjörgunar-
sve^tin í Reykjavík kplluð á vett-
vang. 25 manna hópur úr sveit-
inni fór þangað austur í birt-
ingu á sunnudag undir stjórn
þeirra Sigurðar S. Waage og
Magnúsar Þórarinssonar.
Björgunarsveitin var komin að
jöklinum um hádegisbilið ogum
sama leyti kom þangað þyrlafrá
hemámsliðinu á Keflavíkurvelli.
Þar voru einnig fyrir þeir Guð-
jón og Kjartan og vísuðu á stað-
metra frá jökulröndinni. Líkin
lágu þar með nokkurra metra
millibili, og um 10 metra þar
frá fannst þriðja líkið.
Líkin voru að sjálfsögðu ó-
þekkjanleg, en hjá þeim fund-
ust ýmsir munir áletraðir nöfn-
um, svo að enginn vafi er á
að þetta eru lík bandarísku flug-
mannanna sem fórust þama á
jöklinum fyrir meira en 14 ár-
um.
Þetta var tjörgunarflugvél frá
bandaríska hemum á Keflavík-
urflugvelli með fimm manna á-
höfn sem fórst þama í blindhríð
um vorið 1952. Flakið fannst á
þriðja degi frá því er slysiðvarð
og rétt hjá því lik eins flug-
mannsins. Fleiri lík fundustekki
en ýmis ummerki bentu til þess
aS hinir fjórir hefðu komjzt lif-
andi frá flugvélarflakinu. Þrátt
fyrir mikla leit fundust menn-
irnir aldrei, en vorið 1964 fundu
menn úr björgunarsveitinni Ing-
ólfi giftingarhring og skó á svip-
uðum slóðum og líkin fundust
nú.
Flugbjörgunarsveitin bar lík
flugmannanna um borð í þyrluna,
sem flutti þau til Keflavíkur-
flugvallar.
tals 1080 lestir
ð Um helgina var gott veður á miðunum og góð síld-
veiði á svipuðum slóðum og áður. Voru veiðisvæðin tvö,
annað 140—150 mílur NA af Raufarhöfn og hitt 110 mílur
SA af austri frá Norðfjarðarhomi. Á laugardag og að-
faranótt sunnudags var fremur fátt skipa á miðunum en
20 skip til'kynntu afla, samtals 2530 lestir. Á sunnudag
og aðfaranótt mánudags tilkynntu 48 skip afla, samtals
7550 lestir, Nam veiðin um helgina því alls 1080 lestum.
Sunnudagur: Hoffell SU 85
Raufarhöfn. .. Arnarnes GK 70
lestir. Hafrún ÍS 120
Skírnir AK 130 Snæfugl SU 50
Jón Finnsson GK 220 Heimir SU 100
Þorsteinn RE 140
Jón Garðar GK 340 Mánudagur:
Guðbjartur Kristján 180 Raufarhöfn. Guðrún Þorkelsdóttir SU 220
Dalatangi Haraldur AK 190
Fróðaklettur GK 50 Guðbjartur Kristján 120
Helga Björg 120 Gullberg NS 195
Gissur hvíti SF 90 Ingiber Ólafsson GK 290
Þráinn NK 110 Jón Kjartansson SU ^ 240
Gullver NS 160 Dagfari ÞH 326
Heiðrún II. ÍS 75 Náttfari ÞH 130
Ásþór RE 160 Helgi Flóventsson ÞH 230
Baldur EA 80 Loftur Baldvinsson EA 150
Jón á Stapa ÖH 130 Þórður Jónasson EA 60
Ársæll Sigurðsson GK 120 Ögri RE 140
Hernámsiliðið heldur sýningu:
Allir íslendingar
bobnir á Völlinn!
f gær barst Þjóðviljanum
fréttatilkynning frá Upplýsinga-
bjónustu "Bandaríkjanna þarsem
segir að n.k. sunnudag, 28. ágúst,
muni hernámsliðið á Keflavík-
urflugvelli efna til sýningar á
Vellinum fyrir almenning, og
hefst sýningin kl. 1 e.h. og er
tekið fram í fréttatilkynning-
unni að „allir íslendingar" séu
velkomnir.
Um sýninguna segir m.a. svo
í fréttatilkynningunni:
Sýndar verða ýmsar gerðir
flugvéla og margskonar annar
búnaður og tæki. Auk þess verð-
ur sýningargestum heimilt að
skoða ný skólahús, íþrótta- og
leiksvæði og annan útbúnað, svo
og ýmsa aðra staði stöðvarinn-
ar, þar á meðal slökkvistöð vall-
arins, en slökkviliðið er skipað
bæði íslendingum og Bandaríkja-
mönnum. Slökkviliðið mun sýna
slökkvistarf, og verður nofuð
skemmd þota við það atriði.
Ennfremur geta gestir sýning-
arinnar fengið að skoða veður-
stofuna, en þar starfa Islend-
ingar og Bandaríkjamenn saman.
Verði veðurskilyrði ekki óhag-
stæð, er ráðgerð mikjl flugsýn-
ing klukkan 3 e.h. ásamt fall-
hlífarstökki. Einnig munu björg-
unarsveitir vallarins sýna björg-
unarstörf með þyrlu.
Við vallarhliðið verður af-
hentur leiðbeiningabæklingur, og
í honum eru sýndir m.a. þeir
staðir, sem opnir verða sýning-
argestum.
Orbiter hefur myndatöku uf
lendingurstöðum á tunglinu
KENNEDYIÍÖFÐA 22/8— Banda-
ríska tunglfarið „Lunar Orbiter
l.“ hóf í dag að taka myndir
af stöðum á tunglinu sem taldir
eru heppilegir til lendingar fyr-
ir mönnuð geimför og gera
bandarískir vísindamenn sér enn
vonir um að þær myndir geti
gefið mikilsverða vitneskju enda
þótt ekki hafi tekizt að geravið
bilunina á annarri myndavélinni.
Ætlunin var að tekið væri á
móti fyrstu myndunum í kvöld,
en nokkrir dagar munu líða áð-
ur en vitað er með vissu hvort
þær eru nægilega skýrar til að
hægt verði að velja lendingarstað
eftir þeim.
Áður en þessi myndataka hófst
hafði braut „Orbiters" verið
breytt þannig að nú er tungl-
nánd þess aðeins tæpir 60 km
og úr þeirri fjarlægð voru fyrstu
myndimar í dag teknar. Bilun-
in á annarri Ijósmyndavélinni er
i útbúnaði sem átti að tryggja
það' að myndirnár yrðú ''Skýl'ar
þrátt fyrir þann tiltölulega mikla
hraða sem er á tunglfarinu.
Fyrstu myndirnar sem frá „Or-
biter“ bárust og voru af frá-
hverfu tunglsins voru mjög góð-
ar, og af þeim má ráða að ekki
er mikill munur á landslaginu
Framhald á 7. síðu.
ÍElliði GK 170
| Snæfell EA 230
| Eldborg GK 170
Sóley ÍS _ 196
Guðbjörg ÍS ’ 208
Hannes Hafstein EA 150
Framnes ÍS 80
Ólafur Magnússon EA 200
Dalatangi
Sólfari AK 200
Fagriklettur GK 170
Sveinbjörn Jakobsson SH 160
Ól. Friðbertsson ÍS 180
Hafþór RE 120
Fiskaskagi AK 140
Freyfaxi KE 110
Engey RE 150
Framhald á 7. síðu.
297 stádentar innrituðust
í Háskóla Islands í haust
297 stúdentar létu innrita sig
í Háskóla íslands fyrir næsta
skólaár, en innrifun er nýlega
Iokið. Verða þá um 1100 stúd-
entar við nám í Háskólanum í
vetur.
Hinir nýju stúdentar skiptast
þannig eftir deildum: 92 í BA-
RKÍ hefur fjársöfnun vegnu
juriskjálftunnu / Tyrklundi
Rauða krossi íslands hefur borizt beiðni frá Alþjóða
Rauða krossinum um aðstoð til handa þeim sem misst
hafa heiynili 'sín j jarðskjálftunum í Tyrklandi, sem frá
er sagt á öðrum stað í blaðinu. Er hjálparsjóður RKÍ nú
að hefja fjársöfnun í. þessu skyni og mun peningunum
verða várið til meðalakaupa.
í fréttatilkynningu sem Þjóð-
viljanum hefur borizt frá RKÍ
um söfnunina segir m.a. svo:
Eins og kunnugt er af frétt-
um útvarps og blaða hefur fjöldi
manns farizt og misst heimili
sín í jarðskjálftunum í austur-
hluta Tyrklands.
Rauði hálfmáninn í Tyrklandi
hefur beðið Alþjóða Rauða kross-
inn um aðstoð, og hefur hjálp
borizt frá birgðastöð Rauða
krossins í Beirut. Þá hefur hr.
Edward Fischer, fulltrúi Alþjóða
Rauða krossins í Genf, verið
sendur til Tyrklands til aðstoð-
ar við skipulagningu hjálpar-
starfsins.
Alþjóða Rauði krossinn hefur
beðið systurfélög Rauða hálfmán-
ans um allan heim að veita að-
stoð eftir beztu getu.
Hjálparsjóður RKÍ er að und-
irbúa peningasendingu til með-
alakaupa skv. hjálparbeiðni Al-
þjóða Rauða krossins, pg mun
hjálparsjóður RKÍ hefja fjár-
söfnun nú þegár. Dagblöðin í
Reykjavík hafa boðizt til að taka
á móti framlögum, og RK-deild-
irnar um land allt munu einnig
taka á móti framlöguTn.
Skrifstofa Reykjavíkurdeildar-
innar er að Öldugötu 4, sími
14658. Söfnunin mun standa yf-
ir til 10. september n.k.
deild, 65 í læknisfræði, 36 í lög-
fræði, 32 í verkfræði (þar af
tvær stúlkur), 25 í viðskipta-
fræði, 24 í forspjallsvísindi, 16
i tannlækningar, 5 í lyfjafræði
lyfsala og 2 í guðfræðideild.
Ótaldir eru 20—30 erlendir
stúdentar sem munu koma hing-
að til náms í íslenzkum fræð-
um, einnig hafa um 40 umsókn-
ir borizt frá erlendum stúdent-
um flestum norskum, um nám
í læknadeild, en 5—6 þeirra
munu fá inngöngu í deildina.
Enn er óvíst hve margir verða
teknir til náms í tannlækning-
um, en í fyrra var deildin al-
veg lokuð nýjum stúdentum.
Nýir stúdentar við Háskólann
verða heldur fleiri í ár en i fyrra
og er aukningin svo til öll í
læknadeild.
Drengur meiðist
í gær varð óhapp í Hampiðj-
unni, en þó var ekki um vinnu-
slys að ræða þar eð þetta- var í
matarhléinu. Nokkrir unglingar
voru með fíflalæti á vinnustaðn-
um, að sögn rannsóknarlögregl-
unnar, og þegar fimmtán óra
drengur var að kasta sér upp í
þverbita datt hann á gólfið og
kom niður á andlitið. Rifnaði
við það vör drengsins en ekki
var vitað hvort hann meiddist
frekar þegar síðast fréttist.