Þjóðviljinn - 22.09.1966, Side 1

Þjóðviljinn - 22.09.1966, Side 1
Þing brezkra Frjálslyndra hafnaði stuðningi við Nato Sjá síðu 0 Öryrkjabandalagið reisir íbúðarhús Myndin til hliðar er af líkani af þrem átta hæða húsum sem Öryrkjabandalag ís- lands hyggst reisa. Einnar hæðar bygging tengir húsin saman. Fyrstu skófiustunguna tók félagsmálaráð- herra Eggert Þorsteinsson í gærdag, en hús- in verða norðan Laugavegs, milli Laugar- nesvegar og Kringlumýrarbrautar. Félögin sem standa að Öryrkjabandalag- inu eru 7 og verða það því ýmsir hópar ör- yrkja sem munu búa í húsunum. Sjá frétt á baksíðu. Vanskil Reykiavíkurborgar Framkvœmdir á 2 □ Hin stórfelldu vanskil Reykjavíkurborgar hafa þegar tafið og eru að stöðva framkvæmdir á nýju byggingarsvæðunum í Fossvogi og Breiðholti. Lóðir sem áttu að vera tilbúnar í ágúst og september eiga enn langt í land, og byggingarframkvæmdirnar míklu í Breiðholti, sem um var samið við verk- lýðsfélögin og áttu að hefjast í haust, munu ekki geta hafizt fyrr en á næsta ári. Gatnagerð og holræsi voru boðin út í þessum nýju hverfum, og voru gerðir samningar við fjögur verktakafyrirtæki, tvö á hvorum stað. Borgarsjóður hefur hins vegar ekki staðið í skilum við þessi fyrirtæki og mun nú skulda þeim miljónir króna. Af þessum á- stæðum hafa fyrirtækin komizt í vandræði og dregið úr fram- kvæmdum sínum; hafa vanskilin gerjgið svo langt að verkamenn hafa ekki fengið kaupgreiðslur á útborgunardögum. Þegar svo er komið leita verkamenn að sjálfsögðu annað. Heimta tryggingu Þegar samið var við verktakafyrirtækin urðu þau að leggja fram bankatryggingu til þess að öruggt væri að þau stæðu við skuldbindingar sínar, og nam hún 10% af samningsupphæðinni. Nú munu verktakar hafa við orð að bindast samtökum um að heimta bankatryggingu frá Reykjavíkurborg eftirleiðs ef samn- ingar eiga að takast svo að neyðarástandið frá því í sumar endur- taki sig ekki. Gefur raunar auga leið að vanskil af þessu tagi rýra Veiði 83ja skipa í fyrradag alls rúmlega 7542 lestir stórlega traust höfuðborgarinnar og valda því að verktakar verða ekkl áfjáðir í að bjóða í verk á vegum Reykjavíkur og gera hag- kvæm tilboð í þau. Mun leitun á höfuðborg í víðri veröld sem telur slík vanskil samræmast sóma sínum. Vöðsett útsvör! Ástæðan fyrir hinni stórfelldu fjárþurrð er hamslaus sóun í- haldsins fyrir borgarstjórnarkosningarnar, þegar ekkert var til sparað að reyna að vígja eina framkvæmdina af annarri. Var þá eytt miljónum og miljónatugum í óhagkvæmar sýndarframkvæmd- ir. í því skyni hagnýtti Reykjavíkurborg lánstraust sitt í bönkun- um til hins ýtrasta og mun í rauninni hafa veðsett bönkunum út- svarsgreiðslurnar fram eftir ári. Þess vegna halda vanskilin enn áfram, þótt verulegur hluti af útsvörum þessa árs hafi þegar ver- ið innheimtur. ® Neifuðu kvöldvinnu til þess að reka á eftir ráðuneytisafgreiðslunni á launamáium sínum Ráðuneytið frestar samt afgreiðslunni! Síðastliðinn þriðjudag lögðu tæknimenn sjónvarps niður vinnu kl. 5 og neituðu eftirvinnu. Er þetta gert til þess að reka S eftir ráðuneytisafgreiðslu á launamálum tæknimanna en frá 1. marz fengu hljóðvarpsmenn töluverða kauphækk- un og krefjast sjónvarpsmenn slíks hins sama. Tillögur um þessi mál hafa legið fyrir fjármálaráðuneytinu, en það ætl- ar ekkert í málinu að gera að sinni. Þá hafa að sögn Péturs Guðfinnssonar, sjónvarpsstjóra, átta tæknimenn sagt gtöð- um sínum lausum frá 1. des. að telja og eru það menn sem eiga í stappi við að korrtast ur 12. í 14. launaflokk. „Þjóðviljinn“ sneri sér í gær til Höskulds Jónssonar, deildar- stjóra hinnar nýskipuðu Launa- máladeildar - Fjármálaráðuneyt- lsins, og spurðist fyrir um þessi mál. Höskuldi fórust svo orð: „í marz sl. þegar, mál sím- virkjanna og símritaranna voru á döfinni, gekkst ráðuneytið inn á það, að símvirkjar yrðu hækk- aðir úr 12. í 14. launaflokk, ef þeir bættu við sig námskeiðum. Sömuleiðis skyldu símritarar hækka úr 12. í 13. launaflokk og þetta gilti einnig um starfsmenn í Gufunesi. Jafnhliða þessu var í bréfi ráðuneytishjs til B.S.R.B. sagt, að mál tæknimanna hjá Raforkumálaskrifstofu, Flug- málastjórn og Ríkisútvarpi yrðu leyst á svipaðan hátt. Símvirkj- Framhald á 7. síðu. Alyktun miðnefndar Samtaka her- námsandstæðinga um sjónvarpsmál Hagstætt veður var á síldar-, Sigurbjörg OF miðunum fyrra ,sólarhring og ] Mummi GK voru skipin að veiðum á svip- ] Gullfaxi NK uðum slóðum og undanfarna sól- Bjartur NK arhringa. AIls tilkynntu 83 skip afla, samtals 7.245 lestir. Dalatangi: Fróðaklettur GK 100 lestir Guðbjartur Kristján ÍS 65 — Sig. Jónsson SU. 120 — Barði NK 120 — Ólafur bekkur OB 70 — • Gísli Árni RE • 150 — Reykjanes G' 50 — Lómur KE 80 — Æskan SI 50 — Sigurborg S1 130 — Engey RE ; Jón Garðar GK ] Höfrungur III. AK i Ingiber Ólafss. II. GK Grótta RE Eldborg GK Bára SU Hólmanes SU Guðbjörg GK Ófeigur II. VE Einar Hálfdáns IS Guðmundur Péturs IS Guðrún Jónsd IS Framhald 150 - 60 — 70 — 150 — 120 — 70 — 85 — 150 — 80 — 40 — 40 — 60 — 150 — 80 — 30 — 140 — 75 — á .7. síðu. □ Á fypsta fundi nýkjörinnar miðnefndar Samtaka hernámsandstæðing'a voru eftirtald- ir kosnir í framkvæmdanefnd samtakanna til næsta árs: Árni Björnsson, cand. mag., Baldur Óskarsson, rithöfundur, Gils Guðmundsson alþingismaður, Heimir Pálsson, stud. mag., Ida Ingólfsdóttir, fóstra, Júníus Kristinsson, stud. mag., Loftur Guttormsson, sagnfræðingur. Ragnar Amalds, alþingismaður, Sólveig Hauks- dóttir, leiklistarnemi, Svavar Sigmundsson, cand. mag. Á þessum sama miðnefr.J- arfundi var samþykkt svo- félld ályktun um þau tíðindi, sem fram hafa komið í sjón- varpsmálinu: Samtök hernámsandstæðinga fagna því að ákveðið hefur verið að takmarka útsending- ar bandarísku sjónvarpsstöðv- arinnar á Keflavíkurflugvclli. Þessi ákvörðun er mikilsvcrð- ur sigur í baráttu samtak- anna gegn áhrifum herstöðva- stefnunnar, þótt harma beri hina lágkúrulegu frammistöðu íslcnzkra stjórnvalda í sjón- varpsmálinu. Samtökin vekja athygli á því, að ekki er allur vandi sjónvarpsmálsins Ieystur með þessari ákvörðun. Enn erekki fullljóst, hversu haldbær hin fyrirhugaða takmörkun Kefla- víkursjónvarpsins verður vegna Ioðins orðalags í yfir- lýsingum herstjórnarinnar um „næsta nágrenni" Keflavík- urflugvallar. Það er krafa samtakanna, að sjónvarp Bandaríkjamanna verði takmarkað við her- stöðvar þeirra og þeim gert að nota lokað kerfi fyrir her- stöðina á Keflavíkurflugvelli á sama hátt og nií er unnið að fyrir herstöðina í Hval: firði. Jafnframt er það krafa þeirra, að takmörkun her- sjónvarpsins gangi í gildi strax og íslenzka sjónvarpið tekur reglulega til starfa. í því sambandi leggja sam- tökin sérstaka áherzlu á, að sem bezt verði vandað til dagskrárefnis íslenzka sjón- varpsins og unnið verði eins hratt að útfærslu þess um Iandið og auðið er. Samtökin minna á, að eftir sem áður er Bandaríkjaher Iátið haldast uppi að starf- rækja útvarpsstöð í íslenzkri menningarhelgi, í trássi við landslög. 1 því sambandi vilja sam- tökin vekja athygli allra iandsmanna á því, að rekstur hins bandaríska sjónvarps og útvarps er aðeins afsprengj höfuðmeinsins: hinnar er- lendu hersetu. Fyrirsjáanleg takmörkun hins erlenda sjón- varps mætti verða öllum þjóð- hollum lslendingum hvatning til að efla baráttuna gegn bandarískum herstöðvum á landi voru.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.