Þjóðviljinn - 28.08.1966, Qupperneq 6
g SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 28. ágúst 1966.
Fréttaritari Lundúnablaðsins
The Times ó geimíerðaráð-
stefnurjni í Genf benti nýlega
argur a það, að í framkomnum
tillögum um geimferðalöggjöf
væri ekkert, sem gerði róð fyr-
ir þeim möguleika, að geimfar-
ar framtíðarinnar hittu vits-
munaverur frá öðrum hnöttum.
Raunar er nú haft fyrir satt,
að þetta mál hafi borið á góma
í einkaviðræðum sovézkra og
bandarískra sérfræðinga. En
eftir nákvæma rannsókn þess
árangurs, sem náðist mcð ferð
Mariners IV., hafa menn kom-
izt á þá skoðun, að ekki sé
vitsmunaverur fyrir að hitta
annarsstaðar í okkar sólkerfi.
Hinsvegar virðist sú skoðun
eiga auknu fylgi að fagna með
líffræðingum og stjarneðlis-
fræðingum, að á, Marz muni
finnast' viss lífsform, en að
vísu mjög frumstæð. Jafnframt
þessu telja þessir aðilar, að
utan .sólkerfisins, en þó innan
okkar vetrarbrautar, 1— séu ef
til vill um það bil einn miljarð-
ur byggilegra hnatta með hita-
stig og efnauppbyggingu nokk-
urn veginn eins og á okkar
JÖfð.
Svo mikið er víst, að mögu-
leikarnir 'fyrir lífi á öðrum
hnöttum eru nú rannsakaðir af
alvöru og með tilraunum, sem
kosta ærið fé. Spurningin er
löngu hætt áð vera leikur einn
fyrir hugmyndaríka höfunda
vísindaskáldsagnanna.
Tveir höfundar, ánnar banda-
rískur, hinn sovézkur, hafa ný-
lega lokið við hugmyndaríka
en þó algjörlega fræðilega bók
um lífið á öðrum hnöttum. Höf-
undarnir hafa ritað bókina í
sámeiningu, en hafa þó verið
í svipaðri aðstöðu og sætu þeir
sitt á hvorum hnetti. Þeir hafa
aldrei hitzt en skrifað bókina
eftir bréfaskriftum.
Nú er það — þrátt fyrir alla
hugsanlega og tortryggða rit-
skoðun — ólíkt fljótlegra að
senda bréf frá Moskvu til
Boston en að senda boð jafn-
vel til næsta hnattar i okkar
sólkerfi. Rithöfundarnir tveir
— þeir eru dr. Carl Sagan frá
Harward-háskóla og Josef
Shmuelovich fró Sovézku vís-
Rannsóknarstöðvar um hcim allan cru nú teknar að hlusta eftir hugsanlcgum radíósendingum fni vitsmunavcrum utan úr
geimnum. Þcssi óvanalega mynd er tckin að næturlagi við risasjónauka stjörnurannsóknarstöðvarinnar i Nanccy við París- Hvítu
strikin eru stjörnubrautir, afleiðing af snúningi jaröar, en myndin er tckin á þrem klukkustundum.
indaakademíunni í Moskvu —
vekja sjálfir athygli á því, að'
jafnvel einföld skipting á
radíómerkjum við næsta hugs-
anlega byggða sólkerfi muni
taka cá. 200 ár!
Venus hafsjór
af sódavatni
Hvað viðkemur möguleikum
fyrir lífi í okkar eigin sól-
kerfi útiloka höfundarnir tveir
að til séu annarsstaðar í þvi
vitsmunaverur. Hinsvegar virð-
ast þeir sannfærðir um áður-
nefnd frumstæð lífsform 6
Marz og rökstyðja það með
þeirri jgömlu .athugun, að stærð
dimmra og ljósra svæða á
Mynd úr bandarísku kvikmyndinni „Lokaður hnöttur".
plánetunni breytist eftir árs-
tíðum, þannig að „bylgja af
rnyrkri1* líði inn yfir plánet-
una um vorið og um sumarið
þétt við pólsvæðin. Litrófs-'
rannsóknir telja þeir hafa
sannað það, að á dökku svæð-
unum að minnsta kosti sé að
finna. lífræn efni. Hvort um
sé að ræða lifandi mólekúl,
þora menn vart um að segja,
fyrr en rannsóknir hafa farið
fram é dökku svæðunum ^
Marz með hjólp sjólfvirkrar
rannsóknastofu. Innan fímm
ára ætti að hafa tekizt að
koma slíkri rannsóknastofu ' til
plánetunnar, og þá væru menn
skref! nær til lausnar gátunní.
Næstbeztir mÖguleikar þess
nð finna lifandi mólekúl ættu
að vera á Venusi. Við yfir-
borð plánetunna^ er að því er
menn halda of heitt, én vegna
hins þétta skýjahjúps plánet-
unnar er hvorki unnt að beita
sjónauka né litrófsrannsóknum
við athugun þessara móla.
Rússinn og Bandaríkjamaður-
inn hallast að þeirri kenningu,
að plánetan sé eitt sjóðandi
helvíti með rauðglóandi klett-
um upp úr sódavatnshafi! Af
þessum sökum búast þeir frek-
ar víð því að finna hugsan-
leg lifandi mólekúl í hinu
kaldara, ytra lagi andrúmslofts-
ins. ,
Strax og komið er út fyrir
okkar eigið, litla sólkerfi, er
málið allt erfiðara viðfangs.
Vandræðin eru nefnilega þau,
að við getum ekki, jafnvel í
bezta stjörnusjónauka, séð plán-
etur umhverfis aðrar stjörnur
en okkar eigin sól. Við vitum
þannig ekkert með vissu um
það, að aðrar stjörnur hafi
yfirleitt plánetur.
Nú finnast hinsvegar um það
bil 150■ miljarðar af stjörnum
í okkar vetrarbraut, og þar cð
nokkrir miljarðar þeirra eru í
öllu falli í sama ásigkomulagi
Qg af sömu stærð og okkar eig-
in sól, — virðist það ósenni-
legt, að ekki skuli einnig finn-
ast nokkrir miljarðar af sól-
kerfurh.
Þann dag, þegar unnt reynist
að koma fyrir stórum stjörnu-
sjónauka á mánanum, ættu að
vera fyrir því góðir möguleik-
ar að athuga stærstu plánet-
urnar kringum næstu ná-
grannastjörnur vorar.
Áðurnefndir höfundar gizka
á töluna ca. 1 miljarður byggi-
Iegra sólkerfa og telja stjörn-
urnat Epsilon Eridani, Epsilon
Indi og Tau Ceti næstu mögu-
leikana — það er í 10, 11 og
12 Ijósára fjarlægð. Möguleik-
ar þess að heimsækja jafnvel
þessar nágrannastjörnur okk-
ar virðast eins og sakir standa
harla litlir. Jafnvel þótt unnt
reyndist að smíða geimfar með
allt að því ljóshraða, þá tæki
ferðin fram og til baka ára-
tug eða lengur. Undir öllum
kringumstæðum yrði ferðin
heldur einmanaleg, hver svo
sem hana færi. Svo er afstæð-
iskenningunhi fyrir að þakka,
að víst er, að þegar ferðamenn
sneru aftur eftir áratug eða
svo, verða liðin mörg þúsund
ár á jörðu „niðri".
Radíóauga einn
km í þvermál
Svo mikið er víst, að þau lífs-
form, sem finnast kunna á
öðrum hnöttum, geta verið
mjög frábrugðin því, sem við
nú þekkjum. Bráðgreindar ver-
ur þurfa hreint ekki að líta út
eins og við! Fjölmargir vis-
indamenn hafa velt þessu at-
riði fyrir sér. Þannig setti
sænski lífefnafræðingurinn
Gösta Ehrensvard eitt sinn
fram þá hugmynd, að hugsa
megi sér greind langtum meiri
en mannsins en tengda gífur-
legu skýi gerðu úr því sem
hann nefnir bio-mólekúl, sem
öðru hverju dragíst saman. (til
þess að einbeita sér að sérlega
erfiðu viðfangsefni!)
Sagan og hinn sovézki starfs-
bróðir hans setja fram aðra
tillögu engu síður æsandi:
Hugsum okkur plánetur með
gufuhvolf, sem aðeíns radíó-
bylgjur geta brotizt í gegnum.
Lifandi grelndarverur á slík-
um hnetti hefðu í staðinn fyr-
ir vort ljósauga radíóauga.
Gestur fró jörðu ætti erfitt
með að þekkja það sem hluta
af einstaklingi, þar eð slíkt
radíóauga yrði, til þess að vera
eins næmt og okkar auga, að
vera ca. einn kílómetrl í þver-
mál.
Nú þarf þó ekki að bíða þess
að ná sambandi vlð greindar-
fólk annarra sólkerfa til þess
dags, þegar við eignumst nægi-
lega hraðskreiðar eldflaugar.
Við hofum möguleika til þess
að taka -við radíóbylgjum, sem „
slíkar verur kunna að senda. *
Alveg á sama hátt og við hér
á jörðinni erum farin að leika
okkur að hugsunintii um að
gera vart við okkur úti í
geimnum með einhverju ein-
földu radíómerki, eins er eðli-
legt að hugsa sér, að vitsmuna-
verur úti í geimnum hafi dott-
ið niður á sÖmu hugmynd.
Þegar hafa verið gerðar til-
raunir í þessa átt. Bandaríski
stjörnufræðingurinn Frank
Drake tengdi þannig næmt
móttökutæki við stjörnusjón-
auka sinn árið 1960 og fylgdist
í 200 klukkustundir samfleytt
með Tau Ceti — án þess þó
að finna nokkurn vott um sam-
hcngi í þeim fjölda af radíó-
bylgjum, sem til okkar streyma
úr öllum áttum.
Drake reyndi einnig að út-
búa elnfalt morkjamál, til þess
að nota til þess að senda út í
geiminn, en stóð svo frammí
fyrir þeim leiðindum, áð nán-
ustu samstarfsmönnum hans
tókst ekki einu sinni að þýða
merkjamálið!
Sódóma eyði-
lögð af atóm-
sprengju
Síðasti hlutinn af bók Sagans
og Shmuelovichs fjallar af
íullkomnu virðingarleysi um
hin ýmsu merki þess, að jörð-
in hafi þegar fengið heimsókn-
ir frá öðrum hnöttum. Þeír
minna á þá kenningu sovézks
mannfræðings að Sódóma og
Gómóra hafi- í raun og veru
verið eyðilagðar af kjarnorku-
sprengju •— sepi varpað hafi
verið af ókurteisum gestum
annarra hnatta. Þeir minna og
á hellamálverk sem fundizt
hafa í Sahara og kannski gætu
verið af Marzbúum í geim-
ferðabúningl!
Sagan hefur grafið upp
gamlar þjóðsögur Súmera, þar
sem ýmislegt. má tákna sem
merki urp heímsóknir frá heim-
inum mikla handan okkar sól-
kerfis.
Að lokum komast höfundarn-
ir þó að þeirri niðurstöð'i, sð
vísu dálítið súrir á svipmn, eð
sérhver tæknimenning. -- hvar
í himingeiminum sem hún kann
að vera — hafi eðlislæga til-
hneigingu til þess að eyði-
leggja sjálfa sig með kjarn-
orkuvopnum og þessháttar.
þegar néð sé vissu tækniþró-
unarstigi. — Svona um það bil
sama stigi og vjð erum nú á
hér á „jörðu níðri'*.
(Þýtt ór -,Information“).
Kinks iiS fslands
12. sepfomber
Hin vinsæla brezka bítla-
hljómsveit „Thc Kínks'* er vænt-
anleg öðru sinni til Rvíkur 12.
næsta mónaðar, Hljómsveitin
mun halda tvenna tónleika f
Austurbæjarbíói 13.; og 14. sept.
á vegum handknattleiksd. Vals.
VÍSINDI
OG
TÆKNI
i