Þjóðviljinn - 22.09.1966, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 22. september 1966 — ÞJÓÐVmiNN — SÍÐA J
Þing brezkra Frjálslyndra
hafnaði stuðningi við Nato
Mikið hföp var gert að formanni flokksins þegar hann
reyndi að verja framferði Bandaríkjamanna í Vietnam
LXDNDON 21/9 — Til tíðinda dró á þingi Frjálslynda flokks-
ins í Bretlandi í dag og urðu snörp átök milli yngri og eldri
manna á þinginu, einkum út af afstöðunni til Atlanzþanda-
lagsins. Þeim lyktaði svo að þingið felldi tillögur um að
lýsa yfir stuðningi flokksins við Nato.
Hinir yngri íulltrúar á þinginu
sem höfðu sig mjög í frammi
fengu knúið fram að tillagasem
fordæmdi harðlega ákvörðun
Frakka að segja slitið hernao-
arsamvinnunni við ,önnur Nató-
ríki var felld.
Þeir höfðu einnig meirihluta,
374 atkvæði gegn 314, í atkvæða-
greiðslu um tillögu flokksstjórn-
arinnar sem lýsti yfir stuðningi
flokksins við aðild Breta að
Atlanzhafsbandalaginu. f tillög-
unni var einnig haft orð á því
að gera ætti umbætur á banda-
laginu svo að önnur aðildarríki
en Bandaríkin fengju aukin á-
hrif. Eftir þá atkvæðagreiðs'lu
tók flokksstjómin aftur tillög-
una.
Formaður æskulýðssamtaka
Frjálslynda flokksins, George
Kiloch, sagði að tillaga stjórnar-
innar fæli í sér hvöt til flokk'-
ins að leggja fram sinn skerf til
að viðhalda kalda stríðinu.
Fjórðungur stjórnarmanna gekk
I lið með ungu fulltrþunum og
nægði það til þess að tillaga
stjórnarinnar var felld.
Kiloch sem sjálfur á sæti í
flokksstjórninni sagði að hún
hefði ekki gert sér grein fyrir
þeim breytingum sem átt hefðu
sér stað í A-Evrópu. Hann tók
fram að ungir Frjálslyndir hefðu
stutt vestræna samvinnu meðan
hún var nauðsynleg, en að þeir
vildu ekki styðja tillögu sem
væri þannig orðuð að ef John
Foster Dulles heitinn hefði heyrt
hana hefði hann dansað af fögn-
uði.
Hróp að formanninum.
Fyrr í dag hafði hinn nýi
formaður flokksins, Henley lá-
varður, lýst þeirri von sinni að
hægt yrði að endurskipuleggja
Nató þannig að bandalagið væri
í samræmi við. nýjar aðstæður,
en við það verk mættu menn
ekki láta stjórnast af niðurrifs-
hvötum eða fjandskap við Banda-
ríkin.
Mikið hróp var gert að Henley
lívarði þegar hann reyndi að
verja framferði Bandaríkja-
manna f Vietnam og það sem
hann kallaði viðleitni þeirra til
að koma' á friðarumleitunum.
jafnframt því sem hann gagn-
rýndi Kínverja fyrir að spilla
fyrir þeirri viðleitni.
„Isvestía" gefur í skyn:
Leynimakk • Kína
og Bandaríkjanna
MOSKVU 21/9 — „Isvestia“ svar-
aði í dag ásökunum Kínverjaum
leynimakk Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna í Vietnammálinu
með því að gefa í skyn aðKín-
verjar hefðu sjálfir samið á laun
við Bandaríkjamenn til að auð-
velda þeim loftárásir á skotmörk
i næsta nágrenni borga í Norð-
ur-Vietnam. Minnt var á að
Kína haldi stöðugu sambandi við
Bandaríkin með fundahöldum
sendiherra þeirra í Varsjá og
rifjuð voru upp ummæli Sén Ji
utanríkisráðherra, að Kínverjar
væru ekki alls ófúsir að taka
upp samninga við Bandaríkin
um Vietnam..
íegn
Paul Reynaud er
látinn. 88 ára
PARlS 21/9 — í dag lézt á
spítala í París Paul Reynaud,
einn nelzti stjórnmálamaður
Frakka á þessari öld,. 88 ára
gamall. Reynaud' var forsætis-
ráðherra í byrjun síðari heims-
styrjaldarinnar þegar Frakkar
biðu hinn mikla ósigur sinn fyr-
ir Þýzkalandi Hitlers. Hann stóð
sig þá betur en flestir hinna
borgaralegu stjórnmálamanna og
það kostaði hann fimm ára vist
f fangelsum Þjóðverja.
fari frá Kóreu
NEW YORK 21/9 — Sovétríkin
lögðu í dag fyrir allsherjarþing
SÞ ályktunartillögu um að það
50.000 manna herlið sem Banda-
ríkin hafa í Suður-Kóreu færi
þaðan. Tillagan var einnig und-
irrituð af fulltrúum Póllands,
Kúbu, Tékkóslóvakíu, Búlgaríu,
Ungverjalands,
Mongólíu.
Rúmeníu og
Eftir kosningarnar í Svíþjóð
Breytingar á stjórninni en
ekki þingrof og kosningar
STOKKHOLMI 21/9 — Svo
virðist nú, segir fréttaritari NTB
í Stokkhólmi, sem forysta
sænskra sósíaldemókrata eigi
tveggja kosta völ eftir ósigur-
inn mikla í kosningunum á
sunnudaginn, annaðhvort að
rjúfa þing og efna til nýrra
kosninga eða verða við kröfu
margra flokksmanna um að rík-
isstjórnin vérði endurskipulögð
og yngd upp.
Sennilegast er að síðari kost-
urinn verði tekinn. Átök eru
innan flokksstjórnarinnar og í
þingflokknum um það hvort
rjúfa skuli þing nú þegar eða
hvort nota eigi þau tvö ár sem
eftir eru af kjörtímabilinu til
að bæta vígstöðu flokksins. Þeir
sem vilja þingrofið telja að
flokksmönnum hafi hlaupið kapp
í kinn við áfallið á sunhudaginn
og þeir muni því leggja sig alla
fram ef nú yrði efnt til kosn-
inga. Hinir, og þeir virðast fleiri,
telja heppilegra að flokkurinn
noti næstu tvö ár til að vinna
sér aftur þær vinsældir sem
hann hefur glatað, en til þess
þurfi einnig að gera breytingar
á ríkisstjórninni. Þó er talið ó-
sennilegt að Erlander láti af
stjórnarforystu.
IV
Fréttaritari NTB segir að sós.
íaldemókratar séu sérstaklega á-
hyggjufullir vegna þess að
greinilegt sé af úrslitum kosn-
inganna að kommúnistar hafi
aukið mjög verulega hluta sinn
af atkvæðum þeirra sem kusu
í fyrsta sinn. Þeir geri annars
ráð fyrir að þriðjungur af því
fylgi sem þeir töpuðu hafi farið
til kommúnista, en tveir þriðju
til borgaraflokkanna.
HörB árás á aíra helztu
herstöð USA í Vietnam
Margar flugvélar löskuðust og mannfall varð
verulegt í skvndiárás á Chu Lai-flugstöðina
SAIGON 29/9 — Hermenn Þjóðfrelsisfylkingarinnar í Suð-
ur-Vietnam réðust snemma í dag með sprengjuvörpum á
hina miklu flugstöð Bandaríkjanna við Chu Lai, en það er
önnur stærsta herstöð þeirra í Suður-Vietnam; aðeins sú við
Danang er stærri.
SAO PAULO 21/9 — A.m.k. 300
stúdentar, af þeim 80 ungar
stúlkur, voru tekin höndum ?
Sao Paulo í Brasilíu í gærkvö’d
eftir að þeir höfðu efnt til mót-
•mælaaðgerða gegn stjómarvöld-
unum. Fjölmennu lögregluliði var
sigað á stúdentana, en borgarbú-
ar liðsinntu þeim með því að
stöðva lögreglubílana og hvöt+u
þá óspart að halda áfram mót-
mælunum. Stúdentar í Rio de
Janeiro og Belo Horizonte efndu
til samskonar mótmæla í síðustu
viku.
tfantraust i
var
von
felft
BONN 21/9 — Vesturþýzka þing-
ið felldi í dag með 246 atkvæð-
um stjómarflokkanna, Kristilegra
og Frjálsra demókrata, gegn 199
atkvæðum sósíaldemókrata til-
lögu þeirra um vantraust á Kai-
Uwe von Hassel, landvarnaráð-
herra.
Bandaríkjamenn viðurkenna
að margar flugvélar hafi lask-
azt í árásinni og segjast hafa
orðið fyrir manntjóni ,,í meðal-
lagi“, en það gefur til kyrína
að 15—40 prósent hermanna
þeirra í flugstöðinni hafi særzt
eða fallið. Skemmdir urðu einn-
ig á byggingum.
Um þrjátíu sprengjur féllu á
flugstöðina í þetta skiptií Þjóð-
frelsisherinn gerði síðast árás á
flugstöðina við Chu Lai í októ-
ber í fyrra.þegar hermönnum
hans tókst að komastinn á sjálf-
an flugvöllinn og koma þar fyr-
ir sprengjum við flugvélarnar.
Harðnandi bardagar
, Svo virðist af þessari frétt og
öðrum frá Saigon að Þjóðfrels-
isherinn láti meira til sín taka
um þessar mundir en hann hef-
ur gert alllengi. Harðir bardag-
ar hafa verið háðir milli hans
og bandárískra hermanna ’í hér-’
uðunum rétt fyrir sunnan 17.
breiddarbauginn og í dag var
sagt í Saigon að 'stutt en hörð
orusta hefði orðið milli hans og
Saigonhermanna á hrísgrjóna-
ekrum um 40 km fyrir sunnan
Saigon.
Flóð í Suður-Vietnam
Mikll vöxtur er í stórfljótun-
um Mekong og Bassac er renna
um Kambodju inn í suðurhéruð
Suður-Vietnams og hafa orðið
mikil flóð í landamærahéruðun-
um síðustu daga. Um 10.000
manns eru sögð hafa flúið heim-
ili sín. Horfur eru á því að flóð-
in séu að ná hámarki, en hætta
er ennþá á ferðum. Fréttaritari
brezka útvarnsins í Saigon seg-
ir að ef flóðin verði svipuð og
þau sem urðu árið 1961 muni
bau auðvelda skæruliðum bar-
áttuna.
Loftorustur
Enn í dag urðu loftorustur yf-
ir Norður-Vietnam milli banda-
rískra flugvéla og norðurviet-
namskra af MIG-17 gerð, en í
Saigon er sagt að engin flugvél
hafi verið skotin niður.
George Ball, einn fálkanna
í Washington, segir af sér
.... i u—ajr-
WASHINGTON 21/9 — Einn af
hinum svonefndu „fálkum“ ,í
Washington, George Ball vara-
utanríkisráðherra, hefur látið af
embætti, en Nicholas Katzen-
■—a-vv"■wwtun*-.*"1 '.v.'1 = v :
FerS „Survéyors 2.
hefur miskzppnuit
Faiið tók að kollsteypast eftir leiðréttingu
á braut þess, mun líklega molast í lendingu
PASADENA 21/9 — Svo virðist nú sem tilraun Bandaríkja-
manna til að láta tunglfarið „Surveyor 2.“ lenda hægri lend-
r ráðunautar Kennedys
fordæma stríðið í Vietnam
Schlesinger: LBJ mikill forseti ef ekki væri Vietnam
Goodwin: Bandaríkjastjórn blekkir þjóðina um stríðið
NEW YORK — Tveir af helztu ráðgjöfum Kennedys heitins
forseta hafa farið hörðum orðum um stefnu Bandaríkjanna
í Vietnam og hernað þeirra þar.
ingu á tunglinu muni mistakast, og það muni í
splundrast í lendingunni.
Snemma í gær hafði verið
reynt að gera smávægilega leið-
réttingu á braut tunglfarsins svo
að það hæfði nákvæmlega þann
stað á tunglinu sem ákveðinn
hafði verið. Svo illa tókst til að
aðeins tvær af þremur stýris-
flaugum tunglfarsins fóru í
gang og það tók því að snúast
um eigin öxul, eða kollsteypast
um sjálft sig.
Aftur í morgun voru gerðar
tvær tilraunir til að stöðva
möndulsnúning tunglfarsins, en
þær báru ekki tilætlaðan árang-
ur, heldur varð snúningurinn
enn örari.
staðinn
Litlar vonir eru taldar til þess
að úr þessu takist að stöðva
snúninginn, en ef það heppnast
ekki verður ekki hægt að setja
hemlaeldflaugar tunglfarsins í
gang þegar það nálgast tunglið
og því allar líkur á því að það
muni splundrast í lendingu.
Þetta hefur vakið mikil von-
brigði hinna bandarísku vís-
indamanna, ekki sízt vegna þess
hve vel tókst til með fyrstu
Surveyor-tilraunina i júní sl.
Hvert „Surveyor“-far kostar
rúma 4 miljarða íslenzkra króna.
Ætlunin hefur verið að senda
sex slík för til tunglsins.
Sagnfræðingurinn, prófessor
Arthur Schlesinger jr„ segir í
grein í „New York Times
Magazine“ að ..Bandaríkin haldi
með vaxandi hraða í algeraj;
ógöngur sem hafi mátt forð-
ast“. Hann leggur til að dreg-
ið verði úr hernaðinum í Viet-
nam og hvetur til þess að leit-
að verði að pólitískri lausn af
jafnmiklum ákafa og reynt hef-
ur verið að vinna hernaðarsig-
ur sem sé hvort sem er óvinn-
anlegur.
Hann leggur til að Vietnam
verði gert hlutlaust land og eru
tillögur hans mjög áþekkar
þeim sem Avon lávarður (Ant-
hony Eden) bar nýlega fram.
t
Þjóðarnefnd gegn stríðinu
Annar af ráðgjöfum Kenned-
ys, Richard Goodwin, hefur
einnig gagnrýnt harðlega strið
Bandaríkjanna í Vietnam. í
ræðu sem haijn hélt á fundi
samtakanna „Americans for
Democratic Action“ lagði hann
til að komið yrði á fót „þjóðar-
nefnd gegn frekari útfærslu
stríðsins".
Hann fór sérstaklega hörðum
.orðum um tilraunir Bandaríkja-
stjórnar til að blekkja banda
rísku þjóðina um eðli og gang
stríðsins. Hann sagði m.a. að
„aldrei hefðu orðið önnur eins
vonbrigði með neitt stríð og
annað eins öngþveiti. Það hefur
kyngt svo niður mótsögnúm,
missögnúm og spásögnum að
Schlesinger og Kennedy
það er nærri því ógerningur að
gera greinarmun á lygi og
sannleika“.
Jarðýta í skrúðgarði
Schlesinger segir að einm
hernaður Bandaríkjanna í Vi
etnam, beiting stórra sprengju
flugvéla og herskipa gegn
skæruliðum, sé fyrir neðan all-
ar hellur. Það er eins og -að
nota jarðýtur í skrúðgarði. Við
getum kannski hreinsað nokk-
ur beð, en við gröfum jafn-
framt upp mestallan túnblett-
inn. Við spillum með aðferðum
okkar því sem við sóttumst
eftir. Johnson forseti hefur
ekki haft neitt vit á því hvaða
vopnum átti að beita og hefur
ekki tekið æeitt, tillit til þess
hvers konar stríð er um að
ræða. Lyndon B. Johnson hefði
getað tryggt sér sess í banda-
rískri sögu sem stórbrotinn
forseti vegna fyrirætlana sinna
um „hið mikla samfélag“, en
það samfélag er úr sögunni
vegna Vietnams, segir Schles-
inger.
Hætta útfærslu
Schlesinger leggur til að leit-
azt sé við að finna lausn sem
sé miðja vegu milli auðmýkj-
andi undanhalds og frekari út-
færslu stríðsins. Fyrst verði að
ákveða að haétta við að færa
út stríðið og auka þátttöku
Bandaríkjamanna í því. Veita
ætti almenna sakaruppgjöf og.
hætta að pynda fanga. Stöðva
verði þegar í stað loftárásirn-
ar á Norður-Vietnam og bjóða
Þjóðfrelsisfylkingunni samn-
•'nssaðild. Henni ætti einnig
'!ð veita aðild að stjórn sem
síðar ýrði mynduð á sama hátt
’g Pathet Lao fékk ráðherra
i stjórninni í Laos. segir
Schlesinger.
bach dómsmálaráðherra tekið
við af honum.
Johnson forseti skýrði "frá
þessu á fundi með blaðamönn-
um í Washington í dag. Það hpf-
ur verið vitað alllengi að Éafl
hafði í hyggju að segja af sér,
og er ein af ástæðunum og jafn-
vel sú helzta talin sú að honum
hefur þótt Johnson forseti sýna
de Gaulle of mikla linkind.
Hann hefur krafizt þess að
Bandaríkin létu hart mæta
hörðu, slitu jafnvel öllu sam-
starfi við Frakka í hefndarskyni
við þá ákvörðun de Gaulle að
hætta hernaðarsamvinnu við
önnur Nato-ríki. Ball var yfir-
maður Evrópudeildar utanríkis-
ráðuneytisns.
Nýr dómsmálaráðherra hefur
ekki verið skipaður í stað Katz-
enbachs, en ráðið hefur verið
í tvær aðrar stöður í utanríkis-
ráðuneytinu sem hafa verið laus-
ar nokkum tíma. Eugene Ros-
tow, lagaprófessor við Yalehá-
skóla, tekur við stöðu aðstoðar-
ráðherra sem Thomas Mann
sagði lausri í júní, og Foy Koh-
ler, sendiherra í Moskvu, við
þeirri sem losnaði þegar U. Al-
exis Johnson varð sendiherra í
Japan. Þetta eru þrjár æðstu
stöður í utanríkisráðuneytinu
fyrir utan sjálft embætti utan-
ríkisráðherra.
Rusk að hætta.
Þessi miklu mannaskipti í ut-
anríkisráðuneytinu eru ekki tal-
in vera nein tilviljun. Þau stafa
af njegnri óánægju embættis-
manna ráðuneytisins með yfir-
stjórn Deans Rusks, og hefur
bví verið fleygt að hann muni
brátt láta af embætti. Þykir nú
líklegast að Katzenbach muni
taka við af honum.
Tweir
i RÁ(le$<u í ?ær
SALISBURY 21/9 — Tvejr Afr-
íkumenn voru í dag dæmdirtil
dauða í Salisbury fyrir að hafa
kastað handsprengju inn í veit-
ingahús í borginni 12. ágúst sl.
Þriðji sakborningurinn var sýkn-
aður. Báðir hinna dæmdu héldu
fram sakleysi sínu.