Þjóðviljinn - 23.09.1966, Side 4

Þjóðviljinn - 23.09.1966, Side 4
1 4 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN — Föstudagur 23. september 1966 Otgefandi:' Sameiningarflokkair alþýdu — Sósíalistaflokk- urinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson. Sími 17-500 (5 línur). Askriftaarverð kr. 105.00 á mánuöi. Lausa- söluverð kr. 7.00. Stöðvast síldveiðarnar? 'IV'okkur líkindi virðast til þess að ríkisstjórninni verði enn nokkuð ágengt í hinni sérkennilegu viðreisn sem meðal annars hefur skýrt komið fram í hruni togaraflotans og stórfelldum erfiðleikum mikils hluta vélbátaflotans. Getur svo farið að dragi ’til stöðvunar síldveiðiflotans inrian skamms ef rokið verður til og síldarverðið stórlækkað. Nú þegar er hafin áróðursherferð í útvarpi og blöðum til að réttlæta lækkun, og er Sveinn Bene- diktsson ófeiminn að skýra frá því að honum hafi tekizt að hafa hallarekstur á Síldarverksmiðjum ríkisins og á manni að skiljast að allt sígi þar á ógæfuhlið. Hins vegar hefur ekki virzt að rekstur síldarverksmiðja væri sérstaklega óarðbær- und- anfarin ár, og mætti sennilega hafa nokkurt mið af því hve mjög þeim hefur fjölgað, íslenzkir af- vinnurekendur eru ekki þekktir fyrir það að festa fé sitt í atvinnufyrirtækjum af hugsjónaástæðum, heldur leita fjármunir þeirra gjarna þangað sem gróða er von; hitt er svo nánast reikningsatriði hvernig þeir geta samt sem áður alltáf verið að tapa og þurfa að vera á ríkisstyrkjum með rekstur sinn áratug eftir áratug, hvað sem líður blessun einkaframtaksins. * ¥|VÍ var haldið fram í verðlagsráði sjávarútvegs- * ins í fyrrasumar að síldarverksmiðjumar á Austurlandi hefðu grætt á einu ári um miljón króna að.meðaltali af hverjum síldarbát sem þær skiptu við að staðaldri, og mundi mörgum þykja myndarlega að verið. Og enn er með öllu óupp- gerður, og óbættur einn stærsti þjófnaður sem upp hefur komizt á íslandi; þjófnaðurinn af síld- veiðimönnum með mælingu síldarinnar. Mörgum sjómanni og útgerðarmanni myndi virðast svo sem þeir ættu nokkuð inni hjá síldarverksmiðjunum og öðrum vinnslustöðvum og óþarft sé og ófærf að sveifla síldarverðinu til stórfelldrar lækkunar um leið og afurðir lækka á mörkuðum og meðan óséð er hvort sú lækkun verður varanleg. * F^eir geta náttúrlega brallað saman stórfellda * lækkuri síldarverðsins, bræðumir Sveinn og Bjarni Benediktssynir, en alls óvíst að síldveiði- sjómenn héldu þá áfram að veiða síld. Sjómenn hafa sýnt þessari ríkisstjórn í tvo heima og m.a. afnumið með því bráðabirgðalög sem þeir vildu ekki una. Mundi því ráðlegt að stjórnarvöldin kynntu sér það áður en síldarverðið verður end- anlega ákveðið að þessu sinni hvort síldveiðarnar muni halda áfram að þeirri verðákvörðun gerðri. Það gæti sparað ríkisstjórninni að vinna eitt hinna sérs'tæðu afreka í atvinnulífinu sem menri þekkja orðið svo vel af reynslu. o? riióðinni allri það tjón sem af því yrði að síldarvertíðin í ár yrði ekki lengri en cwrðið er. — s. Stofnað félag til að vinna a& vd> ferðarmálum heyrnardaufra barna Q Nýlega hefur verið stofnað Foreldra- og styrktarfélag heyrnar- daufra og er markmið félagsins að vinna að margháttuðum vel- ferðarmálum heyrnar- daufra bama og efla starfsemi Heyrnleys- ingjaskólans. í frétta- tilkynningu sem Þjóð- viljanum barst 1 gær frá félaginu segir svo um s’fofnun þess og til- gang: Dagana 14,—16- september var haldið námskeið á vegum Heyrnleysingjaskólans fyrir foreldra heymardaufra barna: Eftirtaldir aðilar fluttu fræðsluerindi: Guðmundur Eyj- ólfsson, læknir, sem talaði um eymasiúkdóma og mögulega meðferð þeirra. Gylfi Balduns- són, heyrnarfræðingur, talaði um heyrnarmælingar og heym- arfræði og Sigurjón Björnssón, sálfræðingur, talaði um upp- eldisvandamál heyrnardaufra bama- Almennar umræður og fyr- Frá foreldranámskeiði Heyrnleysingjaskólans. — (Ljósm.: Bj. Bj.). sakar málleysi eins og kunnugí er, en þeir sem hafa lítið og ófullkomið mál, einangrast oft- ast frá öðru fólki, verða ein- mana og flestir misskilja þá. Megintilgangur allrar kennslu heyrnardaufra er að kenna þeim mál og opna þeim þannig leið til að blanda geði viðsam- borgara sína og njóta þess annars, sem málið veitir mögu- Tveir nemenda í Heyrnleysingjaskólanum. irspurnir voru að erindunum loknum. Þá héldu skólastjóri og kenn- arar skólans umræðufundi með föreldrum, kom þar fram að heyrnardauf böm hafa stund- um komið seinna en æskulegt væri til sérstakrar meðferðar, þó veruleg bót hafi orðið á því með tilkomu Heymarhjálpar- stöðvarinnar. Einnig voru sýndar fræðslukvikmyndir. Voru þátttakendur milli 50 og 60 víðsvegar að af landinu. Þá var stofnað Foreldra- og styrktarféiag heymardaufra til þess að vinna að margháttuðum veiferðarmálum þeirra. Heymardeyfa á háu stigi or- leika til. Blindur maður sér hvorki lögun né liti og heyrn- ardaúfur maður, sem lifir að mestu í hljóðlausum heimi skynjar lítt eða ekki flestþað, 'sem heyrandi fólk hefur unun af að hlusta á. Þetta getur enginn m^nnlegur máttur bætt þeim að fullu. En með því að kennaheyrn- ardaufum mál, er þeim veitt sú mesta mögulega hjálp til að njóta eðlilegra samvista við meðbræður sína. Til þess að stuðla að því, að þetta geti tekizt í sem rík- ustum mæli, vill félagið halda uppi sém víðtækastri fræðslu- starfsemi meðal foreldra heym- Námstón og námsstyrkir Umsóknir um lán eða styrki af fé því sem Menntamálaráð íslands kemur til með að út- hluta næsta vetur til íslenzkra námsmanna eriendis, eiga að vera komnar til skrifstofu Menntamálaráðs aþ Hverfisgötu 21, eða í pósthólf 1398, Reykja- vík, fýrir 1. des næstkomandi. Námsstyrkir eða námslán eru ekki veitt til þess náms. sem auðveldlega má stunda hér á lanþi. Nám, sem tekur skemmri tíma en tvö ar erlendis, er yf- irleitt ekki styrkt- Umsóknir skulu vera á sér- stökum eyðublöðum, sem fást í skrifstofu Menntamálaráðs og hjá sendiráðum Islands erlend- is. Prmskírteini og önnur fylgi- skjöl með umsóknum þurfa að vera ljósrit eða staðfest eftir- rit, þar eð þau verða geymd í skjalasafni Menntamálaráðs, en ekki endursend. Námsmenn sem sækja um framhaldslán eða styrki, eru minntir á að senda ný vottorð frá fnenntastofnun þeirri, sem þeir stunda nám við. Vottorðin eiga að vera frá því í október eða nóvember í ár- (Frá Menntamálaráði). ardaufra bama og almennings um vandamál þessa fólks, jafnframt því, að styðja og styrkja starfsemi Heyrnleys- ingjaskólans og aðstoða heym- ardaufa við val á lífsstarfi eða til framhaldsmenntunar. Félag- ið væntir góðs samstarfs við þá aðila, sem vilja vinna að þess- um málum. Fundurinn samþykkti starfs- áætlun fyrir næsta ár og fól stjóminni m.a. að láta þýða og dreifa fræðsluriti fyrir foreldra um uppeldi heyrnardaufra barna undir skólaaldri — það er undir 4ra ára aldri. Stofnendur félagsins teljast þeir sem gerast meðlimir á 'fyrsta starfsári þess. Félagið mun leggja kapp á að aflasem flestra styrktarmeðlima. Stjóm félagsins er þannig skipuð: For- maður Vilhjálmur Vilhjálmssom símvirki, gjaldkeri Hailgrímur- Sæmupdsson kennari og ritari Hákon Tryggvason kennari. Þeir sem vilja hafa samband við félagið geta snúið sér til ein- hvers stjómarmanna, utaná- skrift til félagsins er þannig. Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra, Stakkholti 3, Reykjavík. ■ Ti nr^ayri t- f/y-i1: y ÁBYRGÐ Á HÚSGÖGNUM Athugið, að merki þetta sé ó husgögnum, sem ébyrgðarskírteini fylgir. KaupiS vönduð húsgögn. f 02542 FRAMLEIÐANDI í : NO. HÚSGAGNAMEISTARA- FÉLAGI REYKJÁVÍKUR HÚSGAGNAMEISTARAFÉLAG REYKJAVÍKUR BLAÐDR Blaðburðarfólk óskast í eftirtaiin hverfi: Framnesveg Höfðahverfi Hverfisgötu I og n Langholtsveg. ÞJÓÐVILJINN Sími 17-500. KÓPAVOGUR: Blaðburðarbörn óskast í Kópavog. ÞJÓÐVILJINN Sími 40-753.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.